Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2003, Síða 23
FIMMTUDAGUR 12. JÚNÍ 2003
agasm
Hvab ætlar þú ab gera
um helgina?
Blómleg
hótíð í
Borgarfirói
„Ég hlakka mikið til helgarinnar
enda er dagskráin hjá okkur afar
fjölbreytt. Veðurspáin er góð, en
það sem er ef til vill skemmtilegast
er hve fólk hér í Borgarfirði er vel
með á nótunum og líklegt til að
verða virkir þáttakendur í þeim
dagskrárliðum sem eru í boði,“ seg-
ir Margrét Björk Björnsdóttir. Hún
er framkvæmdastjóri Borgfírðinga-
hátíðar sem hefst á morgun, íostu-
dag, og stendur fram yflr helgi.
„Hér er margt í boði fyrir alla
fjölskylduna," segir Margrét. Á
fóstudagskvöld verður Baðstofu-
kvöld í Logalandi þar sem leikfélög
í Borgarfirði koma fram - sem og
Halli og Laddi. Á laugardag kl. 13
hefst Borgfirsk blanda, sem er
markaðstorg og fyrirtækjakynning i
íþróttahúsinu og þar í kring. Verð-
ur þar brugðið ljósi á atvinnu- og at-
hafnalíf í Borgar-
firði. Þá verður á
laugardagsmorgun
Brákarhlaup,
kvennaskokk í
minningu Þorgerðar
brákar.
Á sunnudag er öll-
um boðið í morgun-
verð í Skaliagríms-
garði og útimessa
verður í framhaldi
af því. „Eftir þessa andlegu og lík-
amlegu næringu verður fólk tilbúið
í allt. Þá er hægt að fylgjast með
Röftunum - vélhjólaklúbbnum - eða
skrá sig í þríþraut við Hreppslaug.
Þar verður hjólað, hlaupið og synt.
Þeir sem vilja hafa það svolítið
huggulegra skreppa upp i Skorradal
þar sem hægt verður að fara í báts-
ferð á vatninu, í skógargöngu meö
Veöurspáin er góö og fólk hér í Borgarfiröi er vel meö
á nótunum," segir Margrét Björk Björnsdóttir.
skógarverði eða taka þátt í flug-
drekamóti á Indriðastöðum," segir
Margrét.
Hún segir að tilvalið sé fyrir alla
að skreppa í Borgarfjörð um helg-
ina. Hún tilgreinir að nýlega sé búið
að opna nýtt tjaldsvæði í Borgarnesi
- og því sé aðstaða fyrir ferðamenn
á svæðinu alveg fyrsta flokks,
hvernig sem á mál sé litið. -sbs
„Svo rútan ómaöi öll þar sem tuttugu
farþegar sungu viö raust,“ segir Flnn-
bogi Eyjólfsson sem gegnir starfi
blaöafulltrúa Heklu hf.
Tónlistin í hlustunum:
Enginn gerir betur
en MA-kvartettinn
„Undanfarið hef ég mikið verið að hlusta á Björn Thoroddsen og félaga
hans í tríóinu Guitar Islancio. Þetta er óskaplega mikO snilld þar sem þeir
félagar leika íslensk þjóðlög og ýmsa aðra músík með djassívafi. Eitthvað
sem ég hef alltaf mjög gaman af,“ segir Finnbogi Eyjólfsson, blaðafulltrúi
Heklu hf.
Einnig kveðst Finnbogi hafa stundum að undanfornu hlustað á kvartett-
inn Út í vorið. „Það er fallegur söngur og sérstaklega fmnst mér gaman þeg-
ar Signý Sæmundsdóttir syngur með þeim einsöng í ýmsum fallegum íslensk-
um lögum. Að sumu-ieyti minnir þetta mig á MA-kvartettinn sem ber höfuð
og herðar yfir alla aöra sönghópa sem komið hafa fram á sjónarsviðið hér-
lendis. Enginn gerir betur en þeir, svo sem Jón frá Ljárskógum þar sem hann
syngur „Draumljúfa nótt“ í Næturljóði. Það hríslast um mann þegar maður
heyrir þann söng.“
Utan þetta kveðst Finnbogi alltaf hafa gaman af djasstónlist sem og ís-
lenskum einsöngs- og ættjarðarlögum. „Þar kemur líklega til það tónlistar-
uppeldi sem ég fékk í gegnum Ríkisútvarpið á sinum tíma. Einnig man ég eft-
ir rútubílaferðalögum austan úr Rangárþingi þar sem sungið var frá Stórólfs-
hvoli og alla leið í bæinn. Einn byrjaði og síðan komu allir hinir; svo rútan
ómaði öll þar sem tuttugu farþegar sungu við raust, allir í kór.“ -sbs
Bækurnar á náttbordinu:
Skáld um skáld og
Selsomt selskap
„Ég er oftast með eina eða fleiri bækur á náttborðinu til að grípa í, þó
stundum liggi þær þar í nokkurn tíma þegar lestrarandinn er ekki yfir mér,“
segir Sigþrúður Loftsdóttir, iðjuþjálfi á Grensásdeild Landspítala háskóla-
sjúkrahúss.
„Eins og er liggja þar tvær bækur sem hvor um sig inniheldur stuttar frá-
sagnir sem þægilegt er að grípa. Önnur bókin er Skáld um skáld. Það er bók
sem Félag bókaútgefenda gaf nýverið út í tilefni viku bókarinnar. Þetta er
safn greina eftir tuttugu skáld og fræðimenn sem segja frá skáldum sem haft
hafa áhrif á þá. Þama eru margar skemmtilegar greinar sem gefa smánasa-
sjón af því hvemig skáldin skrifa, bæði þau sem fjallað er um og líka þau sem
skrifa greinamar. Hin bókin er Selsomt selskap, 13+1 underlige fortellinger
eftir norska höfundinn Roald Dahl. Þetta er smásagnasafn og em sannarlega
undarlegar frásagnir, stundum óhugnalegar og oftast með mjög óvæntum
endi,“ segir Sigþrúður.
Hún segir að ekki sé langt síðan hún lauk við bókina Drömmen om Ngong
eftir Lennart Hagerfors. „Þetta er skáldsaga byggð á ævi barons Brors von Bl-
ixen-Finecke sem var giftur Karen Blixen og á að segja frá lífi þeirra íAfríku,
séð frá hans hlið. Annars verð ég bráðum að leggja skáldsögurnar á hilluna
og taka fram fræðibækur starfsins vegna,“ segir Sigþrúður að síðustu. -sbs
„Undarlegar frásagnir meö óvæntum
endi,“ segir Sigþrúöur Loftsdóttir.
Magasín-mynd E.ÓI.
bttp'J/simnet. is/bomedecorl928/
Skoðið heimasiðuna
okkar ogkíkið átilboðin
Mikið úrval
af nýjum vörum
í frönsku Ifnunni
Mjög hagstætt verð.
Eftirfarandi verslanir bjóöa þessar vörur:
Blómabúöin Dögg, Bæjarhrauni 26, Hafnarfirði
Blómahafiö viö Gullinbrú, Stórhöfða 17, Rvk
Blómahúsiö, Kirkjubraut 14, Akranesi
í húsi blóma, Spönginni, Grafarvogi
/I horni Laugavegar og Klapparstígs
Heildsöludreifing
Sjanghæ
kínverskur veitingastaður
Elsta kínverska veitingahúsið á íslandi
Hlaðbord í hádeginu
Kr. 980 - 6 réttir
Vió erum einnig með aðstöðu fyrir allt
að 100 manns, tilvalið fyrir veisluna þína!
Laugavegi 28 • 101 Reykjavík • Sími: 551 6513
í einum af hitaveitutönkum Perlunnar. Innifalin er leiðsögn
a geisladiski á nokkrum tungumálum.
SÖGUSAFNIÐ • PERLAN
Opið 10-18 - sími: 511 1517 / 511 1518
www.sagamuseum.is - netfang: agusta@backman.is