Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2003, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIR FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 2003
HONDA
Kraftmikil fjölskylda
Honda Accord Comfort 2.oi
- bíll ársins 2003
155 hestöfl, 5 gíra,
6 loftpúðar, ABS með EBD,
rafmagn í rúðum og speglum,
CD o.fl. Kraftmikill fjöskyldubíll!
Verð kr. 2.195.000
Rekstrarleiga* frá kr. 36469
Honda Accord Sport 2.oi
- bíll ársins 2003
155 hestöfl, sjálfskiptur,
6 loftpúðar, ABS meo EBD,
loftkæling, 16” álfelgur, rafmagn
í rúðum og speglum, CD o.fl.
50% leðurinnrétting
Verð kr. 2495.000
Rekstrarleiga* frá kr. 41.305
HondaAccord Tourer
Comfort 2.0Í - bíll ársins 2003
155 hestöfl, sjálfskiptur,
6 loftpúðar, ABS með EBD,
rafmagn í rúðum og speglum, CD
o.fl7 Mikið farangurspláss!
Verð kr. 2495.000
Rekstrarleiga* frá kr. 41.305
HondaCivic 1.6ÍLS
110 hestöfl, sjálfskiptur,
2 loftpúðar, ABS með EBD, allur
samlitur, rafmagn í rúðum og
speglum, CD o.fl.
Verð kr. 1.849.000
Rekstrarleiga* frá kr. 31463
HondaJazz 14Í
83 hestöfl, 5 gíra,
4 loftpúðar, ABS með EBD,
allur samlitur, rafmagn í
rúðum og speglum, CD o.fl.
BílTársins 2003
í sínum flokki!
Verð kr. 1.535.000
Rekstrarleiga*
frá kr. 26.581
3ja ára ábyrgð • 8 ára ryðvarnarábyrgð • Útreikningur rekstrarleigu miðast við 36
mánuði. I rekstrarleigu eru innifaldar smur- og þjónustuskoðanir. Rekstrarleiga er háð
breytingum á gengi erlendra mynta og vöxtum þeirra.
Umboðsaðilar:
Reykjanesbær, Bilavfk, simi 421 7800
Akranes, Bllver, símÍ43i 1985
Akureyri, Höldur, sími 461 6020
Vestmannaeyjar, Bragginn, simi 481 1535
HondaHRV i.6i
Fjórhjóladrif, 105 hestöfl,
5 gíra, 4 loftpúðar,
ABS með EBD, allur samlitur,
rafmagn í rúðum
og speglum, CD o.fl.
Verð kr. 2.059.000
Rekstrarleiga* frá kr. 34.605
Honda CRV Advance 2.0Í
Fjórhjóladrif, 150 hestöfl,
sjálfskiptur, 4 loftpúðar, ABS
með EBD, loftkæling, 50% leður-
innrétting, álfelgur og allur
samlitur, rafmagn í rúðum og
speglum, CD o.fl. Frábær bíll fyrir
þá sem ferðast!
Verð kr. 2.949.000
Rekstrarleiga* frá kr. 48.209
Bernhard ehf. Vatnagarðar 24 - 26 Sími 520 1100
Stóraukin verðbréfakaup
VERÐBRÉF: Á árinu 2003
hafa hrein kaup Islendinga
á erlendum verðbréfum
aukist mjög mikið og námu
um 3,1 milljarði króna á
mánuði frá janúar til sept-
ember samanborið við um
1,8 milljarða króna á mán-
uði á sama tímabili árið
2002. Samkvæmt saman-
tekt tölfræðisviðs Seðla-
banka Islands um nettó-
kaup erlendra verðbréfa
hafa þau alls numið 27.994
milljónum króna fyrstu níu
mánuði ársins. Nettókaup
á hlutdeildarskírteinum í
erlendum verðbréfasjóðum
námu 2.536 milljónum
króna í september sl. en
þau námu um 701 milljón
króna í sama mánuði árið
2002. Þá námu nettókaup á
erlendum hlutabréfum
1.744 milljónum króna nú í
september á móti 905
milljónum í sama mánuði í
fyrra. Nettókaup skulda-
bréfa námu síðan 707 millj-
ónum króna nú en engin
viðskipti voru með skulda-
bréf í septembermánuði
árið 2002.
Ný götuljós
GÖTUUÓS: Síðdegis á morg-
un, föstudag, verður kveikt á
nýjum umferðarljósum í
austurborginni; það er á
gatnamótum Álfheima og
Langholtsvegar. Þangað til
að kveikt verður verða Ijósin
látin blikka á gulu Ijósi. f frétt
frá gatnamálastjóra eru öku-
menn beðnir að sýna aðgát
og tillitssemi.
Hraðar breytingar á norðurheimskautinu vegna hiýnunar:
Sjaldaneða
aldrei eins lítill
hafís og í sumar
NORÐURPÓLLINN: Myndir NASA af breytingum á ishettunni á Norðurpólnum. Fyrri
myndin sýnir ástandið 1979, en sú síðari íshettuna eins og hún er nú árið 2003. Eins og sjá
má hefur ís bráðnað á gr íðarlegu flæmi og styttist óðum í að siglingaleið verði fær yfir
heimskautið. Is á stærsta ísflákanum við Ellesmere-eyju er farinn að brotna upp, en slíkt
hefur ekki gerst að mati visindamanna í þúsundir ára.
ís á norðurheimskautinu bráðn-
ar nú hraðar en nokkru sinni
fyrr og hefur sjaldan eða aldrei
áður mælst eins lítill og í sumar.
Hiti hefur aukist átta sinnum
hraðar á svæðinu síðustu tvo
áratugi heldur en 100 ár þar á
undan. Pólarísinn minnkar nú
um 9% á áratug.
Greint var í DV íyrir skömmu frá
rannsóknum vísindamanna hjá Sir
Alistair Hardy hafvísindastofnun-
inni í Plymouth en þeir lýsa hruni
lífríkis í Norðursjónum vegna hlýn-
unar sjávar. Uppistaða fæðu þorsks
og annarra tegunda, rauðátan, er
að hverfa og reikna þeir með að
þorskur hverfí af svæðinu á næstu
áratugum. Fyrir liggur að óvenju-
hlýr sjór hefur streymt upp að
ströndum íslands úr suðvestri und-
anfarin þrjú til fjögur ár.
Rannsóknir sýna að
sjaldan eða aldrei hafi
mælst jafnlítill ís yfir
sumartímann og nú í
sumar og kemur það í
kjölfar mikillar bráðnun-
ar í fyrra.
Gögn sem Josefmo Comiso, vís-
indamaður hjá Goddard geimflugs-
miðstöð NASA, tók saman sýna að
hitastig á mestöllu norðurheim-
skautinu hefur hækkað umtalsvert
síðan á níunda áratugnum, mest
yfir Norður-Ameríku. Sýna rann-
sóknir að pólarísinn minnkar nú
ört, eða um 9% á áratug.
Þessi gögn verða gefin út 1. nóv-
ember í American Meteorological
Society’s Journal of Climate. í sam-
anburðartölum varðandi yfirborðs-
hita á milli áranna 1981 og 2001
kemur fram að hitaaukningin á
þessum árum var átta sinnum
hraðari en meðaltal síðustu 100
ára.
Gögnin byggjast á infrarauðum
myndum, teknum úr gervihnöttum
sem reknir eru af National Oceanic
and Atmospheric Administration
og hringsóla yfir heimskautunum.
Samkvæmt þessum gögnum nær
hlýnunin yfir mestallt norðurheim-
skautið. Hitinn á svæðum sem
venjulega er þakin ís hefur hækkað
um 1,22° á Celsíus að meðaltali á
áratugyfir sumartímann. Það hefúr
í för með sér að það vorar fyrr og
hiti helst lengur fram á haustið.
Ákveðin svæði virðast þó á skjön
við heildarútkomuna og þar á með-
al er Grænland, þar sem hitinn hef-
ur lækkað þennan árstíma sum ár
um allt að 0,9° á Celsíus.
Þá sýna niðurstöður kín-
verskra vísindamanna
eftir 74 daga leiðangur,
sem lauk í september, að
meðalþykkt hafíss er nú
8,8 fet, eða 2,6 metrar,
en var 15 fet, eða 4,6
metrar, á níunda ára-
tugnum.
Aldrei minni hafís
Sumarið í sumar virðist hafa haft
mikil áhrif á bráðnun haffss. Rann-
sóknir Mark Serreze hjá Boulder-
háskóla í Colorado, sem einnig eru
fjármagnaðar af NASA, sýna að
sjaldan eða aldrei hafi mælst jafn-
lítill ís yfir sumartímann og nú í
sumar og kemur það í kjölfar mik-
illar bráðnunar í fyrra.
Nýlega voru kynntar bandarískar
og kanadískar rannsóknir sem sýndu
að stærsta samfellda íshellan á norð-
urskauúnu, 270 fermflna Ward Hunt
íshellan meðffam strönd Ellesmere-
eyju, var farin að brotna upp í fyrsta
sinn í mörg þúsund ár. Er þetta
vegna stöðuvatna sem myndast hafa
á íshellunni á sumrin og leysinga-
vatns sem rennur úr þeim. Þá sýna
niðurstöður kínverskra vísinda-
manna, efúr 74 daga leiðangur sem
lauk í september, að meðalþykkt haf-
íss er nú 8,8 fet, eða 2,6 metrar, en
var 15 fet eða 4,6 metrar á níunda
áratugnum. Þá telja kínverskir vís-
indamenn sig einnig hafa fúndið
samhengi á milli sveiflna í stærð ís-
hellunnar á norðurskauú og úrkomu
sem fellur í Yangtze-ána á regntím-
anum. hkr@dv.is