Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2003, Síða 8
8 FÖSTUDAGUR 14. NÓVEMBER 2003
Fréttir DV
Kaupþing Búnaðarbanki hefur framtíð
Norðurljósa í hendi sér eftir æsilega at-
burðarás undanfarna daga. Jón Ólafs-
son kom til landsins á einkaþotu um
hádegi í gær til að selja rekstur sinn,
landareignir og fasteignir á íslandi.
Fjórir hópar fjárfesta hafa áhuga á að
kaupa félagið saman.
Fjórir hópar fjárfesta hafa iýst yfir
áhuga við Kaupþing Búnaðarbanka á
því að kaupa Norðurljós. Eitt af
lykilskilyrðum fjárfestanna er að
bankinn ljúki samningum við Jón
Ólafsson, stjórnarformann og aðal-
eiganda félagsins, um að draga sig út
úr rekstri þess. Fjárfestamir vilja líka
kaupa annan rekstur og fasteignir
Jóns hér á landi. Hóparnir endur-
spegla nokkuð vel flóruna í íslensku
viðskiptalífi. Fyrir einum hópi fer,
samkvæmt heimiidum DV, Jón Ás-
geir Jóhannesson stjómarformaður
Baugs Group, fyrir öðmm fer Kaup-
þing Búnaðarbanki, fyrir þeim þriðja
Kári Stefánsson forstjóri íslenskrar
erfðagreiningar og íyrir þeim íjórða
Finnur Ingólfsson, forstjóri Vátrygg-
ingafélags íslands. Saman stefna
þessir hópar að því að endurfjár-
magna Norðurljós og bjarga þannig
rekstrinum.
Atburðarásin hefur verið æsileg á
undanförnum sólarhringum. Leiddi
hún til þess að í gær flaug Jón á einka-
þotu til íslands frá London til að
ganga frá samningum. Var gengið út
frá því að samningar næðust seinni
partinn í gær og búist við að Jón
myndi senda frá sér yfirlýsingu um
að hann hefði dregið sig út úr rekstri
Norðurljósa og selt hlut sinn. í gær
ræddi Jón við starfsmenn Norður-
ljósa og sagði að viðræður stæðu við
tvo aðila um að koma að rekstri
Norðurljósa og að það myndi koma í
ljós á næstu vikum hvað úr yrði.
Kaupþing Búnaðarbanki stýr-
ir ferðinni
Kaupþing Búnaðarbanki hefur ör-
lög Norðurljósa í hendi sér og stýrir
því hvað verður um félagið. Sam-
kvæmt heimiidum DV er verið að
ganga frá samningum um að Jón selji
Kaupþingi Búnaðarbanka hlutafé sitt
í Norðurljósum og eru þeir samning-
ar á lokastigi.
Lánardrottnar Norðurljósa hafa
lagt mikla áherslu á að ná samning-
um við Jón til að leysa úr skuldastöðu
félagsins og koma nýjum mönnum
að rekstrinum. Skuldirnar eru svo
miklar að Jóni er vart stætt á öðru en
að fara að þeim skilyrðum sem bank-
inn setur.
Þolinmæði lánardrottnanna hefur
verið á þrotum og eigendunum gert
ljóst að ef ekki næðist að leysa úr
málunum, yrði félagið keyrt í gjald-
þrot fyrir áramót. Kaupþing Búnað-
arbanki er stærsti lánardrottinn fé-
lagsins og næst stærsti hluthafi en
ásamt bankanum standa að sam-
bankaláni Norðurljósa Landsbanki
Islands og ABN Amro. Rekstur Norð-
urljósa hefur gengið ágætlega að
undanförnu en skuldirnar hafa sligað
félagið.
í samkomulaginu sem verið er að
vinna að er gert ráð íyrir að Jón selji
aðrar eignir sínar á Islandi. Þannig
má gera ráð fyrir því að Arnarnes-
landið verði selt íyrir milligöngu
Kaupþings Búnaðarbanka, Fast-
eignafélagið Stoðir kaupi húseignir
fyrirtækja Jóns Ólafssonar við Lauga-
veg og á Krókhálsi.
Skuldir Norðurljósa em 6,9 millj-
arðar. Hlutaféð er 1,679 milljónir
króna. í dag á að halda hluthafafund
þar sem gera á tillögu til stjórnar um
að færa hlutaféð niður um áttatíu
prósent. Félag Jóns Ólafssonar er
stærsti hluthafi í Norðurljósum með
62% hlut.
Jón segir tvær lausnir í sjón-
máli
Starfsmannafundur var haldinn í
húsakynnum Norðurljósa í gær. Jón
Ólafsson mætti á fundinn og ræddi
málin við starfsmenn. Hann sagði að
tveir hópar hefðu sýnt áhuga á Norð-
urljósum dg að úr málunum myndi
rætast á næstu vikum. Hann sagðist
ekki geta tjáð sig um málið að öðru
leyti en að báðir aðilar væru góðir að-
ilar. Hann sagði gjaldþrot ófæra leið
fyrir félagið.
Jóhann Hlíðar Harðarson, trúnað-
armaður starfsmanna Norðurljósa,
sagði að á fundinum í gær hefðu
starfsmenn verið upplýstir um að þeir
gætu sofið rólega næstu helgi og um
næstu helgar og að upplýsingar sem
hefðu komið frarn í öðmm fjölmiðlum
væm rangar en að Jón Ólafsson hefði
ekki treyst sér úl að upplýsa nánar um
hvaða lausnir væm í sjónmáli.
kgb@dv.is
l__
8 '
Gunnar Smári Egilsson
Snýst um hverjir menn eru
„Það er ekki hægt að takmarka
rétt manna til að eiga og reka fjöl-
miðla umfram samkeppnislög án
þess að ganga gegn ákvæðum
stjórnarskrárinnar um rit- og tján-
ingarfrelsi," segir Gunnar Smári Eg-
ilsson, ritstjóri Fréttablaðsins. „Ann-
ars er öll þessi umræða hin sérstæð-
asta og snýst lfklega meira um vilja
manna til að stjórna því hverjir komi
nálægt fjölmiðlum á íslandi en að
aðstæður kalli á hana.“
Bogi Ágústsson
Samkeppnislög nægja
„Ég er sammála því sem komið
hefur fram að Samkeppnisstofnun
sé nægt aðhald fyrir fjölmiðla," segir
Bogi Agústsson, fréttastjóri Ríkis-
sjónvarpsins.
„Ég sé ekki tilefni til sérstakrar
lagasetningar. Ef vafi leikur á áhrif-
um eigenda á fréttaflutning geta les-
endur, hlustendur og áhorfendur
fellt sinn eigin dóm. Fjölmiðlar eru
vissulega ekki eins og önnur fyrir-
tæki en allt sem setur fjölmiðlum
skorður er af hinu verra."
Ráðherra skoðar
eignarhald fjölmiðla
Tómas Ingi Olrich, menntamála-
ráðherra, hefur falið ráðuneytis-
starfsfólki að skoða löggjöf um eign-
arhald á fjölmiðlum. „Það er verið
að setja þessa vinnu í gang", segir
menntamálaráðherra. Aðspurður
um tilefni skoðunarinnar vísar ráð-
herra til umræðunnar sem farin sé
af stað um málið, þar sem fram hafi
komið áhyggjur af þróun mála. „Það
eru hvorki ákvæði í Iögum um
prentrétt né í útvarpslögum sem
takmarka fjölda ijölmiðla í eigu
sömu aðila." Hann bendir á að ekki
sé heldur í íslenskum lögum ákvæði
sem t.d. takmarki möguleika þeirra
sem eigi prentmiðla á því að eiga
jafnframt ljósvakamiðla, en dæmi
séu um takmarkanir af því tagi í öðr-
um löndum. Aðspurður um hvort
þessi athugun tengdist eigenda-
skiptum á DV og mögulegum breyt-
ingum á eignarhaldi Norðurljósa, ít-
rekaði ráðherrann að vinnan í ráðu-
neytinu tengdist umræðunni und-
anfarið um samþjöppun eignar-
halds á fjölmiðlum. Hann staðfesti
að þessi athugun hefði verið sett af
stað fyrir nokkrum dögum. Ráð-
herra vill hvorki játa því né neita að
málið hafi verið rætt í ríkisstjórn-
inni, enda ekki venja að ræða um
mál sem séu þar til umræðu. Tómas Ingi Olrich
menntamálaráðherra