Nýtt dagblað - 01.07.1941, Side 2
2
NYTT DAGBLAÐ
Þriðjudagur 1. júlí 1941.
E
tnn af félagsmönnum KRON, Guðjón
Jónsson, verkamaður, Rauðarársfíg ío,
gerír upp 4 ára víðskípfí sín vtð félagíð
Hann segír:
„Á fjórum árum hefi ég verzlað hjá KRON fyrir kr.
4471,17 og er þá búið að draga 5% afslátt frá búðarverömu,
því að ég kaupi mest í pöntim. í stofnsjóö minn hafa runn-
ið, að meðtöldum vöxtum, kr. 246,18. Tekjuafgangurinn,
sem mér hefir verið endurgreiddur, nemur kr. 108,70.
Beinn hagnaður að viðskiptum mínum 1 fjögur ár hefir
því orðið:
1) 5% afsláttur í pöntun (af ca. 4000,00) . 200,00
2) Lagt í stofnsjóð minn .................. 246,18
3) Endurgreiddur tekjuafgangur ............ 108,70
Samtals kr. 554,88
Þessi upphæð, kr. 554,88, svarar til þess, að ég hafi eftir
fjögra ára viðskipti sparað sem nemur hálfs árs úttekt.
Tekjuafgangurinn og stofnsjóðstillagið var fyrsta árið
9% af viðskiptum, en hefir síðustu þrjú árin verið 7%. Við
það bætist svo 5% afsláttur í pöntrrn, eða samtals 12%. Það
jafngildir því, að hér um bil áttunda hver króna sé spöruð.
Eftir sjö daga viðskipti við KRON hefi ég sparað fyrir því,
sem ég þarf áttunda daginn.
Beinn spamaður minn árlega er fjörutíu og fjögra daga
ókeypis úttekt, — en þó er óbeini hagnaðurinn, sem allir
neytendur á félagssvæðinu njóta góðs af, aðalatriðið“.