Nýtt dagblað - 05.07.1941, Blaðsíða 4

Nýtt dagblað - 05.07.1941, Blaðsíða 4
Bæjarfréttír Héraðsmót Borgfirðinga verður háö við Hvítá hjá Ferjukoti á sunnudaginn kem ur. Laxfoss flytur Reykvík- inga upp í Borgarnes á sunnu dagsmorguninn og suður aft- ur um kvöldið. Stefán Pálsson, sonur Páls Ólafssonar útgerðarmanns, hefur nýlega lokið prófi í tannlækningum við háskól- ann í Kaupmannahöfn. Handknattleikastúlkur frá Akureyri voru væntanlegar hingað til bæjarins í gær- kvöld, koma þær hingaö í boði Glímufélagsins Ármanns og keppa á . handknattleiks- móti íslands, sem hefst hér í bænum á morgun. Stúlkurn- ar eru úr íþróttafélaginu Þór. Sjómannaskólinn. Sjö manna nefnd hefur verið skip uð til þess að hafa með hönd- um undirbúning að byggingu sjómannaskólans og aðrar framkvæmdir sem þar aö lúta Friðrik Ölafsson skólastjóri stýrimannaskólans er formað- ur nefndarinnar. Leiðrétting. Tvær meinleg- ar villur slæddust inn í grein um afstöðu finnskra sósíal- demokrata á forsíðu blaðsins í gær: franskur í stað finnsk- ur og bolsévikkavinur í stað bolsévikkaóvinur. Æsfandid i her~ feknulöndunum Frá útvarpsstöðinni í Mosk- va koma ýmiskonar fréttir um ástand það, er ríkir í löndun- um, sem Hitler hefur lagt undir sig í þessari styrjöld. Segir þar meðal annars, aö hundruð þúsunda verkamanna í þeim löndum séu sendir til Þýzkalands og látnir vinna þar 14—16 stundir á dag. 62 þús. undir hafa komið frá París einni saman, og stjórnin í Júgóslavíu hefur ákveðið að senda 55 þúsundir verka- manna til Þýzkalands. Þá segir Moskvaútvarpið ennfremur að rúmenskir fang- ar, sem Rauði herinn hafi tekið, segi ljótt af ástandinu í Rúmeníu og þeirri ólgu í hugum fólksins, sem það .á- stand hefur skapað. Sjálfir segjast þeir berjast af hræöslu einni saman, því að öðr- um kosti séu þeir skotnir. Þeir segja að stjórnin í Rúm- eníu banni rúmensku her- mönnunum að sækja leikhús, kvikmyndahús, gildaskála og aðra opinbera staði í föður- landi sínu. En þýzku hermenn •irnir njóta allra þessara rétt- inda. Það er talin minni hætta samfara því, þótt þeir séu inn an um fólkið í Rúmeníu. Útvarpsstöð hinnar evróp- isku byltingar, (bylgjulengd 31,2), sagði í fyrrakvöld, að af þýzkum blöðum mætti ráða það, að mesti krafturinn muni úr sókn Þjóðverja að sinni, og muni Hitler senn þurfa að taka sér hvíld til undirbúnings nýrri sókn. Abbadísin og námsmeyjar klaustursins í I. þætti. Tíl mínnís ,r Næturlæknir: Pétur Jakobs- son, Vífilsgötu 6, sími 2735. Næturvörður er í Ingólfs- og Laugavegsapótekum. Allar bif reiðastöðvamar hafa opið í nótt. Útvarpið í dag: 12.00—13.00 Hádegisútvarp 15.30—16.00 Miðdegisútvarp 19.30 Hljómplötur: samsöng- ur. 19.50 Auglýsingar. 20.00 Fréttir. 20.30 Upplestur: „Sorg“, smá.- saga eftir E. Howie (Har- aldur Björnsson leikari). 21.00 Útvarpstríóið: Einleikur og tríó. 21.20 Hljómplötur: a) Dans- sýningarlög eftir Massenet. b) Sönglög eftir Schubert. 21.50 Fréttir. 22.00 Danslög. Dagskrárlok. S^íni: áskrifendam Operettan Nitouche sýnd á Norðurlandi Tónlistarlélagið og Leikfé- lag Reykjavíkur hefur ákveð- ið að leggja af stað í fyrra- málið í leikför til norðurlands, og sýna þar óperettuna Nit- ouche, sem búið er að sýna hér 40 sinnum fyrir 12000 leikhúsgesti. Þátttakendur far arinnar verða 55. Ægíleg hungurs- ne^d í Sevílla Sjómaöur einn, sem veriö hefur í siglingum í vetur, heilsaði upp á Nýtt dagblað fyrir fáum dögum. Spurðum vér hann tíðinda úr feröum hans og gaf hann í hvivetna hin greiöustu svör. Meðal annars barst talið þar að, að hann sagöist hafa verið 1 Sevilla á Spáni um 20. apríl 1 vor. Kvaðzt hann aldrei hafa séð þvílíka eymd og þar, alþýða manna gekk hálfnak- in og hóparnir voru sífellt við skipið að betla mat. Meira að segja, tolleftirlitsmaðurinn og hafnsögumaöurinn, sem fyrstir komu út í skipið, struku magann, sögðust vera svangir og báðu um mat. Sagði sjómaðurinn, að þeir hefðu oft rétt upp á bryggj- una matarleyfar, og einu sinni kom það fyrir, að krakk ar ruddust svo fast að krukk- unum, sem upp voru réttar, að tveir þeirra féllu í sjóinn. Sagði hann mörg einstök atr- iði, sem fyrir báru, méðal ann ars minntist hann á konu eina, sem oft kom að skip- inu, og gaf einn hásetanna henni peysu. Þeir höfðu þær fregnir af konu þessari, að hún myndi hafa verið leik- kona, en neitað að leika eftir kokkabók fasistanna og held- •ur kjörið að fara á vergang og freista að halda við lífi sínu með betli. Lagt verður af stað snemma 1 fyrramálið og fariö með bílum fyrir Hvalfjörð til Akureyrar og komið þangað annað kvöld. Veröur svo leik- ið á Akureyri á sunnudags og þriðjudagskvöld, og farið til Húsavíkur og leikið þar á miö vikudagskvöld og fimmtudags kvöld. Frá Húsavík verður haldið heimleiöis og leikið a Sauöárkrók annað simnudags kvöld, en á Blönduós mánu- dagskvöldið 14. þ. m. Fararstjóri veröur Hálfdán Eiríksson og skýrði hann Nýju dagblaði svo frá í gær, að för- in væri aðallega farin til þess að gefa norðlendingum kost á því að gleyma styrjöld og ann ríki nokkrar klukkustundir. Það var fyrst í vetur, sem samvinna hófst milli Tónlist- arfélagsins og Leikfélagsins og hefur hún gengið í alla staði prýðilega. Má því líta á þessa sameiginlegu leikför félaganna, sem frekari stað- festingu þeirrar samvinnu. Míklar loftárásír Framh. af 1. síðu. hafi skotið niður 225 flugvél- ar yfir Miðjarðarhafi, en misst sjálfir 66. Sjómaðurinn sagði, að eng- an mat hefði þar verið hægt að fá og ekkert kolablað og komst skipið með naumind- um til Portúgalskrar hafnar fyrir kolaleysi. — Með mynda vélar máttu þeir ekki fara í land og engar myndir taka. Þó kvaö hann þá hafa náð nokkrum myndum, þar á með al mynd af betlikonunni í ís- lenzku peysunni. Taldi hann ekki ómögulegt, að hann gæti útvegað Nýju dagblaði þá mynd, til að sýna hana les- endum sínum. y 1 Tvennskonar viðhorf — Gerðu mér það ekki erfiðara en það er þegar orðið, sagði hann. — Dettur þér í hug, að ég sleppi þér núna? Nei. Ég elska þig- — Hvernig ætti ég að geta beðið þig að giftast mér? Eg er algjörlega eignalaus maður. Faðir þinn myndi aldrei samþykkja slíkan ráðahag. — Hvað kemur mér það við? Eg elska þig. Hann sagði henni frá því, sem hann ætlaði að géra. Það var staöreynd að hann varð að geta unnið sér inn peninga og það strax. Georg Braunshmidt, sem var gamali vinur ijölskyldunnar, hafði boðið honum að láta hann fá atvinnu og kannske síðar að taka hann í félag með sér. Georg var var Suðurhafskaupmaður og hafði umboösmenn á fjölmörg- um eyjum Kyrrahafsins. Hann hafði stungiö upp á því við Edward, að hann færi til Tahiti og ynni þar undir stjóm hinna beztu forstöðumanna hans, svo að hann gæti af eigin reynd kynnst starfsemi og fyrirkomulagi þessa risa- vaxna fyrirtækis. Að þeim tíma liðnum átti hann að fá stöðu í Chicago. Það var alveg sérstakt tækifæri, sem Ed- ward bauðst þama, og þegar hann hafði lokið skýringum sínum, þá leit ísabel á hann glöð og brosandi. — Heimskinginn þinn! Hvers vegna ertu að gera mig sorgbitna að óþörfu? Það birti yfir svip hans, og það komu glampar í augun. — ísabel! Getur það verið, að þú ætlir að bíða eftir mér? — Heldurðu að þú sért ekki þess verður? sagði hún brosandi. — Ó! Þú mátt ekki hlæja að mér, ekki núna. Hugsaðu þig vel um, það verða tvö ár. — Vertu óhræddur, Edward. Eg elska þig og ég skal giftast þér, þegar þú kemur aftur. Georg var lítiö fyrir að draga á langinn. Hann hafði sagt Edward, aö ef hann tæki stöðina, þá yrði hann að sigla samdægurs frá San Froncisco. Síðasta kvöldið var Edward hjá ísabel. Eftir kvöldverð bað Mr. Longstaffe Edward um að tala við sig inni í reyk- ingasálnum. ísabel hafði sagt föður sínum frá fyrirætlun Edwards og hann hafði tekið því vel. Edward gat því ekki gert sér neina grein fyrir því, hvað Mr. Longstaffe myndi ætla að tala við hann. Hann var því mjög undrandi, er hann sá hversu vandræðalegur Mr. Longstoffe var, því að hann hreint og beint stamaði. Fyrst talaði hann um daginn og veginn, en svo sagði hann allt í einu hálf gremjulega um leið og hann leit á Edward: — Þú hefur sennilega heyrt talað um Arnold Jackson? Edvard hikaði við svarið, en hin meðfædda sannleiksást neyddi hann til þess að kannast við hið rétta. Hann hefði þó gjama viljað getaö neitað því, að hann vissi nokkuð um þetta. — Já, ég hef heyrt talað um hann, en það er mjög langt síðan, svo að ég held að ég hafi ekki tekið mikið eftir því. — Það eru sennilega ekki margir hér í Chicago, sem ekki

x

Nýtt dagblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt dagblað
https://timarit.is/publication/258

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.