Nýtt dagblað - 24.09.1941, Blaðsíða 3

Nýtt dagblað - 24.09.1941, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 24. september 1941. NÍTT DAGBLAÐ . ....... k 3 cBceia'ZpóHHvtimt Snorra-hátíð HásRólans Eríndí Sígurðar Nordal var í senn vfs índalegt afreb o$ þjóðleg lögeggjan Ligandi og útgefandi: Gunnar Benediktsson. Kilst jórar: Einar Olgeirsson (ábyrgur) Sigfús Sigurhjartarson. Ritstjórn: Hverfisgötu 4, síini 2270, Afgreiðsla: Austiírstræti 12, sími 2184. Víkingsprent h. f. Fjöregginu kastað á milli tröllskessanna Þegar þjóðstjórnin var mynd- uð, lýstu forvígismenn þess fyi’ir- tækis því yfir, að það væri gert til þess að skapa svo sterka stjórn að hún gæti leyst þau vandamál, er þjóðinni bæri að höndum á viðunandi hátt. Enn- fremur væri með því verið að af- stýra því að sérhagsmunir yrðu látnir sitja í fyrirrúmi fyrir þjóð- arheill. En síðast en ekki sízt væru til stjórnarsamvinnunnar valdir aðeins þeir flokkar, sem svo ríka ábyrgðartilfinningu hefðu, að öruggt væri að vel yrði vandað til hverrar úrlausnar, svo sem ábyrgum flokkum sæmdi. Nú — eftir þriggja ára þjóð- stjóm hinna ábyrgu — gefur stærsta stjórnarblaðið eftir við- tal við forsætisráðherrann eftir- farandi lýsingu á afgreiðslu hinna ábyrgu í þingi og stjórn í einu helzta þjóðmálinu, dýrtíðarmálun- um: .Alþingi tók það ráð, að kasta þeim i hendur ríkisstjómarinnar, eftir að hafa samþykkt dýrtíðar- lögin, sem voru svo afkáraleg og vitlaus, að illmögulegt var að framkvæma þau þannig, að nokk- ur áhrif hefði á dýrtíðina í þá áttina), að draga úr henni”.... ,,Og nú liefur ríkisstjómin í hyggju að kasta málinu aftur í Alþingi. AUt er þett ein samfelld raunasaga”. (Mgbl. 23. sept.). Þetta er þá árangurinn af á- byrgðartilfinningunni hjá ríki og stjórn, — eftir þeirra egin dómi. flvað þarf enn mikið þangað til þetta þjóðstjórnarlið finnur það sjálft, að það getur ekki stjórnað landinu, að það er ekki — og liefur ekki — verið fært um að gæta hagsmuna þjóðarheildarinn- ar,, — að það hefur aðeins lafað saman á því að lofa hverri hags- munakliku yfirstéttanna um sig að reita til sín á kostnað þjóðar- heidarinnar. Og það eru ekki aðeins dýr- tíðarmálin, sem segja þessa sögu. Hvernig er saga þjóðstjómar- innar í húsnæðismálunum ? Hindr- un á byggingu verkamannabústað anna 1939 með gerræðislögunum, hindrun á verulegum innflutningi byggingarefnis allt frá byrjun, hmdrun á samþykkt frumvarps Sósíalistaflokksins um húsnæðis- málin, o. s. frv. Og hvernig er saga þjóðstjórn- arinnar utanrikismálunum, öll viðskiptin við Bretann,i allt frá iyrstu vitneskjunni um yfirvof- andi hernám til fisksölusamnings- ins? Hvar var ábyrgðartilfinning- in, þegar sleppt var tækifærunum til að setja raunhæf skilyrði við Bandaríkjastjórn og Breta, er samið var um herverndina? Og hvar var umhyggjan fyrir þjóðarheill, þegar nýríku, milljóna mæringunum var sleppt lausum á landslýð með 60 milljón króna gróða, útborgaðan í íelenzkum ÞVl ÞEGJA BLÖÐIN? Daglega berast blaðinu fyrir- spurnir um hvers vegna blöðin segi ekki frá einu og öðru, sem gerzt hafi í viðskiptum Islendinga og setuliðsins. Þessum spuming- um er fljótsvarað, og skal það gert í eitt skipti fyrir öll. Blöðin skýra ekki frá þessu af því að bæði lögreglustjóri og sakadómari neita að gefa upp- lýsingar um slík mál og hafa bannað lögregluþjónum að gefa upplýsingar. Blöðin hafa því ekki við neitt að - styðjast nema lausafregnir, sem stundum er þó hægt að fá vel staðfestar, en undir öllum kringumstæðum er talsverð á- hætta fyrir þau að birta fregnir um viðskipti setuliðsins og Islend- inga, séu þær ekki eftir opinber- um heimildum. En úr því á þetta mál er minnst, er rétt að geta þess að sakadómari hefur tekið þá furðu- legu stefnu að banna rannsóknar- lögreglunni með öllu að gefa blöð unum upplýsingar um hvert það máR. sem hún fjallar um, upp- lýsingarnar verða að koma frá honum sjálfum, eða fulltrúum hans. Ef t. d. að slys ber að hönd um á götunni, sem hundrað manna eru áhorfendur að, og biöðin þar af leiðandi auðvitað fréttum, verða þau oft að láta sér lynda að birta fréttirnar eftir sögusögn viðstaddra, í stað þess að fá upplýsingar hjá þeim lög- regluþjónum, sem hafa komið á slysastaðinn og rannsakað aðstæð ur, því yfirboðarinn hefur bannað lögregluþjóninum að tala, og sjálf ur veit yfirboðarinn ekkert, því að hann hefur ekki fengið skýrslu lögregluþjónsins. Þetta fyrirkomulag er hið furðulegasta. Það ætti þó sannar- peningum, en verðmætin hér inn- anlands höfðu að engu aukist,. svo miljónamæringarnir tóku að kaupa upp hús, jarðir, skip og aðrar eignir í stórum st\ þ. e. a. s raunverulega félfetta millistétt- ina og bjargálnamenn í skjóli 1 seðlaflóðsins ? „Allt er þetta ein samfelld raunasaga”,. — raunasaga þjóðar, sem í þrjú ár hefur orðið að þola ómögulega, ábyrgðarlausa stjórn, sem mynduð var til að bjarga Kveldúlfi og hefur gert það svo rækilega að Kveldúlfur hefur allt að því gleypt þjóðina. Tröllskessur íhalds og Fram- sóknar kasta nú fjöreggi þjóðar- innar á milli sin. Fyrr en varir fellur það til jarðar og brotnar, ef þjóðin ekki rís ujyp í tíma og þrýfur það af þeim. Þjóðin má ekki undrast, þó þjóðstjórnarflokkamir ausi nú hver annan óhróðri, og það af mesta kappi,. fyrir það, sem þeir hafa sameiginlega gert eða ógert látið á undanfömum árum. Þjóð- in má ekki láta það mikla mold- veður blinda sig. Sameiginlega bera flokkar þessir ábyrgð á öng- þveitinu, sem þeir hafa skapað. Samábyrgir hafa þeir verið um spillinguna. Samábyrgir hafa þeir verið um óstjórnina og öngþveit- ið. Og saman skulu þeir falla á gerðum sínum, hve mikið sem þeir svo reyna að hlaupa frá þeim nú, hver i sína áttina af ótta við fólkið. lega að vera áhugamál lögreglu- yfirvaldanna að blöðin birtu sem ábyggilegastar fréttir af þeim at- burðum- sem gerast á almanna- færi og til kasta lögreglunnar koma, og hvað mál hermannanna snertir, þá væri það ólíkt vænna til góðrar sambúðar Islendinga og setuliðsins að afdráttarlaust væri skýrt frá misfellum eftir heimild- um lögreglunnar. ÞINGVALLANEFNÍ) SPURÐ. Herra ritstjóri! Nýlega gerðist sá atburður á Þingvöllum, að Þingvallanefnd lét leggja 1500 kg. hellu ofan á leiði Einars skálds Benediktssonar í hinum nýja grafreit þar eystra. Við þetta tækifæri lét formaður nefndarinnar Jónas Jónsson þess getið „að Þigvellir væru nú komn ir af tilraunastigi”;. eins og Morg- unblaðið orðar það. Hér mun átt við friðun staðarins og fram- kvæmd þeirra laga, sem þar eiga að gilda. Vel má skilja þetta svo, að reynslan sé búin að sanna, að menn hafi þagað svo lengi yfir ,ást á ósómanum” á Þingvöllum. a* hér eftir verði ekki farið að hrófla við honum. Ef það er al- vara að stofna svokallaðan „Heið- ursgrafreit” á Þingvölum verður að gera kröfu til þess, að frið- lýsta landspildan umhverfis hann,. og sem á að helga staðinn, sé svo með farinn, að hún verði hvorki landi né þjóð til vanheið- urs eða ósæmdar. Ef friðhelgi Þingvalla er að einhverjuleyti misboðið, sem ekki er grunlaust, er enginn sómi fyrir neinn að rotna á Þingvöllum frekar en annarstaðar á Islandi. 1 sambandi við þetta er rétt að leggja nokkrar spurningar fyr- íi hina háttvirtu Þingvallanefnd, sem henni hlýtur að vera auðvelt að gefa fullnægjandi svör við: 1. Hefur Þingvallanefnd fram- kvæmt að ölluleyti lögin um frið- un Þingvallai og farið eftir þeim reglum, sem J. J. gaf Þingvöll- um er hann var ráðherra, og nú á að breyta eftir? 2. Er þá rekinn búskapur á Þingvallahrauni, fyrir innan tak- mörk friðhelginnar og stunduð netaveiði í Þingvallavatni. af á- búanda jafnt eftir sem áður, þó að friðunin kæmist á? 3. Nautgripahjörð bónda, sem býr í nágrenni við friðlýsta svæð- ið, sáu menn á beit, í sumar og fyrra sumar. í friðhelga skóginum á Þingvöllum. Hvernig stendur á þessu? Er þetta samkvæmt frið- unarlögunum ? 4. Er það rétt að Þingvalla- nefnd hafi leyft sama bónda neta- veiði í Þingvallavatni fyrir frið- helga landinu, fyrir það, að hann hefur verið staðinn að því að brjóta friðunarlögin og önnur landslög ? 5. Hvað hefur Þingvalalnefndin gert til að afstýra drykkjuskap og óreglu á Þingvöllum undan- farið og hvaða árangur hefur siarf hennar borið á þvi sviði? 6. Það er sagt að hvergi á Is- landi muni vera aumari gistihús- rekstur en á Þingvöllum. Hvað er hæft í því? 7. Eru sumarbústaðir á Þing- völlum, — og landspildur undir þá teknar af friðhelga landinu og seldar á leigu til 50 ára —j reist- ir þar samkvæmt friðunarlögun- um? Snorraliátið Háskóla islandls ’fór fram i gær samkvæmt dagskrá þeirri, cr skýrt var fráj í ‘gær. Sómdi hún að öllu mjög vel tilefninu, en greinilega var það allt miðað við að vera umbúnaður við erindi próf. Sigurðar Nordals. Þetta erindi var með afbrigðum 8. Heíur Þingvallanefnd, sam- kvæmt heimild í friðunarlögunum, tekið afnotarétt á jarðarhluta, eignarnámi' sem falla undir frið- unina ? 9. Þurfti ekki fyrst að vera til staðar heimild í lögum fyrir því, að stofna nýjan grafreit á Þing- velli. Eða liversvegna er gert ráð fyrir að þurfi að fá lög samþykkt ’ um það eftir á? 10. Hefur Þingvallanefnd erind- isbréf til að styðjast við ? Og þarf hun ekki að gera Alþingi grein fyrir störfum sinum? , Ástæða er til að spyrja um ' r.iargt fleira viðvíkjandi starfi Þingvallanefndar og friðun Þing- valla. Það var undarlega þögult um ; gerðir hennar og ráðsmennsku ' á Þingvöllum. Þó að Alþingi, sem hefur kosið nefndina, iáti sig litlu ’ varða um störf hennar, og hvern- ig þau eru af hendi leyst er ó- vist að almenningur láti sig þau cngu skipta. Reykjavík 20. sept. 1941. Virðingarfyllst. Þingvallagcstur. AHUGAMAL GARÖEIGENDA. Herra ritstjóri! Árni G. Eylands flutti fyrir nokkru síðan erindi í útvarpið um garðræktina í Reykjavík. Er það rýlunda að rödd heyrist þaðan, sem Chiælir með því að eitthvað sé gert sem í hag má koma okk- ur borgarbúum. Útvarpið virðist aðallega ætlað sem áróðurstæki fyrir landbúnaðinn. Þaðan er lóm- urinn laminn, — fyrir bændur (í óþökk margra þeirra þó) þegar refndin sem á að sjá um að dýr- tíðin ekki vaxi í landinu fær l,köst”, þá tilkynnir hún okkur að enn hafi landsafurðir hækkað og okurverð á okurverð ofan sé nauðsynlegt, og hver sem maldar í móinn er stimplaður sem bænda- fjandi og landráðamaður, og blöð- in, sem hér eiga heima (Tíminn ekki talinn þar með) þegja og þakka — því hver veit nema ein- hverntíma verði Alþingiskosning- ar og þá þarf að fá atkvæði. En þetta kom nú fyrir einn af em- bættismönnum landsins, hann hóf upp raust sína og með réttu benti á ýmislegt sem aflaga fer og sem betur mætti fara í garðræktinni hjá okkur, og benti á ýmislegt sem til bóta mætti verða. Finnst mér að ekki megi minna vera en að einhverir sem hlut eiga að máli. segi eitthvað um þetta merkilega mál. Á. G. E. ræddi aðallega um leigugarða, og þar sem eg er einn af þeim, sem garð hef á leigu, þó ekki sé nema að hálfu, þá þakka ég Árna fyrir lesturinn, og sem einn þolandi íti undir það sem nauðsynlegast er að úr verði bætt. 1. Að geyma kartöflur. Þegar sæmileg uppskera er úr leigugörð- umj þá munu margir uppskera svo mikið, að nægi yfir veturinn Framhald á 4. siðu. og á erindi til allrar þjóðarinnar. Mun það birtast í Skírni og einnig var því útvarpað, en á þessum tima dags munu fáir geta hlustað, af þeim er vildu svo gott mál heyra. ^jr ekki hægt að rekja innihald þess liér, en á tvö, þrjú atriði þess skal þó drepið. Er irrófessorinn minntisCá' gildi Snorra Sturlusonar fyrir frelsisbar- áttu Noregs 1814 og 1905, minnti hajnn á að sagt hefði verið, að það hefði ekki verið Chr. Mikkelsen, er stjórnaði frelsisbaráttu Norðmanna 1905, heldur hefði það verið Snorri Sturluson. Kvað prófessorinn sig ekki mundi undra, þó eitt sinn yrði sagt um frelsisbaráttu Norðmanna nú, að Snorri Sturluson hefði reynzt bezti landvarnamaður Norðmanna nú gegn hersveitum Adolfs Hitlers, sá, sem engin járn bitu og eigi varð settur í fangabúðir. — Sagði hann þetta, er hann ræddi tilkall Norðmaima til Snorra, á jafn fagur lega orðaðan sem hugsaðan hátt. Allra merkilegastur var sá kafli í erindi Sigurðar, er hann sýndi ftram á, að Snorri hefði verið braut ry’ðjandi um sagnaritun og skáld- skap en ekki bara „arfþegi og full komnari'’. Islendingasögurnar hefði. yfirleitt verið ritaðar eftir að Snorri reit sin rit og sjálfur hefði Snorri orðið fyrirmynd fyrir þeirri sagnaritun, bæði með Heimskringlu og svo með Egilssögu, sem jrrófessor inn kvaðst sannfærður um að Snorri hefði ritað og mundi fíera hin sterk ustu rök að því siðar. Islendingum yrði að verða Ijóst, hve miklu meiri sá þátiur væri, sem Snorri ætti i íslenzkum bókmenntum, en þá hefði nokkumthna grunað. Persón- ■umar í Noregskonungasögunum væru líka islenzk listaverk, skap- aðar af Snorra, þótt nöfn þekktra jnanna væru á þeim höfð, likt og Shakespeare hefði skapað sinn Harr. let í gerfi þekkts Danaprins. Jafnhliða ])vi, sem prófessorinn lagði frain í þessu erindi sínu á- vöxtinn af löngu og ágæ.tu rann- sóknarstarfi sínu á Snorra, þá var erindið allt lögeggjan til þióðíirinn ar um að eignast nú Smorij^ i fyllsta skilningi þess orðs, gera rit hans að andlegri sameign þjóðarinnar. „Þá jörð, sem slíkir kvistir hafa sprottið úr, hlýtur enn að vera til- vinnandi að erja”, sagði prófessor- inn undir lokin. Hann hefur sjálfur með þessu erindi og starfi sínu öllu lagt fram sinn skerf til að erja þá jörð, — og hann ekki smáan. Rektor lýsti á ávarpi sínu al- þjóðlegu umhverfin í Snorra tið og lagði áherzlu á að það væri and- ansmaðurinn Snorri Sturluson, er nú væri minnst eftir 700 ár, en ekki auðmaðurinn, stjórnmálaiinaðurinn eða lögfræðingurinn Snorri. Upp- Iestur Lárusar Pálssonar var með ágætum. Og eins og til stóð hófst athöfnin og lauk með hljómleikum hljómsveitar og blandaðs kórs, er Páll Isólfsson stýrði. Að lokinni athöfninni skoðuðu boðsgestir ritsýninguna, sem Háskól- inn og Landsbókasafnið sameigin- lega standa að. Er hún opin fyrir plmennvng i diag kl. 5—7 og 8—10.

x

Nýtt dagblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt dagblað
https://timarit.is/publication/258

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.