Nýtt dagblað - 10.10.1941, Síða 2
NÝTT DX6BLXÐ
Föstudagur 10. október 1941.
Vallarmálin í Reykjavík og f. S. I
Vatnið á vellinum
Það kemur ekki ósjaldan fyrir að
fresta verður knattspyrnukappleikj
um bðr í bæ vegna þess að völlur-
inn sé blautur, þótt veður sé hið
bezta og hafi verið það síðustu
klukkutímana. Satt að segja kernur
ókunnugum þetta nakkuð kynlega
fyrir, þcgar menn minnast frásagna
af þeim umbótum, sem voru gerðar
í fjrrra vor, þar sem meðal annars
vaT getið þeirra stóru holræsa, sem
gerð voru gegnum endilangan völl-
inn og svo nokkur þverræ,si í þ.að.
Attu þau að halda velUnum þurrum,
að minnsta kosti rétt eftir að rign- |
ingu hætti.
Ég lét þá skoðun, í ljósi við verk-
stjóra verksins að ég hefði ekki
mikla trú á þessum holræsum. Þar
sem völlurinn liggur er ákaflega
þéttur jarðvegur og þvi litlar líkur
til að það gæti fremur sigið niður
úr velUnum, nú en áður, nema rétt
þar sem ræsin eru. Petta kom nú
jfljótlega i ljós, því að örfáuin dög-
um eftir allar mnbæturnar varð að
aflýsa leik, eftir stutta rigningu,
'vegna bleitu á vellinum og hefur
þetta endurtekið sig, þótt stundum
hafi hann verið ausinn eins og lekt
skip.
Ég sá í tilöðunutn. í vtor aö Bret-
arnir hefðu átt að eyðileggja völlinn
<með of þungum valtara, sem þeir
hefðu notað. Ef til vill hefur þetta
ekki bætt hann, en því leyfði vallar-
stjórnin þeim að nota svona þungan
valtara? Þessari ásökun í garð Bret-
anna geri ég lítið úr. Hinu vil ég
gera meira úr, að það sem átti að
gera til bóta fyrir knattspyrnuvöil-
inn hefur aldrei verið gert. Hvað
Iangt verður þangað til veit ég ekki,
en hitt veit ég, að það munu vera
2—3 ár síðan ég benti á með til-
lögu á knattspyrnuþinginu, hvemig
þetta á að framkvæmast. Þar sem
jarðlag eru svona þétt eins og undir
vellinum er, á að hækka hann þannig
í miðjunni — ca. 25— 30 cin. —,
að vatn gæti runnlð út af honum,
en þar mætti svo taka við lrolræsi,
sem flytti það burtu. Svona byggðan
völl hef ég séð og leikið á erlendis,
og því gætum við ekki farið eins að
hér, þar sem aðstaðan er svipuð.
Ef til vill barmar vallarstjórnin
sér yfir peningaleysi, en þá vil ég
benda henni á, að ef til vill hefði
mátt spara á öðrum sviðum fjárút-
lát vallarins í sumar, og minnka þó
ekkert framkvæmdir, en það er saga
út af fyrir sig, sem þarf athtrgunar.
En þurrkun vallarins er aðkall-
aandi mál og krefst úrlausnar á
næsta vori.
OOOOOOOOOOOOOOOOO
Gerizt áskrif-
endur að
Nýju dagblaði
Ritstjðri: Frímann Helgason
Sundmeistaramót fslands
dagana 20. og 23. þ. m
Aó þessu sinni fer Sundmeist-
aramót Islands fram í Sundholl-
inni 20 og 23. okt. n. k.
Keppt verður í þessum grein-
um:
100 m. frjáls aðferð karla
100 — baksund —
200 — bringusund —
400 — bringusund —
400 — frjáls aðferð —
4X50 — boðsund —
3X100 — þrísund —
(bringusund, baksund
og skriðsund).
200 m. bringusund fyrir konur
100 — frjáls aðferð -— —
Þá munu fara fram unglinga-
sund í sambandi við mótið en þau
sund hafa ekki enn verið ákveð-
in. Um þátttöku er ekki enn vit-
að, en búizt er við að hún verði
mikil. Félögin tiér í Reykjavík
hafa æft síðan í byrjun septem-
ber.
Eg býst nú við að fleiri séu en
ég, sem furða sig á hve snemma
á æfingatímabilinu þetta aðal-
sundmót ársins er háð- Spurðist
ég því fyrir um hvernig á þessu
stæði, en svarið var á þá leið, að
þetta væri gert með tilliti til fé-
laga utan af landi, sem hafa æft,
yfir sumartímann. Ekkert félag
hefur enn sent tilkynningu um
þátttoku.
Ekki er gert ráð fyrir að allar
bcztu sund„stjömur” okkar geti
verið með, svo búizt er við, að
keppnin verði hörð milli hins efni-
lega yngra sundfólks.
Tilkynningar og fréttir
frá I. S. f.
Bæjarráð Reykjavíkur hefur sam-
kvæmt ósk og tilnefningu í. S. I.,
skipað þá Gunnar Thoroddsen pró-
fessor og Benedikt Jakobæon fim-
leikastjóra í nefnd ásamt Valgeiri
Björnssyni bæjarverkfræðingi, og er
verkefni nefndarinnar að velja heppi
legan stað fyrir keppnisvelli (Stad-
fcrn). — Formaður nefndarinnar er
Valgeir Björnsson.
1 september hafa þessi met hlotlð
staðfestingu 1. S. I.:
Kúluvarp betri handar 14,63 mtr.
sett 25. ágúst af Gunnari Huseby;
Sleggjukast 46,57 mtr. sett 26. ágúst
af Vilhjálmi Kr. Guðmundssyni. —
Fimmtarþraut 2834 stig og tugþraut
5475 stig sett 27. ágúst af Sigurði
Finnssyni. Methafarnir eru allir í K(
R.
Stjórn sambandsins hefur nýlega
staðfest:
Sundlög I. S. I., reglur um dýfing-
ar og reglugerð um dómarapróf í
sundknattleik.
Nýr ævifélagi hefur sambandinu
bætzt. Er það Öjsfur Sigurðsson kaup
maður á Akranesi. Eru þá ævifélag
ar sambandsins 120 að tölu.
Öll íþróttaráð, sem haifa í hyggjú
að halda landsmót næsta ár, skulu
sækja um það til stjómar í. S. I.
Á öðrum stað á íþróttasíðunni í
dag er í tilkynningu frá Iþrótta-
sambandinu sagt að samkvæmt
ósk og tilnefningu 1. S. í. hafí
Bæjarráð Reykjavíkur skipað
nefnd til að velja heppilegan stað
fyrir keppnisvelli. Að mínu áliti
og margra annarra er sambands-
stjórnin að taka fram fyrir hend-
umar á hinum réttu aðilum í
þessu máli, en það eru íþrótta-
félögin, íþróttaráðin og Bæjar-
stjórn Reykjavíkur. Þetta á að
vera og hlýtur að vera fyrst og
fremst áhugamál þeirra og svo
auðvitað ó. S. 1., sem gefur þess^
um málum viðvíkjandi allar upp-
lýsingar, sem hún getur. Sem
landssamband getur í. S. 1. ekki
beitt sér fremur fyrir málefnum
Reykjavíkur, heldur en annarra
staða á landinu. Til þess vantar
það fjármagn og að ýmsu leyti
aðstöðu, og stór spurning hvort
æskilegt væri að I. S. I. væri fram
kvæmdaaðili í*" öllum greinum í
okkar áhugastarfsemi. 1. S. I.
mun nú geta afsakað sig með því,
að ef það gerði ekkert í málinu
yrði ekkert gert og það yrði dreg-
ið og dregið að framkvæma, og á
þetta get ég fallizt. Mundu mörg
byggðarlög ef til vill geta sagt
þetta sama, og hrósa happi, ef
þau hefðu einhvern til að berjast
í þessu. Þessi framkvæmd. f. S. í.
er því beint vantraust á áhuga
félaga og ráðamenn bæjarins yf-
irleitt. Enda er ekki við öðru að
búast, því fyrir nokkru boðaði
stjórnin formenn féiaganna á
fund sinn til viðræðu um þetta al-
varlega mál. Þar mættu 2 eða
3 af um 10. Það er svo augljóst
mál, að f. S. í. hefur verið neytt
út í þetta vegna áhugaleysis í-
þróttamanna bæjarins og bæjar-
stjórnar. Fyrir þetta hlýtur svo
stjórnin ámæli ókunnugra út um
land fyrir það að hugsa aðeins um
félögin í Reykjavík, og síðan á-
mæli þeirra sjálfra fyrir gagns-
leysi og aðgerðaleysi.
Inniæfingar félaganna
aB byrja
Þessa dagana eru iþróttafélögin
að auglýsa fyrirkomulag vetrar-
starfsemi sinnar. Er hún hjá stóru
félögunum sérstaklega margþætt og
má segja, að þar sé eitthvað fyrir
alla.
Það er því full ástæða til að vekja
athygli bæjarbúa á þessari starf-
semi, og eggja þá til að færa sér
þana i nyt. Eggja pá til að sækja
þangað líkamlegt lieilbrigði og at-
gjörvi og viljaþrek. Á þessum tím
um ekki sízt, eru það þessi atriði,
sem mikið veltur á, hvort vér eins
og aðrar þjóðir fáumst staðist þær
árásir beinar og óbeinar, sem gerð-
ar eru. En glæsilegt íþróttalíf og
þroskaður og sterkur félagsskapur
í kringum það, er að mínu áliti einn
sterkasti þátturin,r( i þeslsum vörnum.
fyrir 1. febrúrar n. k. og geta þá
um livar og hvenær mótið skuU bald
ið. Ennfremur skulu þau sem fyrst
^senda stjóijn I. S. I. mákvæma skýrslu
um vefðlaunagripi til keppni um á
landsmótum er þau og félög innan
þeirra vébanda varðveita.
Félög og íþróttaráð i Reykjavjk
skulu se//z fyrst senda á skri?stofu
I. S. i. verðlaunagripi er þau hafa
umráð yfir, til skrásetningar og at-
hugunar.
Stjóni I. S. I.
I sambandi við íþróttasvæðið
við Öskjuhlíð, sem fyrirhugað var,
má geta þess að til framgangs
því máli voru oft skipaðar nefndir
(5—6?). Fæstar þessar nefndir
unnu nokkurn hlut, en I. S. f.
fékk allar skammirnar af gang-
leysinu, sem þótti vera á fram-
kvæmdum.
Hvort þessi nefnd starfar eða
starfar ekki, skal ósagt látið. En
mig grunar að á meðan áhuginn
kemur ekki frá ráðandi mönnum
félaganna, og þungi kröfunnar um
bættan aðbúnað kemur þaðan ekki
heldur, og þeir gera engar kröfur
til sjálfra sín, verði gamli seina-
gangurinn á eins og svo oft áð-
ur.
Þessi mál eiga að sjálfsögðu að
vera í höndum einnar gterkrar
vallarnefndar fyrir Reykjavík,
sem félög og bær eiga fulltrúa í.
iXXXK. OOOOOOOOOOOv
Heif o$ köld
svíd
allan dagínn
Kaffisalan
Hafnarsfraefi 16
ooooooooooooooooo
Spor í sandí
Kvæði eftir Stein Steinarr.
„Það, sem einkennir kvæði
Steins er dulan og dýptin”.
Lítið eftir óselt — 10.00. 12.00.
— Öll kvæði Steins, 3 bækur,
bundnar i vandað djúpfalls-
skinnband 78.00. —
Víkingsútgáfan.
ooooooooooooooooo
Útbreiðið
Nýtt dagbiað
OOOOOOOOOOOOOOOOO
DUGLEGA KRAKKA
vantar fíl að bera Nýff
Dagblað fíl kaupenda
Goff kaup.
Upplýsíngar á afgr. Ausfurstrœtí 12, Simí 2184
ISInar!
lílt!
Tabíd eftir:
Sunnudaginu 12. október 1941 kl. 1,30 verður upplestur í
Nýja Bíó. Nafnkunnar og vinsælar skáldkonur (búsettar í
Hallgnmssokn) lesa upp Jrumsamin ljóð og sögur. Allur
ágóðinn rennur til Hallgrímskirkju í Reykjavík. Aðgöngu-
miðar seldir í bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar og Isa-
foldar og kostar. 2 krónur.
500 krónur fær sá
er útvegar 1 til 3 herbergi og eldhús. Fyrirframgreiðsla til 14. maí
eí Jiess er óskað. Tilboð auðkennt 500 leggist inn á afgreiðslu Nýs
dagblaðs.
Rögnvaldur Sigurjónsson:
Píanóhlgómleikar
í Gamla Bíó sunnudaginn 12. okt. kl. 3.
Aðgöngumiðar hjá Sigfúsi Eymundssyni og Hljóðfæraverzlun
Sigríðar Helgadóttur.
Simaskráin 1942
Breytingar við Símaskrána fyrir árið 1942 óskast seridar tii
skrifstofu Bæjarsíma Reykjavíkur fyrir 18. þ. m.
Einnig má afhenda þær til innbeimtugjaldkerans í afgreiðslu-
sal Landssímastöðvaririnar í Reykjavík.
>oooooöö<x>o<>öoöoo