Nýtt dagblað


Nýtt dagblað - 30.12.1941, Qupperneq 1

Nýtt dagblað - 30.12.1941, Qupperneq 1
Einai' Olgeirsson. Sigfús Sigurhjartarson. Katrín I'álsdóttir. Steinþór Guðmundsson. Arsæll Sigurðsson. Sigurður Guðnason. Guðjón Benediktsson. Snorri Jónsson. Stefán Ögmundsson. BFezHUF 011B0F5HUP Hbp oofíp oelhepDD- oða árás á oestorslfflod Horees Níu þýzfcum skípum, 16 OOO smálesflr ad sfærd, sókkL Þýzha sefulídinu á Vágsöy gförevft Brezk herskip og flugvélar og brezkur og norskur landher gerði árás á herstöðvar Þjóðverja á vesturströnd Noregs, um 200 km. norður af Bergen, og skip við ströndina, síðastliðinn laugardag með góðum árangri. Aðalmarkmið árásarinnar var eyðilegging skipa við Noregs- strendur, og var alls 9 þýzkum skipum, samtals 16000 smálestir að stærð, sökkt í árásinni, en auk þess eyðilagði landgönguher á Vágsöy loftskeytastöð, skotfærageymslur og síldarverksmiðju, er vann fyrir Þjóðverja. Þýzka liðinu, sem fyrir var til varnar, var gjöreytt, 120 Þjóðverjar féllu, en 95 voru teknir til fanga, og auk þess 9 norskir nazistar. Árásin stóð frá kl. 8.30 að morgni til kl. 4 e. h., og hafði þá tekizt að framkvæma allar þær aðgerðir, sem áætlaðar höfðu verið. Vekur það sérstaka athygli, hve náin samvinna var milli flota, flugvéla og landhers í árás þessari. Liðsforingi, sem tók þáttí árás- inni, lýsti henni í samtali við fréttamann norska útvarpsina í t London á þeaía lelÖ: Rétt fyrir dögun á laugardag komu brezku herskipin að hinu örmjóa sundi, er skilur Vágsöy frá megínlandínu. Ndi'sk'ur ttefn- sögumaður var á hverju skipi og norskir leiðbeinendur fylgdu öll- um landgönguhópunum. Margir leiðangursmanna höfðu tekið þátt í árásinni á Lofoten í fyrra. Var þegar haldið inn í sundið og tekið að setja niður bátana sem flytja átti árásarliðið í land. — Jafnframt hófu herskipin ákafa stórskotahríð gegn strandvirkjum Þjóðverja, og svöruðu þau á móti í fyrstu, en voru brátt eyðilögð. Norskur herflokkur réðist til landgöngu á smáeyna Málöy, og slapp enginn af þýzku hermönn- unum er þar voru fyrir til varnar. Aðalaárásin var gerð á Vágs- öy. Þar réðust brezkar áhlaupa- sveitir (commandos) til land- göngu og aðstoðuðu flugvélar lan^göngu þeirra með því að Framh. á 3. síðu. Sósíalistafélag Reykjavíkur ákvaÓ í einu hljáÓi á fundi sínum, sem haldinn var s. I. sunnudag, að leggja fram lista með eftirfar- andi mönnum við bæjarstjórnarkpsningar þœr, sem fram eiga að fara hér í Reykjavík.25. janúar nœstkomand: 1. Sigfús Sigurhjartarson, ritstjóri, Miðstræti 6. 2. Björn Bjarnason, iðnverkamaður, ritari Iðju, Skólav.st. 23. 3. Katrín Pálsdóttir, frú, Nýlendugötu 15 A. 4. Steinþór Guðmundsson, /jennari, Ásvallagötu 2. 5. Einar Olgeirsson, ritstjóri, Njálsgötu 85. 6. Arsœll Sigurðsson, Verzlunarmaður, Nýlendugötu 13. 7. Sigurður Guðnason, verkamaður, Hringbraut 188. 8. Guðjón Benediktsson, múrari, Freyjugötu 25 A. 9. Guðm. Snorri Jónsson, járnsmiður, ritari Félags járniðnaðar- manna, Frakkasdg 23. 10. Stefán Ögmundsson, prentari, stjórnarmeðlimur Hins íslenzka prentarafélags, Klapparstíg 27. 11. Andrés Straumland, skrifstofum., forseti Sambands íslenzkra berklasjúklinga, Hringbraut 76. 12. Petrína Jakobsson, skrifari, Fálkagötu 27. 13. Arnfinnur Jónssom, kennari, Grundarstíg 4. 14. Friðleifur Friðriksson, bílstjóri, formaður ,,Þróttar“, Leifs- stöðum, Kapl. 15. Helgi Ólafsson, verkstjóri, Grettisgötu 80. 16. Kristinn E. Andrésson, magister, formaður Máls og menn- ingar, Njálsgötu 72. 17. Guðrún Finnsdóttir, Verzlunarmœr, Grettisgötu 67. 18. Ólafur H. Guðmundsson, húsgagnasm., formaður Sveinafél. húsgagnasmiða, Bergstaðastrœ 57. 19. Sveinbjörn Guðlaugsson, bílstjóri, formaður Kaupfélags Reykjavíkur og nágrennis, Lokastíg 20. Framh. á 3, síðu.

x

Nýtt dagblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt dagblað
https://timarit.is/publication/258

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.