Nýtt dagblað - 30.12.1941, Side 2

Nýtt dagblað - 30.12.1941, Side 2
2 * NÝTT DÍGBLAÐ triðjudagur 30. desembér 1041. LOKRÐ. Verzlanir vorar og skrifstofur verða lokaðar föstudaginn 2. janúar vegna vörutalningar. Barálta verkalýðslns fyr- lr grnnnkanpshaikknn Prenfarar, bókbíndarar, fárnsmiðir, rafvírkfar og klæðskerar sfanda nú í kaupdeílu, sem leití gefur fíl verkfalla um áramótín Félag Vefnaðarvörukaupmanna, Félag Matvörukaupmanna, Félag Kjötverzlana, Félag Skókaupmanna, Félag Búsáhaldakaupmanna, Kaupfélag Reykjavíkur og nágrennis. Greiðsla fyrir i áramót. Athygli er vakin á því, að ef tekju- og eignarskattur og lífeyrissjóðsgjald þeirra, sem enn eiga gjöld þessi ó- greidd, eiga að geta komið til frádrátt- ar við skatta og útsvarsákvörðun á næsta ári, verða gjöld þessi að hafa verið greidd í síðasta lagi á gamlárs- dag, miðvikudaginn 31. þ. m. Hafnarstræti 5, opin í dag kl. 10—12 f. h. og 1—4 e. h. og á gaml- ársdag kl. 10—12 f. h. í NAVÍGI Ljóðabók effír Aðalbjorn Péfursson er komín úf. Fæsf hfá bóksölum. Auglýsíd í Nýju dagblaðí Prentarar hafa 25,95— 115,30 kr. á viku — þeir vilja fá 31,14—138,36 kr. á viku. Nýtt dagblað átti í gær viðtal við Stefán Ögmundsson prentara um kjó'r og kröfur prentara. Stefán er í stjórn Prentarafélags- ins, en stjórnin annast samninga fyrir félagsins hönd. Stefán gaf eftirfarandi upplýs- ingar: Prentarar eru ráðnir upp á vikukaup, grunnlaunin eru sem hér segir: Handsetjara 97,05 kr. \rélsetjara 115,30 — Stúlkna 22—15 — Nema á fyrsta ári 25,95 — Nema á fjórða ári 49,60 — Prentarar hafa 12 daga sumar- frí og allt að 12 veikindadaga. Dýrtíðaruppbót er breytist á þriggja mánaða fresti samkvæmt vísitölu, eftir á, og er nú 66%. Prentarar fara fram á að grunn kaupið hækki um 20%, yrðu þá bæstu vikulaun, miðað við grunn- kaup, 138,36 kr., en þau lægstu 31,14 kr. Þeir fara einnig fram á að dýrtíðaruppbót breytist á mán aðarfresti samkvæmt vísitölu. Prentararnir hér semja um kjör prentara á öllu landinu. Kaup prentara utan Reykjavíkur er 20 % lægra en hér í Reykjavík, en nú fara þeir fram á að það verði ekki nema 10% lægra. Bókbindarar hafa 22,65 —93,90 kr. á viku — þeir vilja fá 31,14—138,36 kr. á viku. Nýtt dagblað átti í gær tal við Guðgeir Jónsson bókbindara en hann er í samninganefnd bókbind ara. Guðgeir gaf eftirfarandi upp lýsingar um kjör og kröfur bók- bindara. Kaupgreiðslur fara fram viku- lega og er vikugrunnkaUpið sem hér segir: Fullgildir sveinar 93.90 kr. Nýsveinar 85.45 — Nemar á fyrsta ári 22.65 — Nemar á 4.(síðasta)ári 50.90 — Stúlkur fyrstu 6 mán. 20.35 — St. er hafa unnið 2 ár 47.50 — Sumarfrí er 2 vikur og veik- indadagar allt að 12 á ári. Kaup þetta hækkar samkvæmt vísitölu á þriggja mánaða fresti, eftir á, þannig hefur uppbót sú, sem þeir hafa fengið þrjá síðustu mánuði þessa árs verið 66%, þó að dýrtíðarvísitalan fyrir desem- ber sé 75%. Kröfur þær, sem bókbindarar hafa lagt fram eru: Að kaupið hækki um 24—30% mismunandi eftir hæð grunnkaups ins. Yrðu þá hæstu grunnviku- laun 116,44 kr. Að dýrtíðai’uppbót verði reikn- uð út mánaðarlega í stað þess að vera reiknuð út á þriggja mán- aða fresti eins og verið hefur. Járnsmiðir fá 1,93 kr. um tímann — þeir vilja fá 2,30 kr. Nýtt dagblað átti í gær viðtal við Snorra Jónsson • járnsmið, en liann er í samninganefnd járn- smiða. Snorri gaf blaðinu eftir- farandi upplýsingar: Járnsmiðir eru ráðnir upp á tímakaup og grunnkaupið er kr. 1,93 fyrir fullgilda sveina, en kr. 1,78 fyrir nýsveina. Sumarfrí er 6 dagar, og „veikindadagar” all't að 6. Atvinnurekendur greiða þó því aðeins kaup fyrir veikinda daga að veikindin stafi af slysum er orðið hafa við vinnuna eða að rekja megi orsakir þeirra á annan hátt til starfsins. Dýrtíð- aruppbót reiknast eftir vísitölu á tveggja mánaða fresti og er nú 72%. Farið er fram á að tíma- kaupið verði kr. 2,30, að sumarfrí verði 1 dagur fyrir hvem unninn mánuð og veikindadagar 12. Mjólkursamsalan tilkynnir. Til þess að flýta fyrir afgreiðslunni í mjólkurbúðunum á gamlársdag og nýárs- dag verður mun meira af mjólkinni haft til sölu á flöskum þá daga, en verið hefur nú undanfarið. Þetta eru viðskiptavinir vorir vin- samlegast beðnir að athuga. Rafvirkjar hafa nú 1,93 kr. tímakaup. Fara fram á 2,50 kr. vegna sér- stakra skilyrða, sem þeim eru sett. Nýtt dagblað átti í gær viðtal við Jónas Ásgrímsson, formann Rafvirkjafélags Reykjavíkur. Gaf hann oss þessar upplýsingar: Tímakaup rafvirkja er nú kr. 1.93 á klukkustund. Vinnutimi er 9 tímar á dag eða 54 á viku, svo grunnkaup fyrir reglulega vinnuviku er kr. 104,22. Eftir- vinna er 50% hærri á klukku- stund og næturvinna 100% hærri. Sumarfrí er nú 6 dagar og veik- indadagar allt að 14 á ári. Kröfur félagsins eru þessar í höfuðatriðum: Vinnutíminn verði 49 tímar á viku. Tímakaupið verði kr. 2.50, (vikugrunnkaup kr. 122,50), og er sú krafa sett hærri en t. d. járnsmiðimir setja (kr. 2,30). með tilliti til þess, að þess er nú krafizt af rafvirkjum, ef þeir eiga að fá löggildingu sem meistarar, að þeir hafi stundað nám við rafmagnsdeild Vélstjóraskólans i tvo vetur. Eftirvinna og nætur- vinna hækki hlutfallslega. Sumar frí verði 12 dagar, en veikinda- dagar sömu. Samtök rafvirkja eru góð og almennur áhugi fyrir að ná rétti sínum. Stjórn félagsins fer með umboð þess í samningunum. Klæðskerar fá 76,50— 90,00 kr. á viku, stúlkur 195 kr. á mánuði — þeir fara fram á 100—110 kr. og 225 kr. mánaðar- laun fyrir stúlkur. Nýtt dagblað átti í gær viðtal við Helga Þorkelsson formann klæðskerafélagsins Skjaldborg og gaf hann eftirfarandi upplýsingar um kjör og kröfur klæðskera: Grunnkaup klæðskera er: Sveina 90 kr. á viku Nýsveina 76,50 — - — Stúlkna 195 kr. á mánuði. Daglegur vinnutími er 10 stamd ir, sumarleyfi 8 dagar og veik- indadagar 12. Mikið er unnið í ákvæðisvinnu og á greiðsla fyrir hana að mið- ast við föstu launin. Farið er fram á að grunnkaup sveina verði frá 100—110 kr. á viku, grunnkaup stúlkna 225 kr. á mánuði og að vinnudagur verði 8 stundir. »♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦ Hcít og köld svíð allan dagínn Kaffísalan Hafnarsfræií 16 KJggrr

x

Nýtt dagblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt dagblað
https://timarit.is/publication/258

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.