Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 11.11.1975, Qupperneq 7

Dagblaðið - 11.11.1975, Qupperneq 7
Dagblaðið. Þriöjudagur 11. nóvember 1975. Erlendar fréttir REUTER Coyfe í hung- urverkfalli Fjölskylda Marian Coyle — annars mannræningjanna, er höfðu dr. Tiede Herrema i haldi i rúman mánuð og gáfust upp um helgina — skýrði frá þvi i morgun, að Marian væri farin i hungurverkfall. Faðir stúlkunnar, sem að- eins er 19 ára gömul, sagði fréttamönnum í Dublin, að hún hefði farið i hungurverk- fall, „til að mótmæla þvi, að hún er höfð i einangrun 23 stundir á sólarhring.” Talsmaður dómsmálaráðu- neytisins vildi ekki staðfesta fréttina 7 Óvœnt tíðindi frá Ástralíu: WHITLAM VIKH> TRA - FRASER MYNDAR BRÁÐABIRGÐASTJORN Fulltrúi Elisabetar Englandsdrottningar i Ástraliu, Sir John Kerr, landstjóri, rak forsætis- ráðherrann, Gough Whitlam, frá völdum i morgun og skipaði leiðtoga stjórnarandstöð- unnar, Malcolm Fraser, til að mynda bráða- birgðastjórn. Landstjórinn sagði i yfir- lýsingu, sem hann sendi frá sér i morgun eftir að hafa rætt við Whitlam, að ákvörðun sin hefði byggzt á nauðsyn þess að finna „lýðræðis- og stjórnarskrárlega lausn” á fimm vikna stjórn- málakreppu landsins. Ákvörðun landstjórans kom mjög á óvart. Tilkynnt var um hana tæpum tveimur klukku- stundum eftir að þingflokkur Verkamannaflokksins — flokks Whitlams — tilkynnti að ákveðið hefði verið að halda kosningar til öldungadeildar þingsins 13. desember. Meirihluti öldunga- deildarinnar hefur komið i veg fyrir að fjárlagafrumvarp stjórnarinnar næði fram að ganga i þeirri von, að hægt væri að knýja Whitlam til að efna til almennra kosninga. Tæpum hálftlma eftir að til- kynning landstjórans var birt samþykkti öldungadeildin frumvarpið, svo bráðabirgða- stjórnin gæti starfað óhindrað. Gough Whitlam leiddi Verka- mannaflokkinn til sigurs i kosn- ingum i desember 1972 eftir að flokkurinn hafði verið i stjórnarandstöðu i 23 ár.Hann náði endurkosningu 1974. Fraser sagði á þingfundi i morgun, að hann myndi leysa upp báðar deildir þingsins „við fyrsta tækifæri”. Hann bætti siðan við: „Stjórn min mun starfa sem bráðabirgðastjórn eingöngu og mun ekki skipa menn i embætti eða svipta þeim, né heldur taka upp nýja stefnu fyrr en kosn- ingar hafa farið fram.” Whitlam, sem verið hefur for- sætisráðherra i 34 mánuði, bar þegar i stað fram vantrausts- tillögu á stjórnina. Samkvæmt tillögunni fer forseti þingsins fram á það við landstjórann, að hann fari þess á leit við Whit- lam, að enn verði mynduð ný stjórn. Talið er nær öruggt, að þessi baráttuferð muni bera góðan árangur, þar sem Verka- mannaflokkurinn er i meiri- hluta i fulltrúadeildinni. Landstjórinn sagðist hafa gert það eina, sem um hefði verið fyrir sig að ræða, þar sem forsætisráðherrann hefði ekki viljað segja af sér eða efna til nýrra kosninga.• Það var Whitlam sjálfur, sem skipaði Sir John i embætti land- stjóra. Tvœr ríkisstjórnir í Angola þegar eftir sjálfstœðið í nótt Angola hafði ekki fyrr fengið sjálfstæði sitt frá Portúgal á mið- nætti sl. en stofnuð voru tvö sjálf- stæð riki I landinu. Þrjár frelsis- fylkingar landsins, MPLA, FNLA og UNITA, hafa barizt um völdin þar i rúmlega fjóra mánuði. I höfuðborginni Luanda lýsti marxistahreyfingin MPLA ýfir stofnun alþýðulýðveldis og er leiðtogi hreyfingarinnar, dr. Ago- stinho Neto, forseti. Þúsundir ibúa þyrptust út á götur borgar- innar og fögnuðu lýðveldisstofn- uninni. Megin hátiðahöldin fóru fram á knattspyrnuleikvelli borg- arinnar. A meðan gerðist það i Kins- hasa, höfuðborg nágrannarikisins Zaire, að hinar frelsisfylkingarn- ar tvær lýstu yfir stofnun sam- steypustjórnar sinnar. Höfuð- stöðvar þeirrar stjórnar verða i Huambo, sem fyrrum hét Nýja Lissabon. Stjórn Portúgals hefur á engan hátt lýst yfir stuðningi við aðra hvora stjórnina, en i gærkvöldi fór siðasti landsstjóri Portúgala i Angola ásamt mönn- um sinum um borð i herskip úti fyrir Luanda. Lauk þar með 500 ára nýlenduveldi Portúgala i Afriku. FNLA og UNITA sögðu i yfir- lýsingu, sem gefin var út I Kins- hasa i morgun, að 10 af 16 héruð- um landsins væru á sinu valdi. Þar byggju tveir þriðju hlutar þjóðarinnar. Að sögn zairisku fréttastofunn- ar Azap stjórna FNLA og UNITA, ýmist saman eða sitt i hvoru lagi, 4.285.000 af 6 milljón ibúum Ang- ola. Síldin í Norðursjó á sfðasta snóning Áður en langt um liður verður Norðursjálvarsildin uppurin verði ekkert að gert til að koma i veg fyrir stórfelldar veiðar með smámöskvuðum netum, að þvi er segir i skýrslu vísindamanna til Norðaustur-Atlantshafsnefndar- innar. Nefndin kemur saman til fundar i London i dag. Þar mun hún kynna sér efni skýrslu sér- fræðinga, er starfað hafa á vegum Alþjóðaráðsins til nýtingar auðlinda hafsins. Visindamennirnir leggja til að alggjört bann verði sett á sild- veiðar i Norðursjó á næsta ári, svo stofninn nái að jafna sig og endurnýjast. Að sögn visindamannanna er sildarstofninn i Norðursjó nú aðeiTiS um tiundi hluti þess, sem hann var fyrir tiu árum. Telja þeir, að I ár nemi heildar sildar- aflinn 250 þúsund tonnum. 1 Norðaustur-Atlantshafs- nefndini eru fulltrúar Belgiu, Bretlands, Danmerkur, Vestur- Þýzkalands, Frakklands, Islands, Irlands, Hollands, Noregs, Póllands, Portúgals, Spánar, Sviþjóðar og Sovétrikjanna. Dómarinn tekur ómakið af Patty Hearst Alrikisdómari i San Fran- cisco lýsti i gær yfir sakleysi fyrir hönd Patty Hearst eftir að lögfræðingar hennar neit- uðu að segja af eða á þar sem hún væri ekki fær um að koma fyrir rétt. Á föstudaginn kvað Oliver Carter dómari upp þann úr- skurð, að Patty væri heil á geðsmunum og- fær um að koma fyrir réttinn. Lögfræð- ingar hennar — með F. Lee Baily i fararbroddi — vilja ekki viðurkenna þennan úr- skurð. I gær voru bornar fram tvær ákærur á hendur Patty Hearst, báðar vegna vopnaðs bankaráns, sem hún tók þátt i i San Francisco á siðasta ári. Einn lögfræðinga Patty, Al- bert Johnson, kvaðst fara fram á að tekin yrði til endur- skoðunar sú niðurstaða dóms- ins, að Patty væri nægilega andlega heilbri^ð. Fjórir sál- fræðingar og geðlækr.ar hafa skoðað Patty að undar.förnu og komizt að þessari niðurstöðu. ^ ^ „Zíonismi stuðlar að kynþáttamisrétti — segir í ályktun allsherjarþings SÞ ## Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna samþykkti i nótt ályktun, þar sem Zionismi, þjóðernishreyfing Gyðinga, er kölluð kynþáttastefna er stuðli að kynþáttamisrétti. Sjö- tiu og tvær þjóðir greiddu at- kvæði með tillögunni, 35 á móti og 32 sátu hjá. Sendiherra Israels hjá Sþ, Chaim Herzog, kallaði áíyktun- ina sjúklega og sagði að hún fæli i sér hrikalegar visbend- ingar. Waldheim, framkvæmda- stjóri Sameinuðu þjóðanna, sagði I óvenjulegri yfirlýsingu, að ályktunin lýsti djúpstæðum og bitrum ágreiningi meðal að- ildarrikja samtakanna einmitt þegar þörfin fyrir viðtæka sam- stöðu um fjölda málefna væri meiri en nokkru sinni fyrr. 1 Lissabon var fjöldafundur og ganga i nótt, þar sem hundruð manna lýstu stuðningi sinum við FNLA og UNITA. Portúgalski kommúnistaflokk- urinn hefur áður lýst yfir stuðn- ingi sinum við MPLA. Roberto FNLA áý Neto MPLA Nœr Franco sér að fullu? Einn lækna Francos hers- höfðingja, þjóðarleiðtoga á Spáni, sagði frá þvi i morgun. að menn gerðu sér nú vonir um, að gamli maðurinn næði sér eftir þau alvarlegu veik- indi, sem hann á nú við að striða. Sagði læknirinn, að fullur bati hershöfðingjans gæti náðst á f jórum eða fimm mán- uðum.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.