Dagblaðið - 28.04.1976, Qupperneq 24
Ansjósuveiðum við Perú haett i bili:
Hefur ekki mikið að
segia" — segir Sveinn Benediktsson
Ansjósuveiðum við Norður-
Perú hefur nú verið hætt i bili
a.m.k., en heildarmagn sem
veiðzt hefur til þessa er um ein
milljón tonna. Það svarar um
240—250 þúsund tonnum af
mjöli og um 24 þúsund tonnum
af lýsi.
„Þetta hefur ekki mikil áhrif
á verð okkar framleiðslu,”
sagði Sveinn Benediktsson
framkvæmdastjóri í viðtali við
Dagblaðið. „Mikið framboð er
af alls kyns öðru fóðri, eins og
t.d. maís og sojabaunum, en því
er ekki að neita að þetta mun
styrkja verðið eitthvað.”
Sagði Sveinn ennfremur að
þetta magn Perúmanna af
mjöli myndi að öllum líkindum
ekki fara allt á markað
erlendis, þar eð þeir hefðu
mikil not fyrir það heima fvrir.
—HP
A Sögu i morgun. F.v. Císli Pálsson. Kristófer Kristjánsson og Stefán
Jónsson. >lyn<l: It.jiirgvin.
Böðunarmálin á Löngumýri:
„Teljum Löngumýrar-
f éð sýkt f járkláða
— segir sérstök nefnd bœnda, en maur
fannst á fé hans sl. haust
Að okkar áliti er fé Björns á
Löngumýri sýkt. Það er staðfest
af dýralækni að kláðamaur fannst
á kind frá honum í sláturhúsinu á
Blönduósi sl. haust, og síðan
hefur hann neitað að láta skoða
féð og einnig að tvíbaða, sögðu
þrír fulltrúar bænda í Húnavants-
sýslu, er DB ræddi við þá í
morgun skömmu áður en þeir
héldu á fund landbúnaðarráð-
herra og ef til vill fleiri ráðherra.
Þeir eru Gísli Pálsson oddviti,
Hofi, Kristófer Kristjánsson
búnaðarfélagsformaður. Köldu-
kinn, og Stefán Jónsson hrepp-
stjóri, Kagaðarhóli.
Að sögn nefndarmann er hér í
raun og veru um að ræða hvort
fjárkláði á óhindrað að fá að
breiðast út eða ekki, því standi
Björn á neitun sinni, er samstaða
um útrýmingarböðun þar með
hrunin, jafnvel víðar um landið.
Þeir vildu leiðrétta þann
misskilning að deila þessi stæði
milli sýslumanns og Björns,
bændur allir á svæðinu vildu að
Björn baðaði enda er það stór-
hagsmunamál fyrir þá. Allt að 60
þúsund fjár er á umræddu svæði
og kostar a.m.k. sex þúsund
vinnustundir að baða það allt, auk
efniskostnaðar og fleiri liða.
Nefndarmenn hyggjast nú
reyna til þrautar að fa yfirvöld til
að beita sér fyrir böðun fjár
Björns, með góðu eða með vald
böðun. Þess má að lokum geta að
dómsmálaráðuneytinu barst í gær
skeyti frá félagi dýralækna þar
sem þeir krefjast að böðunin nái
fram að ganga, en Björn hefur
þrisvar áður neitað að baða, en
alltáf fallizt á það um siðir. -G.S.
frjálst, úháð dagblað
MIÐVIKUDAGUK 28. APRÍL 1976.
ENN EITT MÓTOR-
HJÓLASLYSIÐ
— ökumoður hjólsins
i slysadeild
Enn eitt mótorhjólaslysið
varð um hálftíuleytið í gær-
kvöld inni i Kleppsholti. Jeppa-
bifreið, sem kom akandi austur
Holtaveg og hugðist beygja inn
í Skipasundið, svínaði fyrir
mótorhjólið með þeim
afleiðingum, að það skall utan í
hlið bílsins og kastaðist síðan á
annan bíl, kyrrstæðan.
Ökumaður mótorhjólsins, 17
ára gamall, var fluttur í Slysa-
deild, þar eð hann kvartaði yfir
eymslum í mjöðm og baki.
Talsverðar skemmdir urðu á
hjólinu. einnig sá nokkuð á
hægri hlið jeppans. —AT
Mótorhjólið skemmdist
nokkuð, og einnig sá á
jeppanum. Ljósm. Sveinn
Þormóðsson.
Banamenn Guðmundar Einarssonar:
í SÍÐARIFERÐINNIVORU
BÖGGLARNIR TVEIR
- MISSTÓRIR
Við yfirheyrslur yfir bana-
mönnum Guðmundar Einars-
sonar og Albert Skaftasyni,
sem ók líki hans suður fyrir
Hafnarfjörð í janúar 1974, kom
fram að haustið 1974 var Albert
fenginn til að fara aðra ferð
rneð þrentenningana frá húsi
einu í Hafnarfirði, eins og
fram hefur komið í DB. t þetta
skipti var farið nokkru lengra
suður óftir.
Flutningurinn i þessari
ferð, samkvæmt framburði
Alberts, voru tveir böggl-
ar, annar smærri en hinn.
Þremenningai iiu — Sævar
Marinó Ciesielski, Kristján
Viðar Viðarsson og Tryggvi
Rúnar Leifsson — sögðu Albert
að þeir væru með lík, og skyldi
hann sjálfur fara sömu leið, ef
hann ekki héldi sér saman um
flutninginn.
Ökumaðurinn telur að þetta
hafi verið um miðjan
september, en hann útilokar
ekki þann möguleika að sig
kunni að misminna um tíma-
setninguna. Rannsóknarlög-
reglan mun vera þeirrar
skoðunar að þessi ferð hafi
getað verið farin hvenær sem
er þetta haust. allt frá
ágústlokum og fram i desem-
ber.
Þessi ferð var farin um miðja
nótt Eins og áður hringdu
þremenningarnir í Albert heim
til hans og fengu hann til að
aka sér. Farið var frá því sama
húsi í Hafnarfirði, þar sem
Guömundur Einarsson lét lífiö,
en þegar siðari ferðin var farin
var Sævar Ciesielski fluttur
þaðan.
Þremenningarnir munu hafa
staðfest frásögn Alberts um
þessa næturferð. en fátt eitt
mun hafa komið fram um
innihald pokanna. Rannsóknar-
lögreglan hefur ekki viljað
staðfesta þessar upplýsingar
DB. frekar en aðrar, sem siðar
hafa þó verið staðfestar. -Ó
4W
Kristjón
Pétursson,
deildurstjóri
kœrður
— sakaður um að
hafa farið út ffyrlr
starfssvið sitt
Kristján Pétursson,
deildarstjóri tollgæzlunnar á
Keflavíkurflugvelli, hefur
nú verið kærður til Varnar-
máladeildar utanríkisráðu-
ne.vtisins. Er honum gefið að
sök að hafa farið verulega
út fyrir starfssvið sitt, meðal
annars vegna afskipta af
máli, sem ekki heyrði undir
hann að fjalla um. Er krafizt
rannsóknar á þessum sakar-
giftum og þess að ráðstafan-
ir verði geróar í samræmi
við niðurstöður hennar, sem
og viðurlögum við broti í
starfi.
Samkvæmt heimildum,
sem blaðið telur traustar. á
framangreind kæra rætur I
afskiptum Kristjáns Péturs-
sonar af málum tveggja
varnarliðsmanna, sem talið
er.að gerzt hafi brotlegir við
íslenzk lög. Hafi þó aðgerðir
deildarstjóra tollgæzlunnar
ekki verið í neinu samræmi
við eðli brotsins, enda hafi
hann með þeim ekki skilið
réttilega á milli hlutverks
tollgæzlu og lögreglu. Hafi
hann þannig gengið langt út
fyrir sitt starfssvið. Hafi þó
mátt ráða af aðferð hans, að
Haukur Guðmundsson,
rannsóknarlögreglumaður í
Keflavík, væri að minnsta
kosti vitundarmaður um
starfsaðferðir Kristjáns og
þeim samþykkur. Eftir því
sem næst verður komizt
varðar þetta bæði handtöku
og aðferðir við yfirheyrslur.
Er rannsókn málsins á frum-
stigi. -BS-
Veíði þorskinn við ísland
— segi hann veiddan á Fœreyjabanka
sagði þýzkur togaraskipstjóri
og gerði grin að samningi
fslendinga og V-Þjóðverja
V-þýzkir togarar voru á frið-
aða svæðinu út af Berufjarðar-
ál þegar þeir fengu vitneskju
um það i talstöðina frá eftirlits-
skipi að varðskip nálgaðist.
Reyndar voru þeir svo
nákvæmir. að þegar varðskip
átti 14 mílur ófarnar að svæð-
inu þá voru þeir látnir vita og
þeir hífðu og forðuðu sér,”
sagði Alfreð Steinar Rafnsson,
stýrimaður á Ljósafossi í viðtali
við DB í gær. en Alfreð talar
þýzku vel og skilur því hvað
Þjóðverjum fer á milli.
„Með þessu,” héit Alfreð
áfram, „nedda þeir sólarhringn-
um því mokfiskur er á svæðinu.
Þetta atvik á aðfaranótt föstu-
dagsins var ekki það fyrsta.
— Annars heyrði ég í tal-
stöðinni fyrr í vetur að skip-
stjórinn á v-þýzka togaranum
Berlin var að gera grín að
samningunum milli íslendinga
og Þjóðverja. Hann var þá að
ræða við annan togaraskip-
stjóra og sagði að það væri
ekkert vandamál að fóðra þorsk
aflann. Það væri afskaplega
einfalt — hann veiddi þorsk-
inn á íslandsmiðum og segði er
heim kæmi, að hann hefði
komið við á Færeyjabanka og
veitt þorskinn þar.
Tölur Fiskifélagsins um
þorskafla V-Þjóðverja á ís-
landsmiðum gæfu alls enga
hugmynd um afla þeirra I raun-
veruleikanum — það er aðeins
lítill hluti. Því er samningurinn
við V-Þjóðverja í reynd skrípa-
leikur. h.halls.
Sjó bls. 9
Skeyti til DB
Skipstjórar á Austurlandi
sendu Dagblaðinu eftirfar-
andi skeyti í morgun: Við
skipstjórar á undirrituðum
skipum lýsum fullum stuðn-
ingi við aðgerðir starfs-
manna strandstöðva um af-
greiðslubann á brezk skip á
meðan á þorskastríði
stendur. Ljósafell, Hólma-
nes, Barði, Skinne.v, Hval-
bakur. Brettingur, Bjartur,
Rauðinúpur, Björgvin og
Vestmannaey. —G.S.