Dagblaðið - 11.05.1976, Side 15

Dagblaðið - 11.05.1976, Side 15
DAtíBLAÐIÐ. ÞRIÐ.H'DAlíl'R 11. MAÍ 1976. Þórarinn Þórarinsson fyrr- verandi skólastjóri á Eiðum stjórnaði fjöldasónfí af miklum skörunnsskap. Við sjáum þarna Hákon Bjarnason skófíræktar- stjóra sem ekki hætti sér að þessu sinni upp á hinn virðu- lefía ra*ðupall. Jón frá Skuld klippir niður f-ra'ðliiif'a. Be/.t er að taka þá í marz of> ííoyma i kassa með mosa á köldum stað. En það má enn taka f’ræðlinf'a. haka var hægt að koma við til þess að undirbúa jarðveginn. Það hefði verið mesta furða hvað það skaut rótunt. en annað hvert ár hefði hann borið á lífrænan áburð. fiskimjöl eða skít. \ú þótti tími til þess að ftera hlé á kennslunni og hafa frí- mínútur. Þeir Ólafur formaður og Þórarinn Þórarinsson fyrr- verandi skólastjóri á Eiðurn (mikill skógræktarmaður) ætl- uðu báðir að skemmta fólkinu úr ræðustóli (trékassanum). en hann þoldi ekki þunga beggja svo að Ölafur sá sitt óvænna áður en kassinn brotnaði og Þórarinn stjórnaði fjöldasöng. Undir tóku allir. hver nteð sínu nefi og ióan söng og hrossa- gaukurinn hneggjaði með. Grœðlingar skulu vera um 15 sm Þá var komið að græðlingum. Jón frá Skuld tók brekkuvíði. sent hann klippti af mikilli snilld. Raunar á að taka græðl- inga í rnarz. þótt enn megi gera það. Þegar græðlingar eru tekn- ir í rnarz eru þeir geymdir í kassa með mosa á köldum stað. Þeir ntega frjósa. Klipptir eru af víðinum helzt nokkuð gildir sprotar og þeir hafðir um 15 sm langir. Þeir eru gróðursettir á vorin strax og frost fer úr jörðu. Aðeins einn til tveir brunthnappar eru látnir standa upp úr. því að þá nær rótin að verða sterkari. Græðlingarnir eru settir á jörðina á ská. A fyrsta sumri er þegar komin töluverð rót á brekkuvíðinn. en hann er látinn vaxa upp á sama stað i tvö ár áður en honurn er plantað þar sem harin á að vera endanlega. Hann er ekki hafður undir plasti því 'að þá verður hann ekki nógu harö- gerður. Hann þarf að hafa mátulega erfið skilyrði. Hægt er að taka græðiinga af öllum viðitegundum og einnig alaska- ösp. 15—18 sm milli plantna í limgirðingu Þegar á að mvnda úr honum limgirðingu eru plönturnar settar niður með 15—18 sm millibili. Beðin eru um það bil 40 sm breið. Sumir grafa svo sem tvær skóflustungur niður (40—60 sm) og setja í skurðinn hrossatað og svo moldina yfir og síðast viðinn. Aðrir grafa beð. losa moldina bara í helm- ingnum af beðinu. leggja plönt- una að moldinni þar sem hún er föst. setja síðan mold að rótun- um og blanda hrossataði saman við afganginn af lausu mold- inni. Segja þeir að víðirinn skjóti ekki síður rótum þar sem moldin hafi ekki verið losuð og þar fái hann meiri raka. Limgirðing er klippt til í marz áður en brumhnapparnir fara að springa út. Ef það væri gert nú ..blæðir of mikið úr sárinu." eins og skógræktar- menn orða það. Það má hins vegar einnig klippa þegar trén eru orðin laufguð á sumrin. Annars fara skrúðgarðaeigend- ur aldrei út í garð án þess að hafa með sér klippur. því alltaf er eitthvað sem þarf að laga til og snikka. Með klippingu á trjám gildir það sama um allar trjátegundir. Erfiðara er að eiga við að koma gljáviði til en brekkuviði. hann kelur rnikið og kemur Það er ekkl gott að segja hvað ég geri þegar ég verð stór. Kannski verð ég skógræktarstjóri. DB-myndir Bjarnleifur. Hvað með reynitré? Spurning kom frá einum áhugasömum nemanda hvernig ætti að sá reynifræj- um. Þannig er farið að. að þegar reyniberin eru orðin vel þroskuð á haustin. eldrauð og mjúk (skógarþrösturinn er ein- mitt æstastur i þau þá) er um að gera að vera á undan honum að ná beriunum. Berin eru sprengd með fingrunum. í þeim eru 5—6 dökk fræ. Þeim er dreift í græðireit á haustin. áburðurinn er sá sami og á birkifræin. Þarna eru þau látin liggja yfir veturinn. Fuglarnir vilja berin ekki sprengd. Xæsta vor er svo sett 1—2 mm sandlag vfir fræin og breitt yfir græðireitinn glugga- plast eða annað gott plast. sem síðan er tekið af í kringum miðjan júlí. Reyniplönturnar eru hafðar tvö ár í kassanum áður en þeirn er plantað út. Jón sagði dæmi um hvað birkifræ væri harðgert. Hann hefði sáð þvi í grjóturð.holt og mela. þar sem hvorki skóflu né seint til á vorin en stendur því lengur á haustin. Hákon Bjarnason skógræktarstjóri fræddi menn litillega um gljá- viði. sem hann sagði að vel væri hægt að korna vel til ef rétt væri að farið. Það væri efni i aðra grein að segja frá fleiri trjátegundum. Hvað um það var ég orðin stútfull af upþlýs- ingum og kom ekki meiri vizku fyrir í bili. Sennilega þekki ég nú mun á birki og víði héðan í frá og það gerið þið líka ef þið bara bvrjið að rækta. Það þarf ekki endilega að eiga stóran garð. Meira að segja mætti gróðursetja nokkrar tegundir trjáa á svölunum hjá sér. Allir í skógrœktarfélögin Nú fór formaður Skóg- ræktarfélags Islands, Jónas Jónsson. upp á kassann og hvatti alla til þess að ganga í hin ýmsu skógræktarfélög í sinni heimab.vggð. Sungið var „Hvað er svo glatt. Þess má geta að það voru ekki bara Hafnfirðingar sem gerðust þarna nemendur, heldur var fjöldinn allur af fólki á R- bílum. Sennilega verða allir spenntir að sjá hvað kemur upp úr græðireitnum sem Jón frá Skuld sáði í og vilja sjá stærðar plöntur koma upp i haust. DB-myndir Bjarnleifur Að lokum fór hópurinn að friðlandi Jóns Magnússonar, sem er í um eins km fjarlægð, og leit á árangur starfs hans. Varla er hægt að lýsa því. Arangurinn er hreint og beint ótrúlegur. Ef menn vilja svo verða sér úti um meiri vitneskju um trjá- rækt. þá eru til ýmsar hand- bækur um það efni. Auk þess kemur út rit einu sinni á ári hjá Skógræktarfélagi íslands. Rétt er líka að benda á aö flestar algengar tegundir trjá- fræja eru til í Sölufélagi garó- vrkjumanna. — EVI Þaö skein áhugi úr hverju andliti. Sumir treystu minninu ekki of vel og skrifuöu niöur hjá sér punkta.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.