Dagblaðið - 09.08.1978, Side 3

Dagblaðið - 09.08.1978, Side 3
DAGBLADIÐ. MIÐVIKUDAGUR 9. ÁGÚST 1978. 3 Lögreglan vildi ekki stoð Haukur Þór Haraldsson skrifan Áður en ég hef sögu mína ætla ég að rita upp smá kafla úr bókinni Vegfarandinn: „Því miður er það svo, að ekki er nóg að setja lög, til þess að allir fari eftir þeim. Það hefur reynzt nauðsyn- legt að ráða sérstaka menn til þess að sjá um, að lögin séu haldin. Þessir menn eru lögregluþjónar. Þeirra hlut- verk er margþætt. Þeir eiga, eins og áður segir, að gæta þess að lög séu haldin og þeir fái áminningu eða makleg málagjöld, sem brjóta þau. Ennfremur er þeim ætlað að leiðbeina og leysa úr ýmsum vanda í umferðinni ogannars staðar.” Þannig var mál með vexti, að bíll- inn minn varð rafmagnslaus 500 m frá lögreglustöðinni í Reykjavík. Eftir að hafa árangurslaust leitað aðstoðar, svo sem reynt að fá sendibíl, gafst ég upp að lokum og ákvað að leita á náðir lögreglunnar. Þegar ég kem inn i anddyri lögreglu- stöðvarinnar sé ég þar afgreiðsluborð, sem ég geng að. Þar fyrir innan situr vaskur lögregluþjónn. Þegar ég hafði tjáð honum erindi mitt vingsaði hann handleggnum í áttina að einni dyr og sagði. Talaðu við þá þarna. Ég fór þangað inn. Þar voru u.þ.b. 15 lögregluþjónar. Stóð ég þarna eins og illa gerður hlutur þar til ég náði sam- bandi við þriðja lögregluþjóninn sem gekk framhjá mér. Þegar ég hafði borið upp erindi mitt sagði annar lögregluþjónn sem heyrt wJLJmmm.... ^BananaspIit Skalli Lækjargötu 8, Hraunbæ102 Reykjavíkurvegi 60 Hf. Liklega hafa þessi börn verið lögreglunni ósköp þakklát fyrir hjálpina. Bréfritari hefur hins vegar aðra sögu að segja um „hjálpsemi” lögreglunnar. DB-mynd: Sveinn. hafði orð mín. „Simi sendibílastöðvar- innar er 85000.” Þegar ég sagði honum, að ég væri búinn að reyna að fá sendiferðabíl sneri hann sér undan og gekk hvatlega í burt. Sagði þá fyrri viðmælandi minn: „Talaðu við þá f þarna,” og benti á opnar dyr. Þar inni voru sex lögregluþjónar og var einn þeirra, sá er sat við skrifborð, öllu skrautlegri en hinir og bar marg- lita gullstjörnu. Gerði ég mér vonir um, að þetta væri yfirmaður, sem hægt væri að tala við. En vonir mínar brustu. Ekki var hægt að ná neinu sambandi við þessa menn og gekk ég þá út. Þegar ég var kominn út sá ég átta lögreglubila í portinu fyrir aftan stöðina og þegar ég var á leiðinni heim óku þrír lögreglubilar framhjá mér. Ég veit, að sumir þessara bíla eru útbúnir startköplum. Kannski er ekki kennt i lögregluskólanum, hvernig á að'nota Þá- Vona ég, að einhver yfirmaður lögreglunnar í Reykjavík svari þessu bréfi og gefi skýringu á hvers vegna lögreglan vildi ekki veita umbeðna aðstoð. Burt með ruslið af Vesturlandsvegi 0846—0787 skrifan „Margt er það í bæjarlifinu sem látið er danka átölulaust og ibúar Reykjavikur láta sér lynda og „sofna” fyrir. Eitt af því er rusl á Vesturlands- vegi, sem fýkur af bílum sem eru á leið með rusl á öskuhaugana. 1 okkar gjóstusömu veðráttu er það skíljanlegt að laust rusl á bílpöllum fjúki af þegar ekið er á haugana. Oft á tíðum má sjá slóð slíkra hluta allt frá Elliðaám að öskuhaugavegi. Og það sem verra er, þetta spýtnabrak og vírdrasl vill oft liggja dögum saman á þessum fjölfarna vegi. Enginn myndi ganga svo frá einhverjum verðmætum hlutum á bilpalli að þeir gætu fokið af palli. En af hverju að vera svona kærulaus með draslið? Það er kaldhæðni örlaganna að þeir sem eru að flytja þetta drasl á haugana eru að vinna hreingerningarstörf. En illa er unnið þegar ruslið er flutt af einhverjum afviknum stað og dreift á einn fjölfarnasta vegarkafla höfuð- borgarinnar. Tökum nú saman höndum. Þeir sem flytja ættu að ganga vel frá rusla- farmi á opnum palli. Hinir sem sjá fjúkið ættu að reyna að gera sér far um að láta flytjendur vita um að þeir misstu farm af palli. Gerum þetta þangað til þvi fári linnir að Vestur- landsvegurinn sé stráður rusli, sem einnig stafar mik.il slysahætta af í umferðinni.” Stjórnarmyndun Magnús Maríusson, Háaleitisbraut 28 hríngdi: Undanfarnar vikur hefur almenningur fylgzt með tilraunum til stjórnarmyndunar af áhuga. Þessar tilraunir hafa allar mistekizt. Mönnum þykir gamanið nú vera farið að káma. Fólk vill að þessi mál verði tekin föstum tökum, stjórnmálamenn hætti karpi sínu og myndi stjórn, sem tekst á við vandamálin af heiðarleika og einurð. Ég legg til, að stjórnmálaflokkarnir semji grið sin á milli og leyfi Alþýðu- flokknum, sem bætti svo mjög við sig fylgi út á umbótatilögur sinar, að spreyta sig einum í stjórn í eitt til tvö ár. Siðan ætti að efna til kosninga að þeim tíma liðnum. Það verður að leyfa einhverjum einum flokki að takast á við vanda- málin í friði. Sá undansláttur og þær málamiðlanir, sem einkenna sam- steypustjórnir duga ekki þegar í harð- bakkann slær. Þjóðarhagur er það sem máli skiptir en ekki flokkshagsmunir. Alþýðuflokknum ber siðferðileg skylda til að fara einn i stjórn og standa eða falla með gjörðum sinum fyrst hann fær ekki aðra flokka til samstarfs við sig. Ef Alþýðuflokkurinn fær ekki komið fram málum sínum á Alþingi þegar hann er kominn í stjórn, trýi ég ekki öðru en að kjósendur styðji hann i þeim kosningum sem þá yrði efnt til þ.e.a.s. ef hann vinnur af heiðarleika og festu að málum. Skoðar þú myndasögur í dagblöðum? Andrés Steingrímsson: Já. Mér finnst Stjáni blái í Dagblaðinu beztur. Það var ofsa gaman aðsvampdýrunum í sögunni um daginn. Ragnar Axelsson: Auðvitað geri ég það. Þær eru allar ágætar. Mummi meinhorn er t.d. mjög góður. Guðmundur Jónsson: Ég geri það. Skemmtilegust þykir mér sagan um Hvutta. Hekla Sigmundsdóttir: Já. Mér finnst þær allar jafnskemmtilegar. Ægir Sigmundsson 6 ára: Já, ég skoða þærstundum. Etfsabet Þórðardóttir: Það kemur fyrir. En mér þykir ekki gaman af þeim. þær eru allar lélegar. Ég veit eiginlega ekki hvernig myndasögum ég mundi hafa gaman af.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.