Dagblaðið - 18.08.1978, Page 1
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 18. ÁGÚST 1978.
13
HVAÐ ER A SEYÐI
UM HELGINA?
Sjá miðopnu
Ráníð á bami Lindberghs
— bandarísk mynd byggð á sönnum viðburðum
Ránið á barni Lindberghs nefnist ný
bandarisk sjónvarpskvikmynd, sem
byggð er á sönnum atburðum. En
mynd þessi verður sýnd i sjónvarpinu
laugardaginn 26. ágúst nk. C'harlie
Lindbergh öðlaðist heimsfrægð cr
hann flaug einn vél sinni yfir Atlants-
haf árið 1927 og var hann nánast
dýrkaður sem þjóðhetja. Fintm árum
L '
eftir að hann tlaug vél sinni eða árið
1932 var ungum syni hans rænt og
krafðist ræninginn 50.000 dala lausn-
argjalds. Þetta mál var mikið blaðamál
á sínum tínia og vakti barnsránið
gifurlega athygli þar sem svo frægur
maður átti i hlut. Þessi mynd er án efa
ntjög góð, og fróðlegl verður fyrir þá
sem ekki niuna eftir þessu máli úr
blöðunum. að fylgjast með myndinni.
Með aðalhlutverk i myndinni fara
Cliff de Young. Anthony Hopkins.
Walter Pidgeon og Joseph Cotten.
Myndin er tveggja og hálfrar stundar
löng og er hún í lit. Þýðandi er Jón
Thor Haraldsson.
-ELA.
SJÓNVARP NÆSTU VIKU
Lindbergh hjónin (Cliff de Young og Sian Barbara) með syni sinum sem var rænt og fannst aldrei.
Miðvikudagur
23. ágúst
20.00 Fréttir or veður.
20.25 Augljisingar or dagskrá.
20.30 NJjasta tækni or vísindi (L). Umsjónar-
maðurSigurður H. Richter.
20.55 Dýrin mín stór og smá (L). Breskur
myndaflokkur. 4. þáttur. ÁstfanRÍð unRviði.
Efni þriðja þáttar: Siegfried Farnon ræður
einkaritara til að sjá um bréf og rcikninga. Það
er miðaldra kona sem tekur starfið mun alvar-
legar en Siegfried gat grunað. Jamcs er beð
inn að vitja um meiddan kálf og kynnist þá
stúlku. Helen Anderson. sem hann verður
hrifinn af. Hundur frú Pumphreys fær enn eitt
kastið og James tekur að sér að ..lækna"
hann. Í fagnaðarveislu sem frúin heldur
drekkur James fullmikið og fer í vitjun í nátt
fötunum. Það vekur að sjálfsögðu umtal i
sveitinni. Þýðandi Óskar Ingimarsson.
21.45 Boðberl hlutleyslsstefnu (L). Finnsk
heimildamynd um Urho Kekkonen. forseta
Finnlands. Sjónvarpsmenn fylgdust með for
setanum i nokkra daga að störfum og i skiða
ferð um Lappland. Þýðandi Trausti Júliusson.
22.35 Dagskrárlok.
Föstudagur
25. ágúst
20.00 Fréttir or veður.
20.30 AuRlýsinRar or dagskrá.
20.35 Súlurnar á Sæluey (L). Kanadisk mynd
um súlubyggð á eyju i St. Lawrence flóa.
Fuglalifið á cynni cr nú í hættu vegna
mengunar i flóanum. Þýðandi og þulur Bogi
Arpar Finnbogason.
21.00 Frá Listahátíð 1978. Upptaka frá
..maraþontónleikum” í Laugardalshöll.
Íslenskir kórar syngja. Stjórn upptöku Egill
Eðvarðsson.
21.20 Casino Royale (L). Bresk gamanmynd
frá árinu 1967. Aðalhlutverk Peter Sellers,
Ursula Andress. David Niven og Orson
Welles. Hinn frábæri njósnari James Bond er
kominn á eftirlaun. en tekur að sér að reyna að
hafa hendur i hári manns nokkurs sem seilist
eftir heimsyfirráðum. Þýðandi Jón O. Edwald.
23.20 Dagskrárlok.
Laugardagur
26. ágúst
16.30 íþróttir. Umsjónarmaður BjarniFelixson.
Hlé.
20.00 Fréttir or veður.
20.25 AuRlýsinRar or dagskrá.
20.30 SkapadæRur siðmenninRar (L). Nýr.
breskur gamanþáttur. Aðalhlutverk John
Cleese, Arthur Lowe ogConnie Booth. Sagan
hefst á þvi að Henry Gropinger. sérlegur
ráðgjafi Bandarikjastjórnar, er myrtur á
ferðalagi um Austurlönd nær og afkomandi
Sherlocks Holmes er fenginn til að rannsaka
morðið. Þýðandi Kristmann Eiðsson.
21.20 Rániö á barni Lindberghs (L). Ný, banda
risk sjónvarpskvikmynd. byggð á sönnum
viðburðum. Aðalhlutverk Cliff de Young.
Anthony Hopkins. Waltcr Pidgeon og Joseph
Cotten. Árið 1932 Va<- ungum syni bandariska
flugkappans Charles Lindberghs rænt og
krafðist ræninginn 50.000 dala lausnargjalds
fyrir barnið. Lindbergh öðlaðist heimsfrægð
fimm árum fyrr er hann varð fyrstur maniia
til að fljúga einn yfir Atlantshaf Fyrir afrek
sitt var hann nánast dýrkaður seni þjóðhetja
og þar seni svo frægur maður átti i hlut vakti
barnsránið gifurlega athygli. Þýðandi Jón
Thor Haraldsson.
23.40 Dagskrárlok.
Sunnudagur
27. ágúst
18.00 Kvakk-kvakk (L). ítölsk klippimynd.
l8.05”SumarleyfiN Hönnu (L). Norskur mynda-
flokkur. Lokaþáttur. Þýðandi Jóhanna
Jóhannsdóttir (Nordvision — Norska sjón
varpið).
18.25 Saga sjóferðanna (L) Þýskur fræðslu
myndaflokkur i sex þáttum um upphaf og
sögu siglinga. 2. þáttur. Vindurinn beislaður.
Þýðandi og þulur Björn Baldursson.
18.50 Hlé.
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar or dagskrá.
20.30 Lilja (L). Kvikmynd byggð á samnefndri
smásögu Halldórs Laxness. Um uppruna
sögunnar hefur Halldór sagt m.a.: „Ég var
nýkominn að utan og var til húsa á hóteli i
miðbænum um skeið. Þessi saga vaktist upp
hjá mér við stöðugar likhringíngar úr Dóm-
kirkjunni. Kvikmyndahandrit Hrafn Gunn
laugsson og Snorri Þórisson. Hlutverkaskrá:
Nebúkadnesar Eyjólfur Bjarnason. I.
Sjónvarp laugardaginn 26. ágúst kl. 21,20:
Sjónvarp laugardaginn 26. ágúst kl. 20,30:
Skapadægur siðmenningar
— ný brezk
gamanmynd
Laugardaginn 26. ágúst nk. veröur
sýnd i sjónvarpinu ný brczk ganian
ntynd. Myndin segir frá er Henry
nokkur Gropinger, sérstakur ráðgjafi
Bandaríkjastjórnar. er myrlur á ferða-
lagi um Austurlönd og er afkomandi
Sherlocks Holmes fenginn til að
rannsaka morðið. Myndin er gaman-
niynd. fyndin og skcmmtileg. og
stendur yfir í fjörutiu ntin. Mcð aðal-
hlutverk i myndinni fara John Cleese.
Arthur Lowe og Connie Booth.
Þýðandi er Kristmann Eiðsson og cr
myndin i lit. ELA
Úr ntyndinni Skapadægur siðmenningar.
^ Sjónvarp
Laugardagur
19. ágúst
16.30 Iþróttir. Umsjónarmaður Bjarni Felixson.
Hlé.
20.00 Fréttir or veður.
20.25 AuRlýsinRar or dapskrá.
20.30 Dave Allen lætur móðan mása (L). Breskur
gamanþáttur. Þýðandi Jón Thor Haraldsson.
21.15 Sjávarstraumar (L). Stutt sjávarlifsmynd
án orða.
21.30 Sjöundi réttarsalur (L). Bandarísk sjón-
varpsmynd, byggð á sögu eftir Leon Uris.
Þriðji og siðasti hluti. Réttarhöldin.
Rithöfundurinn Abe Cady er sjálfboðaliði i
breska flughernum í siðari heimsstyrjöldinni.
Hann skrifar skáldsögu um kynni sin af strið-
inu og siðar gerist hann mikils metinn kvik-
myndahandritahöfundur. Hann fer til ísraels
til að vera við dánarbeð föður sins. Að ósk
gamla mannsins kynnir Cady sér örlög gyð-
inga sem lentu i fangabúðum nasista. Niður-
stöður athugana hans hafa djúpstæð áhrif á
hann. Cady skrifar skáldsögu um raunir gyð-
inganna og þar er minnst á Kelno lækni. Þýð-
andi Ellert Sigurbjörnsson.
00.05 Dagskrárlok.
Sunnudagur
20. ágúst
18.00 Kvakk-kvakk (L). ítölsk klippimynd.
18.05 Sumarleyfi Hönnu (L). Norskur mynda-
flokkur i fjórum þáttum. 3. þáttur. Þýðandi
Jóhanna Jóhannsdóttir. (Nordvision —
Danskasjónvarpið).
18.25 Saga sjóferðanna (L). Þýskur fræðslu-
myndafiokkur i sex þáttum um upphaf og
sögu siglinga. 1. þáttur. Þýðandi og þulur
Björn Baldursson.
18.50 Hlé.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.30 Safalaey (L). Kanadisk heimildamynd um
dýralif á Safalaeyju við vesturströnd Kanada.
Eyjan er 30 km löng og 1 —2 km breið óg vitað
er um meira en 200 skip sem farist hafa við
strendur hennar. Hún er óbyggileg mönnum
en þar eru villihestar, selabyggð og fjölbreytt
fuglalif. Þýðandi og þulur Gylfi Pálsson.
21.00 Gæfa eða gjörvileiki (L). Bandariskur
framhaldsmyndaflokkur. 11. þáttur. Efni ti-
unda þáttar: Billy og söngkonan Annie Adams
fara til Los Angeles þar sem hún kemur fram i
sjónvarpsþætti og vekur mikla hrifningu.
Rudy kemur fyrir þingmannancfnd og óskar
eftir rannsókn á starfsemi Esteps vegna gruns
um misferli en nefndin hafnar kröfu hans.
Jtstep lætur leysa Falconetti úr fangelsi.
Diana, dóttir Maggie, reynir að hughreysta
Wes i sorg hans og verður vel ágengt.
21.50 Dolly Parton (L). Tónlistarþáttur með
bandarisku ^söngkonunni og lagasmiðnum
Dolly Parton.
22.35 Að kvöldi dags (L). Séra Ólafur Jens
Sigurðsson á Hvanneyri flytur hugvekju.
22.45 Dagskrárlok.
Mánudagur
21. ágúst
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.30 íþróttir. Umsjónarmaður Bjarni Felixson.
2I.00 Þrir dagar í Stettin (L). Breskt sjón-
varpsleikrit, byggt á atburðum, sem gerðust i
Póllandi árið I97I og vöktu mikla athygli.
Leikstjóri Leslie Woodhead. Aðalhlutverk
Leslie Sands og Kenneth Colley. Starfsmenn
skipasmiðastöðva i Stettin leggja niður vinnu
og neita að hefja aftur störf fyrr en Edward
Gierek, ritari Kommúnistaflokks Póllands.
komi til viðræðna við þá. Þýðandi Dóra Haf-
steinsdóttir.
22.20 Þjóð á þröm (L). Fræé^lumynd. gerð að
tilhlutan Sameinuðu þjóðanna, um fátækt i
Bangladesh og víðar. Þrátt fyrir viðtæka
aðstoð við fátækar þjóðir um þriggja áratuga
skeið breikkar enn bilið milli þqirra og hinna
efnuðu. Þýðandi Jón O. Edwald.
22.50 Dagskrárlok.
Þriðjudagur
22. ágúst
20.00 Fréltir og veður.
20.25 Auglýsingarogdagskrá.
20.30 Þjóðgarðar í Evrópu (L). Þýsk mynd.
tekin í þjóðgörðum Júgóslaviu. Þýðandi
VeturliðiGuðnason.
21.15 Kojak (L). Bandariskur sakamálamynda-
fiokkur. Mannrán. Þýðandi Bogi Arnar
Finnbogason.
22.05 Sjónhending (L) Erlendar myndir og
málefni. Umsjónarmaður Sonja Diego.
22.25 Dagskrárlok.