Dagblaðið - 12.10.1978, Page 9
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 1978.
.................
HUN YRKIR
ÍHÁR
— spjallað við Dúu í
Lótus sem hefur klippt
oglagt hárí30 ár
Einhver alvandvirkasta hárgreiðslukona
bæjarins á 30 ára starfsafmæli í dag.
Hún heitir Þóra Björk Ólafsdóttir, öðru
nafni Dúa í Lótus. Afmælið er tvöfalt því
síðustu fimm ár hefur hún rekið kjóla-
verzlun, ásamt hárgreiðslustofunni að
Álftamýri 7.
Kvenlegt og rómantískt. Þungt fila-
beinslitað silki. Þessi og tuttugu aórir
kjólar verða sVndir á HótelEsju í
kvöld. Þeir fást allir i Lótus.
Gott i vetrarstormunum? Nýjasta nýtt
frá Paris, nánar tiltekið Haute
Coiffure klúbbnum. Dúa er ein af átta
islenzkum meólimum i klúbbnum.
9
DB-mynd Ragnar Th. Sig.
Sköpunargáfu höfum viö öll en hún
brýzt út á margvíslegan hátt. Hjá
sumum í orðum og litum, hjá öðrum
kannski í húsverkum, eða eins og
Davíð sagði:
sumir yrkja í öskuna öll sín
beztu ljóð.
Dúa í Lotus yrkir í hár.
„Engin kona hefur eins hár,” segir
hún. „Það skemmtilegasta er að reyna
að finna hvað hentar hverri einstakri.
já, þá gleymi ég mér alveg og get
staðið tímunum saman við að reyna
að gera greiðsluna eins og mér finnst
hún eigi að vera. Næstum alltaf finnst
mér þó að ég hefði getað gert ennþá
betur.
Sambandið milli hárgreiðslu
konunnar og eiganda hársins felst
meira í tilfinningu en orðum. Ég
þarf að finna að konan sé jákvæð
gagnvart mér. Síðan á hún helzt ekki
að segja sér meira en hvaða sidd hún
ætlar að hafa, eftir það heyri ég varla
hvað hún segir. Ég tala bara með
fingrunum við hárið og reyni að finna
hvað það vill, hvemig það liggur,
hvernig þvi er eðlilegast að vera,
hvernig straumarnir eru frá þessu
höfði.
En maður er misjafnlega næmur,
suma daga vel upplagður, aðra daga
verður greiðslan bara vinna, lýtaiausi
handverk.ánsköpunar.” mu
Vísnavinir á Austf jörðum
Dagana 12.-16. október mun félags-
skapurinn Vísnavinir gangast fyrir söng-
ferðalagi um Austurland. Þarna verða á
ferðinni þau Gísli Helgason, Hanne Juul
og Guðmundur Árnason ásamt Jakobi
S. Jónssyni. Þau munu flytja innlendar
og erlendar vísur við jafnt eigin tónlist
sem annarra.
Vísnavinir hér á landi hafa starfað nú
um nokkurt skeið og haldið
geysifjölmennar vísnastundir, m.a. I
Norræna húsinu, auk þess sem visna-
söngvarar, sem i félaginu eru, hafa
komið fram víða um land.
Þaðefni sem Vísnavinir flytja er mjög
fjölbreytt og má nefna sígild lög
íslenzkra tónskálda, stjórnmálakveðskap
og grályndar gamanvisur.
Vísnastundirnar, sem haldnar verða í
Austfjarðarferðinni, verða alls fimm.
Verður sú fyrsta I Sindrabæ á Höfn í
Hornafirði, fimmtudagskvöldið kl. 20.30
en síðan verða þær sem hér segir: í
Skrúð, Fáskrúðsfirði, föstud. kl. 20.30,
laugardag á Eskifirði kl. 15.00,
sunnudag á Stöðvarfirði kl. 21.00 og á
mánudag í Egilsbúð, Neskaupstað, kl.
21.00.
-GAJ-
y>
Vísnavinir. Frá vinstri Gisli, Jakob,
Guðmundur og Hanne Juul.
Hafnarfjörður:
Eldri
borgarar
til Mall-
orca í
vetrarfrfið
Það verður æ algengara að aldraðir
haldi til sólarlanda og eyði hluta af
vetrinum i sól og blíðu, meðan vetur-
inn næðir um flesta hér heima. Nú
hefur Styrktarfélag aldraðra í Hafnar-
firði ákveðið að efna til hópferðar til
Mallorca í samvinnu við Ferðaskrif-
stofuna Sunnu. Er öllum Hafnfirðing-
um um og yfir 60 ára boðið i þessa ferð
sem stendur frá 29. október til 26.
nóvember. Nánari upplýsingar gefur
varaformaður félagsins i síma 51090
og fulltrúar ferðaskrifstofunnar.
Veðurlag á Mallorca að vetrarlagi er
mjög gott, meðalhiti um 20 stig að
sögn fulltrúa ferðaskrifstofunnar.
ÚRVflL/ KJÖTVÖRUR
OG ÞJÓflU/Tfl
>4i/allteitthvaó
gott í matinn
STIGAHLÍÐ 45-47 SÍMI 35645
Höfum opnað glæsilega bensín- og þjónustustöð í Garðabæ,
á mótum Bæjarbrautar og Vífilsstaðavegar.
L L
Olíufélagið Skeljungur hf
Þar verður rekin fjölþætt bifreiðaþjónusta, svo sem:
Bensín- og olíusala frá nýtísku tölvudælum.
Verslun með fjölbreytt úrval bifreiðavarnings.
Ákjósanleg aðstaða til að hreinsa, þvo og ryksuga bíla.
Síðar hefst starfræksla smurstöðvar og skyldrar þjónustu.
Garðbæingar og aðrir vegfarendur.
Gjörið svo vel og reynið þjónustuna, verið velkomin
á Shellstöðina í Garðabæ. Sími 42074
Shell
Höfum opnaó nýtísku
Bensínstöð í
Garðabæ