Dagblaðið - 13.10.1978, Síða 1
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 13.0KTÓBER 1978.
15
HVAÐ ER Á SEYÐI
UM HELGINA?
Sjá miðopnu
SJONVARP NÆSTU VIKU
Sjónvarp
Dagskrórliðir eru f litum nema annars sé get-
ið.
Laugardagur
14. október
16.30 Alþýöufræðsla um efnahagsmál. Annar
þáttur. Viðskipti við útlönd. Umsjónarmenn
Ásmundur Stefánsson og dr. Þráinn Eggerts-
son. Áður á dagskrá 23. maí síðastliðinn.
17.00 íþróttir. Umsjónarmaður Bjarni Felixson.
18.30 Fimm fræknir. Breskur myndaflokkur.
Þýðandi Jóhanna Jóhannsdóttir.
18.55 Enska knattspyrnan.
Hlé.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.30 Gengið á vit Wodehouse. Ljóðskáld dæmt
úr leik. Þýðandi Jón Thor Haraldsson.
21.00 Boom-Town Rats. Tónlistarþáttur með
irskri hljómsveit sem leikur svokallað ræfla-
rokk.
21.45 Bob og Carol og Ted og Alice. Bandarisk
gamanmynd frá árinu 1969. Aðalhlutverk
Natalie Wood, Robert Culp, Dyan Cannon og
Elliot Gould. Hjónin Bob og Carol kynnast
hópsállækningum og hrífast af. Þau ákveða,
að hjónaband þeirra skuli vera frjálslegt,
opinskátt og byggt á gagnkvæmu trúnaðar-
trausti. Þýðandi Dóra Hafsteinsdóttir.
23.30 Dagskrárlok.
Sunnudagur
15. október
15.30 Ailareru þæreins (Cosi van tutte ópera
eftir Mozart, tekin upp á óperuhátiðinni i
Glyndebourne. Filharmóníuhljómsveit
Lundúna leikur. Stjórnandi John Pritchard.
Leikstjóri Adrian Slack. Aðalhlutverk:
Ferrando-Anson Austin, Guglielmo-Thomas
Allenf Don Alfonso-Frantz Petri, Fiordiligi-
Helena Dose, Dorabella-Sylvia Lindenstrand,
Despina-Daniele Perriers. Þýðandi óskar
Ingimarsson.
18.00 Stundin okkar. Stjórn upptöku Andrés
Indriðason.
Hlé.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingarogdagskrá.
20.30 Dansflokkur frá (Jkrainu. Þjóðdansa-
sýning í sjónvarpssal. Stjórn upptöku Rúnar
Gunnarsson.
21.00 Gæfa eða gjörvileiki. Nitjándi þáttur. Efni
átjánda þáttar: Falconetti fréttir að Wesley sé
á hælum hans. Hann vill verða fyrri til og fer
heim til hans. Diane er þar fyrir. Þegar Wesley
kemur heim, berjast þeir upp á lif og dauða, en
Falconetti kemst undan. Rudy þarfnast lög-
manns til að flytja mál sitt fvrir rannsóknar-
nefnd þinjs ins enengi nn f.Icst til þess nema
Maggie. Billy sér hvilikan grikk hann hefur
gert Rudy mcð uppljóstrunum sínum, og hann
segir skilið við Estep. Diane reynir að stytta
sér aldur, þegar Wesley vísar henni á bug, svo
að hann þykist ekki eiga annars úrkosti en
kvænast henni. Þýðandi Kristmann Eiðsson.
21.50 Einu sinni var. Heimildamynd um Grace
furstafrú af Monaco, fyrrverandi kvikmynda-
leikkonu. Hún lýsir þvi m.a. í viðtali, hvers
vegna hún hætti við leiklistina og brugðið er
upp svipmyndum úr kvikmyndum hennar.
Þýðandi Ragna Ragnars.
23.00 Að kvöldi dags. Séra Árelius Níelsson,
sóknarprestur I Langholtssókn, flytur
hugvekju.
23.10 Dagskrárlok.
Mánudagur
16. október
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.30 Íþróttir. Umsjónarmaður Bjami Felixson.
21.00 Kvennavirkið. Sænskt sjónvarpsleikrit i
gamansömum dúr eftir Önnu-Mariu Hager-
fors. Leikstjóri Judith Hollander. Aðalhlut-
verk Inga Gill, Eva-Britt Strandberg, Gunilla
Olsson og Linda Krílger. Á stofu nokkurri á
kvensjúkdómadeild eru fjórar konur. Þær
frétta af sjúklingi, sem kominn er á deildina en
fær hvergi inni vegna þrengsla. Þær bjóðast
þvi til að rýma til inni hjá sér, svo að unnt sé
að bæta við rúmi. Þýðandi Dóra Hafsteins-
dóttir. (Nordvision — Sænska sjónvarpið).
22.05 Wilson spjallar um forvera sina. Fyrsti
þáttur af fjórum, þar sem sjónvarpsmaðurinn
David Frost ræðir við Sir Harold Wilson, fyrr-
um forsætisráðherra Bretlands. í fyrsta þætti
segir 'Wilson frá kynnum slnum af Harold
MacMillan, en hann var forsætisráðherra
1957—-l 963. Þættir þessir verða á dagskrá
annan hvern mánudag, og í síðari þáttum
ræða Frost og Wilson um Clement Attlee,
Winston Churchill og William Gladstone.
Þýðandi Jón O. Edwald.
22.45 Dagskrárlok.
Úr atriði myndarinnar „Age of Consent” eða Sjálfræði.
OG EYJASKEGGJAR
Bandarísk biómynd frá árinu 1968
verður sýnd í sjónvarpinu föstu-
daginn 20. okóber kl. 22.00. Með aðal-
hlutverk í myndinni fer hinn frægi
James Mason. Myndin fjallar um
heimsfrægan listmálara sem ekki
hefur lengur neinar hugmyndir um
hvað hann geti málað. Til að reyna að
fá betri hugmyndir flyzt hann til
afskekktrar, fámennrar eyjar. Eyjan er
við strönd Ástralíu. Á meðal ibúanna
þar er ung og falleg stúlka og amma
hennar, sem er mjög drykkfelld.
Listmálarinn og unga stúlkan verða
að sjálfsögðu góðir vinir og gengur á
ýmsu hjá þeim. Myndin nefnist á
ensku „Age of Consent” en hefur
verið þýtt á islenzku Sjálfræði.
Myndin er í rúmlega einn og hálfan
tíma og er i lit. Þýðandi myndarinnar
er Jón O. Edwald. ELA.
SJÁLFRÆÐI—sjónvarp 20. október kl. 22.00:
USTMÁLARINN HEIMSFRÆGI
Á laugardagskvöld eftir viku sýnir
sjónvarpið bandariska gamanmynd
frá árinu 1969. Myndin nefnist
Kaktusblómið (Cactus Flower). Mjög
góðir leikarar eru í myndinni og má
þar nefna Walter Matthau, Ingrid
Bergman og Goldie Hawn.
Myndin fjallar um tannlækni einn,
Julian Winston (Matthau), sem er
piparsveinn. Lifir hann góðu lífi og er
hæstánægður með tilveruna. Julian
hefur hjá sér á stofunni aðstoðar-
stúlku sem er bráðfalleg og finnst
Julian hún vera alveg frábær. Hann á
líka ástmey, leikin af Bergman, sem
heldur að hann sé giftur maður og
margra barna faðir.
Goldie Hawn fékk verðlaun fyrir
leik sinn í þessari mynd en sagt var á
sínum tima að Ingrid Bergman væri of
fullorðin til að leika þetta hlutverk.
Þess má geta að nýjasta kvikmynd
Ingridar var frumsýnd i Svíþjóð um
síðustu helgi en þeirri mynd stjórnaði
Ingmar Bergman.
Ingrid Bergman I hlutverki slnu I myndinni Kaktusblómið.
Kvikmyndahandbók okkar getur
mynd þessari tvær og hálfa stjörnu af
fjórum mögulegum. Myndin er tæp-
lega tveggja stunda löng og er i lit.
Þýðandi er Ellert Sigurbjörnsson.
ELA
KAKTUSBLÓMIÐ - sjónvarp 21. október kl. 22.00:
Ánægði og léttlyndi tannlæknirinn
Þriðjudagur
17. október
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingarogdagskrá.
20.30 Pó-fljótið. í þessari þýsku mynd er leið
lengsta fljóts Ítalíu rakin til sjávar. Þýðandi og
þulur Ingi Karl Jóhannesson.
21.20 Umheimurinn. Viðræðuþáttur um erlenda
atburði og málefni. Umsjónarmaður Magnús
Torfi Ólafsson.
22.00 Kojak. Illur fengur illa forgengur. Þýð
andi Bogi Amar Finnbogason.
22.50 Dagskrárlok.
Miðvikudagur
18. október
18.00 Kvakk-kvakk. ítölsk klippimynd.
18.05 Flemming og samkomulagið. Dönsk
mynd. Þriðji og síðasti hluti. Þýðandi og þulur
Jón O. ^dwald. (Nordvision — Danska bjón
varpið).
18.20 Ævintýri í Tívolí. Litlum trúði fylgt um
Tivolígarðinn i Kaupmannahöfn. Siðari hluu.
(Nordvision — Norska sjónvarpið).
18.35 Frumskógur apanna. í frumskógum
Afriku uppi i 2—3000 metra hæð yfir sjávar
máli er mikið af öpum og þar lifa einnig
margar aðrar dýrategundir. Þýðandi og þulur’
Jón O. Edwald. (Nordvision — Norska sjón- •
varpið).
19.05 Hlé.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.30 Nýjasta tækni og visindi. Framtíð farþega-
flugs. Tengsl sólar og jarðar. Umsjónarmaður
örnólfurThorlacius.
21.00 Dýrin mín stór og smá. Tólfti þáttur. Æf-
ingin skapar meistarann. Efni ellefta þáttar:
Tristan kemur heim að loknu prófi i dýra-
læknaskólanum. Hann vill sem minnst segja
um árangurinn, en James kemst að þvi að
honum hefur ekki gengið sem best. Ungur
bóndi verður fyrir þvi óláni, að kýrnar hans fá
smitandi fósturlát. James tekur þetta mjög
nærri sér. Það kemur í Ijós að meira er í Car-
mody spunnið en ætlað var, en nú er dvöl
hans hjá Siegfried á enda. Þýðandi Óskar Ingi-
marsson.
21.50 Grænland. Biskup og bóndi. Síðari hluti
fræðslumyndar, sem gerð er sameiginlega af
danska, norska og íslenska sjónvarpinu. Þýð-
andi og þulur Jón O. Edwald.Áður á dagskrá
1. september 1976. (Nordvision).
22.30 Dagskrárlok.
Föstudagur
20. október
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Prúðu leikararnir. Gestur leikbrúðanna i
þessum þætti er söngkonan Petula Clark. Þýð-
andi ÞrándurThoroddsen.
21.00 Kastljós. Þáttur um innlend málefni. Um-
sjónarmaðurGuðjón Einarsson.
22.00 Sjálfræði (Age of Consent). Bandarisk bíó-
mynd frá árinu 1968. Aðalhlutverk James
Mason. Heimskunnur listmálari er kominn i
þrot með hugmyndir. Hann flyst því til af-
skekktrar, fámennrar eyjar við strönd Ástra-
liu. Meðal íbúa eru ung stúlka og drykkfelld
amma hennar. Þýðandi Jón O. Edwald.
23.35 Dagskrárlok.
Laugardagur
21. október
16.30 Alþýðufræðsla um efnahagsmál. Þriðji
þáttur. Óstöðugt efnahagskerfi — orsök og af-
leiðing. Umsjónarmenn Ásmundur Stefánsson
og dr. Þráinn Eggertsson. Áður á dagskrá 30.
mai síðastiiðinn.
17.00 íþróttir. Umsjónarmaður Bjarni Felixson.
18.30 Fimm fræknir. Fimm í útilegu — fyrri
hluti. Þýðandi Jóhanna Jóhannsdóttir.
18.55 Enska knattspyrnan
Hlé.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.30 Gengið á vit Wodehouse. Rödd fortfðar-
innar. Þýðandi Jón Thor Haraldsson.
21.00 „Gekk ég yfir sj£ og land”. Blandaður
þáttur, kvikmyndaður á ísafirði, Bolungavik
og Reykjavik. Umsjónarmenn Bryndís
Schram og Tage Ammendrup.
21.45 Flugtilraunir. Stutt mynd án orða um flug
og fluglist.
22.00 Kaktusblómið (Cactus Flower). Bandarisk
gamanmynd frá árinu 1969. Aöalhlutverk
Walter Matthau, Ingrid Bergman og Goldie
Hawn. Tannlæknirinn Julian Winston er
piparsveinn og hæstánægður með tilveruna.
Hann hefur frábæra aðstoðarstúlku á tann-
læknastofunni, og hann á ástmey, sem heldur
að hann sé kvæntur og margra barna faðir.
Þýðandi Ellert Sigurbjömsson.
23.40 Dagskrárlok.
*