Dagblaðið - 21.10.1978, Blaðsíða 12

Dagblaðið - 21.10.1978, Blaðsíða 12
12 DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 21. OKTÓBER 1978. - KVIKMYNDIR - STAR WARS - KVIKMYNDIR - STAR WARS - KVIKMYNDIR - STAR WARS LOKAÐ mánudaginn 23. október frá kl. 12 á hádegi vegna jarðarfarar. Sigurðar Ingimundarsonar forstjóra. Tryggingastofnun ríkisins, Laugavegi 114. Nauðungaruppboð Nauðungaruppboð það sem auglýst var í 65., 67. og 72. tölublaði Lögbirtingablaðsins á Aðalgötu 22 Suðureyri, eign Sigurbjörns Ingólfssonar, fer fram á eigninni sjálfri laugardaginn 28. október nk. kl. 15. Bnjarfógetinn Ísafirði, sýslumaðurinn Ísafjarðarsýslu. - KVIKMYNPIR - STAR WARS - KVIKMYNDIR - Baldur Hjaltason V George Lucas við leikstjórn Star Wars. Nýlega hófust í Nýja bíói sýningar á mynd George Lucas, Star Wars. Þegar þessi mynd var frumsýnd aö vorlagi í Bandaríkjunum 1977 var aösóknin i meðallagi. Það var ekki fyrr en um haustið, þegar skólar hófust, að nokkurs konar Star Wars-æði greip um sig meðal yngstu kynslóðarinnar. Um áramótin 1977—1978 hafði svo Star Wars tekist að ná titlinum best selda mynd allra tíma og taka þannig við af Jaws. Þetta var upphafið að sigurgöngu myndarinnar um allan heim sem stendur enn. Ævintýrabragur En um hvað er myndin? Þetta er ævintýramynd sem gerist endur fyrir löngu úti i himingeimnum j fjarlægri stjörnuþoku. Eins og í sönnum ævin- týrum er prinsessa til staðar ásamt góðum og illum öflum í ýmsum persónugervum. Lítið sjálfstætt riki er kúgaö af voldugu keisaradæmi með nýju ógnvekjandi vopni sem ber heitið Stjarna dauðans. Prinsessan hefur undir höndum upplýsingar um hvernig hægt sé að granda stjörnunni. Með hjálp fjölmargra vina og hjálpar- manna tekst prinsessunni að vinna á' þessu vopni keisarans og endar myndin þegar kátt varð i höllinni. Segja má að þessi mynd sé í augum barna i dag álika mikil upplifun hvað viðvikur ævintýrabrag og myndin Siðasti bærinn í dalnum, með sínum tæknibrellum, var fyrir fjölda barna fyrr á árum. Hér fáum við að kynnast vélmönnum og ýmsum kynjadýrum sem aðeins hafa verið til i hugar- heimum okkar. Vélmennin eru látin gegna veigamiklu hlutverki í mynd- inni og reynt er að gera þau mjög mannleg. Það kemur því ekki á óvart að G. Lucas skuli nefna þá Flash Gordon og Edgar Rice Burroughs þegar rætt er um áhrifavalda á undir- búning myndar hans. Lucas gerði sjálfur handritið að Star Wars og tók hann 4 ár að fullgera hugmynd sína. Erfiðlega gekk að fá framleiðendur að myndinni því enginn trúði á þetta tiltæki. Að lokum sló Twenty Century Fox til og mun ekki hafa séð eftir þvi. Einn veigamikill þáttur kvikmyndar vill oft gleymast, það er tónlistin. Ef hún er vel gerð fellur hún svo vel að myndinni að við tökum ekki eftir henni sérstaklega. Hér er það Óskars- verðlaunhafínn John Williams sem er ábyrgur fyrir tónlistinni. Eins og búast mátti við hæfir tónlistin mjög vel efni myndarinnar. Hið góða og illa Ég er ekki i nokkrum vafa um að jafnt ungir sem aldnir munu hafa gaman af Star Wars þar sem fólk fær að kynnast hinni sígildu baráttu milli hins góða og illa þar sem hið góða fer eins og vera ber með sigur af hólmi. Erlendis virðist fólk geta séð þessa mynd aftur og aftur og notað þetta tækifæri til að flýja oft á tiðum drungalegan raunveruleikann og verða í þess stað þátttakendur í fallegu ævintýri. Georges Lucas er ekki alveg ókunnur islenskum kvikmyndahúsa- gestum. Áður hafði hann gert tvær myndir, fyrst THX 1138 sem virðist hafa týnst í dreifingarkerfinu. í»etta er mynd sem gerist i framtíðinni og var talin mjög gott byrjendaverk. önnur mynd Lucas sló aftur á móti vel i gegn hér sem annars staðar, það var- American Graffiti sem óþarfi er að kynna. Haldið inn í borgina Mos Ésíey, úr StarWars. Frábær tæknivinna Tæknilega séð er Star Wars frábær- lega vel gerð. Mesti hluti tæknivinn- unnar var unninn undir stjórn John Stears og John Dykstra. Sá síðamefndi hafði unnið m.a. með Dougias Trumbull í myndinni Silent Running sem sýnd var I Bæjarbíói fyrir nokkrum árum. Gífurleg vinna liggur í likanagerð og svo kvikmyndun á tæknibrellum enda komu við sögu yfir 900 tæknimenn. Kvik myndir

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.