Dagblaðið - 04.11.1978, Blaðsíða 5
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 1978
5
Fær ríkisstjómin stuðning
launþega Alþýðubandalags?
„Á niðurstöðum þessarar ráðstefnu sagði einn af framámönnum launþega- Alþýðubandalagsins. Hann verður setur ráðstefnuna í fyrramálið kl. 10. Jósepsson og Snorri Jónsson.
má liklega sjá fyrir um framtið rikis- samtakanna i Alþýðubandalaginu, er haldinn nú um helgina. Meðal framsögumanna eru þeir í verkalýðsmálaráði Alþýðubanda-
stjórnarinnar, sem nú situr, hvort sem fréttamaður spurði hann um viðfangs- Fundarstaðir verða Lindarbær og Haraldur Steinþórsson, Ásmundur lagsins eru hátt i tvö hundruð manns
það verða bráð endalok eða lengra líf,” efni ársfundar Verkaiýðsmálaráðs Hótel Loftleiðir. Benedikt Davíðsson, Stefánsson, Svavar Gestsson, Lúðvík viðsvegaraðaf landinu. -BS.
Rauða kverið íónáð íKína:
„Ekki samantekin rit Maós formanns”
— segir Arnþór Helgason, formaður Kínversk-íslenzka menningarfélagsins
„Framleiðsla þungaiðnaðar og daglegrar nauðsynjavöru verða að haldast i hendur,” segir Maó formaður.
Amþór Helgtson: ,36 hctta er aHtaf fyrir hendi aö
tilvitnanirnar séu rifnar úr samhengi.”
„Sá fréttaflutningur er rangur, að
þetta sé samantekið rit Maós formanns,”
sagði Arnþór Helgason, formaður Kín-
versk-íslenzka menningarfélagsins er
Dagblaðið innti hann álits á þeim frétt-
um sem hafa borizt frá Kina, að rauða
kverið sem nefnt hefur verið biblía
menningarbyltingarinnar sæti nú auk-
inni gagnrýni af hálfu stjórnvalda og að
jafnvel sé talið að það verði látið hverfa
af markaði i Kína.
Arnþór sagði að rauða kverið hefði
upphaflega verið tekið saman um það bil
sem menningarbyltingin stóð yfir. Þvi
hafi verið ætlað að vera eins konar upp-
sláttarrit svo auðvelt væri að fletta upp á
ýmsu þvi sem Maó hefði skrifað um hin
aðskiljanlegu málefni. Hann bætti við:
„Þótt rauða kverið verði tekið úr umferð
þá er ekki þar með sagt að verið sé að
veitast að Maó sjálfum eða hans kenn-
ingum. Ég held að rauða kverið hafi
verið mikilvægur liður í þeirri viðleitni
stjómvalda að koma kenningum hans á
framfæri.
I bókalista sem barst frá Kína í síð-_
ustu viku er rauða kverið enn á lista yfir
þau rit sem þýdd eru á erlend tungumál.
Rauða kverið er nú gefið út á einum 36
tungumálum.”
Arnþór sagðist ekki þora að ábyrgjast
hve réttur flutningur brezkra fréttastofa
væri af málum í Kína. Hins vegar væri
ýmislegt að gerast á menningarsviöinu í
Kína. Þannig lægi t.d. kínversk kvik-
myndaiðn undir þungum áfölium frá
kinverskri alþýðu. Og Arnþór hélt
áfram: „Kínverjar hafa um aldir lifað
eftir ákveðinni hugmyndafræði. Aðall-
inn lifði áður eftir hugmyndum Konfúsí-
usar og það er ekkert óeðlilegt við að
hugsun Maós formanns taki við sem
hugmyndafræðilegur grundvöllur
þjóðarinnar, að hún fari úr einu kenn-
ingakerfi yfir í annað.
Fréttaflutningur um þetta er nokkuð
rangur hér á landi. talað er um, að það
beri að skoða þessar vangaveltur Maós i
sögulegu samhengi. Það er rangt v.þ.a.
rauða kverið er samantekt ýmissa aðila
með tilvitnanir í rit Maós, ætlað til að-
auðvelda kínverskri alþýðu aðgang að
þessum ritum, og það er ekki rétt, að
menn hafi lesið rauða kverið eingöngu
þvi að það var fyrst og fremst lesið sem
tilvitnana- og uppsláttarrit.”
Arnþór sagði að sú hætta væri alltaf
fyrir hendi að þessar tilvitnanir væru
rifnar úr samhengi og það væri raunar
eina ástæðan sem hann gæti séð til þess
að rauða kverið væri tekið úr umferð.
Arnþór sagði, að alls hefðu verið gefin
út 5 bindi með ritverkum Maós, sem
hvert væri upp á 400—600 bls. og 6.
bindið væri í undirbúningi. Hann sagði,
að Maó hefði ritað um hin fjölbreytileg-
ustu efni, s.s. heimspeki, trúmál, bók-
menntir, listir og efnahagsmál.
„Ég held,” sagði Arnþór, „að hvort
sem maður er kommúnisti eða kapítalisti
þá sé hollt fyrir hann að lesa ritgerðir
Maós um efnahagsmál og kannski gætu
islenzk stjórnvöld lært mikið af Maó ef
þau læsu grein hans „Um hin tíu megin-
tengsl” sem er ræða sem hann flutti um
efnahagsþróun í Kina árið 1957. Þar
leggur hann t.d. áherzlu á, að ekki megi
eingöngu einblína á framleiðsluaukning-
una heldur beri að leggja áherzlu á bætt
lífskjör alþýðunnar, og framleiðsla
þungaiðnaðar og daglegrar nauðsynja-
vöru verði að haldast i hendur. Maó hélt
því fram, að þessu hefðu Rússar gleymt
enda væri skortur í Sovétrikjunum á
ýmsu þvi sem telst til daglegra nauð-
þurfta. Hann heldur því líka fram, að
óánægðum verkalýð takist aldrei að
auka framleiðsluna svo að einhverju
marki sé. Úr grein eins og þessari væri
hægt að tina ýmsar tilvitnanir og slita
þær úr samhengi,” sagði Arnþór Helga-
son að lokum.
• GAJ
\V
/
/
__ ío- <T4i\
CHRÝSLER
O SUÐURLANDSBRAUT 10. SlMAR; 83330 - 83454
ín\
\v
o
\ \ II I
, , i il
i nii
♦ ^
rm
FULLUR
SALUR
AF GOÐUM NOTUÐUM
BÍLUM
CHRYSLER HORIZON
og CHRYSLER árg. 1928
0P» UM HELGINA
Laugardag kl. 10-18
Sunnudag kl. 13-18
!! i
/ /
01
CHRYSLER *
mm
XJLL
SUÐURLANDSBRAUT 10 - SÍMAR 83330 -83454