Dagblaðið - 04.11.1978, Side 23
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 1978
G
litvarp
Sjónvarp
r---------------------------------------------------^
Utvarpkl. 13,30:
IVIKULOKIN -1
BEINNIÚTSENDINGU
Stálborðbúnaður,
24 stk. í gfafakassa
á aðeins kr. 6.900.-
Póstsendum
MAGNÚS
GUÐLAUGSSON
ÚR-VAL SÍMI50590
Strandgötu 19
Hafnarfirði
ELÍN
ALBERTS
DÖHIR
1 dag kl. 13.30 byrjar nýr þáttur i út-
varpinu og nefnist hann I vikulokin.
Þátturinn verður með léttu blönduðu
efni og verður á laugardögum í vetur.
Umsjónarmenn þáttarins, sem verður
i beinni útsendingu, eru fjórir. Það eru
Jón Björgvinsson, Ólafur Geirsson,
Edda Andrésdóttir og Ámi Johnsen.
Árni Johnsen er kynnir þáttarins, en öll
leggja þau til efni. Umsjónarmennirnir
skiptast á að stjórna útsendingu.
í þættinum í dag verður viðtal við Jón
Guðbrandsson, dýralækni á Selfossi, og
farið með honum i vitjanir. Þar sem
myndaflokknum um Dýrin mín stór og
smá er nú lokið datt þeim fjór-
menningum i hug að athuga hvort
islenzkum dýralæknum svipaði til þeirra
ensku. Og reyndist það vera.
Kvikmyndahúsin verða til um-
fjöllunar og þær biómyndir sem þar eru
sýndar um þessar mundir. Spurninga-
leikur verður á dagskrá og eru það hlust-
endur sem koma og svara spurningum.
Fjallað verður um hátíð rauðsokka sem
verður I dag og rætt við þátttakendur.
Að sögn Jóns Björgvinssonar verður
þáttur þessi meira I töluðu orði en minna
af tónlist. Þó verður tónlist leikin
Árni Johnsen.
Ólafur Geirsson.
Jón Björgvinsson.
Edda Andrésdóttir.
V.
r
ENN Á MÖLINNI - Sjónvarp kl. 21,00:
Tízkan og nýir
brandarakarlar
Þáttur Bryndisar Schram og Tage
Ammendrup verður á dagskrá
sjónvarpsins I kvöld kl. 21.00 . og
nefnist hann að þessu sinni Enn á
mölinni. Þátturinn verður með
blönduðu efni eins og áður og kemur
þar ýmislegt fram.
Tízkan verður aðalefni þáttarins og
verður I því sambandi rætt við fólk á
götu úti um tizkuna. Einnig verður
rætt við eigendur tízkuverzlana og þá
sem kaupa tizkuvörur. Verður síðan
rætt við þá sem vinna við að sýna
tízkuföt.
Sigrún Hjálmtýsdóttir söngkona
kemur frá Englandi ti! að syngja
nokkur lög og gestur I þættinum
verður tónskáldið Jónas Tómasson.
Brandarakarlar koma að sjálfsögðu í
þáttinn og fáum við nú aö heyra I
nýjum körlum.
Það er Bryndís Schram sem er
kynnir og er þátturinn klukkustundar
langur. -ELA.
sem framhald af hverjum dagskrárlið.
Þátturinn er tveggja tíma langur.
•ELA.
Laugardagur
4. nóvember
16.30 Alþýöufrædsla uro efnahagsmál. Fjórði
þáttur. Fjárraál hins opinbera. Umsjónarmenn
Ásmundur Stefánsson og dr. Þráinn Eggerts-
son. Stjóm upptöku öm Haröarson. ÁÖur á
dagskráó. júní sl.
17.00 íþróttir. Umsjónarmaöur Bjami Felixson.
18.30 Fimm fræknir. í mýrínni. Þýöandi
Jóhanna Jóhannsdóttir.
18.55 Enska knattspyraan.
HJé.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.30 Gengið á vit Wodehouse. Misheppnuð
hvfld. Þýðandi Jón Thor Haraldsson.
21.00 Enn á mölinni. Þáttur með blönduðu efni.
L'msjónarmenn Bryndís Schram og Tage
Ammendrup.
22.00 Gott kvöid, frú Campbell (Buona Sera
Mrs. Campbell). Bandarísk gamanmynd frá
árinu 1969. Leikstjóri Melvin Frank. Aóal-
hlutverk Gina Lollobrigida, Shelley Winters,
Peter Lawford og Telly Savalas. Sagan gerist 1
litlu ítölsku þorpi um tveimur áratugum eftir
siðari heimsstyrjöldina. Þar býr kona, sem
haföi eignast bam með bandarískum her-
manni en fcngiö meðlag frá þremur. Þeir
koma nú i heimsókn til þorpsins ásamt eigin-
konum sínum. ÞýÖandi Ragna Ragnars.
23.50 Dagskrárlok.
Sunnudagur
5. nóvember
15.30 Meistarasöngvararnir I Niirnberg.
Gamanópera í þremur þáttum (fjórum atrið-
um) eftir Richard Wagner. Upptaka Sœnska
sjónvarpsins. Sviðsetning Konunglega leik-
hússins I Stokkhólmi. Fyrri hluti. Fyrsti og
annar þáttur. Hljómsveitarstjóri Berislav
Klobucar. Leikstjóri Götz Friedrich. Aðalhlut-
verk: Hans Sachs: Leif Roar, Walter von
Stolzing: Sve-OIof Eliasson, Eva: Helena
Döse. 1 öðrum hlutverkum eru Ame Thyrén,
John-Erik Jacobsson, Carl-Johan Falkman,
Erik Saedén, Bjöm Asker, Hans Johansson,
Lars Kullenbo, Kolbjörn Höiseth, Paul Hög-
lund, Sten Wahlund, Rolf Cederlöf, Gösta
Windbergh, Edith Tallaug, Bo Andresson o.fl.
Konunglega sænska hljómsveitin leikur og
óperukórinn syngur ásamt liösauka. Stjóm
upptöku Thomas Olofsson. Sagan gerist í
Níirnberg um miðja sextándu öld. Fyrsti
þáttur gerist i Katarinu-kirkjunni og annar
þáttur á götu fyrir utan hús Sachs skósmiös og
Pogners guUsmiðs. Þriðji þáttur verður sýndur
sunnudaginn 12. nóvember kl. 16.00. Þýöandi
Briet Héðinsdóttir.
18.10 Stundin okkar. Kynnir Sigriður Ragna
Sigurðardóttir. Sijórn upptöku Andrés
Indriðason. Hlé.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Heimsókn I Þjóðleikhúsið. Þáttur um
starfsemi Þjóðleikhússins. Fylgst er með æf-
ingum á baUett og leikritum, og lcikriti Jökuls
Jakobssonar, Syni skóarans og dóttur bakar-
ans, fylgt frá fyrstu æfingu til frumsýningar.
Ennfremur er rætt við ýmsa starfsmenn Þjóð-
leikhússins. Kvikmyndun Haraldur Friðriks-
son. Hljóðupptaka Jón Arason. Klipping
Ragnheiður Valdimarsdóttir. Umsjónarinaöur
Valdimar Leifsson. ;
21.40 Samleikur I sjónvarpssal. Edda Erlends-
dóttir leikur á pianó og David Simpson á sclló,
Stjóm upptöku Rúnar Gunnarsson.
22.00 Ég, Kládius. Ný, bresk framhaldsmynd I
þrettán þáttum, byggð á skáldsögum eftir
Robert Graves. Skáldsagan „Ég, Kládlus”
kom útárið 19461 íslenskri þýðingu Magnúsar
Magnússonar. Sjónvarpshandrit Jack Pulmari-
Leikstjóri Herbert Wise. Aðalhlutverk Derek
Jacobi, Sian Phillips, Bryan Blessed, Margaret
Tyzak og John Hurt. Fyrsti þáttur. Morð
undir rós. Það liöur að ævilokum hjá Kiádiusi,
keisara Rómarveldis (10 f. Kr. — 54 e.Kr.), og
hann ákveður aö láta skrá sögu keisargættar-
innar. Frásögnin hefst á Ágústusi, fyrsta keis-
ara Rómar. Hann er talinn voldugasti maður
heims, en einn er honum voldugri, Livia, hin
fagra en fláráða eiginkona hans, sem stjórnar
bónda sinum með harðri hendi. Hún leggur
allan metnaö sinn i, aö keisaradómur haldist
innan fjölskyldunnar og hikar ekki við að láta
myrða andstæðinga sína. Þýðandi Dóra Haf-
steinsdóttir.
22.50 Að kvöldi dags. Geir Waage, cand. theol.,
flytur hugvekju.
23.00 Dagskrárlok.
Hveragerði
Nýr umboösmaður Dagblaðsins er
Guðmundur Arason, Heiðarbrún 47,
sími 99-4577.
BLAÐÍÐ
Oskum eftir að
ráða mann á verkstæði okkar, helzt vanan
blikksmíði og suðu. Uppl. hjá verkstjóra.
Bílavörubúðin Fjöðrin hf.,
Grensásvegi 5, sfmi 83470.
-BASAR—
BLINDRAFÉLAGSINS
verður haldinn að Hamrahlíð 17 í dag, laugar-
daginn 4. nóv. kl. 2. Margir góðir munir. m.a.
prjónavörur, jólavörur, kökur og skyndihapp-
drætti.
Styrktarfélagar
Hártoppar
Sérffceðingurfrá hinu heimsffœga
TRENDMAN
hártoppafyrirtœki verður til viðtals á
rakarastofu minni laugardag 4. nóv.,
sunnudag 5. nóv og mánudag 6. nóv.
Pantið tíma ísíma 21575 og 42415
VILLI RAKARI
MIKLUBRAUT 68.