Dagblaðið - 02.01.1979, Blaðsíða 24
Fyrsta barn ársins fæddist á Akureyri:
BARNAÁRD BYRJAR Á
KARLMANNLEGAN HÁTT
Fyrsta barn ársins fæddist á Akur-
eyri á nýársnótt kl. 4.22 eftir þvi sem
DB veit bezt. Var þaö drengur sem vó
rúmar 15 merkur og var hann 51 cm á
lengd.
Sveinninn var fyrsta barn þeirra
Helgu Mariu Sigurðardóttur og GuA.
mundar Egils Más Ivarssonar. Þess
má geta að móðirin er aðeins 18 ára og
gekk fæðingin mjög vel hjá henni og
eru þau mæðgin vel hress.
Fyrsta barn ársins i Reykjavík
fæddist aðeins þremur mínútum á eftir
Akureyrarbarninu á fæðingarheimili
Reykjavíkur og var það einnig dreng-
ur. Sá litli vó rúmar 16 merkur og var
52 cm að lengd.
Foreldrar eru Jóhanna Jóhanns-
dóttir starfsstúlka á Timanum. og
Hjörtur Egilsson og var þetta þriðji
sonurþeirra hjóna.
Er DB-menn litu inn á fæðingar-
heimiii Reykjavíkur í gær voru þau
mæðgin bæði stálslegin og litli sveinn-
inn horfði skýrum augum í kring um
sig og var aldeilis ófeiminn við mynda-,
vél ljósmyndarans, þó ekki væri hann
eldri.
Samkvæmt upplýsingum sem DB
aflaði sér í gær fæddist þriðja barnið á
Fæðingardeild Landspitalans um kl. 6.
Enn einn sveinninn fæddist síðan á Móðirin Jóhanna Jóhannsdóttir heldur hér stolt og ánægð utan um þriðja son sinn, sem fæddist kl. 4.25 á nýársnótt,
Siglufirði um kl. 7.00 og á Sauðárkróki annað barnið sem fæddist á hinu nýbyrjaða barnaári, fyrsta barnið hér í Reykjavik.
fæddist einn um kl. 7.59. barnaárið hafi byrjað á karlmannlegan hamingju á hinu nýbyrjaða barnaári.
Það má þvi með sanni segja að hátt. DB óskar foreldrum barnanna til . ELA
Jóhann
enní
fremstu
víglínu
Jóhann Hjartarson vann sænsk-
an andstæðing sinn i 4. umferð
heimsmeistaramóts unglinga sem
nú er teflt i Sas van Gent í Hol
landi. I 5. umferð sigraði Jóhann
Sequeira frá Portúgal.
Eftir 5 umferðir var Skotinn
Motwani í efsta sæti með 4 1/2
vinning. í 2.-6. sæti voru Jóhann
Hjartarson, Utasi, Korzubov,
Short, og Huergo, allir með 4 vinn-
inga.
16. umferðinni tefldi Jóhann við
Huergo og fór skák þeirra í bið.
Skotinn Motwani tefldi við Rúss-
ann Korzubov. Gerðu þeir jafn-
tefli. Short vann hins vegar Utasi.
Jóhann Hjartarson er því í efstu
sætunum i þessu móti, sem er teflt
eftir Monrad-kerfi. Þátttakendur
eru frá 37 löndum. Jóhann er 15
ára gamall, eins og fram hefur
komið í fréttum DB. Hann hefur
það erfiða hlutskipti í þessu móti
að reyna að verja heimsmeistara-
titil Jóns L. Árnasonar.
BS.
INNANLANDSFLUG TEFST
Innanlandsflug hefur legið niðri
síðan á gamlársdag vegna mikillar
fannkomu. I morgun var unnið að þvi
að ryðja flugbrautir í Reykjavík, en á
áætlun í dag er 21 ferð til flestra staða
á landinu. Samkvæmt upplýsingum
Sveins Sæmundssonar, blaðafulltrúa
Flugleiða, er Norðurland nú lokað
vegna snjókomu, en fyrirhugaðar
höfðu verið 8 ferðir til Akureyrar og
tvær á Sauðárkrók.
Fært er á ísafjörð og Patreksfjörð
en á ísafjörð verða farnar fjórar ferðir
og ein á Patreksfjörð. Opið er á Egils-
stöðum og fyrirhugaðar þrjár ferðir en
veðurútlit er ótryggt. Tvær ferðir voru
fyrirhugaðar til Húsavikur og ein á:
Höfn. Það er því enn óljóst hvort þau
hundruð manna sem bíða flugfars
komast heima I dag.
Utanlandsflug tafðist vegna
óveðurs I Evrópu á gamlársdag. Vél
frá New York varð að yfirfljúga, en
Chicago-vélin gat lent. Millilandaflug
er samkvæmt áætlun i dag.
JH.
Þúsundum saman tlykktist fólk á stór-Reykjavfkursvæðinu að nálega fjörutfu brennum sem kveikt varf um áramótin. Mikil
og góð stemmning var við brennurnar, enda veður gott og stillt. Fólk lét ekki slæma færð aftra sér frá þátttöku. Alls staðar
fór allt fram án óhappa og slysa. Myndin er frá brennu f Brciðholti. -DBmynd Hörður.
„Kommissarakerfið
verður lagt niður”
— segir Benedikt Gröndal
Átök stjómarliða
íFramkvæmda-
stofnun:
Átök standa milli stjórnarliða i
stjórn Framkvæmdastofnunar.
Alþýðuflokksmenn vilja, að
„kommissarakerfið” verði lagt niður,
en þeir hafa mætt andstöðu annarra
stjórnarliða.
Formann framkvæmdastjórnar
stofnunarinnar á að kjósa i dag.
„Við höfum frá upphafi verið á
móti kommissarakerfinu,” sagði Bene-
dikt Gröndal utanríkisráðherra i
morgun. „Við studdum frumvarpið
um stofnunina 1971 og hugsuðum
okkur þetta sem stofnun um áætlana-
gerð en vorum á móti þessum pólitisku
sjeffum. Þeir voru fyrst þrír en var
fækkað í tvo i síðustu stjórn. 1
stjórnarsamningnum nú er fyrirheit
um, að löginverði endurskoðuðogbara
eigi að setja stofnuninni eðlilega,
embættislega stjórn. Þessi stofnun
hefur 2—3 milljarða til ráðstöfunar á
ári hverju.
En ekki er auðvelt i ríkiskerfinu að
eiga við fastráðna starfsmenn,” sagði
Benedikt, en taldi samt, að frá þessu
máli hefði verið gengið og
kommissarakerfið yrði lagt niður. HH.
fijálst, áháð dagblað
ÞRIÐJUDAGUR 2. JAN. 1979.
Ráðherra
íbílveltu
Litlu munaði, að illa færi fyrir félags-
mála- og heilbrigðisráðherra vorum í
ófærðinni á gamlársdag.
Magnús var á leið til Þorlákshafnar til
þess að ná þar í Herjólf.
í Skógarbrekku, skammt fyrir utan
Vindheima, fór bíll Magnúsar út af veg-
inum og valt tvær veltur a.m.k.
Skemmdist bíllinn töluvert, en Magnús
sakaði ekki. Hann var einn i bílnum.
HP.
Skrflslæti á
Sauðárkróki
Unglingar á Sauðárkróki efndu til
óspekta að venju um þessi áramót.
Að sögn lögreglumanna fór að bera á
ólátum í bænum upp úr kl. ellefu á gaml-
árskvöld er ungmenni fóru I flokki um
bæinn með háreysti og skemmdarverk-
um.
Ollu þeir spjöllum á umferðarmerkj-
um, gótuljósum og brutu rúður í nokkr-
um verzlunum. Alls voru átta götuljós
brotin og er talið aö skemmdirnar nemi
tugþúsundum.
-HP.
Laugavegur:
Eldur
íkjall-
araíbúð
Um kl. 17 í gær var slökkviliðinu I
Reykjavík tilkynnt um að eldur væri
laus i kjallaraíbúð í bakhúsi við Lauga-
veg 67A. Þegar slökkviliðið kom á stað-
inn logaði eldur út um glugga á húsinu.
Greiðlega gekk að slökkva og breiddist
eldurinn aldrei út fyrir það herbergi sem
hann kom upp í. Talið er að kviknaði
hafi útfrá rafmagni.
-GAJ-
Nokkursmá-
innbrot um
áramótin
Áramótin munu hafa verið með alró-
legasta móti hjá lögreglunni. Þó munu
hafa verið framin nokkur smáinnbrot á
Reykjavikursvæðinu. Áð kvöldi hins 30.
desember var brotizt inn í íbúð við Stiga-
hlið og stolið skartgripum og úrum. Þá
var brotin upp hurð i verzluninni Moons
í Bankastræti aðfaranótt hins 31. des. og
snemma morguninn eftir var framið inn-
brot i Sundlaug Vesturbæjar. Einnig var
framið innbrot að Skemmuvegi í Kópa-
vogi einhvern tima um áramótin. Rann-
sóknarlögreglan gat ekki upplýst í
morgun hvort einhverju hafði verið
stolið á þrem síðasttöldu stöðunum.
-GAJ-
XéfÞadV
^Kaupio
TÖLVUR
1* QG T.öl
BANKASTRÆTI8