Dagblaðið - 12.01.1979, Qupperneq 2
2
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 12. JANÚAR 1979.
Svargrein til Guðmundar íBæ, Trékyllisvík
Sem alltaf fór að gráta þegar ég var
búin að tala á aðalfundum
Kaupfélags Strandamanna
Ég var hissa þegar ég las í Tímanum
8. og 13. des. sl. greinar eftir Guð
mund í Bæ, fréttaritara Tímans, vegna
fréttabréfs i DB 31/10, sem ég lét DB
hafa er ég kom af Ströndum sl. haust.
Guðmundur segir að góðvinur sinn
hafi sent sér fréttapistilinn. Ég er ekki
viss um að hann sé mikill góðvinur
þinn. Honum leiðist sennilega lifið í
Reykjavík og veit að þú gleypir við
öllu eins og þorskur tálbeitu. En ég
minntist einmitt á kaupfélagið, að það
hefði stækkað við sig verslunarhúsið
- og ibúðarhús en að það hafi orðið að
byggja i sjó fram, þar sem framsýni
hafi ekki ráðið ferðinni hjá framá-
mönnum sem stofnuðu kaupfélagið
fyrir 70 árum. Ég hefði nú haldið að
nóg landrými væri á Ströndum. Vinur
þinn vill nú etja okkur saman í blaða-
skrif, því honum þótti svo gaman á
aðalfundum kaupfélagsins eftir að
stjórn þess bauð mér á fundi þess.
gegn því aðskrifa ekki um kaupfélagið
í Morgunblaðið. Sennilega hefur þú
líka verið bundinn slíkum þagnareiði.
En gott og vel, nú virðist þú telja þig
færan í flestan sjó og ekki skal standa
á mér. Ég álykta að það sé enginn
heiður fyrir þig þvi margt kemst upp
er hjúin deila og segja allan sannleik-
ann og það mun ég hiklaust gera ef ég
fæ fleiri svona greinar frá þér. Þá
munt þú sjá þína sæng útbreidda.
Samvinnumanneskju tel ég mig vera
en harma hve hún er komin langt frá
sinni upprunalegu stefnu. Ég vil að
kaupfélögin hafi Johnson og Kaaber
kaffi, Akrasmjörliki o.fl. en ekki ein
göngu sambandsvörur. Jónas frá
Hriflu sagði að verslunarmál yrðu
aldrei heilbrigð nema samkeppnin
væri fyrir hendi. SÍS mætti ekki ná
einræði hér.
Víkjum aftur að fréttapistlinum í
DB. Ég var svo ánægð að Árnes-
hreppsbúar væru búnir að byggja upp
fullkomin peningshús og að rafmagnið
væri komið á hvert heimili og þakkaði
það Þorvaldi G. Kristjánssyni. En þú
hefur aldrei þolað að heyra sannleik-
ann um Sambandið, Framsóknar-
flokkinn og síst Kaupfélag Stranda-
manna. Ég fór á hvern aðalfund þess
frá 1954 til 1962 og auðvitað Guð-
mundur í Bæ líka, þvi við vorum einu
bannaði mér að tala. Stjórnin sagði að
Regína mætti tala eins lengi og hún
vildi. Þá fór Guðmundur að hágráta
og hljóp út. Þannig gekk þetta fyrir sig
á öllum fundunum sem ég var á, Guð-
mundur hágrátandi yfir því að ég
skyldi fá orðið. Ungur maður af
Á sama tlma og verið var að byggja vegi upp i óbyggðir til handa sportfólki, þá
var ekki hægt að gera vegarspotta handa Árneshreppsbúum svo þeir kæmust í
samband við höfuðstað Strandanna, Hólmavík,” segir Regina Thorarensen i bréfi
sínu. Myndin er frá Hólmavík.
fréttaritararnir i hreppnum. Guð-
mundur er vcl pennafær maður og
hefur fallega rithönd. Enda var hann
alltaf kosinn ritari á fundunum.
Nú, nú, fundirnir hófust með því að
kosið var i nefndir og kaupfélagsstjór
inn las upp reikninga fyrra árs. Siðan
var fundarfólki boðið að tala. Ég tók
alltaf til máls á fundunum og fljótlega
fór Guðmundur að ókyrrast og slá
hnefanum í fundarborðið svo vatns
glös og pennar duttu á gólfið. Svo
heimtaði hann aðstjórn kaupfélagsins
Ströndum, sem nú er búsettur á Eski-
firði sagðist einu sinni hafa farið með
móður sinni á einn aðalfund og verið
að leika sér með öðrum börnum i íbúð-
argangi kaupfélagsins. Þá hafi Guð-
mundur komið eins og mannillt naut,
hágrátandi, bölvandi og ragnandi út
úr fundarsalnum og sagt að nú ætlaði
hann að drepa þessa helvítis kerlingu
sem alltaf væri að finna að verkum
kaupfélagsins. Ungi maðurinn sagði
mér aðsiðan þetta skeði hafi hannallt
af verið hræddur viðGuðmund.
Grísku leðurstígvélin komin
LEÐUR - LEÐURFOÐRUÐ - LEÐURSOLAR
Laugavegi 69 simiiböbU
M lAbæiarmarkadi simi 19494
Opiðtil
. 7 í kvöld
kl
Laugardag
hádegis
Brun og
svört
kr. 33.460.-
Svört
kr. 33.400.-
Guðmundur segir að honum finnist
anda heldur kalt til Árneshreppsbúa í
fréttabréfinu. Ég spyr hann: Hvað
heita þeir menn sem finnst svo og hver
erskýringin?
Ég hef alltaf litið upp til Árnes-
hreppsbúa og virt þeirra dugnað, oft
við slæm vinnuskilyrði, samgöngu-
leysi, rafmagnsleysi og hafnarleysi.
Hermann Jónasson þingmaður
Strandamanna i fjöldamörg ár og allt-
af 25—26 ár sem eini þingmaður
þeirra, hældi sér af þvi á 20 ára þingaf-
mæli sínu að hafa gert 17 km langan
vegarspotta frá Gjögri til lngólfsfjarð-
ar. Eitt sinn spurði ég hann hvort það-
væri hugmynd hans að gera Árnes-
hrepp að forngripasafni svo komandi
kynslóðir gætu séð hvernig lifið hefði
verið á umliðnum öldum. Ég teldi það
stolt hvers alþm. að gera sem mest
fyrir sitt kjördæmi. Hermann svaraði:
Regína min, þingmenn geta ekkert
gert þegar engin heiðni kemur frá
hreppsnefndinni. Já Guðmundur
minn, þið framsóknarmenn tókuð
þetta gott og gilt enda var Hermann
snjall lögfræðingur. En hvers vegna
fóruð þið ekki fram á framkvæmdir?
Þess í stað var Hermanni haldin veisla
er hann kom og þú slátraðir alikálfi
handa honum í mat. Ekki minnist ég
þess á framboðsfundum þau 20 ár er
ég bjó á Ströndum að þið ráðandi
menn færuð fram á við Hermann að
fá vegi og rafmagn. Nema einu sinni
að Torfi Guðbrandsson, skólastjóri. þá
nýfluttur í hreppinn, sagði að sér fynd-
ist sárt til þess að vita að á sama tíma
og verið væri að byggja vegi upp í
óbyggðir til handa sportfólki væri ekki
hægt að gera vegarspotta handa
Árneshreppsbúum svo þeir kæmust í
vegarsamband við höfuðstað Strand-
anna, Hólmavík.
Árið 1953 var Þverárvirkjun við
Hólmavík vígð. Þá töldu margir að
stutt yrði þar til við fengjum raf-
magn. En við máttum bíða og biða og
eftir stækkun virkjunarinnar 1964 var
lögð lína yfir Tröllatunguheiði og raf-
magn þaðan sent til annarar sýslu,
Austur-Barðastrandasýslu. Það var
lítið gert fyrir okkur fyrr en Viðreisn-
arstjórnin tók við völdum, undir stjóm
Bjarna Benediktssonar. Þá komst
hreppurinn í vegarsamband við sinn
höfuðstað og rafmagnið kom 1977 rétt
fyrir jólin þegar Geir Hallgrimsson var
forsætisráðherra. Þú verður að viður-
kenna Guðmundur minn að Sjálf-
stæðisflokkurinn hefur gert stóru
átökin og dýrustu. Enda er ég búin að
lesa jólakveðju til þín frá Þorvaldi G.
Kristjánssyni vegna árása og lyga er
þú barst á hann í annarri greininni til
mín, eins og oft vill verða hjá þér ef
sjálfstæðismenn eiga i hlut. En þú
segir þar m.a. að ef Þorvaldur hefði
komið rafmagninu 3 árum fyrr hefðu
heimtaugar rafmagnsins orðið mun
ódýrari vegna hinna dýru útibygginga
er risið hafa sl. 3 ár og hleypt upp fast-
eignamatinu. Ég spyr þig Guðmundur
og vil fá svar: Hvað hefðu þessar
heimtaugar kostað hreppsbúa ef þeir
hefðu fengið rafmagnið fljótlega eftir
1953?
Nei, það er þannig með þig að
enginn má senda fréttir úr Árnes-
hreppi nema þú, annars ferðu alveg úr
sambandi og færð grátköst eins og
klepptækúr maður. Ég var að frétta að
þú hefðir verið fyrir sunnan til lækn-
inga og fengið bata á þinum slöppu
tárakirtlum. Ég hlakka til að sjá þig á
sumri komanda ógrátandi.
Þú viðurkennir hæfni og dugnað
Guðmundar Þ. Guðmundssonar,
skólastjóra, sem byggði barnaskólann
1929 fyrir eigið fé því honum ofbauð
það hróplega ranglæti að einungis
börnin frá riku heimilunum fengju
kennslu. En hreppsnefndin og kaupfé-
lagið voru alveg á móti þeirri nauðsyn-
legu byggingu. Ég hef aldrei lesið eftir
þig grein um hinn mikilhæfa nafna
þinn sem gerði þetta stórátak gegn
vilja ráðandi manna hreppsins. Senni-
lega hefur skólastjórinn ekki verið
framsóknarmaður, ekki að ég viti það.
Já Guðmundur minn svona kem ég
þér nú á rétta hillu að þú lætur nú
fyrrv. skólastjóra í fyrsta skipti njóta
sannmælis. Einnig vil ég benda þér á
að vera fjölbreyttur í fréttaflutningi
þinum hvar í flokki sem fólkið er. En
það sem'einkennt hefur þinn frétta-
flutning er að einungis fréttir af trygg-
um framsóknarmönnum birtast. T.d.
sendir þú fyrir nokkrum árum fréttir
af fjárskaða. Þar gastu bara um tjón
hjá framsóknarmönnum en margir
aðrir misstu sínar kindur en voru ekki
í þínum flokki.
Guðmundur segir vin sinn hafa sent
sér áðurgreindan fréttapistil. Ég vissi
það líka að þér þætti gaman að lesa
fréttirnar mínar. Þannig var það lika á
Ströndum. Þá labbaðir þú á kvöldin,
þegar dimma tók, og fórst í hús þar
sem ísafold var keypt. Þetta hefur góð-
kunningi þinn vitað og sent þér
Strandafréttina. Hann veit, eins og við
öll sem þig þekkjum, að þú þorir ekk-
ert blað að lesa nema Timatuskuna.
Mér þykir nú vænt um að lesa það
frá þér að þér liki vel við Gunnstein
kaupfélagsstjóra. Mér likar einnig vel
við hann eins og reyndar alla forvera
hans, þó svo að við værum ekki alltaf
sammála.
í margnefndri Strandafrétt er allt
rétt nema með heyskapinn. Ég sagði
hann hafa byrjað fyrstu dagana i ágúst
en DB segir hann enda. En þú sem
elsti fréttaritari landsins ættir að kann-
ast við prentvillupúkann.
Ég vil ráðleggja þér eitt Guðmund-
ur minn, nú ertu búinn að fá raf-
magnið og þessi flottu peningshús,
sem spara svo mikla vinnu. Farðu á
námskeið til Ólafs Jóhannessonar, for-
sætisráðherra,. eftir fengitímann og
lærðu hjá honum framsóknarfræði!
Ólafur er mikill kennimaður. Þú sérð
eins og aðrir hve vel hann dansar ÓLA
SKANS með súkkulaðidrengjunum
ungu i Alþýðuflokknum, sem komust
á þing sl. haust. Ég veit vel að það er
vont að kenna gömlum hundi að sitja
en þrátt fyrir það hef ég trú á að þú
getir mikið lært hjá Ólafi og þá myndi
þetta taugastress sem einkennir þig í
pólitikinni batna. Mest hefur það
orðið til vegna mistaka þinna í starfi
fyrir Framsóknarflokkinn. Það er allt-
af ergilegt er menn telja sig setja niður
gott útsæði en uppskeran verður svo
engin eins og hjá þér. Ég veit bara að
bændur sem eiga land að æðarvarpi
væru ánægðir ættu þeir eins góðan
varðhund og Framsóknarflokkurinn á
þar sem þú ert. Þú fælir alla úr
flokknum með þínu einræði, keksni,
klíkuskap og ósamvinnuþýðni. Þú
varst svo illur eftir kosningarnar í
sumar að þú komst svo smekklega að
orði að allir hreppsbúar væru orðnir
blóðrauðir kommúnistar og bættu svo
gráu ofan á svart með því að kjósa
helv. hann Þorvald G. Kristjánss og
það jafnvel flokksbundnir framsóknar-
merm.
Ég óska þér svo gleðilegs árs með
þökk fyrir gömlu og ógleymanlegu
árin. Hittumst „eldhress” á sumri
komandi og vonandi verður þér batn-
aður gráturinn og mér asminn.
Eskifirði 6. jan. 1978.
Regina Thorarenscn.
Raddir
iesenda