Dagblaðið - 19.01.1979, Síða 1
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 19.JANÚAR 1979.
13
Hvað er á seyði um helgina?
Sjónvarp næstavika
• M
Sjónvarp
Dagskrárliðir eru i litum nema
annað sé tekið fram.
Laugardagur
20. janúar
16.30 fþröttir. Umsjónarmaður Bjami Felixson.
18.25 Hvar á Janni að vera? Sænskur mynda-.
flokkur. Þriðji þáttur. Þýðandi Hallveig
Thorlacius. (Nordvision — Sænska sjón-
varpið).
18.55 Enska knattspyrnan.
Hlé.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.30 Lifsglaður lausamaður. StaðgengilUnn.
Þýðandi Ellert Sigurbjömsson.
20.55 Hefur snjóað nýlega? Þáttur með blönd-
uðu efni. HaUi og Laddi, Björgvin HaU-
dórsson, Pálmi Gunnarsson, Ragnhildur
Gisladóttir og fleiri skemmta. Stjórn upptöku
Tage Ammendmp.
21.45 Leyndardómur Santa Vittoria {The Secret
of Santa Vittoria). Bandarisk biómyndfrá
árinu 1969. Leikstjóri Stanley Kramer. AttiA-
hlutverk Anthony Quinn, Virna Lisi, Anna
Magnani og Hardy KrUger. Sagan gerist á
stríðsárunum í vínræktarbænum Santa
Vittoria á Norður-ítaUu. Vín bæjarbúa er víð-
frægt og þeir em stoltir af því. Það verður því
grátur og gnístran tanna þegar fréttist, að
þýski herinn sé að koma til að taka vínið
eignarnámi. Þýðandi Kristmann Eiðsson.
23.55 Dagskrárlok.
Sunnudagur
21. janúar
16.00 Húsið á sléttunni. Áttundi þáttur. Halta
stúlkan. Efni sjöunda þáttar: Tvær gamlar"
ekkjur, AmaUa og Margrét, búa saman. Böm
AmaUu hafa ekki heimsótt hana í mörg ár, og
þegar vinkona hennar deyr, fær hún nýstár-
lega hugmynd. Karl IngaUs og læknirinn
leggja henni lið og senda börnunum skeyti um
aö hún sé dáin. Jafnframt ákveöur hún að erfi
skuU dmkkið á áttræðisafmæli hennar. Hún er
auðvitað sjálf i veislunni, dulbúin, og það
verður heldur betur uppUt á systkinunum,
þegar þau sjá móður sína „lifna viö”. Þýðandi
óskar Ingimarsson.
17.00 Á óvissum timum. Sjöundi þáttur. Bylting
hinna hámenntuðu. Þýðandi GyUi Þ. Gíslason.
18.00 Stundin okkar. Umsjónarmaður Svava
Sigurjónsdóttir. Stjórn upptöku Andrés Ind-
riðason.
Hlé.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.30 BUndur er bóklaus maður. Þýski kvik-
myndatökumaðurinn Rolf Hðdrich var hér á
landi sumarið 1977 og gerði tvo sjónvarps-
þætti um islenskar bókmenntir. Fyrri þáttur-
inn er aðallega um Halldór Laxness. Skáldið
les „Söguna af brauðinu dýra” og segir frá.
Sýndur verður kafli úr leikriti Laxness,
Straumrofi, og rætt við Vigdísi Finnboga-
dóttur. Einnig er viðtal við dr. Jónas Kristjáns-
son. Síðari þátturinn er á dagskrá sunnudag-
inn 28. janúar. Þýðandi Jón Hilmar Jónsson.
2l.l5 Frá tónUstarhátiðinni i Björgvin 1978.
Emil Gilels leikur ásamt hljómsveit konsert í a-
moll, op. 24 eftir Grieg. Stjómandi Karsten
Andersen. (Nordvision — Norska sjónvarpið).
21.50 Ég, Kládius. Ellefti þáttur. Glópalán. Efni
tíunda þáttar: Kládius, sem kominn er á sex-
tugsaldur, býr í fátækrahverfi í Róm, en i keis-
. arahöllinni iðka Kaligúla og hyski hans hvers
kyns lesti. Féhirslur rikisins em tómar og keis-
arinn ákveður að fara með her sinn til Ger-
maníu að afla fjár. Eftir sex mánuði snýr hann
aftur, og eitt fyrsta verk hans er að gefa saman
Kládíus og hina fögm MessaUnu. Mágur keis-
arans, Markús Vinicius, og tveir menn aðrir,
Kassius og Asprenas, myrða keisarann og
' Kassius banar einnig Kaesoniu konu hans og
ungri dóttur. Kládius felur sig. Lífverðirnir
finna hann og krýna hann upp á sitt eindæmi,
svo að lifvarðasveitin leysist ekki upp. Þýðandi
Dóra Hafsteinsdóttir. Þátturinn lýsir grimmd
og siðleysi þessa tímabils i sinni verstu mynd.
22.40 Að kvöldi dags. Séra Jón Auðuns, fyrrum
dómprófastur, flytur hugvekju.
22.50 Dagskrárlok.
Mánudagur
22. janúar
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.30 Reyklaus dagur. Þriðjudaginn 23. janúar
gengst Samstarfsnefnd um reykingavamir
fyrir svokölluðum „reyklausum degi” um land
allt. Er stefnt að þvi, að reykingamenn reyki
ekki þennan dag og noti helst tækifærið til að
hætta alveg. í þessum þætti verður lýst, hver
áhrif reykingar hafa á heilsu manna, og þeim,
sem vilja hætta, verða gefin nokkur holl ráð.
Meðal þeirra sem koma fram í þættinum eru
læknamir Auðólfur Gunnarsson og Sigurður
Bjömsson. Umsjónarmaður Sigrún Stefáns-
dóttir.
20.50 íþróttir. Umsjónarmaður Bjami Felixson.
21.20 Leikslok. Breskt sjónvarpsleikrit eftir Bob
Baker og Dave Martin. Leikstjóri Don Leaver.
Aðalhlutverk Jack Shepherd, Angela Down
og Michael O’Hagan. Bankastarfsmaöurinn
Mark Hawkins vinnur við tölvu. Þegar litið er
að gera og enginn sér til, bregður hann á leik
með tölvunni. Fyrirhugað er að taka upp nýtt
tölvukerfi í bankanum, og Mark óttast að þá
muni komast upp um athæfi hans. Þýðandi
Kristmann Eiðsson.
22.10 Sjónhending. Umsjónarmaður Bogi
Ágústsson.
22.30 Dagskrárlok.
Þriðjudagur
23. janúar
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.30 Djásn hafsins. Hveljur og hárstjörnur.
Þýðandi og þulur Óskar Ingimarsson.
20.55 Framtíö fiskiðnaðarins. Umræðuþáttur
um framtíð fiskiðnaðar, þar sem m.a. er leitast
við að svara spumingunni, hvort sjávarút-
vegur geti staðið undir batnandi lífskjömm á
íslandi. Þátttakendur Ásmundur Stefánsson
hagfræðingur og dr. Bjöm Dagbjartsson, for-
stjóri Rannsóknarstofnunar fiskiðnaðarins.
Stjómandi Magnús Bjamfreðsson.
'21.45 Keppinautar Sherlock Holmes. Loka-
þáttur. Strokumaðurinn. Þýðandi Jón Thor
Haraldsson.
!22.35 Dagskrárlok.
Miðvikudagur
24. janúar
18.00 Rauður og blár. ítalskir leirkarlar.
18.05 Börnin teikna. Bréf og teikningar frá
bömum til Sjónvarpsins. Kynnir Sigriður
Ragna Sigurðardóttir.
18.15 Gullgrafararnir. Sjötti þáttur. Þýðandi
Jóhanna Jóhannsdóttir.
18.40 Heimur dýranna. Fræðslumyndaflokkur
um dýralif víða um heim. Fyrsti þáttur er frá
Hawaii-eyjum og hafinu umhverfis þær. Þýð-
andi og þulur Gylfi Pálsson.
19.05 Hlé.
20.00 Fréttirogveður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.30 Nýjasta tækni og vísindi. Hagrannsóknir.
Umsjónarmaður ömólfur Thorlacius.
21.00 Rætur. Fjórði þáttur. í þriðja þætt-
inum var lýst ferðinni yfir hafið. Þræl-
amir gera uppreisn, en hún er barin
niður. Þrælaskipið kemur til Ameriku. Afríku-
mennirnir eru seldir á uppboði, og Kúnta
Klnte er fluttur heim á búgarð nýja eigandans.
Þýðandi Jón O. Edwald.
21.50 Fjölþjóðleg fyrirtæki og starfshættir
þeirra. Síðari hluti hollenskrar myndar.
Þýðandi Ingi Karl Jóhannesson.
22.40 Dagskrárlok.
Föstudagur
26. janúar
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 James Taylor. Poppþáttur með söngvar-
anum og lagasmiðnum James Taylor.
21.20 Kastljós. Þáttur um innlend málefni.
Umsjónarmaður Guðjón Einarsson.
22.20 í dögun (s/h. (Dawn Patrol) Bandarisk bíó
mynd frá árinu 1938. Aðalhlutverk Errol
Flynn, David Niven og Basil Rathbone. Sagan
í DÖGUN — sjónvarp á föstudagskvöldið:
Hjartaknúsarinn Flynn í aðalhlutverki
í dögun nefnist bíómynd sjón-
varpsins á föstudagskvöld og er hún
svart/hvit. Myndin er bandarísk frá
árinu 1938 með Eroll Flynn, David
Niven og Basil Rathbone i aðalhlut-
verkum.
Myndin greinir frá hermönnum, sem
berjast 1 fyrri heimsstyrjöldinni. Flug-
menn brezka flughersins eru aðalsögu-
hetjurnar og eiga þeir við sterkan and-
stæðing að etja. Yfirmenn flugsveitanna
lenda í miklum erfiðleikum er þeir þurfa
að senda félaga sína út i opinn dauðann
til þess eins að þjóna markmiðum
hershöfðingjanna og stjórnmálamanna.
Kvikmyndabókin okkar gefur
myndinni þrjár og hálfa stjörnu af
fjórum mögulegum sem þýðir að kvöld-
stund fyrir framan skjáinn ætti ekki að
vera svo illa varið.
Eroll gamli Flynn leikur eins og áður
sagði aðalhlutverkið í myndinni.
Myndin var tekin á þeim tíma er Flynn
var aðalhjartaknúsarinn I Hollywood og
reyndar víðar um heiminn. Þótt gagn-
rýnendur væru sammála um það að
Flynn gæti ekki leikið var samt eitthvað
við hann sem fékk fólk, þó aðallega
konur, til þess að fá djúpa samkennd
með honum og dá allt sem hann gerði.
Flynn var fæddur á eyjunni
Tasmania og nam i Ástralíu og
Englandi. 1933 lék hann á sviði I
London og var þá uppgötvaður af einum
forráðamanna Warner kvikmynda-
félagsins. Hann fór vestur til Banda-
ríkjanna þar sem hann sló í gegn með
leik í myndinni Captain Blood. Hann
þótti hæfa sérlega vel I hlutverk
sögufrægra persóna eins og Hróa Hatt-
ar, Don Juans og fíeiri.
Olivia de Haviland lék í mörgum
Flynn f hlutverki sinu f föstudagsmynd sjónvarpsins.
myndum á móti Flynn og sagði hann í
ævisögu sinni að enginn einn hefði gert
sér betra en hún. Hún hefði gert hann að
því sem hann væri.
En frægð Flynns byrjaði að dala strax
uppúr 1942 er hann lék I mjög umdeildri
mynd, Objective Burma, þar sem deilt
var á Breta fyrir að berjast ekki í Burma.
Myndin var bönnuð í Bretlandi.
Á sama tíma hættu þau Olivia að
leika saman og Flynn var ákærður fyrir
nauðgun. Ákæran reyndist ekki eiga fót
fyrir sér en skemmdi samt töluvert fyrir
honum.
í byrjun sjötta áratugsins reyndi
Flynn að stofna eigin kvikmyndafélag
en það fór á hausinn og gerði hann nær
gjaldþrota.
Þá fór hann til Bretlands og endaði
leikferil sinn með þvi að leika fyllibyttur
I þrem myndum. Reyndar lék hann eftir
það i einni áróðursmynd fyrir Kúbu-
stjórn, en sú mynd var bönnuð í Banda-
ríkjunum og er sjaldan minnst á hana.
Flynn dó árið 1959 af hjartaslagi,
einn og yfirgefinn af öllum konunum
sem vildu eiga hann á árum áður.
-DS.
STÚLKA Á RÉTTRILÉIÐ — sjónvarp næsta laugardag:
Stúlkan úr smábænum
Á laugardagskvöldið í næstu viku hefst nýr fram-
haldsflokkur í sex þáttum í sjónvarpi. Nefnist
flokkurinn Stúlka á réttri leið. Mary Tyler Moore
leikur þar aðalhlutverkið.
Þýðandi flokksins er Ellert Sigurbjörnsson og var
hann spurður um hvað fjallað væri. „Ég er nú bara
búinn að sjá einn þátt, en mér sýnist eins og þetta efni
sé ekki alveg nýtt af nálinni. Hver þáttur mun vera
sjálfstæð heild en þó sömu aðalpersónurnar og fram-
hald að því leyti.
Fyrsta myndin greinir frá ungri stúlku sem heitir
Mary Richards. Hún hefur allt sitt líf búið í litlum há-
skólabæ og verið trúlofuð læknanema í mörg ár. Þeg-
ar hann loksins útskrifast slitnar þó upp úr þessari
trúlofun. Mary fer þá til stórborgarinnar þar sem hún
er ákveðin í að byrja nýtt líf. í fyrsta þættinum
fylgjumst við með því er hún útvegar sér húsnæði og
vinnu. í næstu þáttum verður svo greint frá frekari
ævintýrum hennar I borginni,” sagði Ellert.
Mary Taylor Moore lék talsvert mikið í Kana-
sjónvarpinu hérna I gamla daga. Að minnsta kosti ein
kvikmynd hefur veriö sýnd hér í bíói með henni,
Thoroughly Moders Millie, sem var dans- og söngva-
mynd þar sem Julie Andrews lék stærsta hlutverkið á
móti Mary.
-DS.
Mary Tyler Moore meó Julie Andrews I
myndinni Thoroughly Modern Millie.
1»