Dagblaðið - 16.02.1979, Page 11
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR 1979.
r—~~~———
Nýaronskan á Vestfjörðum
Spírur Aronskunnar hafa nú teygt
jsig vestur á Firði og skotið rótum i
.Karvel Pálmasyni. 1 Dagblaðsgrein
24. janúar fer Karvel á kostum eins og
(fyrri daginn. Skrifar kjarnmikið al-
þýðumál, klárt og kvitt. Slettulausa ís-
lensku, en slettur eru oft ljóður á texta
margra höfunda.
I grein þessari boðar Karvel merki-
leg tiðindi, sumsé þau, að skattáþján
alþýðumannsins sé fyrir veru varnar-
liðs Bandaríkjamanna i Keflavík
syðra. Karvel er hins vegar alls ekki
sýnt um rökstuðning að sínu máli,
heldur beitir hann mætti endurtekn-
ingarinnar eins og einn alræmdur
iskúrkur á fjórða áratugnum. Nefnum
engin nöfn.
Hér eru reyndar á ferð allstór tíð-
indi við fyrstu lesningu, fáfróðu fólki
um málefni hersetu. Þeir sem betur
vita haida að hér séu á ferðinni upp-
ljóstranir ríkisleyndarmála.\
Svo ég geri nú örlitla úttekt á hug-
myndafræði Karvels varðandi herinn,
þá kom það fram á framboðsfundum
vestra í vor að afstaða hans var alveg
„skýlaus”. Hann vildi þjóðaratkvæði.
Síðan ætlaði hann að dratthalast á
eftir þeim meirihluta sem skapaðist í
málinu.
Hér í Dagblaðsgreininni kemur
fram að hann álítur meirihluta lands-
manna fylgjandi veru herliðsins. Aftur
á móti telur hann menn ekki reiðu-
búna að sveitast blóðinu til að uppi !
halda dátana í vellystingum pragtug-
lega suður í Miðnesheiði. Fé það sem
þannig losnar verður svo lagt í sérstak-
an dreifbýlissamgöngusjóð svo eðlileg
uppbygging geti farið fram í hinum
dreifðu byggðum.
Þessa rullu endurtekur hann svo I
fleirgang, leiti þeir að sem nenna.
Upplýsingar
varnarmáladeildar
Með því að undirrituðum þótti upp-
lýsingar Karvels Pálmasonar I hæsta
Iagi ótrúlegar hringdi hann upp svo-
nefnda varnarmáladeild utanríkis-
ráðuneytisins til að fá upplýsingar um
málið. Varð þar fyrir greinargóður
maður að nafni Hannes Guðmunds-
son, titlaður fulltrúi skv. simaskránni.
Kvað hann varnarliðsmenn engin þau
fríðindi búa við sem kæmu niður á
skattpíndum alþýðumönnum. Skv.
upplýsingum Hannesar, munu Kanar
að heita má alfarið afstiaðir innan
vallargirðingar skv. klásúlu I málefna-
samningi þeirrar vinstri stjórnar er
síðast leið. Bifreiðaskatt greiða þeir
ekki né vegaskatt í bensíni, nema ef
þeir neyðast til að kaupa Rússabensin
utan vallarmúra. Hins vegar greiða
Bandaríkjamenn ákveðið gjald árlega
vegna hugsanlegs slits á vegum. Er þar
höfð í huga Reykjanesbraut, enda við-
burður að hitta fyrir Kanabíl annars
staðar.
Þá kom fram hjá Hannesi, að Varn-
arliðið kaupir nokkurt magn landbún-
aðarafurða, einkum mjólk og osta.
Lambakjöt hefur fengist I sölubúð
þeirra á Vellinum, en það leggja dátar
sér ekki til munns frekar en hvern ann-
an óþverra. Ekki plagsiður í USA að
snæða rollur. Eru menn jafnan ekki
nema eitt ár þarna í þjónustu, einstakl-
ingar. Fjölskyldufólk tvö. Er það of
stuttur tími til að kenna þeim átið.
(Dettur nokkrum í hug svið og hrúts-
pungar?)
Kjallarinn
Finnbogi
Hermannsson
Að f orsendum
gefnum
Að þessu upplýstu er augljóst, að
þingmaðurinn fyrrverandi býr sér til
forsendur sem eiga ekki minnstu stoð i
raunveruleikanum. Kanar hafa engin
friðindi sem byggjast á skattpíningu
„til dæmis Vestfirðinga” eins og
Karvel orðar þetta.
Hins vegar hafa menn bent á leið
undan þessu ímyndaða skattaerði,
sum sé að fleygja þeim her úr landi
sem augljóslega stendur eðlilegri
byggðaþróun fyrir þrifum og þeim
samgöngumannvirkjum sem til heyra.,
Ekki virðist Karvel koma auga á þessa
leið.
Formerkin
eru mikilvæg
Svo vikið sé aftur að reiknislist
Karvels Pálmasonar þá mun það sanni
nær, að formerki hafi misfarist eins og
gerist og gengur og þeir gjörst þekkja
sem kenna tossum reikning. Hitt mun
sanni nær, að uppbygging íslensks
efnahagslífs upp úr eymd kreppunnar
hafi verið í beinu sambandi við nær-
veru herliðs, þótt skjótt hafi sól brugð-
ið sumri þegar draga tók á áttunda
áratuginn og ekki skyldi ráðinn nema
einn starfsmaður á „beisinn” fyrir
hverja fimm sem hurfu á braut. Er
fræg þæfa þeirra Gröndals og Carters
og minnir á Jón sterka I Skuggasveini.
Varð sá armi hnetubóndi að láta I
minni pokann fyrir hinum og sam-
þykkja þrjá I staðinn fyrir fimm.
Að lokum
Ég held að þessi greinarstúfur þurfi
ekki að vera miklu lengri, það er ekki
til annars en að teygja lopann. Þó vil
ég ekki láta hjá líða að upplýsa nokkuð
um þær kenndir sem fara um kring-
lótta vömb margra Vestfirðinga þegar
þeir „beina ásjónum sfnum” gegnum
fjöllin sjö og allt til Suðurnesja. Sic
transit gloria mundi. Svo fallvölt er
heimsins gæfa. Suðurnesjamenn hafa
nefnilega ekki treyst alfarið á islenska
uppbyggingu og íslenska forsjá í at-
vinnumálum. Það er að verða strimlað
í Kanaspenanum. Hér vestra hefur
hins vegar verið treyst á íslenska forsjá
og með örlítilli vestfirskri þjóðrembu,
vestfirska forsjá. Það ber atvinnulífið
á Vestfjörðum gleggstan vott um, en
vanmetum ekki ytri skilyrði.
Karvel Pálmason er þvi ein furðuleg
þversögn hér mitt i gósenlandinu Vest-
fjörðum. Að vera upphafsmaður
Aronskunnar á þeim stað, þar sem
jafnan er talað um her eins og lúsina
eða aðrar þekktar plágur.
Karvel veit vel, að hann er ekki að
fara með staðreyndir í Dagblaðsgrein-
inni. Hann sér einfaldlega ofsjónum
yfir þeim fjármunum sem runnið hafa
í vasa hermangaranna syðra. Hann
virðist líta á herstöð eins og hver
önnur hlunnindi, líkt og varpið I Æðey
ellegar rækjumiðin í ísafjarðardjúpi.
Er Karvel kannski að fara fram á
herstöðí Vikina?
Vei jDeim fýsnum.
Dýrafirði 28.1. 1979.
Finnbogi Hermannsson.
*
A „Þeir sem betur vita, halda að hér séu á
^ ferðinni uppljóstranir ríkisleyndar-
mála..."
• „Karvel Pálmason er því ein furðuleg
þversögn hér mitt í gósenlandinu Vest-
fjörðum..."
Fræðsla er sterkasta vopnið
lega úr hættunni. Þá verðum við ls-
lendingar sannarlega að gjörbreyta um
stefnu, vandamálinu verður ekki
lengur slegið á frest, fræðsla verður að
hefjast á næstu vikum og stórauka
verður löggæslu við fíkniefnarann-
sóknir, sem jafnframt verður að vera
búin fullkomnustu tækjum til upp-
Ijóstrunar slíkra mála. Eiturbyrlara,
sem oft eru nefndir fjöldamorðingjar,
verður að stöðva með öllum tiltækum
ráðum, peningavöntun getur aldrei
réttlætt aðgerðaleysi stjórnvalda.
Víkjun nánar að afleiðingum
cannabisneyslu. Árið 1970 voru fram-
kvæmdar kannanir og hafnar lög-
reglurannsóknir á innflutningi, dreif-
ingu og notkun fíkniefna hérlendis. Þá
þegar var ljóst að verulegur hópur
ungmenna hafði neytt cannabisefna
og LSD erlendis, sérstaklega þó í Dan-
mörku. Á næstu árum varð stöðug og
mikil aukning á notkun cannabisefna
hér innanlands og nú er svo komið að
þúsundir Islendinga nota þessi efni í
verulegum mæli. I kjölfar cannabis-
neyslunnar varð stórkostleg aukning á
notkun örvandi lyfja meðal ungmenna
svo og LSD og síðar hefur einnig orðið
vart notkunar á mescalin og cocain.
Reynslan hér á landi hefur verið í
meginatriðum hliðstæð því sem gerst
hefur á hinum Norðurlöndunum.
Sálrænar breytingar
Vmsir spyrja hvaða meginástæðui
liggi þvi til grundvallar, að um 80—
90% þeirra sem nota heroin hafi I upp
hafi byrjað að neyta cannabisefna
Flestum sérfræðingum á þessu sviði
ber saman um að meginorsakimar séu
sálrænar breytingar sem cannabisefn-
is valda, þau brjóti niður eðlilegan
viljastyrk, sem síðan valdi flótta frá
raunveruleikanum. Þá er vöntun á
eðlilegri lifsfyllingu oft um kennt
jægar einstaklingar leita á náðir fikni-
efna og lyfja. Eins og kunnugt er
standa sálrænar þarfir manna alltaf í
sambandi við aðra. Því eru vímugjafar
eða svonefnd sálræn fíkniefni oftast
notuð á félagslegum grundvelli. Öll of-
skynjunarlyf valda jteirri breytingu á
vitundarástandi manna, að jjau magna
upp og breyta ýmsum eðlishvötum og
geta því orsakað hömlulaust og
stundum óviðráðanlegt ástand. Það er
þvi augljóst að meðferð slikra efna og
lyfja er neytendum stórhættuleg og
getur leitt til hvers konar ógæfu bæði í
formi alvarlegustu afbrota og geð-
veiki. Sú breyting sem verður á vitund-
arástandi manna við notkun ofskynj-
unarlyfja eða efna er oft mjög fjöl-
breytileg, bæði er tekur til umhverfis
og nærstaddra. Sá óraunverulegi
heimur sem birtist slíkum neytendum
verður fieim oft algjörlega ofviða og joá
verða jíað oftast enn hættulegri vana-
bindandi lyf eins og t.d. heroin sem
taka við. Rannsóknir á sviði svo-
nefndra sállyfja eða efna eru mjög
skammt á veg komnar og ekki síst þess
vegna ber brýna nauðsyn til að sporna
við notkun þeirra. Allur áróður um
notkun skynvilluefna til að opna veg-
inn milli meðvitundar og dulvitundar
er háskalegur á meðan ekki liggja fyrir
staðfestar vísindalegar rannsóknir.
Fjöldamorð og hvers konar meiri hátt-
ar slys undir áhrifum ofskynjunarefna
ættu að vera nægjanlegar aðvaranir til
allra.
Víkjun enn nánar að áhrifum og af-
leiðingum cannabisneyslu. Við notk-
un efnisins brenglast tímaskynjun og
einnig stundum fjarlægðarskyn og af-
skræming verður á sjón og heym, sem
veldur hræðslu og ótta. Cannabisneyt-
andi getur því eins og ölvaður maður
verið stórhættulegur I umferðinni,
bæði fótgangandi og við bifreiðarakst-
ur, jsar sem hæfni hans er alvarlega
skert. Hann verður andlega háður
notkun efnisins og getur sú ánauð
orðið svo mikil, að hún orsaki al-
menna vanrækslu við nám og i starfi.
Þá er talið að stöðug cannabisneysla
valdi tímabundinni og stundum varan-
legri geðveiki, en rannsóknir hafa sýnt
að heilaskemmdir eru margfalt tiðari
hjá þeim sem neyta þessara efna. Þá er
rétt að benda á þá staðreynd, að
cannabisneytendur eiga auðveldan
aðgang að jæim sem nota hættulegri
lyf, en slíkur samgangur er m.a. einn
þáttur, af mörgum, sem veldur því að
þeir ánetjast fljótt öðrum lyfjum og
efnum eins og heroin, cocain o.fl. Al-
þjóðaheilbrigðisstofnunin hefur í
skýrslum sýnt fram á, að cannabisefni
valdi ákveðnum eiginleikum, sem
leiða til áberandi glæpahneigðar enda
gekk hass undir nafninu morðingja-
efni fyrir nokkrum árum í Bandarikj-
unum.
25% verða háðir
heróíni
Þá er einnig rétt að benda á jsá
mikilvægu staðreynd, að jsar sem efnið
veldur ekki fráhvarfseinkennum, þ.e.
að ekki myndast þolmyndun í líkam-
anum fyrir því, þá geta cannabisneyt-
endur mjög auöveldlega gert tilraunir
með önnur efni og lyf. Þessu er eins og
kunnugt er öðru vísi varið með þá sem
neyta alkóhóls, amfetamíns,
heroins og barbitúrsýru, jreir verða lík-
amlega háðir efnunum vegna hinna
sterku fráhvarfseinkenna. Ýmsir telja
þetta eina af meginorsökum þess
hversu margir cannabisneytendur
breyta til I sterkari lyf. Við rannsóknir
og skoðanakannanir í ýmsum V-
Evrópuríkjum og Bandaríkjunum
hefur komið I ljós að meðal heroin-
neytenda hafa a.m.k. 80—97% neytt
cannabis áður. Talið er að allt að 3%
jteirra sem neyta áfengis verði alkóhól-
istar, en 25—25% cannabisneytenda
verði háðir heroin og öðrum sterkum
efnumoglyfjum.
1 þessari grein hef ég fyrst og fremst
tekið til umfjöllunar nokkra þætti
cannabisneyslu, jtar sem hún er út-
breiddust hér á landi, en nauðsynlegt
er einnig að taka til meðferðar síðar
hin sterkari ofskynjunarefni eins og
LSD, psilacybin, dimethylttryptaime
(DMT) og mescalin og örvandi lyf eins
og amfetamin, cocain, STP
(DOM) og methylphenidate. öll
framangreind lyf og efni eru notuð í
miklum mæli í Bandaríkjunum og V-
Evrópu og víðar, ennfremur eytur-
lyf eins og heroin, opium, codein,
mathadone og morfín. Valkostir
jreirra, sem lifa I hinni háskalegu gervi-
veröld vímunnar eru þvi fjölbreytileg-
ir, enda sjá hinir forhertu glæpamenn
dreifikerfisins um að nægjanlegt fram-
boð sé ávallt til staðar. Hér á landi
stefnir í sömu átt og í nágrannarikjum
okkar, þeim glæpamönnum fjölgar
stöðugt, sem annast jæssa fíkniefna-
dreifingu, enda eykst ráðstöfunarfé
þeirra og fjármögnun aö sama skapi.
Dóms- og heilbrigðisyfirvöld verða
að láta jtessi mál fá algjöran forgang,
bæði er tekur til fræðslu og hertra við-
urlaga við brotum á ávana- og fíkni-
efnalöggjöfinni. Verum þess ávallt
minnug, að sú fíkniefna- og ávana-
lyfjaneysla, sem nær að festa rætur
hérlendis verður ekki rifin upp með
rótum né upprætt hér fremur en I ná-
grannalöndum okkar. Tiltækasta
vörnin til að veita viðnám er eins og
áður greinir að hefja reglubundna
fræðslu um skaðsemi og afleiðingar
fikniefnaneyslu og stórauka lögreglu-
aðgerðir á jtessum vettvangi.
Að lokum og að gefnu tilefni vil ég
eindregið beina þeirri áskorun til allra
fjölmiðla í landinu að leyfa aldrei tals-
mönnum fíkniefnanotkunar að koma
áróðri sínum þar á framfæri.
Kristján Pétursson.
A „Verum þess minnug, að aðeins nokkrir
™ tugir heróínneytenda myndu valda
straumhvörfum í glæpatíðni hér á landi..."
A' „Þá er talið, að stöðug cannabisneysla
valdi tímabundinni og stundum varan-
legri geðveiki"...