Dagblaðið - 16.02.1979, Qupperneq 14
14
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR 1979.
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR 1979.
19
$
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
íþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
D
Skíðatrimmið
nú af stað
— um allt land um helgina
Að tilhlutan Skiðasambands íslands verður almenn-
ur trimm-dagur eða útivistardagur haldinn um allt
land 18. febrúar 1979.
Tilgangurinn með sérstökum útivistardegi er að
hvetja fólk til útivistar og skiðaferða og vekja athygli á
skiða-trímmi fyrir almenning, sem nú er að hefja
göngu sina og hefur verið kynnt i blööum áður.
Benda má á að tilvalið er fyrir alla fjölskylduna að
stunda skiöa-trimm.
Helztu atriði þess eru að almenningur getur nú
tekið þátt í skiðagöngu og svigi eftir ákveðnum reglum
og unnið sér rétt til kaupa á trimm-merkjum SKÍ.
Hver og einn á að geta tekið þátt i þessu skiða-trimmi,
þar sem reglur eru sniðnar við aldurshópa og getu. Ef
menn vilja ekki taka þátt I þessu sérstaka skiða-trimmi
eru þeir þó hvattir til að stunda skiða-trimm og að
sjálfsögðu standa skiðabrautir öllum opnar sem ætlað-
ar cru fyrir skíöa-trimmið.
Á sldðastöðum um allt land liggja frammi upplýs-
ingar um skiðatrimmið og þar er hægt að fá skiðakort,
sem hægt er að nota sem trimm-dagbók, færa inn þá
kflómetra sem gengnir eru á skiðum eða vegalengd
sem maður rennir sér niður brekkur.
SKÍ-stjarnan, sem er litið barmmerki snjókristall
með SKÍ stöfunum i miðju, verður til sölu hjá fram-
kvæmdaaðilum trimmdagsins um allt land og á skiða-
stöðunum. Allir sem byrja skiða-trimm hafa rétt til að
kaupa merkið.
Norðmenn biðja um
landsleik í sumar
Norðmenn hafa beðið KSÍ um landsleik I sumar I
knattspyrnu — og hafa þeir nefnt 5. júlí. Þá hins vcgar
fara fram 16-liða úrslit i bikarkeppni KSÍ og sendi
KSÍ I gær bréf tii Norðmanna þar sem bent er á dag-
inn 12. júlí — þar sé mögulciki.
Bætist þessi landsleikur á prógram KSÍ þá leikur
ísland 7 landsleiki I sumar auk þess að væntanlega
far.i leikinenn til Bandarikjanna og lcika þar 3
landsieiki nokkurs konar „bónus”. Fyrsti landsleikur
tslands verður 22. maf i Bern, gegn Sviss I Evrópu-
keppni landsliða. Síðan koma V-Þjóðverjar hingað og
leika 26. mal. 9. júni lcikur ísland viö Sviss I Rcykja-
vík. Síöan cr langt hlé, til 5. september, en þá leikur
ísland við Holland i Reykjavík, 12. september við A-
Þýzkaland og loks i Póliandi, 10. október. Allir leik-
irnir utan viðureignarinnar við V-Þjóðvcrja eru liðir í
Evrópukeppni landsliða.
Real Madrid
sigraði Bosna,
Júgóslavíu
Real Madrid sigraði I gærkvöld Bosna Sarajevo I
Evrópukeppni meistaraliða, 95—89 í Madrid. Hörku-
leikur og Júgóslavarnir veittu harðvituga mótspyrnu
en með sigri sfnum tókst Real Madrid að komast i
efsta sætið I undanúrslitum.
Staðan er:
Real Madrid, Spáni
Maccabi, ísrael
Varese, Ítalíu
Bosna, Júgóslavíu
Juventus, Spáni
Olympiakos, Grikklandi
6 4 2 610-536 10
6 4 2 498-438 10
6 4 2 508-456 10
6 3 3 503-512 9
6 2 4 489-512 8
6 1 5 492-542 2
— sagði Jóhann Ingi Gunnarsson en íslenzka landsliöið
Svona voru taktar Ómars Ragnarssonar i Höllinni á stjörnukvöldi KKt — skyldi
hann ná þessari sveiflu á sunnudag.
„Við stefnum markvisst að þvi að
sigra tsrael og komast þannig I milliriðil
á Spáni. Ég tel likurnar fyrir því að við
sigrum ísrael 50% þannig að við förum
ekki með þvf hugarfari að leikurinn sé
unninn fyrirfram heldur mun hver og
einn leggja eins mikið af mörkum og
hann mögulega getur. Ég tel að i leikn-
um við Tékka eigum við 40% vinnings-
möguleika en við munum berjast til
þrautar,” sagði Jóhann Ingi Gunnars-
son, þjálfari islenzka landsliðsins á
blaðamannafundi en islenzka landsliðið
heldur utan á þriðjudag og i næstu viku
hefst forkeppni Ólympfuleikanna á
Spáni.
tsland leikur þar í riðli með tsrael og
Tékkóslóvakíu í einum sterkasta riðlin-
um á Spáni. Allt þjóðir er i dag eiga sterk
landslið og tsrael sannaði í Sviss að þá
ber að virða í handknattleiknum í dag.
Þannig unnu ísraelsmenn athyglisverða
sigra í C-keppninni er þeir höfnuðu i
öðru sæti. Þeir unnu Finna ótrúlega
auðveldlega, 22—11. Og Austurríkis-
menn voru þeim ekki hindrun, öruggur
sigur ísrael 17—11. En þó er athyglis-
verðast að tsraelsmenn unnu næsta
auðveldan og öruggan sigur á Norð-
mönnum í Sviss, 25—20 og þau úrslit
gefa vissulega til kynna að ísrael sé að
komast á blað í handknattleiknum og
markvisst er unnið að þvi í tsrael að
byggja upp handknattleik. Það er lífs-
Ómar mætir „lands-
liði þjóðarinnar”
— á sunnudaginn þegar íslenzka landsliðið kveöur
áður en haldið verður til Spánar
heldur utan á þriðjudag
spursmál á Spáni að sigra tsrael — ef
það tekst ekki þá er ísland komið í kjall-
ara handknattleiksins, C-riðil og það er
ekki auðvelt að vinna sig upp aftur.
„tsraelsmenn spila mjög hraðan og
léttan handknattleik og byggja mikið
upp á hraðaupphlaupum. t liðinu eru
þrír Sovétmenn er hafa fengið leyfi til að
flytja til tsrael — allt mjög góðir leik-
menn er voru við landslið Sovétmanna á
sínum tima. Þjálfari tsrael er Tékki og
síðan i C-keppninni hafa ísraelsmenn
ekkert leikið — aðeins æft og æft eins og
atvinnumenn. Þeir ætla sér stóra hluti
og æfa og æfa. Það er ljóst að leikurinn
gegn ísrael er alls ekki unninn fyrirfram
— síður en svo gegn þjóð er stefnir jafn
markvisst að uppbyggingu og ísrael,”
sagði Jóhann Ingi Gunnarsson.
„Ég lít svo á að ísraelsmenn munu
ekki sýna neitt gegn Tékkum, að þeir
beinlínis muni tapa leiknum. tsrael er
þjóð er byggir nú af krafti upp hand-
knattleik og það er ekki þeirra markmkið
að vinna Tékka og komast þegar til
Sovétríkjanna. Þeir gera sér ljóst aðslíkt
eru aðeins hugarórar — nei markmið
ísraelsmanna á Spáni er að vinna tsland
og tryggja sig í sessi í B-riðli. Síðan taka
þeir skrefin þaðan,” sagði Jóhann Ingi
ennfremur.
En hvað um Tékka — hvaða mögu-
leika eygja tslendingar gegn Tékkum?
„Þeir eru að byggja upp nýtt lið með
nýjum þjálfara og hafa þegar náð at-
hyglisverðum árangri en eins og ísraels-
Það verður stjörnukvöld er islenzka
landsliðið kvcður, áður en haldið verður
á Spán i erfiða keppni. Á sunnudag
verður pressuleikur en það verður lika
margt til skemmtunar. Ómar Ragnars-
son og félagar hans, þeir Halli og Laddi
— ásamt leynivopni, en þrátt fyrir mikla
eftirgrennslan hefur ekki tekizt að finna
út hver eða hvað leynivopnið er — gefst
tækifæri til að fá uppreisn æru eftir
ósigurinn gegn FH á dögunum. Þeir
félagar mæta landsliði þjóðarinnar — að
sjálfsogðu með Alberl Guðmunds-
son sjálfan i broddi fylkingar. Frétzt
hefur að þeir Árni Gunnarsson, Finnur
Torfi Stefánsson, Ólafur Ragnar Grims-
son og sjálfur formaður KSÍ, Ellert B.
Schram, leiki með Alberti og að Bessi
Bjarnason muni mæta — en hvort hann
leikur með „Ómar’s All Star” eða verði
leynivopnið í búðum Alberts og compani,
er ekki alveg Ijóst.
Baldur Brjánsson mun töfra fram eitt-
hvað — hvort það verða limasagnir eða
eitthvað annað veit enginn enn. Þessi
mikla hátið fer fram á sunnudaginn
klukkan hálfsex i Laugardalshöll.
Landsliðið mun að sjálfsögðu leika —
,við úrvalslið er Ingólfur Óskarsson hefur
valið. En það er skipað þessum leik-
mönnum.
Markverðir:
Jón Gunnarsson, Fylki________
Chapman til
Bandaríkjanna
Sammy Chapman, sá kunni kappi er
verið hefur helzta driffjöður Shrewsbury
i vetur mun yfirgefa félagið á næstunni
og ganga á vit dollaranna I Bandaríkjun-
um, fara til Tulsa Roughnecks. Sammy
Chapman hefur skorað mörg mörk i
vetur, verið driffjöður Shrewsbury en fé-
lagið er nú öllum á óvart I öðru sæti I 3.
deild. Hann lék lengi með Nottingham
Forest en er nú 33 ára.
Ragnar Gunnarsson, Árm.
Aðrir leikmenn:
Geir Hallsteinsson, FH, fyrirliði
Ólafur Einarsson, Víking
Magnús Teitsson, Stjörnunni
Pétur Ingólfsson, Ármanni
Jón H. Karlsson, Val
' Viðar Simonarson, FH
Andrés Kristjánsson, Haukum
Sigurbergur Sigsteinsson, Fram
Atli Hilmarsson, Fram
Gústaf Björnsson, Fram.
Þeir munu hafa æft og haft var eftir
Geir Hallsteinssyni að úrvalsliðið ætlaði
sér sigur — ekkert nema sigur. íslenzka
landsliðið fær þar lokaverkefni sitt —
vonandi að það standi fyrir sínu áður en
haldið verður á Spán.
TVEIR BRETAR A
TROPICANAMÓTIÐ
— í badminton um helgina
Tropicana-mótið í badminton vcrður
háö um næstu hclgi. Mótið er kennt við
hinn þjóðkunna drykk „Tropicana”,
enda ku hann vera ákjósanlegur fyrir
íþróttafólk, sem og auðvitað alla aðra.
Davið Sc. Thorsteinsson er einn af
helztu áhugamönnunum um badminton i
TBR og fyrir tilstuðlan hans cr mótið
haldið.
Gestir mótsins að þessu sinni eru tveir
enskir badmintonleikarar, Mick Yates,
16 ára unglingameistari, og Tim Stokes,
20 ára B-landsliðsmaður Englands. Talið
er að gestirnir séu svipaðir að styrkleika
og þeir Duncan Bridge og Brian Wall-
work, sem komu á „Tropicana-mótið i
fyrra. ,
Badminton í Englandi er i fremstu röð
i heiminum, einkum eiga Bretar sterk lið
í tvíliða- og tvenndarleik, svo og í ein-
liðaleik kvenna. Virtasta badminton-
keppnin i heiminum, „All England” er
aö jafnaði haldin þar, og hafa heima-
menn oft á tíðum unnið stóra sigra.
Fremstu badmintonmenn okkar eru í
góðri þjálfun um þessar mundir, enda
mörg stórmót á næstunni. Landsliðið er
nýkomið úr keppnisferð til Austurríkis
og hafa sumir úr þeim hópi átt við
meiðsli að stríða, en við því er þó að bú-
ast að þeim erfiðleikum sé nú lokið.
Jóhann Kjartansson og Sigurður Har-
aldsson keppa saman í „Tropicana-mót-
inu” og verður fróðlegt að fylgjast með
viðureign þeirra og Englendinganna.
Einnig keppir Jóhann í einliðaleik, svo og
allir aðrir sterkustu leikmenn landsins. í
kvennaflokki verður keppnin vafalaust
hörð að vanda. Lovísa Sigurðardóttir og
Hanna Lára Pálsdóttir, íslandsmeistar-
arnir i tviliðaleik, keppa nú saman á ný,
en Lovísa hefur verið erlendis að undan-
förnu. Þær Kristín Magnúsdóttir
(Islandsmeistarinn i einliðaleik) og
Kristín Berglind fá nú tækifæri til að
sýna hvað í þeim býr og verður vafalaust
gaman að sjá þær keppa við þær eldri.
„Tropicana-mótið” verður eins og
áður er sagt haldið um næstu helgi í
TBR-húsinu, Gnoðarvogi 1. Hefst
keppnin í einliðaleik kl. 15 á laugardag,
en síðan verður keppt í tvíliðaleik. Á
sunnudag kl. 15 fara fram undanúrslit i
einliöaleik, en síðan verða úrslitaleik-
irnir I öllum flokkum. Áhugamenn um
badminton ættu ekki að láta mót þetta
fara fram hjá sér.
menn hafa fteir ekki verið í sviðsljósinu
heldur undirbúa sig af krafti undir
átökin á Spáni. En ljóst er að Tekkar
hafa á að skipa sterku liði, það sanna úr-
slit í Sovétríkjunum í sumar er þeir tóku
þátt í túrneringu, er þeir gerðu jafntefli
við Sovétmenn og sigruðu Júgóslava og
Rúmena. Ég lít svo á að Tékkar komi til
leiks við okkur sem liklegir sigurvegarar
— annað er ekki raunhæft en við
munum berjast og ég veit að islenzku
leikmennirnir ætla sér að leggja Tékka
að velli en í raun, ef við lítum raunhæft
á hlutina, þá eru möguleikarnir Tékka,”
sagði Jóhann Ingi.
Og úrslitin i Sovétríkjunum eru vissu-
lega athyglisverð. Eftir að hafa tekið þátt
í mótinu i Sovétrikjunum þá léku Tékk-
ar tvo landsleiki við Sviss — sem sér-
fræðingar álita stórveldi á uppleið. Sviss
sigraði i fyrri leiknum, 19—17 en í siðari
leiknum unnu Tékkar, 22—21. Úrslitin í
Sovétríkjunum urðu:
Tékkóslóvakía — Georgia 34—22
Tékkóslóvakía, yngra — USSR 24—24
Tékkóslóvakia—Júgóslavia 30—26
Tekkóslóvakía —Sovétrikin 22—22
Tékkóslóvakia — Rúmenía 25—24
Um margt athyglisverð úrslit en þrátt
fyrir jafntefli gegn yngra liði Sovétríkj-
anna — er ef til vill gefur til kynna að
enn hafi Tékkar ekki náð festu — þá er
ljóst að Tékkar eru að byggja upp sterkt
lið, fyrir framtíðina.
„Tékkar leika um margt svipaðan
handknattleik og Víkingur, mjög hraðan
handknattleik. Þeir eiga góða og stæði-
lega markverði er ná upp í þverslárnar,”
sagði Jóhann Ingi ennfremur. Pólverjar
hafa sem fyrr verið íslendingum ákaf-
lega hjálplegir og hefur þjálfari Pólverja
sent Jóhanni Inga mikið af upplýsingum
um önnur lið.
íslenzka liðið fer nú í æfingabúðir á
Selfossi og verður leikið bæði við Fram
og Hauka áður en haldið verður utan
auk þess að pressuleikur verður i Höll-
inni — það verður siðasta prófraun ís-
lenzka landsliðsins áður en haldið
verður utan. Það er erfitt próf en ís-
lenzka landsliðið verður að standast —
próf er beinlínis ekki má falla á.
En þeir 16 leikmenn er halda utan
eru:
Markverðir:
Ólafur Benediktsson
JensG. Einarsson
Brynjar Kvaran
Aðrir leikmenn:
Árni Indriðason fyrirliði
Páll Björgvinsson
Viggó Sigurðsson
Erlendur Magnússon
Ólafur Jónsson
Jón P. Jónsson
Bjarni Guðmundsson
Stefán Gunnarsson
Þorbjörn Guðmundsson
Þorbjörn Jensson
Steindór Gunnarsson
Þarna er ein breyting frá upphaflega
hópnum — Ólafur Einarsson sá sér ekki
fært að fara. 1 stað hans kemur annar
Víkingur, Erlendur Hermannsson. „Er-
lendur Hermannsson er leikmaður
framtíðarinnar. Hann hefur sýnt lofs-
verðan áhuga og i raun þó hann sé
hornamaður þá skapar hann betri
blöndu. Þetta kom fram í Danmörku og
Erlendur skapar Bjarna Guðmundssyni
aðhald þó ég sé alls ekki að halda þvi
fram að Bjarni hafi ekki átt góðan leik
— síður en svo,” sagði Jóhann Ingi að
lokum. H.Halls.
Hvort svona staða kemur upp I TBR-húsinu
um helgina skal ósagt látið en baráttan
verður áreiðanlega hörð.
ÍSRAEL VERDUR ERF-
IÐ HINDRUN Á SPÁNI
'Jóhann Ingi — hans biða nú erfið próf á Spáni.
KR NÚ Ein í EFSTA
SÆTI2. DEILDAR
— eftir sigur á Þrótti í gærkvöld 23-20
KR vann þýðingarmikinn sigur i 2.
deild Íslandsmótsins i handknattleik I
gærkvöld er vesturbæjarliðið sigraði
Þrótt 23-20. Það var ekki fyrr en á loka-
mfnútum leiksins að KR tókst að tryggja
sér sigur og staða KR nú i efsta sæti 2.
deildar er trygg — 1. deildin blasir við
KR eftir falli 2. deild siðastliðið vor cftir
aðeins eittári l.deild.
Ágæt markvarzla setti öðru fremur
svip sinn á leikinn. KR hafði yfir 13-8 í
leikhléi og virtist stefna í öruggan sigur.
En Þróttarar höfðu ekki sagt sitt síðasta
orð og með góðri baráttu tókst þeim að
vinna upp forskot KR — jöfnuðu 18-18
sex mínútum fyrir leikslok.
Spennan var því í algleymingi, og
aftur var jafnt, 19-19, en þar með skildi
með liðunum. Þrjú mörk KR I röð, 22-
19, og sigurinn féll Vesturbæjarliðinu í
skaut, 23-20. Haukur Ottesen var
markahæstur KR-inga með 6 mörk en
HSÍ er þegar farið að hyggja að fs-
landsmótinu i handknattleik utanhúss og
auglýsir eftir aðilum er vilja taka mótið
að sér. Það vcrður keppt I þremur flokk-
um, meistarafiokki, meistaraflokki
kvenna og 2. flokki kvenna. Senda skal
umsóknir til HSt fyrir 15. marz.
hjá Þrótti skoraði Konráð Jónsson flest
mörk sem fyrr, 8.
Staðan í 2. deild er nú:
KR 117 2 2 264-211 16
Ármann 116 2 3 232-208 14
Þór, Eyjum 10 5 2 3 182-189 12
Þór, Ak. 9 5 13 171-159 11
KA 10 5 0 5 185-171 10
Þróttur 9 4 14 211-191 9
Stjarnan 8 3 0 5 173-173 6
Leiknir 9 0 0 9 130-238 0
Unglinga-
meistaramót
pilta í
fimleikum
Unglingameistaramót pilta I fim-
leikum verður iaugardaginn 17. febr. kl.
14.30 i íþróttahúsi Kennaraháskóla ís-
lands.
Fyrst keppa 16 ára og yngri í fimleika-
stiganum, en að þvi loknu keppa 17 ára
og eldri i frjálsum æfingum.
Mótið átti áður' að vera bæði laugar-
dag og sunnudag, en verður allt haldið á
laugardag.
Deckarm snjall er Gummers-
bach sigraði Göppingen
— og Dankersen vann loks og
)á stórsigur gegn Hiittenberg
Minden 12. febrúar 1979
Sautjánda umferð Bundesligunnar fór
fram um helgina. Linur eru alltaf að
skýrast og nú má segja að aðeins þrjú
fyrstu liðin Gummersbach, Grosswall-
stadt og Hofweier eigi möguleika á að
vinna meistaratitilinn. Þessi lið sigruðu i
sinum leikjum um helgina.
Joachim Deckarm var ekki hægt að
stöðva i leik Gummersbach við Milberts-
hofen. Hann skoraði níu mörk og var
langbezti maður vallarins. Milbertshof-
en átti aldrei möguleika í þessum leik og
tapaði 17—24. Hjá Gummersbach eru
Wunderlich og Damann meiddir en það
kom ekki að sök því liðið hefur á að
skipa mjög jöfnum og góðum leikmönn-
um. Aðrir sem skoruðu fyrir Gummers-
bach voru Fey, Rauin og Knokovski,
þrjú hver, Brand og Westebbe, tvö hvor.
Hjá Milbcrtshofen var Weingártner
markhæstur með sjö mörk. Boebel 4/3
og Lechner 2. Gummersbach heldur þvi
efsta sætinu á betra markahlutfalli en
Grosswallstadt, sem sigraði Göppingen,
11 — 13.
Það var fysti tapleikur Göppingen á
heimavelli á leiktímabilinu og var Gross-
wallstadt heppið að hljóta bæði stigin úr
leiknum. Jafntefli var í hálfleik 6—6.
Göppingen spilaði vörnina mjög framar-
lega og hafði betur framan af. Komst í
4—2 og 8—6 en tókst ekki að hrista
meistarana frá í fyrra af sér. Grosswall-
stadt náði alltaf að jafna mest fyrir fljót-
færni og stundum klaufaskap leikmanna
Göppingen. Undir lokin sigldu meistar-
arnir svo framúr.
Klenk var sá leikmaður Grosswall-
iStadt, sem skaut Göppingen niður. Skor-
aði sjö mörk meðan aðalskotmenn liðs-
ins, Klúhspies og Freisler skoruðu bara
eitt mark hvor. Annars var þetta leikur
markvarðanna og varla hægt að greina á
milli hvor var betri — eða markvörður
nr. eitt hér í Vestur-Þýzkalandi þvi
Jaschke gaf Hoffmann ekkert eftir. Þeir
sem skoruðu fyrir Göppingen voru
Salzer 3/2, Bucher 3/1, Weiss 3, Dúmel
og Bressmer.
Hofwier rótburstaði fallkandídata
Leverkusen með 23—9 (12—7).
Markmaður Leverkusen Klaus Kader,
áður hjá Gummersbach, sá um að mun-
urinn var ekki meiri í fyrri hálfleik en
tölurnar sýna en í síðari hálfleik var
hraðinn keyrður upp og Hofweier skor-
aði þá niu mörk gegn tveimur! Fyrir
Hofweier skoruðu Leibiger 5/1, Meffle
4, Schienle 3, Schobel 3/2, Ehret 3/1.
Zybarth skoraði flest mörk Leverkusen
3/1.
Dankersen fékk Húttenberg í heim-
sókn og sigraði auðveldlega 21—9. Hjá
Húttenberg vantaði þrjá beztu leik-
mcnnina Spengler, Phly og Don og var
þvi um hálfgert varalið Húttenberg að
ræða og það átti aldrei möguleika. Þeir
sem skoruðu fyrir GWD voru Busch 7,
Waltke 3/1, Axel, Meyer, Schubert og
Grund tvö hver.
Óvæntustu úrslitin voru að Nettel-
' stedt tapaði í Rheinhausen, fyrir þriðja
neðsta liðinu. Þetta var mikið áfall fyrir
Nettelstedt en eykur vonir Dankersen
því miðvikudaginn 14. febrúar fer fram
ein umferð i Bundeslígunni — meðal
annars „lokal-derby - milli Nettelstedt
og Dankersen.
Lið Björgvins Björgvinssonar,
Grambke, lék ekki um helgina. THW
Kiel rétt marði fallliðið Gensungen 22—
20 og það var eingöngu markmanni
Keil, Örtel, að þakka. Rétt fyrir leikslok
var staðan 19—19, síðan 20—20 en
Örtel bjargaði á síðustu mínútu snilldar-
lega og var langbezti maður vallarins.
Efstu menn í markaskorun hér í deild-
innieru nú:
Ehret, Hofweier, 105
Deckarm, Gummersbach, 89
Lavrnic, Rintheim, 77
Frank, Milbertshofen, 74
Keller, Nettelstedt, 73
Axel, Dankersen, 72
Harjes, Grambke, 70
Waltke, Dankersen, 66
Tveir markahæstu leikmennirnir hafa
leikið 16 leiki — hinir sautján.
Staðan er nú þannig:
Gummersbach 16 12 3 1 288-217 27
Grosswallstadtló 12 3 1 278-231 27
Hofweier 16 12 2 2 306-246 26 Grambké 17 5 3 9 256-309 13
Göppingen 17 10 1 6 301-289 21 Rheinhausen 16 3 1 12 244-288 7
Nettelstedt 17 9 2 6 312-277 20 Gensungen 17 3 1 13 269-328 7
Dankersen 17 9 2 6 297-269 20 Leverkusen 17 1 3 13 251-309 5
Milbertshofen 17 7 3 7 280-291 17
Rintheim 17 6 3 8 269-273 15' Kveðja,
Kiel 17 6 2 9 268-286 14 Ólafur H. Jónsson,
Húttenberg 15 6 1 8 258-264 13 Axel Axelsson.