Dagblaðið - 27.04.1979, Side 1

Dagblaðið - 27.04.1979, Side 1
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 1979. ,15 Sjónvarp næstaviku ••• Sjónvarp Dagskrárliðir eru i litum nerria annað sé tekið f ram. Laugardagur 28. apríl 16.30, Iþróttir. Umsjónarmaður Bjarni Felixson. 18.30 Heiöa. Fjórði þáttur. Þýðandi Eirikur Haraldsson. 18.55 Enska knattspyrnan. Hlé. 20.00 Fréttir og veöur. 20.25 Auglýsingar og dagskrá. 20.30 Allt er fertugum fært. Lokaþáttur. Þýðandi Ragna Ragnars. 20.55 Páskaheimsókn í Fjölleikahús Billy Smarts. Sjónvarpsdagskrá frá páskasýningu i fjölleikahúsi. Þýðandi Jóhanna Jóhannsdóttir. (Evróvision — ITV Thames). 21.55 Nútímastúlkan Millie. (Thoroughly Mo&ern Millie) Gamansöm. bandarisk dans og söngvamynd frá árinu 1967. Leikstjóri George Roy Hill. Aðalhlutverk Julic Andrews, James Fox og Mary Tylcr Moore. Sagan gerist á þriðja áratugnum. Millie er ein af þessum saklausu sveitastúlkum. sem koma til stórborgarinnar i leit að rikum eiginmanni. Hún kemst brátt að þvi, að samkcppnin er hörð og hættur leynast við hvert fótmál. Þýð- andi Heba Július«ottir. 00.10 Dagskrárlok. Sunnudagur 29. apríl 17.00 Húsiö á sléttunni. 22. þáttur. í úlfa- kreppu. Efni 21. þáttar: Ungur búfræðingur, Jósef Coulter, kemur til Hnetulundar til að kenna bændum maísrækt. Hann kveðst geta fengið sáðkorn á vægu verði og býðst til að sækja það. Þegar Coulter kemur ekki aftur á tilteknum tima, telja margir bændurnir að hann hafi svikiö þá, og þeir láta reiði sina bitna á konu hans, sem er barnshafandi. Karl Ingalls fer að leita Coulters og finnur hann ósjálf- bjarga undir kornvagninum, sem hafði oltið. Þegar bændurnir frétta hvernig i öllu liggur, eru þeir boðnir og búnir að hjálpa Coulter- hjónunum. Þýðandi Óskar Ingimarsson. 18.00 Stundin okkar. Umsjónarmaður Svava Sigurjónsdóttir. Stjórn upptöku Tage Ammendrup. Hlé. 20.00 Fréttir og veöur. 20.25 Auglýsingar og dagskrá. 20.30 Gagn og gaman. Starfsfræðsluþáttur. Ingvi Ingvason tæknifræðingur og Olfar Eysteinsson matsveinn lýsa störfum sinum. Spyrjendur Gestur Kristinsson og Valgerður Jónsdóttir ásamt hópi barna. Stjórn upptöku öm Harðarson. 21.20 Alþýöutónlistin. 10. þáttur. „Rythem & Blues”. Meðal annars sjást í þessum þætti Bo Diddley, Jerry Wexler, Wilson Pickett, The Supremes, Aretha Franklin, Stevie Wonder, Pat Boone, Ike og Tina Turner. Buddy Holly o.n. 22.10 Svarti-Björn s/h. Sjónvarpsmyndaflokkur i fjórum þáttum, gerður i samvinnu Svia. Norðmanna, Þjóðverja og Finna. Handrit Lars Löfgren og Ingvar Skogsberg, sem einnig er leikstjóri. Aðalhlutverk Marit Grönhaug, Björn Endreson, Kjell Stormoen og Áke Lindman. Fyrsti þáttur. Sagan gerist um siðustu aldamót. Veriö er að leggja járnbraut frá Kiruna í Norður Sviþjóð til hafnarbæjarins Narvikur í Noregi. Hingað kemur alls konar fólk úr öllum landshlutum i atvinnuleit. Ung kona, sem kveðst heita Anna Rebekka, gerist ráðskona hjá einum vinnuflokknum. Enginn veit, hvaö hún heitir fullu nafni eða hvaðan hún kemur, og hún hlýtur brátt viðurnefnið Svarti Björn. Þýðandi Dóra Hafsteinsdóttir (Nordvision — Sænska sjónvarpið). 23.10 Aö kvöldi dags. 23.20 Dagskrárlok. * Mánudagur 30. aprfl 20.00 Fréttirog veöur. 20.25 Auglýsingar og dagskrá. 20.30 íþróttir. Umsjónarmaður Bjarni Felixson. 21.00 Larry.- Bandarísk sjónvarpskvikmynd frá árinu 1974, byggð á sannsögulegum at- burðum. Aðalhlutverk Frederick Forrest og Tyne Daly. Larry nefnist ungur maður, sem er færður á geðsjúkrahús. Hann hefur verið á hæli fyrir vangefna síðan hann var ungbam. í ljós kemur, að Larry er sæmilega greindur, og hann tekur miklum framförum á skömmum tíma. Þýðandi Dóra Hafsteinsdóttir. 22.15 Skautadans. Frá sýningu, sem haldin var aö loknu heimsmeistaramótinu í listhlaupi á skautum i Vinarborg i fyrra mánuði. Kynnir Bjarni Felixson. (Evróvision — Austurríska sjónvarpið). Þriðjudagur 1. maí 20.00 Fréttir og veöur. 20.25 Auglýsingar. og dagskrá. 20.30 Lúðrasveit verkalýösins. Hljómleikar i sjónvarpssal. Stjómandi Ellert Karlsson. Stjórnandi upptöku Tage Ammendrup. 20.50 Yfirvinna og fjölskyldulff. Viðtals- og umræðuþáttur. Meðal annarra er rætt við Víglund Þorsteinsson framkvæmdastjóra, Jón Kjartansson, formann Verkalýðsfélags Vest- mannaeyja, og Þóri Einarsson prófessor. Umsjónarmaður Sigrún Stefánsdóttir. 21.40 Hulduherinn. Sök bitur sekan. Þýðandi Ellert Sigurbjörnsson. 22.30 Dagskrárlok. Miðvikudagur 2. maí 18.00 Barbapapa. Endursýndur þáttur úr Stund- inni okkar frá siðastliðnum sunnudegi. 18.05 Börnin teikna. £ynnir Sigríður Ragna Sigurðardóttir. 18.15 Hláturleikar. Bandarískur teiknimynda- flokkur. Þýðandi Jóhanna Jóhannsdóttir. 18.40 Knattleikni. í þriðja þætti lýsir Colin Todd hlutverki varnarleikmanna. Þýðandi og þulur Guðni Kolbeinsson. 19.05 Hlé. 20.00 Fréttir og veður. 20.25 Auglýsingar og dagskrá. 20.30 Nýjasta tækni og visindi. Umsjónarmaður örnólfur Thorlaciuls. 21.00 Lifi Benovský. Lokaþáttur. Að leiðarlok- um. Þýðandi Jóhanna Þráinsdóttir. 22.05 Fjallabjörninn. Þýsk mynd um bjarndýrs- veiðar i Himalajafjöllum. Þýðandi Jón Hilmar Jónsson. 22.50 Dagskrárlok. Föstudagur 4. maí 20.00 Fréttir og veöur. 20.30 Auglýsingar og dagskrá. 20.35 Prúöu leikararnir. Gestur í þessum þætti er Alice Cooper. Þýðandi Þrándur Thorodd- sen. 21.00 Kastljós. Þáttur um innlend málefni. UmsjónarmaðurGuðjón Einarsson. 22.00 Hugsjónamaðurinn. Ný, kanadísk sjón- varpskvikmynd. Aðalhlutverk Donald Suther- land. Myndin er um kanadíska lækninn Norman Bethune og viðburðaríka ævi hans. Hann starfaði viða, m.a. í fátækrahverfum Detroit, á Spáni á dögum borgarastyrjaldar- innar, og loks í Kína. Þýðandi Bogi Arnar Finnbogason. 23.30 Dagskrárlok. Laugardagur 5. maf 16.30 íþróttir. Umsjónarmaður Bjami Felixson. 18.30 Heiða. Fimmti þáttur. Þýðandi Eiríkur Haraldsson. 18.55 Enska knattspyrnan ' Hlé. 20.00 Fréttir og veöur. 20.25 Auglýsingar og dagskrá. 20.30 Stúlka á réttri leið. Bandariskur gaman- myndaflokkur með Mary Tyler Moore í aðal- hlutverki. Áttundi þáttur. Þýðandi Kristrún Þórðardóttir. 20.55 Fleira þarf í dansinn en fagra skóna. Flytj- endur Dansstúdió 16. Stjóm upptöku Andrés Indriðason. 21.30 Pörupiltar (The Jokers). Bresk gaman-, mynd frá árinu 1967. Handrit og leikstjóri Michael Winner. Aðalhlutverk MichaelCraw- ford, Oliver Reed og Harry Andrews. Bræðrunum Michael og Dayid finnst þeir hafa verið beittir miklum órétti. Þeir hyggjast ná sér niðri á stjórnvöldum með þvi að fremja stórkostlegt rán. Þýðandi Ingi Karl Johannes- son. 23.30 Dagskrárlok. -.. PORUPILTARNIR—sjónvarp laugardaginn 5. maí: Ræna skartgrip- um krúnunnar Bíómynd sjónvarpsins á laugardags- kvöldið í næstu viku nefnist Pörupiltar (The Jokers) og er brezk fráárinu 1967. Leikstjóri er Michael Winner og samdi hann einnig handrit. Aðalhlutverkin leika Oliver Reed, Michael Crawford og Harry Andrews. Myndin greinir frá tveim bræðrum sem hyggjast ræna skartgripum krún- unnar og skila þeim aftur til þess eins að láta á sér bera. Eftir miklar ráða- gerðir láta þeir verða af ráninu en það fer öðruvísi en þeir ætluðu. Myndin er mjög fyndin og þeir Reed og Crawford leika bræðurna sérlega vel. Kaflinn sem greinir frá ráninu er einnig spennandi og í heild fær myndin þrjár og hálfa stjörnu af þeim fjórum sem kvikmyndahandbók okkar gefur. Myndin er mjög vel tekin og leikstjórn er góð að sögn bókarinnar og gefur höfundur hennar leikstjóranum sin beztu meðmæli. Þegar myndin var gerð var Oliver Reed ekki orðinn eins frægur og hann er nú. Sem dæmi má taka að í þeim kvikmyndafræðslubókum sem út komu fyrir 1970 og eru i eigu Dag- blaðsins er hans ekki getið að neinu. Hann var aðallega frægur sviðsleikari og fróðir menn þóttust sjá að hann ætti framtíð fyrir sér. En það tók hann ein tíu ár að slá í gegn. Síðan uppúr 1970 hefur hann verið einn virtasti kvik- myndaleikari Breta og hefur leikið í hverri myndinni á fætur annarri. Hann hefur leikið jafnt skúrka sem blíðlynda elskhuga og lék einnig í poppmyndinni Tommy og sýndi þá á sér alveg nýja hlið. Mótleikkonur hans hafa ekki verið neinar smástjörnur hin síðari ár. Má nefna Vanessu Redgrave sem hlaut óskarsverðlaun i fyrra, Glendu Jackson Vhmihhhbhí e1 111 11111111,11 Virðulegur með harðkúluhatt og vindil. Oliver Reed í Tommy. og Candicc Bergen.Oliver Reed lék eitt af aðalhluuerkunum í myndinni um Oliver Twist, sem fékk óskarsverðlaun sem bezta mynd ársins 1968. DS. # % LARRY—sjónvarp á mánudagskvöldið: Sá vangefni reyndist heilbrigður Larry nefnist bandarisk sjónvarps- kvikmynd frá árinu 1974 sem sýnd verður í sjónvarpi á mánudagskvöldið. Aðalhlutverk leika Tyne Daly og Fred- erick Forrest. Greint er frá Larry, sem er fullorðinn maður. Við sjáum hann fyrst þar sem verið er að koma með hann á geð- veikrahæli. Larry virðist mjög þroska- heftur, getur ekki talað og er haltur. En þegar ein af starfsstúlkum hælis- ins kemur að honum, þar sem hann situr og er að lesa í bókaherbergi hælisins, þykir henni ekki líklegt að Larry sé í rauninni neitt vangefinn. Hún fer því fram á það við yfirvöld hælisins að Larry verði kennt. í ljós kemur að í rauninni hafði Larry aldrei verið úrskurðaður vangefinn en þó eru flestir á hælinu efíns um að takist að kenna honum nokkuð. Þeir reynast hins vegar hafa haft rangt fyrir sér og Larry tekur miklum og örum framförum. Myndin er byggð á sannsögulegum um. Þýðandi er Dóra Hafsteinsdóttir. atburðum sem gerðust í Bandaríkjun- -DS. Stúlka á hælinu er sannfærð um að hægt sé að kenna Larry en aðrir eru henni eKKi sammála. Tyne Daly og Frederick Forrest í hlutverkum sínum. %

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.