Dagblaðið - 20.07.1979, Page 13
12
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 1979.
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 1979.
17
[ íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir )J
- Var det Island. Jag
trodde de kom frán
Israel!
Kalmar FF:s ordför-
ande Kurt Carlén ver-
kar inte alltför skakad
nar han f&r reda pá lott-
ningen i UEFA-cupen.
Kalmar ska möta
Keflavik i den första
omgángen.
HélduaðKeflavík
væri frá ísrael!
Þelr eru greinilega ekkert allt of sterkir í landa-
fræðinni frændur okkar, Svíar, ef marka má
úrklippu, sem okkur barst frá Svíþjóð fyrir stuttu.
Þjálfari Kalmar, sem dróst gegn Keflavik, hélt nefni-
lega að Keflavik væri frá Israel en var hins vegar
himinlifandi er hann frétti að Keflavík væri á
íslandi. ,,Þá eigum við góða möguleika á að komast
áfram.”
Fer Þorsteinn
til Landskrona?
Nokkuð hefur veriö rætt um hugsanlega brottför
Þorsteins Ólafssonar, ÍBK, af landinu og þá helzt til
Malmö í Svíþjóð. í samtali við Teit Þórðarson í
morgun taldi hann líklegt aö Þorsteinn gæti allt eins
farið til Landskrona, þar sem liðið væri í geysilegu
markmannshallæri um þessar mundir.
Sem dæmi um það nefndi Teitur að markvörður
liðsins fyrir skömmu var 47 ára gamall kappi og er
það elzti leikmaður, sem leikið hcfur í Allsvenskan.
Hann stóð sig þó mjög vel og hélt markinu hreinu.
1. andskrona er aðcins um 30 mín. akstur frá Malmö
þannig að ekki er óliklegt að Þorsteinn gangi til liös
viö þá þótt hann myndi e.t.v. búa i Malmö.
DaytilOrient
Orient keypti í gærkvöld Marwyn Day frá West
Ham fyrir 100.000 sterlingspund. Day missti stöðu
sina í liöi West Ham er félagið keypti Phil Parkes
fyrir 545.000 pund snemma í vor. John Jackson
hefur staðið i marki hjá Orient sl. þrjú ár en hyggst
nú leggja skóna á hilluna.
Framdagurinn
erásunnudag
Hinn árlegi Fram-dagur verður haldinn sunnu-
daginn 22. júlí á félagssvæði Fram v/Safamýri.
Að venju fara fram margir kappleikir í ýmsum
aldursflokkum. Framarar fá í heimsókn fjölda
iþróttafélaga, m.a. danskt knattspyrnulið í 3ja
aldursflokkí. Þá koma i heimsókn Harðjaxlamir úr
KR og keppa við old-boys Bragðarefi úr Fram.
Yngstu knattspyrnumenn Fram, 6. flokkur, stendur
í ströngu þennan dag, þar sem fram á að fara hrað-
keppni í knattspyrnu á milli fjögurra félaga, Vals,
KR, Víkings og Fram. Keppt verður um bikar sem
gefinn er i tilefni Fram-dagsins. Þá munu Fram-
konur sjá um kaffiveitingar í Félagsheimilinu frá
kl. 15.00.
Dagskrá Fram-dagsins veröur annars sem hér
"gir-
knaltspsrna:
ki. U.00 IJ.35
6.11. karla.
Fram-KR, Valur-Vikingur.
Kl. 13.35—14.25
4. fl. karla
Fram-Akranes.
Kl. 13.35—14.50
3. fl. karla.
Fram-Bröndby, Danmörk.
Kl. 14.50—15.25
6. fl. karla.
Valur-KR, Fram-Vikingur.
Kl. 15.25-16.15
Fram, old boys — Bragðarefir-Harðjaxlar KR.
Kl. 15.25—16.25
2. fl. karla.
Fram-Þróttur.
Kl. 16.25-17.00
6. fl. karla.
Fram-Valur, Víkingur-KR.
Handholti
kl. 14.15-14.40
4. II. karla.
Fram-Valur.
Kl. 15.00—15.25
3. fl. kvenna.
Fram-FH.
Knattspyrnufélagið Fram vonar að sem flestir
velunnarar félagsins sjái sér fært að líta við á Félags-
svæðinu v/Safamýri. Kynnizt aðstöðu, fram-
k.væmdum og starfsemi félagsins. Fylgist með bæði
yngstu og eldri Frömurum í keppni við jafnaldra
sina úr öðrum félögum.
Kaffiveitingar frá kl. 15.00.
MÚNIÐ SÚNNUDAGINN 22. JÚLÍ.
Haukar burstuðu Val á
útimótinu í gærkvöld
—Höfðu tögl og hagldir og sigruðu 25-19
Haukar úr Hafnarfirði hófu
titilvörn sína i utanhússmótinu á heldur
betur glæsilegan máta er mótið hófst í
gærkvöldi. Þeir mættu íslandsmeistur-
um Vals í fyrsta leik og unnu 25—19
eftir að hafa leitt 13—10 í leikhléi.
Mótið hófst kl. 18.45 í gær með því að
Júlíus Hafstein flutti ávarp í
blíðskaparveðri og að því loknu léku
FH og Þróttur i meistaraflokki kvenna.
Eitthvað mun hafa farið úr böndum
hjá Þrótti því stúlkurnar voru aðeins 6
talsins og leikurinn vannst auðveldlega
hjá FH enda eitt sterkasta kvennalið
landsins. Lokatölur 30—8. Þá léku
sömu lið i meistaraflokki karla og þar
vann FH einnig örugglega 28—18 og
var sá sigur aldrei í hættu.
Ef við snúum okkur aftur að leik
Hauka og Vals var hann oft mjög vel
leikinn og góð skemmtun fyrir hina
Enska knattspyrnan, eitt helzta
áhugamál fjölda íslendinga á veturna,
hefst að nýju eftir mánuð en þá verður
fyrsta umferðin leikin — nánar tiltekið
þann 18. ágúst, sem er að sjálfsögðu
laugardagur. Fyrstu leikirnir í 1. og 2.
deildinni eru sem hér segir:
Bolton — Aston Villa
Brighton — Arsenal
Bristol City — Leeds United
Everton — Norwich City
Ipswich — Nottingham F.
Manch. City— Crystal Palace
Southampton — Manc. Utd.
Stoke City — Coventry
Tottenham — Middlesbrough
West Bromwich — Derby
fjölmörgu áhorfendur sem horfðu á
hann. Valsmenn komust i 3—1 en
Haukar jöfnuðu 3—3 og sigu siðan
framúr og leiddu oftast með 2—3
mörkum í fyrri hálfleiknum. í hálfleik
skildu síðan 3 mörk að — 13—10.
Valsmenn jöfnuðu metin á nýjan
leik í upphaft síðari hálfleiks og komust
síðan yfir 15—14. í kjölfarið fylgdi
hins vegar bezti leikkafli Haukanna og
á skömmum tíma skoruðu þeir 9 mörk
gegn 2 Valsmanna og breyttu stöðunni
úr 14—15 í 23—17. Á þessum kafla
varði Ólafur Guðjónsson frábærlega
fyrir Haukana hvað eftir annað. Loka-
kaflann var síðan jafnræði með liðun-
um en Haukasigur var aldrei i hættu.
Bæði liðin hafa æft vel að undan-
förnu en i síðari hálfleiknum var
hreinlega eins og Valsmenn spryngju.
Hjá þeim var Bjarni Guðmundson allt i
Wolves — Liverpool
2. deild
Birmingham — Fulham
Charlton — Preston
Chelsea — Sunderland
Leicester — Watford
Luton — Cambridge
Newcastle — Oldham
Notts County — Cardiff
Orient — Burnley
QPR — Bristol Rovers
Swansea — Shrewsbury
Wrexham — West Ham
Leikl Wolves og Liverpool hefur
þegar verið frestað sökum þess að
völlur Úlfanna, Molineux, verður ekki
tilbúinn fyrir leikinn eftir lagfæringu.
öllu og kraftur hans og leikni var með
ólíkindum oft á tíðum. Hann skoraði
upp undir helming marka Vals auk þess
sem hann Iagði a.m.k. þrjú upp fyrir
Steindór. Óli Ben. var ekki með Val og
munar að sjálfsögðu um minna fyrir
þá.
Hjá Haukunum áttu flestir góðan
dag og liðið virkaði mjög jafnt. Hörður
Harðarsson var mjög sprækur og
skoraði flest mörk Haukanna.
Gylfi með
vallarmet
Meistaramót klúbbanna í golfinu eru
nú öll komin á fulla ferð og lýkur þeim
um helgina. DB mun verða með fréttir
af öllum meistaramótunum um helgina
á mánudaginn en eftir 36 holur er Gylti
Garðarssonar efstur á meistaramótinu i
Vestmannaeyjum á 140 höggum eða
pari vallarins. Gylfi gerði sér reyndar
lítið fyrir í gær og setti nýtt vallarmet og
lék á 68 höggum. Hann lék fyrri 9 hol-
urnar á 31 höggi, sem er líkast til bezti
hringur, sem leikinn hefur verið í
Eyjum og þann síðari lék hann á 37
höggum — 68 alls.
í öðru til þriðja sæti eru Atli Aðal-
steinsson og Haraldur Júliusson á 148
höggum. í meistaraflokki kvenna er
Jakobína Guðlaugsdóttir efst með 169
högg en Sigurbjörg Guðnadóttir er á
181. í 1. flokki kvenna er Kristin
Einarsdóttir efst með 215 högg.
Grímur Magnússon er efstur í 1.
flokki karla á 159 höggum, þá kemur
Eyþór Harðarson á 166 höggum og i 3.
sæti er Sighvatur Árnason á 168.
í 2. flokki karla hefur Sigurður
Guðmundsson forystu með 164 högg
og Arnar lngólfsson er á 165 höggum.
Enski boltinn
hefst eftir mánuð
Það verður glampandi
sól við KoMðarhól
—útihátíð Víkinga hefst i kvöld
Það verður rokk og ról og glampandi
sól við Kolviðarhól í kvöld, en þá hefst
útihátíð handknattleiksdeildar Víkings,
Kol '79 með pompi og pragt. Mikið
hefur verið lagt í að gera hátíðina sem
allra veglegasta og hafa sjálfboðaliðar
unnið afar gott og mikið starf í undir-
búningnum. DB brá sér upp að
Kolviðarhóli i gærkvöld en þá var verið
að leggja siðustu hönd á allan undir-
búning fyrir hátiðina.
Það verða hljómsveitirnar Picassoog
Freeport, sem leika fyrir dansi en auk
þess verður diskótek í fullum gangi
allan tímann og geta mótsgestir gert
ýmislegt sér til dundurs á meðan hátíð-
inni stendur og á morgun er skipulögð
dagskrá allan daginn.
Veðrið í morgun lofaði svo sannar-'
lega góðu og veðurspáin hljóðar upp á
blíðviðri fram undir sunnudag a.m.k.
þannig að veðrið ætti ekki að koma í
veg fyrir að fólk geti skemmt sér af
hjartans lyst. Sætaferðir eru frá öllum
nágrannakaupstöðunum og verðinu á
hátiðina er mjög í hóf stillt — aðeins
7.500 krónur, sem þykir ekki mikið nú
til dags.
Fyrir þá, sem ekki vita það þegar, er
rétt að benda á það að Kolviðarhóll er
aðeins um 30 km frá höfuðborginni í
austurátt og fjarlægðin ætti ekki að
verða til trafala. Auk þess verður þetta
eina sumarútihátíðin í nágrenni
Reykjavíkur að þessu sinni svo það
er um að gera að drífa sig uppeftir í
kvöld i góða veðrinu. Myndina tók
Sveinn Þormóðsson.
Teitur iðinn
viðkolann
„Þetta var nokkuð góður leikur hjá
okkur í fyrrakvöld gegn AIK í Stokk-
hólmi,” sagði Teitur Þórðarson er við
islógum á þráðinn til hans i morgun.
!,,Við urðum fyrir þvi óláni að fá á
okkur mark strax á 4. minútu en mér
tókst að jafna metin snemma í síðari
hálfleiknum og við vorum nokkuð ná-
lægt sigri í lokin, en tókst ekki að bæta
við marki.”
Teitur hefur svo sannarlega verið á
skotskónum að undanmförnu og
skorað mikið af mörkum fyrir öser,
sem er nú í sjöunda sæti i AUsvenskan.
Halmstad er efst með 21 stig, þá kemur
Gautaborg með 18 og Malmö einnig
18, en Malmö vann Djurgarden 1—0 í
gærkvöld. Þá kemur Norrköping með
17 stig, Elfsborg með 16 svo og
HammarbyogÖstermeð 15 stig.
„Við erum enn með 5 menn úr A-
liðinu meidda og það er erfitt að vera
án þessara manna ekki sízt þegar við
höfum bara unga og óreynda stráka til
að fylla skörðin. Johnny Gustavsson
balvörður hjá okkur brotnaði i yetur,
en var síðan að ná sér á strik þegar
brotið tók sig upp að nýju, þannig að
hann er úr leik. Þáer Björn Andersson
|meiddur og Peter Nilsson, landsliðs-
maðurinn okkar, var ekki með gegn
ÁIK.”
Öster er sem kunnugt er þátttakandi
i TOTO keppninni og Öster á leik gegn
Darnstadt 98 frá V-Þýzkalandi á
sunnudaginn. Fyrri leik liðanna lauk
með jafntefli 1 — 1 en telja verður
sigurlíkur Öster talsverðar í þessum
leik.
Irwin efstur
úpphaf einu almennilegu sóknar KR i fyrri hálfleiknum f gærkvöldi gegn Val. Sverrir Herbertsson hefur leikið á Vilhjálm Kjartansson. Sverrir náði síðan að brjótast upp
kantinn og gefa fyrir mark Vals, en þar fylgdi enginn eftir og Valsmenn voru ekki í vandræðum með að bjarga. DB-mynd S.
Skallamark Inga Bjöms
lagði gmnninn að sigri
— þegar Valur vann KR 2-0 eftir f ramlengingu í bikarnum í gærkvöld
á British Open eftir 36 holur
Skallamark Inga Björns Alberts-
sonar á 91. mín. — 1. mín.
framlengingarinnar — af markteig
lagði grunninn að bikarsigri Vals-
manna í 8-liða úrslitunum gegn KR.
Ingi Björn fékk knöttinn eftir horn-
spyrnu Guðmundar Þorbjörnssonar
einn og óvaldaður á markteig og hann
þakkaði gott boð og skoraði næsta
auðveldlega. Fjórir varnarmenn KR
voru á næstu grösum svo og Magnús
markvöröur en enginn þeirra hreyfði
legg né lið til bjargar. Á 101. mínútu
gerði svo Atli Eðvaldsson út um
leikinn. Guðmundur átti þá aftur allan
heiðurinn af markinu — gaf fallegan
Tenniserekki
alltaf dans
árósum
Þeir höfðu ólikt hlutskipti í gær-
kvöldi landarnir Björn Borg og P r
Hjerdkvist á opna sæn-.ka meistara-
mótinu í tennis. Borg \i«í aðeins 34
minútur að afgreiða sinn andstæðing,
sem var Antonio Zugarelli frá Italíu er
hann vann hann 6-0 og 6-1, en landi
hans Hjerdkvist var hins vegar að
„strögla” í 5 klukkutíma og 35
mínútur við Ástraliubúann David
Carter áöur en honum tókst að sigra,
6-3, 6-7, og 6-2. Leikur þeirra var 5
sinnum stöðvaður vegna úrhellis rign-
ingar og kann það að skýra að ein-
hverju leyti þessa löngu viðureign
þeirra.
Mark Edmondson frá Ástralíu vann
Andrew Jarett frá Englandi 6-3 og 6-1
og Bob Carmichael, hinn reyndi tennis-
kappi frá Ástralíu, vann úngverjann
Balazs Taroczy 6-2, 6-7 og 7-5 í hörku-
leik.
stungubolta inn fyrir vörn KR. Magnús
hljóp út á móti en úthlaup hans var ger-
samlega misheppnað og knötturinn fór
yfir hann. Eftirleikurinn varð því
auðveldur fyrir Atla, sem skallaði i
mannlaust markiö. Það var sár-
grætilegt fyrir KR-inga að fá á sig
svona mörk eftir að hafa velgt Vals-
mönnum vel undir uggum meðan á
venjulegum leiktíma stóð. Lokatölur
urðu því 2—0 Val í hag eftir marka-
lausan venjulegan leiktíma.
Leikurinn í sjálfu sér var afskaplega
ómerkilegur knattspyrnulega séð og
getur varla hafa verið ýkja mikil
skemmtun fyrir þann fjölda áhorfenda,
sem lagði leið sina á völlinn. Hvorugt
liðanna náði nokkurn tíma að sýna
sínar beztu hliðar og einkum og sér í
lagi voru KR-ingar hugmyndasnauðir í
Spknarleik sínum. Það var undan-
tekningarlitið þrumað fram miðjuna
með takmörkuðum árangri. Þásjaldan
að kantanir voru nýttir komu himinhá-
ar fyrirgjaftr og þeir Dýri og Sævar í
hjarta Valsvarnarinnar áttu ekki í
erfiðleikum með að skalla þær frá
marki.
Hálfdán Örlygsson var annars sá
maður, sem reyndist KR-ingum — sin-
um gömlu félögum — erfiðastur.
Leikni hans og hraði skapaði iðulega
mikla hættu á vinstri kantinum og í
fyrri hálfleiknum skapaðist alltaf hætta
í kringum hann og hin fáu marktæki-
færi Valsmanna komu eftir fyrirgjafir
hans utan af kantinum.
Einkennandi var fyrir KR-ingana i
þessum leik, hve leikmenn voru staðir.
Menn hlupu yfirhöfuð ekki án boltans
— eyður voru aldrei nýttar. Það gerði
hlutverk Valsvarnarinnar mun
auðveldara enda átti KR varla umtals-
verða sókn nema einu sinni allan fyrri
hálfleikinn. Lcikur KR í gærkvöld var
eins og nótt rniðað við dag i leiknum
gegn Fram fyrir skemmstu. Þar
börðust menn grimmilega um hvern
bolta og góð hreyfing var i sókninni
Þessu var hins vegar ekki fyrir að fara í
gærkvöld.
Fyrsta kortérið var steindautt og
boltinn gekk lengst af mótherja á milli
en á 16. mín. lék Hálfdán á tvo KR-
inga og renndi síðan knettinum út á
Grim Sæmundsen, sem skaut rétt yfir.
Á 28. min. lék Jón Einarsson á tvo KR-
inga og renndi síðan á Atla, sem skaut
hárfínt framhjá marki KR.
Þegar KR-ingar höfðu boltann
skapaði það meiri vandræði en þegar
þeir voru að verjast. Stöðnun leik-
manna var oft slík að sá sem boltann
hafði fann engan samherja og missti
hvað eftir annað boltann í fætur
mótherjans og þannig kom siðasta
sókn Valsmanna i fyrri hálfleiknum.
Henni lauk með góðu skoti Atla en
varnarmaður bjargaði.
Valsmenn voru fjörugri i byrjun
síðari hálfleiks en eftir að Vilhelm, sem
annars var afar slakur í þessum leik,
hafði átt skot að marki Vals — hið
fyrsta frá KR í leiknum — á 52. mínútu
var eins og KR-ingar vöknuðu til lifsias
og á næstu mín. sóttu þeir stíft.
Vilhelm komst í gott færi í erfiðri að-
stöðu min. síðar eftir mjög góðan
undirbúning Elíasar Guðmundssonar,
sem vaknaði eftir því sem á leikinn leið,
en skot hans fór vel yfir. Rétt á eftir
áttu Valsmenn í vök að verjast eftir lag-
legan undirbúning Sigurðar Péturs-
sonar og nafna hans lndriðasonar og á
63. mín. misreiknaði Sigurður Haralds-
son knöttinn og missti hann aftur fyrir
sig eftir aukaspyrnu en vamarmenn
björguðu andlitinu. Þar með var þáttur
KR-inga að mestu upptalinn í sóknar-
leiknum.
Valsmenn náðu tökum á leiknum á
ný og áttu nokkur góð færi síðustu 10
mín. Óli Dan kiksaði á góðu færi og
Magnús Guðmundsson varði vel frá
Atla og Inga Birni. Hvorugu liðinu
tókst því að skora í venjulegum leik-
tima.
KR fékk tækifæri til að minnka
muninn á 108. minútu er Sæbjörn
komst í dauðafæri, en slakt skot hans
fór framhjá. Þetta var bezta færi KR í
leiknum og síðustu 10 min. fram-
lengingarinnar voru tíðindalausar,
enda leikmenn orðnir örþreyttir —
einkanlega KR-ingar.
Valsmenn áttu sigurinn vel skilinn.
Þeir voru einfaldlega betri heild en KR.
Vörnin var sterk en þeirra bezti maður
var Guðmundur Þorbjörnsson. Yfir-
ferð hans er með ólíkindum oft á
tiðum, og hann býr yfir miklum hraða.
Hálfdán var einnig mjög sprækur í
annars mjög jöfnu liði Vals.
Hjá KR var vörnin eins og oftast
betri hluti liðsins en Magnús er áber-
andi veikur hlekkur í markinu.
Sigurður Pétursson vakti athygli fyrir
góðan leik og er i stöðugri framför.
Tæklingar hans hnitmiðaðri en áður og
um leið löglegar. Miðjumenn KR voru
slakir, einkum var Birgir ólikur sjálfum
sér lengst af. Elías sýndi skemmtilega
takta en var allt of lengi í gang. Sverrir
lék langt fyrir neðan meðallag og
Vilhelm var oft á tíðum ekki með.
Slakur dómari var Grétar Norðfjörð.
Hale Irwin tók í gærkvöld forystuna
á opna brezka meistaramótinu —
British Open — er hann lék á 68 högg-
um — þremur undir pari. Sá sem leiddi
eftir fyrsta daginn, hinn óþekkti Bill
Longmuir, lék i gær á 74 höggum, sem
verður að teljast mjög gott af algerum
áhugamanni, sem þar að auki var undir
geysimikilli pressu sem efsti maður
mótsins. Irwin lék mjög vel í gær þrátt
fyrir rokið, sem enn angraði keppend-
ur. Hann lék allar stuttu holurnar á
fyrri helmingi vallarins undir pari og
hinar 15 holurnar lék hann á parinu.
Sveriano Ballesteros tókst að komast
í 2. sætið með því að jafna vallarmetið,
65 högg, í gær en Bill Longmuir hafði
einnig jafnað það fyrsta daginn. Balle-
steros átti mjög góðan lokasprett í gær
og lék fjórar af fimm síðustu holunum
á „fugli”. Tom Watson, sem vann
þessa keppni 1975 og 1977 er á 140
höggum eftir að hafa leikið á 68 i gær.
Jack Nicklaus lék á 69 höggum í gær
eftir að hafa farið fyrri 9 holurnar á 30
höggum — eða fimm undir pari.
Seinni 9 holurnar gekk honum ekki
eins vel og fór fimm holur á fimm
höggum hverja og aðeins einu sinni
tókst honum að leika undir pari, er
hann setti niður 5 metra pútt á 17. flöt-
inni. Á fyrri 9 holunum var hann með
fimm „fugla” (birdie) og tvivegis setti
hann niður 8 metra löng pútt.
Hale Irwin er nú í góðri aðstöðu til
að vinna hið eftirsótta par — þ.e. sigur
í British Open og U.S. Open. Til þessa
hafa aðeins 4 kylfingar afrekað það.
Þeir Bobby Jones, Gene Sarazen, Ben
Hogan og Lee Trevino, sem afrekaði
þettaárið 1971.
Severiano Bailesteros hefur verið
bezti golfleikari Evrópu allt frá þvi
hann hafnaði í 2. sæti ásamt Jack Nick-
(laus á British Open 1976. í ár hefur
honum hins vegar gengið afleitlega þar
til upp á síðkastið, að honum hefur
gengið betur og t.d. varð hann i 2. sæti
á Scandinavian Open fyrir skömmu.
f gær gekk honum allt í haginn.
Hann átti tvö pútt upp á 7 og 8 metra
beint ofan í, tvö af fimm metra færi og
auk þess „sippaði” hann ofan í af 25
■metra færi upp úr sandgryfju. Sann-
kölluð hundakeppni það!
Efstu menn eftir daginn í gær voru
þessir:
' högg
Hale Irwin (USA) 1 Xfy
Severiano Balesteros(Spánn) 138
Bill Longmuir (Englandi) 139
Tom Watson (USA) 140
Dennis Clark (N-Sjálandi) 141
Jack Nicklaus (USA) 141
Graham Marsh (Ástralíu) 142
Ken Brown (Englandi) 143
Bob Byman (USA) 143
Ben Crenshaw (USA) 143
Jerry Pate(USA) 143
Mashasi Ozaki (Japan) 144
Isao Aoki (Japan) 144
Lee Trevino (USA) 144
Dewitt Weaver (USA) 144
Greg Norman (Ástraliu) 144
Tom Kite var á 147, Tony Jacklin
einnig, Hubert Green á 148 svo og Nick
Faldo og Peter Oosterhuis á 149.
-SSv.
Myndin hér að ofan var tekin f leik Stjörnunnar og Grindavikur á þriðjudagskvöld, en þá gerðist sá fáheyrði atburður að
dómari leiksins varð fyrir árás af hálfu markvarðar Stjörnunnar. Þessi mynd er tekin örfáum augnablikum eftir að atvikið
gerðist og sýnir leikmenn beggja liða vera að reyna að stilla til friöar. Dómarinn er einhvers staðar inni f miðri þvögunni.
DB-mynd Guðni ölversson, Grindavfk.