Dagblaðið - 21.09.1979, Page 1
Laugardagur
22. september
16.30 íþróttir. Umsjónarmaðyr Bjarni Felixson.
18.30 Heiða. Tuttugasti og fyrsti þáttur. Þýð
andi Eiríkur Haraldsson.
18.55 F.nska knattspvrnan.
Hlé.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.30 Leyndardómur prófessorsins. Norskur
gamanmyndaflokkur. Þriðji þáttur. Þýðandi
Jón O. Edwald. (Nordvision — Norska sjón
varpið).
20.45 Þú spyrð mig, koparlokka. Kór Mennta
skólans við Hamrahlið syngur islensk og er
lend lög. Söngstjóri Þorgerður Ingólfsdóttir.
Stjórn upptöku Andrés Indriðason.
21.15 Að tjaldabaki. Fræðsluþáttur um gerð
James Bond kvikmyndar. Að þessu sinni er
lýst verksviði kvikmyndaframleiðandans. Þýð
andi Kristmann Eiðsson.
21.40 Lokaður hringur (Circuito Chiuso). Ný.
itölsk sjónvarpsmynd. Aðalhlutverk Flavio
Bucci og Giuliano Gemma. í kvikmyndahúsi
er að Ijúka sýningu á „vestra”. Þegar hetjan i
myndinni skýtur skúrkinn. kveður við mikið
óp í húsinu og Ijósin kvikna. Einn gesta kvik-
myndahússins liggur á gólfinu. Hann hefur
verið skotinn til bana. Þýðandi Óskar Ingi
marsson.
23.20 Dagskrárlok.
Sunnudagur
23. september
18.00 Barbapapa.
18.05 Bekkjarskemmtunin. Leikin, dönsk mynd
um tvær tólf ára stúlkur, sem efna til skemmt
unar fyrir bekkjarfélaga sina. Þýðandi Dóra
Hafsteinsdóttir. (Nordvision — Danska sjón-
varpið).
18.25 Suðurhafseyjar. Annar þáttur. Kapp-
róðurinn. Þessi þáttur er um daglegt lif og
þjóðlega siði á Samóa-eyjum. Þýðandi Björn
Baldursson. Þulur Katrin Árnadóttir.
18.50 Hlé.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Til umhugsunar I óbyggðum. Um þetta
leyti árs er mikil umferð fólks og fénaðar á af-
réttum landsins, og vaxandi fjöldi fólks ferðast
um óbyggðir á öllum árstímum. í stuttri ferð á
jeppa með Guðmundi Jónassyni i Þórsmörk
og Landmannalaugar ber ýmislegt fyrir augu,
sem leiðir hugann að umgengni og ferðamáta
á fjöllum. Kvikmyndun Sigmundur Arthurs
son. Hljóð Oddur Gústafsson. Klipping ísidór
Hermannsson. Umsjónarmaður Ómar
Ragnarsson.
21.05 Seðlaspil. Nýr, bandariskur framhalds-
myndaflokkur i fjórum þáttum, byggður á
skáldsögunni „The Moneychangers” eftir
Arthur Hailey. Aðalhlutverk leika Kirk
Douglas og Christopher Plummer, en auk
þeirra kemur fjöldi kunnra leikara við sögu.
m.a. Timothy Bottoms, Anne Baxter, Lorne
Greene, Helen Hayes, Joan Collins og Jean
Peters. Fyrsti þáttur. Þegar fréttist að forstjóri
stórbanka sé að dauða kominn, hefst gifurleg
barátta meðal þeirra. sem telja sig kallaða til
að taka við starfi hans. Þýðandi Dóra Haf-
steinsdóttir. Fyrsti þáttur er um einn og hálfur
timi að lengd, en hinir eru um 20 minútum
styftri.
22.40 Að kvöldi dags. Séra Bjartmar Kristjáns-
son, sóknarprestur að Laugalandi i Eyjafirði,
flytur hugvekju.
22.50 Dagskrárlok.
Mánudagur
24. september
20.00 Fréttir.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 íþrpttir. Umsjónarmaður Bj?rni Felixson.
21.05 Sérvitringar I sumarleyfi. Breskt sjón
varpsleikrit, gert af Mike Leigh. Aðalhlutverk
Roger Sloman og Alison Steadman. Maður
nokkur, heldur sérvitur, fer í tjaldútilegu
ásamt eiginkonu sinni. Á tjaldsvæðinu, þar
sem þau koma sér fyrir, gilda mjög strangar
reglur. Þýðandi Heba Júlíusdóttir.
22.25 Rödd kóransins. Kanadlsk heimildamynd.
Áhrif klerka í íran koma Vesturlandabúum
spánskt fyrir sjónir, en þau eiga sér langa sögu
I löndum múhameðstrúarmanna. Nú á dögum
hlítir fjórðungur mannkyns forsögn Múham-
eðs um leiðina til eilífrar sælu. Þýðandi og
þulur Ellert Sigurbjörnsson.
23.15 Dagskrárlok.
Þriðjudagur
25. september
'20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Dýrlingurinn. Þorp I álögum. Þýðandi
Kristmann Eiðsson.
21.30 Borg í umsátri: Belfast 1979: Siðari þátt-
ur, sem Sjónvarpið lét gera I sumar á Norður-
Irlandi. Meðal annars er fjallað um stjórn-
málaþróunina þar siðasta áratuginn og rætt
við Peter McLachlan, formann Friðarhreyf-
ingarinnar, og Michael Alison, ráðherra i
bresku stjórninni. Umsjónarmaður Bogi
Ágústsson.
22.00 Umheimurinn. í þessum þætti verður rætt
um deilumálin á Norður-írlandi i framhaldi af
írlandsmyndinni á undan. Umsjónarmaður
Bogi Ágústsson.
22.50 Dagskrárlok.
Miðvikudagur
26. september
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Barbapapa. Endursýndur þáttur frá síð-
astliðnum sunnudegi.
20.40 Sumarstúlkan. Sænskur myndaflokkur.
Fjórði þáttur. Efni þriðja þáttar: Evy er orðin
ánægð i sumarvistinni ogTicfur náð góðu sam-
bandi við drenginn Roger. Hún hefur kynnst
ungum manni, Janne, og hann er öðruvísi en
unglingarnir, sem hún á i útistöðum við. Janne
sækir sparifé gamals frænda síns, og Evy og
Roger fara með honum, þegar hann færir
gamla manninum peningana. Þýðandi
Jóhanna Jóhannsdóttir. (Nordvision—Sænska
sjónvarpið).
21.15 Listmunahúsið.
Fjórði þáttur.Venus á villigötum. Efni þriðja
þáttar: Helena hittir gamlan vin, Bernard
Thurston, sem er forstjóri listasafns i Boston
og þar á ofan vellauðugur. hann er á leið til
Skotlands í sumarfrí. Lionel Caradus finnur
latneskt miðaldahandrit hjá ekkju nokkurri,
og það reynist afar verðmætt. Helena vill að
það lendi á safni en ekki hjá listaverkabröskur-
um, sem hugsa um það eitt að græða. Hún fær
Thurston til að yfirbjóða fulltrúa braskaranna.
í þakkarskyni býður hann henni starf við safn
hans í Boston. Þýðandi óskar Ingimarsson.
22.05 Börn með asma. Asma er sjúkdómur í
öndunarfærum, sem heftir eðlilega athafnaþrá
margra barna. Þessi norska mynd greinir frá
eðli sjúkdómsins og ráðstöfunum til að draga
úr honum. Þýðandi og þulur Jón O. Edwald.
22.30 Viðtalsþáttur um asma-myndina. Sigrún
Stefánsdóttir ræðir við Bjöm Árdal. Dag-
björlu Jónsdóttur og ívar Einarsson.
22.45 Dagskrárlok.
Föstudagur
28. september
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Prúðu leikararnir. Gestur í þessum þætti
er leikkonan Lesley Ann Warren. Þýðandi
Þrándur Thoroddsen.
21.05 Andlit kommúnismans. Þriðji og síðasti
þáttur. Alþýðulýðveldið Kongó var fyrsta
ríkið í Afríku, sem tók upp skipulag kommún-
ismans. Síðan hefur gengið á ýmsu, og nú
þykir stjórnvöldum sýnt, að ekki verði allur
vandi leystur með Marx-Leninisma. Þýðandi
Þórhallur Guttormsson. Þulur Friðbjörn
Gunnlaugsson.
22.00 Saga Selims. Ný, frönsk sjónvarpskvik-
mynd. Aðalhlutverk Djelloul Beghoura og
Evelyne Didi. Ungur Alsirmaður kemur til
Frakklands. Hann fær atvinnu, sem hæfir ekki
menntun hans, og býr i vondu húsnæði, en
hann kynnist góðri stúlku og er fullur bjart-
sýni. Þýðandi Ragna Ragnars.
23.35 Dagskrárlok.
í-------------------------------------------
ELSKU CHARITY—sjönvarp kl. 21.15 laugardag 29. sept.:
„Sjálfsvöm við
nnilirlAÍk” —bandarískdans-
UllUlliem Ogssngvamynd
„Þetta er söngleikur með Shirley
McLaine í aðalhlutverki, mjög fjörug
mynd má segja. Það koma mörg falleg
dansatriði fram í myndinni m.a. eitt
með Sammy Davis. Að öðru leyti
fjallar myndin að mestu um líf
stúlkunnar, þeirrar sem Shirley leikur.
Hún starfar á ódýrum dansstað og
aðalstarf hennar er að dansa við
karlmann í hálftíma gegn þóknun og
kallar hún sjálf starf sitt „sjálfsvörn
við undirleik”,” sagði Rannveig
Tryggvadóttir þýðandi myndarinnar
Elsku Charity (Sweet Charity), sem
sjónvarpið sýnir laugardaginn 29.
september.
„Stúlk.an kynnist mörgum karl-
mönnum og verður ævinlega ástfangin
upp fyrir haus. Þeir karlmenn sem hún
verður ástfangin af hafa þó það eitt í
huga að stinga af með peninga hennar.
Það kemur þó að þvi að hún kynnist
almennilegum manni sem sýnir henni
að til eru betri hliðar á lífinu.”
Kvikmyndin er gerð eftir mynd
Fellinis, Nights of Cabiria. Söng-
leikurinn var sýndur á Broadway og
naut þá mikilla vinsælda. Myndin varð
þó aldrei eins vinsæl, hvernig sem á þvi
\________________________________
Shirley McLaine og Ricardo Montalbön í hlutverkum stnutn I bíómyndinni
Elsku Charity.
stendur. Kvikmyndahandbók okkar
gefur myndinni þrjár stjörnur af
fjórum mögulegum og segir að leikur
Shirley McLaine sé mjög góður. Það
beri þó ekki mikið á því vegna þess að
leikstjóri myndarinnar, Bob Fosse hafi
gert myndina of yfirgripsmikla og
kæft með því efni hennar. Myndin er
þó vel þess virði að horfa á hana, að
minnsta kosti ætti engum að leiðast.
Með aðalhlutverk fara Shirley
McLaine, eins og áður er getið, John
McMartin, Ricardo Montalban og
Sammy Davis. Myndin er bandarísk frá
árinu 1%9 og er hún 157 min. að lengd.
-ELA.
)
r----------------------------------------------^
LEIKRIT—sjónvarp kl. 21.05 mánudag:
SERVITRINGAR
ÍSUMARLEYFI
Ur myndinni Sérvitringar i sumarleyfi. Roger Sloman og Alison Steadman i hlutverkum sinum.
Sérvitringar í sumarleyfi nefnist
brezkt sjónvarpsleikrit, gert af Mike
.Leigh, sem sjónvarpið sýnir á
mánudagskvöld kl. 21.05.
Leikritið fjallar um mann nokkurn
sem talinn er mjög sérvitur. Hann fer í
tjaldútilegu með konu sinni. Maðurinn
er jurtaæta og allt sem hann gerir er
V_______________________________________
mjög nákvæmt, og eru hugmyndir hans
á allt öðru plani en hjá venjulegu fólki.
A tjaldsvæðinu, þar sem hjónin
koma sér fyrir, gilda mjög strangar
reglur sem koma ekki alveg heim og
saman við þær hugmyndir sem
maðurinn hafði gert sér. í leikritinu,
sem er í léttum dúr, er verið að sýna
fram á að sérvitringurinn er smá->
skrýtinn.
Með aðalhlutverk fara Roger
Sloman og Alison Steadman. Leikritið
'er einnar klukkustundar og tuttugu
mínútna langt og er þýðandi Heba
Júlíusdóttir.
-ELA.
__________________________________t