Dagblaðið - 10.01.1980, Page 8
8
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 1980.
FÓLK
Beöiö eftir
ríkisstjóm
Þjóðin bíður lengi eftir
nýrri ríkisstjórn og hefur
beðið lengi. Þykir mörgum
orðið nóg um þann drátt sem
orðið hefur á að stjórnmála-
menn komi sér saman.
Stjórnarmyndunartilraunir
eru mikill biðtími fyrir frétta-
menn. Myndin hér að ofan er
tekin í Kringlunni í Alþingis-
húsínu fyrir nokkrum dögum.
Þá var beðið eftir að einum af
mörgum fundum stjórnmála-
manna lyki og auðvitað
ætlunin að fá einhverjar
fregnir af gangi mála. Lengst
til vinstri eru þeir að ræða
saman Kári Jónasson á Út-
varpinu, Gunnar V. Andrés-
son, Vísi og Guðjón Einarss.,
Sjónvarpi. Konan í baksýn er
Emilía Björnsdóttir á
Morgunblaðinu hugsi mjög
og lengst til hægri hefur Sig-
mundur Örn Arthúrsson,
Sjónvarpinu, komiðsér fyrir í
hinni fullkomnu hvildar-
stellingu. Nú og svo var það
hann Hörður Vilhjálmsson á
Dagblaðinu, sem var bak við
Ijósmyndavélina.
-ÓG.
Nýtt
diskóstríð
Fyrir nokkrum mánuðum var
lalað um bleika stríðið milli
diskótekanna Óðals og Hollywood.
Nú hefur Óðal sagt sig úr leik en
Hollywood-stríðið hefur færzt i
Klúbbinn. Þar mun nú vera háð mik-
ið stríð á milli eigenda um rétt hvors
til sýningarsamtaka. Er haft fyrir satt
að Ólafur Laufdal, eigandi
Hollywood hafi sagt við Hönnu
Frímannsdóttur fyrirliða Karonsam-
takanna að ef hennar fólk sýndi á
nýja Ijósagólfinu í Klúbbnum sýndi
það ekki framar á Ijósagólfinu i
Hollywood. Hefur nú blossað hinn .
mesti eldur á milli þessara tveggja
staða.
„Hefgmn um h verjir
vomþama að verki”
%
Guðni Guðmundsson rektor: Anza
ekki svona röfli.
Gjörningsmennirnir sendu mynd af sér ásamt brófinu, sem lagt var hjá
skiidinum á leiði Jóns forseta. Trúlega hafa þeir verið fleiri en tveir — að
minnsta kosti hefur einhver tekið myndina. DB-myndir: Hörður.
Taylor
enn fyrir
innan
„Skjöldurinn er nú ekki enn
kominn upp. Það er mikið verk. Við
verðum að athuga hvernig hægt
verður að festa liann aftur,” sagði
Guðni Guðmundsson rektor Mennta-
skólans í Reykjavik aðspurður um
hvort þjóðfundarskjöldurinn sem
stolið var af MR og sem Dagblaðið
fann væri kominn á sinn rétta stað.
— Var ekki verið að mótmæla þér,
Guðni, með þessum þjófnaði?
,,Ég anza ekki svona röfli. Þeir
voru að mótmæla ofríki og óreiðu og
að öðru leyti stefnuleysi islenzkra
stjórnvalda. Ég get nú ekki séð nema
stefnuleysi og óreiða sé nánast það’
sama.”
— Veiztu hvaða nemendur þarna
voru að verki?
„Nei, ég veit það nú ekki en ég hef
sterkan grun um það. En skjöldurinn
Tveir menn eru komnir rækilega af,
stað i forsetaframboð, Albert
Guðmundsson og Pétur Thorsteins-
son sendiherra. Pétur nýtur fylgis
traustra manna og hefur að undan-
förnu haldið all stór boð heima hjá
sér — að minnsta kosti fréttist af
flutningum á fimmtíu „long drinks”
glösum milli húsa. Ýmsu fólki hefur
verið boðið og einskorðast hópurinn
ekki við kunningja Péturs og vini.
Þá vakti það athygli gesta i nýárs-
boði forsetans í Ráðherrabústaðn-
um sem heilsað höfðu forsetahjónun-
um og sneru til hægri inn i salinn, að
þar fyrir innan dyr stóð Albert Guð-
mundsson með konunglegt bros og
heilsaði öllum með handabandi!
kemst fljótlega á sinn stað,” sagði
Guðni Guðmundsson. -ELA.
*tfér***4p-
!**'■»**«
-'f 'if w <ítíAlMr»(
*íKr*ti íwdtu
*> ****** tets
Sálma-
skáldið
og
tóbakið
... með annan
fótinn
Hallgrimur sálugi Pétursson var
um margt forspár maður og vissi
jafnlangt nefi sinu. Rannsóknir
síðustu ára hafa sýnt okkur fram á
skaðsemi tóbaks og tóbaksreykinga.
En sálmaskáldið þurfti enga vísinda-
menn til þess að segja sér þetta. Í
upplýsingariti samstarfsnefndar um
rcykingavarnir kemur fram að
Hallgrímur orti vísu um reyktóbakið
fyrir meira en 300 árum. Vísan er
svona:
Tóbak róm rænir
remmu fram kvæmir’
lungu vel tæmir
(ár af augum flæmir
háls með hósta væmir
heilann fordæmir
og andlit afskræmir.
Brezki togarajaxlinn Richard
Taylor, sem er íslendingum kunnur
fyrir itrekuð landhelgisbrot hér við
land og að hafa setið af sér dóm fyrir i
það á Litlahrauni, er ekki hættur iðju
sinni, þótt hæltur sé á íslands-
miðum.
Nýlega greinir brezka blaðið Fish-
ing News frá þvi að hann var tekinn á
skipi sínu, CS Forester, innan 3 milna
markanna út af Cornwall. í fyrstu
hundsaði hann afskipti landhelgis-
gæzlumanna og í réttinum neitaði
hann ásökunum, en allt um það
þurfti hann að greiða sem nemur um
hálfri milljón króna í sektir og máls-
kostnað.
*
— segir Guðni
Guðmundsson
rektor MR
um hið
dularfulla
skjaldar-
hvarf.
Flei»'a »•
FOLK
Burðarkarl
ístað
ritstjóra?
Hún virðist ætla að gang brösótt,
útgáfan á blaðinu Fólk (greinilega
eftir þessari siðu í DB), sem Óli Tynes
tók að sér að ritstýra fyrir Frjálst
framtak.
Þegar fyrst var búið að koma
saman tuttugu síðna blaði og
upplagið var fullprentað fóru
aðstandendur blaðsins að skoða það.
Þeim brá stórkostlega í brún: Þelta
var nú ljóta leiðindablaðið! Þetta var
ekki hægt að setja á markað.
Ákveðið var að bæta i skyndi 16
síðum í fyrsta eintakið af Fólki og
henda öllu upplaginu sem þegar
hafði verið prentað. Siðan eru
liðnar að minnsta kosti þrjár vikur,
og í gær bólaði enn ekkert á öðru
eintaki. Ef búið er að henda því
upplagi líka þarf Frjáls verzlun ekki
ritstjóra að Fólki, heldur burðarkarl
með góð sambönd á öskuhaugunum.