Dagblaðið - 22.01.1980, Qupperneq 3
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 1980.
3
Samtrygging olíufélaganna
— leiddi af sér einokun Rússa í olíuviðskiptum
Astró hringdi:
í umræðunni um olíumálin hefur
verið talað talsvert um einokun Rússa
varðandi olíuviðskipti okkar.
Ég held, að sú staða sé fyrst og
fremst upp komin vegna sam-
tryggingar olíufélaganna hér
innanlands. Þau hafa fyrir æði
mörgum árum komið sér saman um,
að hlutirnir væru eins hjá þeim
öllum. Þetta hefur valdið þvi að við
höfum flotið sofandi að feigðarósi.
Ég minnist þess tíma er þessu var
óðruvísi háttað. Um það leyti sem
oliufélögin tóku upp á að setja upp
tanka á sveitabæjum mátti segja að
striðsástand ríkti milli félaganna. Þá
var til staðar sú samkeppni sem að
minu mati þarf alltaf að vera fyrir
hendi. Ég álít, að ef olíufélögin hefðu
haldið þessari samkeppni þá hefði
verið hægt að halda þessu miklu
opnara, og einokun Rússa hefði ekki
orðið slík, sem hún er.
Bréfritari segir samkeppni vanta milli
oliufélaganna. DB-mynd Hörður.
Mæðralaunin
greidd mánaðarlega
Guðrún Helgadóttir þingmaður
hringdi og sagði það algjöra firru
sem kom fram í bréfi frá Þórarni
Raddir
lesenda
Björnssyni að mæðralaun væru
greidd út þrisvar. á ári. Þau væru
greidd eins og almannatryggingar,
að undanskildum dagpeningum til
ellilifeyrisþega á stofnunum,
mánaðarlega og væru 6.767 krónur
með fyrsta barni, 36.734 krónur með
tveim börnum og 73.464 krónur með
þrem börnum eða fleiri á mánuöi.
Þessar tölur eru frá 1. desember
1979.
Albert Guðmundsson.
Albert hefur
bein í nefinu
Páll Hallbjörnsson hringdi:
Við eigum ekki að kjósa
súkkulaðidreng sem næsta forseta
fslands, ekki heldur þá, sem lengi
hafa lifað sem gælubörn í
lystigörðum gleðinnar.
Nei, við kjósum sterkan mann sem
hefur bein í nefinu. Þetta hefur
Albert til að bera. Þess vegna
kjósum við hann, hann og ?ngan
annan.
Forsetakosningarnar:
Vill heiðarlega
kosningabaráttu
Kjósandi hringdi:
Ég vil aðeins láta í ljósi þá ósk
mina að íslendingar beri gæfu til að
heyja kosningabaráttuna i komandi
forsetakosningum án þes að grípa til
Gróu kerlingar. Allt eru þetta úrvals
menn og mun hver þeirra sem verður
kosinn ábyggilega sóma sér vel á for-
setastóli. Við skulum því hlífa
þessum'ágætu frambjóðendum við
öllum rógi og öðru sliku.
Vill Megas
semforseta
Unnar Brynjarsson hringdi:
Það eru allir að tala um forseta-
kosningarnar sem eru framundan.
Ætli nokkrum hafi dottið Megas í
hug í því sambandi? Við erum hér
nokkrir sem teljum heppilegt að
ungur maður hljóti þetta embætti,
og við mælum með Megasi. Hann er
eitl af beztu tónskáldum
þjóðarinnar.
Starf forstjóra
Norræna hússins
/ Reykjavík
Hér með er auglýst laust til umsóknar starf
forstjóra Norræna hússins í Reykjavík, og
verður staðan veítt frá 1. janúar 1981 til
fjögurra ára.
Forstjórinn á að skipuleggja og veita forstöðu
daglegri starfsemi Norræna hússins, en hlutverk
þess er að stuðla að menningartengslum milli
íslands og annarra Norðurlanda með því að efla
og glæða áhuga íslendinga á norrænum
málefnum og einnig að beina íslenskum menn-
ingarstraumum til norrænu bræðraþjóðanna.
Ríkisstarfsmenn eiga rétt á allt að fjögurra
ára leyfi frá störfum til að taka að sér stöður við
norrænar stofnanir og geta talið sér starfstímann
til jafns við starf unnið í heimalandinu.
Laun og önnur kjör ákvarðast eftir nánara
samkomulagi. Frítt húsnæði.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðlaug-
ur Þorvaldsson, Skaftahlíð 20, s. 15983 og Erik
Sonderholm, Norræna húsinu, s. 17030.
Umsóknir, stílaðar til stjórnar Norræna
hússins, sendist:
Nordiska ministerrádet, Kultursekretariatet,
Snaregade 10, 1205 Köpenhamn K. Skulu þær
hafa borist eigi síðar en 22. febr. 1980.
Norræna húsið er ein meðal 40 samnorrænna
fastastofnana og framkvæmda, sem fé er veitt
til á hinni sameiginlegu norrænu menningar-fjár-
hagsáætlun. Ráðherranefnd Norðurlanda, þar
sem menningar- og menntamálaráðherrarnir eiga
sæti, fer með æðsta ákvörðunarvald í hinni
norrænu samvinnu um menningarmál. Fram-
kvæmdir annast menningarmálaskrifstofa
ráðherranefndarinnar í Kaupmannahöfn.
Spurning
Finnst þér að FIDE
eigi að styðja við
bakið á Kortsnoj?
Sveinfríður Jóhannesdótlir húsmóðir:
Já, það vil ég alveg endilega.
Bjarni Ólafsson símamaður: Já, mér
finnst að það eigi að reyna að styðja við
bakið á honum.
Guðmunda Gisladóltir húsmóðir: Ég
veit það ekki. Ég er ekki nógu kunnug
um hvað málið snýst.
Björk Ingólfsdóttir nemi: Já,
finnst mér að FIDE eigi aðgera.
Inga Tómasdútlir afgreiðslumaður:
Nei, það vil ég alls ekki.
Ingibjörg Pétursdóttir húsmóðir: Ég
veit ekki. Ég veit ekki alveg um hvað
málið snýst svo það er bezt að segja
ekkert um það.