Dagblaðið - 26.01.1980, Blaðsíða 3

Dagblaðið - 26.01.1980, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 1980. Leikhúsför Selfyssinganna: UNGUNGARNUt FAGNA A sm SÉRSTAKA HÁTT — voru beðnir að vera í „betri fötunum” Hjörlur Þórarinssun, kennari við Gagnfræöaskólann á Selfossi hringdi og kvaðst vilja gera athugasemd við það sem hann kallaði „leynifrétt Dagblaðsins”, á lesendasíðu DB 23. janúar. Við kennarar, sem fylgdum nemendum Gagnfræðaskóla Selfoss, undrumst rödd nr. 3244—2629 er birtist í DB vegna Þjóðleikhúsferðar- innar föstudaginn lS.janúar. Engin ástæða er til að mæla bót lélegri framkomu eða klæðaburði leikhúsgesta hegaf ástæður eru fyrir hendi. Sá hinn syndlausi tekur steininn og kastar að nemendum Gagnfræða- skóla Selfoss. Jafnframt sýnir hann mikla hlédrægni i nafnleynd sinni og treystir á að DB sinni ekki um of hvernig slaðreyndir liggja. Vegna unglinganna á Selfossi vil ég biðja blaðið að virða málstað sak- borninganna og birta þessar athuga- semdir. I.eikritið Stundarfriður er þartnig byggt upp að það er mjög hávaða- samt leikhúsverk. Unglingar lála fögnuð sinn i Ijós á allt annan og hispurslausari hátt en fullorðnir. Einnig skynja þeir broslegu atvikin á annan veg. Þá hlæja þeir stundum að atburðum sem eru hádramatískir fyrir fullorðna. Vegna klæðaburðar þeirra skal þess getið að þeir voru beðnir að vera i betri fötum sinum. Það var sérstaklega auglýst í skólan- um. í einum bilnum af fjórum var t.d. aðeins einn nemandi í gallabuxum. En fúslega skal viðurkennd sú yfir- sjón kennara að vita ekki hve margir sluppu í gegn á íþróttastrigaskóm. Á þessa sýningu kom einnig 40—50 nemenda hópur frá Gagnfræðaskóla Hveragerðis í góðri fylgd skólastjóra sins. Nokkrar spurningar: 1) Er rétt að lelja 190 manns nteiri- hluta gesta í Þjóðleikhúsinu? 2) Er rétt hjá yður, nr. 3244—2629, að úrskurða allt skril sem lætur hrifningu sína í ljós á annan veg en þér gerið? 3) Er það rétt að „yfirleitt hafi þau Nokkrir ungir Selfyssingar að leik framan við Gagnfræðaskólann sl. sumar. DB-mynd Ragnar Th. ■ HIT . .... B / íf Ifð/jjl fffly - awfp V: Jí” **• [JL |y verið i gallabuxum” þegar i einuni bilnum af fjórum var aðeins einn nemandi i buxum úr því óhátið- lega efni? 4) Er rétt af foreldrum að krefjast annars en að börn þeirra séu hlý- lega klædd i vetrarkulda? 5) Er rétt .sú fullyrðing yðar, að ekkert eftirlit hafi verið með nem- endum Gagnfræðaskóla Selfoss i téðri ferð þegar fjórir kennarar voru með í ferðinni? Ég endurtek að ég mæli ekki bót lélegri framkomu eða lúalegum klæðaburði leikhúsgesta þegar ástæður eru fyrir hendi en það er fleira sem ekki er bót mælandi. Krakkaskrílsfréttin yðar er lúaleg, nafnlaus og ómerkileg, bæði fyrir DB og hina háttvirtu rödd yðar. Þessi frétt eykur þá tilfinningu að of margar fréttir DB séu augnabliks- söluvara en ekki frétt sem hinn al- menni lesandi getur treyst. Nemendur Gagnfræðaskólans á Selfossi: „VORUM EKKIMED ÓLÆTI í LEIKHÚSINU” Kommarkaðurinn: Stendur verðiðí stað þar? Jón Sigurjónsson skrifar: Hafið þið nokkurn tima séð heilsuvörubúðina Kornmarkaðinn. Ég bý á Vestfjörðum. Ég rakst á þessa litlu heilsuvörubúð á Skóla- vörðustignum, fulla af hunangi, ávöxtunt, baunum, hnetuni og korni. Nú, þegar verðið er alls staðar á upp- leið, virðist samt sem það standi i stað i þessari búð. Ég fyllti bakpokann ntinn, átti skemmtilegar samræður við hið unga, viðfelldna fólk hinunt ntegin við afgreiðsluborðið. Ef þú hefur ekki komið í þessa verzlun ennþá, þá ráðlegg ég þér að fara þangað strax í dag eða á morgun. Nemandi í Gagnfræöaskóla Sel- foss hringdi og sagðist vilja mótmæla því að nemendur úr Gagnfræðaskóla Selfoss hefðu eyðilagt sýningu á Stundarfriði í Þjóðleikhúsinu sl. föstudagskvöld með ólátum. ,,við viljum að það komi fram að þetta santa kvöld voru í Þjóðleikhúsinu nentendur frá Hveragerði og það voru þeir sent voru nteð ólætin. Hins vegar er það rétt að við vorum flest hver i gallabuxum. Við höfðunt fengið leyfi til þess vegna þess hvernig veðrið var á heiðinni. Við viljunt benda á að Selfoss og Hvera- gerði er tvennt ólíkt.” LAUGARDAGS-MARKAÐUR Simca 1508. 197is Simca 1307. 1977 Simca 1100. 1978 Simca 1100. 1977 Simca 1100 1974 7 > Toyota Carina 1975 sjálfsk. bíll í sérfl. Volvo 244 1979 ek, 14,000 km Blazer 1974 LadaSport 1978 Escort 1974 Volaré station 19789 bíll m. öllu Volaré 2 dyra 1978 Aspen station 1977 Aspen station 1976 DodgeDart...... 1974 Malibu Classic 1978 4ra dyra Auk þess fjötdi annarra bíla CHR YSLERSA L URINN SUDURLANDSBRA UT 70 - SÍMAR 83330 - 83454 Spurning dagsins Horfðir þú á sjónvarpskvik- myndina Út í óvissuna sem var í sjónvarpinu á mið- viku! daginn og hvernig fannst þór hún? Ingi Björnsson nemi: Já, og mér fannst hún allt of langdregin. Eggert Jóhannesson, sturfar í Hampiðjunni: Nei, ég er alltaf að vinna á kvöldin og sé því ekki sjónvarp. Helgi Jóhannesson, nemi i Snælands- skóla i Kópavogi: Já, ég sá hana og fannst hún ágæt en bezt voru slags- málin á Krísuvíkurveginum. Halla Þorvaldsdóllir skrifslofuslúlka: Já, og fannst mjög gaman. Camilla Ragnars húsmóðir: Já, og hún var stórskemmtileg. Það er alltaf gaman að sjá islenzkt landslag og ís- lenzka leikara í svona kvikmyndum. Marleinn Pélursson, bifreiðarsljóri hjá Mjólkursamsölunni: Já, og þótti hún að mörgu leyti góð. Þó var hún ekki við hæfi barna og það finnst mér galli þvi við megum ekki gleyma þeim.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.