Dagblaðið - 16.02.1980, Blaðsíða 7

Dagblaðið - 16.02.1980, Blaðsíða 7
7 DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 1980. Tónlist (LA TRAVIATA í HÁSKÓLABÍÓI) Konsertuppfœrsla á óperunni La Traviota, eftir Giuseppe Vordi, í HáskólabkJi 12. febníer. Texti: Frencesco Merie Piave, oftir sögu Victor Hugo. Hljómsveitarstjóri: Giibert Levine. Hlutverk og flytjendur Violetta Valéry sópran, ólöf K. Horöardóttir. Flora Bervoix, mezzosópran, Anna J. Sveins- dóttir. Annina, sópran, Elisabet Erlingsdóttir. Atfredo Germont, tenór, Gorflar Cortes. G iorgio Germont, barfton, Guflmundur Jóns- son. Gastono de Letorieres, tenór, Már Magnússon. Boron Douphol, barftón, Halldór Vilholmsson. D'Obigny morkgrorfi, bassi, Hjálmor Kjartansson. Doktor Grenvil, bassi, Kristinn Hallsson. Giusoppe, þjónn Violettu, þjónn Floru, sendibofli, bassi, tenór, Kristínn Sigmundsson. Herror og fnír, vinir Violettu og Flóru, mottadoror, piccadorar, sigaunastúlkur, þjónalifl Vioiettu og Floru, gestír á grfanuballi, oJ.frv.: Söngsveitin Flharmónta. Kórstíóri: Mortoinn H. Friðriksson. Aflstoðarmaður kórstjóro: Agnes Löve. Aflstoðarmaflur hljómsvoitaretjóro: Sue Marie Peters. Hljómsveit: Sinfóniuhljómsveit (slands. „Um f lutning söngleikja" Meðan Sinfóníuhljómsveitin var enn í barnæsku réðst hún i það þrekvirki að flytja Carmen i konsert- uppfærslu í Austurbæjarbíói. Það var stórfengleg upplifun, að mér fannst þá, smápottormi. Líklega var það vegna söngs nautabanans sem ég hafði mikið dálæti á um þær mundir og var líklega eina atriði þeirrar óperu sem ég vissi haus eða sporð á. Siðan hefur þetta ekki verið ieikið eftir fyrr en nú, með flutningi La Traviata. Er það raunar furðulegt þegar hugað er að því hversu vel flutningi Carmen var tekið um árið. En vera má að menn hafi lengstum lifað í voninni um það að til þess iögskipaður aðili, þ.e. Þjóðleikhúsið, sinnti reglugerðarákvæðinu „Um flutning söngleikja” betur en raun varð á. Sú stofnun, er búin að gera vel í þeim efnum í vetur, með Orfeifi og Evrídís. Nóg um það í bili og snú- um okkur að La Traviata. Þessi uppfærsla tókst ótrúlega vel. Þar hélst allt i hendur: frábær hljóm- sveitarstjóri, afbragðs einsöngvarar, hver öðrum betri, og góður kór og síðast en ekki síst, alvöru óperuhljómsveit. eina sem hana skortir er alþjóðleg reynsla. Hefði hún hana (og hana gæti hún hæglega náð sér i ef hún kærði sig um) þyrftum við líklega að panta hana með löngum fyrirvara í uppfærslu eins og þessa, eins og aðrar stórstjörnur. Stór kór 1 Engin óperuuppfærsla tekst vel án góðs kórs. Söngsveitin Fílharmónía Jafnfætis öðrum Einsöngvarateymið var eins og það gerist við stór óperuhús í út- landinu. Var þar vart veikan hlekk að finna. — Gömlu jaxlarnir, Kristinn og Guðmundur, skiluðu sínum hlut- verkum með ágætum, sérstaklega Guðmundur, þegar hann „talaði” um fyrir Violettu í öðrum þætti og Stjörnusöngur Garðar stóð sig eins og hetja í hlutverki Alfredos. Ég hafði fyrir- fram dálitla vantrú á að rödd hans fengi notið sín í þessu hlutverki, í jafnerfiðu húsi og Háskólabíói, en þær efasemdir ruku fljótt út í veður og vind. — En það var Ólöf Kolbrún Harðardóttir sem án efa var stjarna kvöldsins. Hún var stórkostleg. Það einnig Kristinn, i sínum gagnslausu huggunarorðum undir lokin. — Hjálmar, þessi svarti, hlýi bassi kom mjög vel út. — Halldór stóð sig mjög vel í hlutverki Douphols baróns. — Kristinn Sigmundsson lét sig ekki muna um aðhankaþá, starfskraftana þrjá, upp á eina kippu. Hann var eilitið tilgerðarlegur en kom sínu samt vel og skýrt til skila. Már söng hlutverk Gastone, vísigreifa af Letorieres, sannfærandi. Það háði Má greinilega að vera ekki á alvöru óperusviði. Innkomur hans voru ná- kvæmar og hann gætti jafnvægisins í samsöng vel. Hlutverk Anninu var í góðum höndum Elísabetar og Anna Júlíana söng hlutverk Floru með miklum ágætum. sá um þann þátt mála. Kórinn var líflegur og söng skýrt með hlýjum, massífum hljóm. Helst mátti að kórnum finna að hann væri of fjöl- mennur og kom það stundum niður á léttleikanum. Hljómsveitinni var raðað upp eins og í venjulegri óperugryfju af löglegri stærð. Það örlaði á því í forleiknum að sumir riðlararnir fyndu ekki samhljóm með félögum sínum, sem nú sátu annars staðar en venjulega, en sem betur fór voru þeir leiddir af villu sinni með góðu slagi hljómsveit- arstjórans og í heild lék hljómsveitin eins og óperuhljómsveit af betri sortinni. Gilbert Levine hélt allri hersingunni saman af skörungsskap og nákvæmni og valdi hraða af skynsemi. Hans þáttur var bæði mikill og góður. Konsertuppfærsla þessi, sem tókst svona makalaust vel, hlýtur að vekja með manni vissar kröfur. Jarðvegur hlýtur að vera fyrir föstum óperurekstri. Aðeins rekstrar- aðstöðuna vantar, en eftir svona glæsiuppfærslu er aðeins eitt að segja: VIÐ HEIMTUM ÓPERU! -EM. „SKATTALÖGIN í HNÚT 0G TOLLSKRÁIN VÍDA RANGLÁT” —sagði Tómas Árnason hjá stórkaupmönnum ,,Ég er talsmaður blandaðs hag- kerfis, þ.e. samkeppni einkareksturs og samvínnureksturs, en enginn þjóðnýtingarprédikari,” sagði Tómas Árnason á ársfundi félags stór- kaupmanna. Síðar bætti hann við: ,,Ég er talsmaður aukins frelsis í viðskipta- málum en legg jafnframt ríka áherzlu á strangt verðlagseftirlit, því það tel ég nauðsynlegt til að eyða landlægri tortryggni um að frelsi í viðskiptum leiði ávallt til hærra vöruverðs.” Tómas hafði fátt eitt að segja stórkaupmönnum um stefnu nýrrar rikisstjórnar i viðskiptamálum. Las hann þó stuttan kafla úr stjórnarsátt- málanum um viðskiptamálin. Hann kvað óumdeilanlegt að prósentuálagningarkerfið og verðbólgan væru þeir þættir sem stæðu verzluninni mest fyrir þrifum. Tómas vék sér fimlega undan að svara spurningum fundarmanna sem m.a. fjölluðu um lánaheimildir er- lendis, verðlagseftirlit sem byggðist á sannanlegum upplýsingum um kostnað við dreifingu, mat vörubirgða gagnvart skattyfirvöldum, o. fl. Þá var sýnt fram á fáránleg dæmi um tollálagningu nauðsynjavara og munaðarvöry. Tómas sagði að hann yrði fyrst um sinn að hlusta og gæti engu lofað um úrbætur. „Skattalögin væru í algerum hnút og þörfnuðust endurskoðunar og því miður úði og grúði af fáránlegum útkomum dæma þegar litið væri i tollskrána og niðurstöður kæmu teknar afhenni,” sagði Tómas. -A.St. Sími 39244 Rúðuísetningar & réttingar Eigum fyrirliggjandi rúður í flestar tegundir bifreiða. H.ÓSKARSSON DUGGUVOGI 21. ÚRVALS SALTKJÖT Kaupið þar sem úrvalið er mest 1, VÉLASTILLING Framkvæmum vélastillingar hjólastillingar. Ijósastillingar meö fullkomnum stillitækjum VÉLASTILLING AUÐBREKKU 51, KÓPAVOGI. SÍMI43140. Innilega þakka ég börnum, tengdabörnum, barnabörnum, systkin- um, tengdafólki, frœndum og kunningjum mér sýndan heiöur á 75 ára afmæli mínu. LIFIÐ HEIL Sigurður Kristjánsson. Nýkomnir ARAUTO GÖTUSKÖR Skógiugginn hf. Rauöarárstíg 16. S. 11788. Póstsendum.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.