Dagblaðið - 16.02.1980, Side 10

Dagblaðið - 16.02.1980, Side 10
BIADIÐ frfálst, óháð dagblað Utgefandi: Dagblaflið hf. Framkvœmdastjóri: Svoinn R. Eyjótfsson. Ritstjóri: Jónas Kristjónsson. Ritstjórnarfulltrúi: Haukur Holgason. Fróttastjóri: Ómar Vaidimarsson. ■ Skrrfstofustjóri ritstjórnar: Jóhannes Reykdal. (þróttir: Hallur Sfmonarson. Menning: Aflalsteinn Ingólfsson. Aflstoflarfréttastjóri: Jónas Haraldsson. Handrit: Ásgrlmur Pálsson. Hönnun: Hilmar Karlsson. Blaflamenn: Anna Bjarnason, Atli Rúnar Halldórsson, Atli Steinarsson, Ásgeir TómassoflTBragi Sigurflsson, Dóra Stefánsdóttir, Elfn Albortsdóttir, Gissur Sigurflsson, Gunnlaugur A. Jónsson, ólafur Geirsson, Sigurflur Sverrisson. Ljósmyndir: Ami Páll Jóhannsson, Bjarnlaifur Bjamlarfsson, Hörður Vilhjálmsson, Ragnar Th. Sígurðs son, Sveinn Þormóflsson. Safn: Jón Sœvar Baldvinsson. Skrífstofustjóri: Ólafur EyjóMsson. Gjaldkeri: Þráinn Þorloifsson. Sölustjóri: Ingvar Sveinsson. Dreifing- arstjórí: Már E.M. Halldórsson. Ritstjórn Siflumúía 12. Afgreiðsla, áskríftadeild, auglýsingar og skrífstofur Þverholti 11. Aðalsimi blaösins er 27022 (10 línur). Setning og umbrot: Dagblaflifl hf., Sfðumúla 12. Mynda- og plötugorfl: Hilmir hf., Sfflumúla 12. Prentun Árvakur hf., Skoifunni 10. Askríftarverfl á mánufli kr. 4500. Verfl f lausasölu kr. 230 eintakifl. Steingrímur gerði rétt Ákvörðun Steingríms Hermanns- sonar sjávarútvegsráðherra um stöðvun loðnuveiða nú var rétt. Vitan- lega hlýtur sérhver slík ákvörðun um verndun fiskistofna að koma einhverj- um illa, þegar til skamms tíma er litið. En Steingrímur verður ekki sakaður um að hafa að nauðsynjalausú skert hagsmuni fólks á sunnanverðum Austfjörðum eða í Eyjum. Steingrímur ætti ekki að reyna að skella ábyrgðinni á fyrirrennara sinn, Kjartan Jóhannsson, heldur axla þá byrði sjálfur, sem á herðar hans hefur verið lögð. Augljóst er, að sú takmörkun loðnuveiði, sem við er miðað, byggist á því, sem fiskifræðingar geta bezt lagt til mála. Raunar stefnir í, að loðnuaflinn verði töluvert meiri en fiskifræðilegar niðurstöður gáfu til kynna, að æskilegast væri. Viðurkennt er í vaxandi mæli, að fiskveiðum þurfi að stjórna. Við slika stjórn verður að sjálfsögðu að byggja á niðurstöðum fískifræðinga en ekki beinna hagsmunaaðila, þótt hinir síðarnefndu búi auðvitað yfir mikilli þekkingu og geti lagt margt nytsamlegt til mála. Yrði farið eftir hugmyndum hagsmunaaðila í slíkum efnum, má telja víst, að fiskveiðin brygðist innan tíðar, sem yrði hagsmunaaðilum sjálfum til mests tjóns. Tillögur um að fara ekki eftir fyrirmælum stjórn- valda í fiskverndunarmálum eru ógæfulegar og hljóta að valda þjóðarbúinu tjóni, ef þær ganga fram. í þessum efnum hljóta hagsmunir þjóðarbúsins sem heildar, þegar til langs tíma er litið, að ráða ferðinni. Hagsmunum þeirra plássa, sem ákvörðun Steingríms bitnar á í bili, er einnig bezt borgið með því að líta á hagsmuni þjóðarinnar allrar. Fiskurinn í sjónum er auðlind, sem skerðist, ef of mikið er á hana gengið. Á þeirri forsendu byggjast tillögur, sem njóta vaxandi fylgis, um takmörkun veiða með sölu veiðileyfa. Það er rökrétt, að menn þurfi eitthvað að greiða fyrir að ganga á þessa auðlind, af því að hún er tak- mörkuð og fiskurinn ekki óþrjótandi. Það er misskilningur, að slík ,,skattlagning” mundi leiða til taprekstrar útgerðar, þegar til lengri tíma er litið. Aukinn tilkostnaður yrði að sjálfsögðu bættur með hæfilegum gengisbreytingum, þannig að sú út- gerð geti borið sig, sem grundvöllur er fyrir, þegar tillit er tekið til nauðsynlegrar fiskverndunar. Með sölu veiðileyfa yrði bezt unnt að dreifa sókn á einstök mið, þannig að hagsmuna þjóðarheildarinnar yrði bezt gætt. í málefnasamningi nýju ríkisstjórnarinnar er fjallað um nauðsyn á að marka fiskveiðistefnu til langs tíma í samstarfi við hagsmunaaðila. Á þetta hefur vissulega skort. Kjartan Jóhannsson, fyrrverandi sjávarútvegsráðherra, var í ýmsu á réttri leið í fiskverndunarmálum, þótt stefnan rynni að mörgu leyti út í sandinn. Steingrímur Hermannsson hefur byrjað feril sinn í embættinu á þann veg, að tilefni er til að vona gott eitt um framhaldið. Meginvandi sjávarútvegsráðherra er og verður sá þrýstingur, sem hann verður fyrir frá „háttvirtum kjósendum” sínum og flokks síns, sem horfa til skemmri tíma en æskilegt er. Þessi þrýstingur er stað- bundinn. Skoðanakönnun, sem Dagblaðið gerði um fiskverndunarmál, gaf til kynna, að meirihluti lands- manna hefði góðan skilning á nauðsyn harðra aðgerða í fiskverndunarmálum. Steingrímur verður helzt sakaður um að hafa ekki nægilega víkkað grundvöll ákvörðunar sinnar með samráði við þingmenn annarra flokka. DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 16. FEBRUAR 1980. Litlar vonir um sættir á milli KinaogVíetnam Eitl ár er liðið síðan Kina réðst það að gera innrás í Vietnam. Enn er staðan þannig að þessi tvö ríki standa gagnvart hvort öðru grá fyrir járnum og litlar líkur taldar á að lausn finnist í bráð á landamæradeilum rikjanna. Kínverskir ráðamenn eru í það minnsta mjög svartsýnir á að svo verði. Það var hinn 17. febrúar í fyrra sem kínverskur her réðst inn í Vietnam. Ástæðurnar að sögn ráða- manna i Peking voru stöðugar ögranir af hálfu Vietnama, sem hvað eftir annað hefðu ráðizt inn fyrir landamæri Kína. Einum mánuði síðar eða hinn I6. marz tilkynnti Huang Hua utanrikis- ráðherra Kína að kínverskar her- sveitir hefðu dregið sig til baka og væru nú allar komnar aftur innfyrir eigin landamæri. Utanríkisráð- herrann kinverski sagði að Vietnöm- um bæri einnig að draga herlið sitt frá Kampútseu. Hafa Kínverjar síðan stöðugt haldið áfram að krefjast þessa. Kinverjar segjast áskilja sér allan rélt til að taka aflur i lurginn á nágrönnum sínum, Vietnömum, ef þeir telji þör.f á því. Ekki eru þess þó talin nein merki að Kinverjar hafi slíkt i huga. Deilur og smáskærur eru þó daglegt brauð við landamæri rikj- anna. Telja ýmsir vestrænir sendi- mcnn i Peking, að mörg merki séu um það að afstaða Kinverja til Vietnama sé mjög að harðna. Að sögn heimildarmanna frétta- stofa við suðurlandamærin er kin- verskur her þar fullbúinn til orustu. Ekki telja þessir heimildarmenn þó nein merki þess að Kinverjar hyggist hefja innrás aftur í Vietnam en stjórn völd þar halda hins vegar öðru fram. Engir miklir liðsflutningar hafa farið l'ram nýlega Kinamegin landamær- anna. En um slíkt var einmitt mikið rétt áður en innrásin var hafin í fyrra. Stórskotasveitir hafa haft hægt um sig. Kínverskar stórskotasveitir létu hríðina bylja á mikilvægum stöðum Vielnammegin landamæranna i fyrra áður en innrásin hófst. Heimildarmenn á þessum slóðum benda einnig á að skipt hafi verið um tvo æðstu yfirmenn kínverska herliðsins við suðurlandamærin nýlega. Allt þetta þykir benda til þess að ekki séu neinar beinar áætlanir uppi um að hefja innrás inn í Vietnam í það minnsta næstu vikur. Þrátt fyrir þetta eru veður öll válynd í landamærahéruðunum og ásakanir ganga á vixl um ofbeldis- verk andstæðinganna. Friðarviðræður hófust í Hanoi í april siðastliðnum og héldu siðan áfram í Peking um mitt sumar. Að sögn Kinverja er lítil von um sam- komulag í bráð og engan veginn hægt að geta sé til um hvernig komast megi fyrir stöðugar deilur þessara tveggja þjóða. Ráðamenn i Peking hafa verið fastir fyrir með það að Vietnamar hætti afskiptum sinum af innan- landsmálum í Kampútseu og Laos. Þeir hafi engan rétt til að troða stefnu sinni inn á þessar þjóðir. Telja þeir að Vietnamar stefni að þvi að tryggja sér fylgi ríkjanna beggja gegn Kina og stefnu þess. Vilja Kínverjar ekki una þvi. Vietnamar hafa hins vegar mót- mælt þessum skoðunum Kínverja. í fyrsta lagi viðurkenna þeir engin af- skipti af málefnum Kampútseu og Laos og í öðru lagi segja þeir að ekki sé annað til umræðu á milli Vietnam og Kína en la lamæraþrætur þeirra á milli og um þær eigi friðarviðræð- urnar að fjalla. Siðasti fundur var haldinn i Peking hinn I9. desember og vietnamska sendinefndin undir forustu aðstoðar- utanrikisráðherra hélt frá Peking 8. þessa mánaðar. Vietnamar tilkynntu að ráðherrann mundi brátt koma aftur til áfram- haldandi viðræðna en skyndilega var tilkynnt í Hanoi að skipt hefði verið um formann i sendinefndinni og annar maður, sem reyndar hefur sama starfstitil — aðstoðarutanríkis- ráðherra— hefði tekið við af hinum fyrri. Kinverjar telja litlar líkur á þvi að skipti á formanni i sendinefndinni hafi einhverja þýðingu í átt til aukins friðarvilja af hálfuVietnama. Ekkerl hefur verið ákveðið um það hvenær næstu viðræður eiga að fara fram á milli ríkjanna. Haldið verður áfram að halda fundina i Peking og ekki er neitt sem bendir til þess að annar hvor aðilinn vilji slíta viðræðunum. Sérfræðingar i hópi fjölmiðla- manna eru ekki sammála um hve mikill raunverulegur árangur innrás kinverska hersins i fyrra hafi verið. Rétt eftir að tilkynnt hafði verið um að Kínverjar hefðu kvatt her sinn á brott frá Vietnam hinn I6. ntarz síðastliðinn, lýsti Huang Hua utan- rikisráðherra Kina þvi yfir að nokkrar borgir rétt innan landamæra Vietnam hefðu verið teknar. Kin- verski herinn hefði veitt Vietnömum verðuga ráðningu og svipt hulunni af þeirri staðreynd að afl þeirra væri mun minna en þeir vildu sjálfir viður- kenna. Fregnir hafa hins vegar verið á lofti um að Kinverjar sjálfir hafi orðið fyrir verulegu mannljóni við innrásina. Hafa verið nefndar tölur um allt að tuttugu þúsund fallna her- menn. Er það mikið að sögn sérfræð- inga, einkunr þar sem andstæðing- arnir voru ekki beztu hersveitir Vietnama heldur aðeins annars flokks landamæraverðir. Einnig mis- tókst Kínverjum að fá Vietnama til að draga her sinn út úr Kampúlseu eins og þeir hafa mikinn hug á. (Reuler)

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.