Dagblaðið - 16.02.1980, Síða 20

Dagblaðið - 16.02.1980, Síða 20
20 DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 1980. Guðsþjónustur i Rcykjavikurprófastsdæmi sunnudaginn 17. fcbrúar 1980. ÁRBÆJARPRESTAKALL: . Barnasamkoma í safnaðarheimili Árbæjarsóknar kl. 10.30 árd. Guös þjónusta í safnaöarheimilinu kl. 2. Kirkjukaffi Kvenfélags Árbæjarsóknar eftir messu. Sr. Guðmundur Þorsteinsson. ÁSPRESTAKALL: MeSsa kl. 2 að Norðurbrún I. Sr. GrímurGrimsson. BREIÐHOLTSPRESTAKALL: Barnastarf i ölduselsskóla og Breiðholtsskóla kl. 10.30 árd. Guðsþjónusta i Breiðholtsskóla kl. 14. Sr. Jón Bjarman. BÖSTAÐAKIRKJA: Barnasamkoma kl. 11. Guðjón St. Garðarsson. Guðsþjónusta kl. 2. Miðvikudagur: Félagsstarf aldraðra milli kl. 2 og 5. Kl. 20.3Ö Ki'rkjukvöld á föstu”. Dr. Gunnar Kristjánsson Reynivöllum fjallar um föstuna í listum og siðum kirkjunnar. Organleikari Guðni Þ. Guðmundsson. Sr. ólafur Skúlason. DIGRANESPRESTAKALL: Barnasamkoma ij safnaðarheimilinu við Bjarnhólastíg kl. II. Guðsþjónusta í Kópavogskirkju kl. II. Sr. Þorberguri Kristjánsson. DÓMKIRKJAN: Kl. 11 messa, altarisganga. Sr. Hjalti Guðmundsson. Kl. 2 messa. Magnús Jónsson óperusöngvari syngur einsöng og einnig með. Dómkórnum. Organleikari Marteinn H. Friðriksson. Sr. ÞówrSteþhensen. Landakotssþitali: Kl. 10 messa. Organleikari Birgir ÁsGuðmundsson. Sr. Þórir Stephensen. FELLA OG HÓLAPRESTAKALL: Laugard: Barnasamkoma í Hólabrekkuskóla kl. 2. Sunnudagur: Bamasamkoma i Fellaskóla kj. 11. Guðsþjónusta i safnaðarheimilinu að Keilufelli 1 kl. 2 e.h. Sr. Hreinn Hjartarson. GRENSÁSKIRKJA: Barnasamkoma kl. II. Guðsþjónusta kl. 2. Organleikari Jón G. Þórarinsson. Almenn samkoma nk. fimmtudag kl. 20.30. Sr. Halldór S. Gröndal. HÁTEIGSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl. II. Sr. Tómas Sveinsson. Messa kl. 2. Sr. Guðmundur óskar Ólafsson messar. Kirkjukór Neskirkju syngur. organleikari Reynir Jónasson. Sr. Arngrímur Jónsson. KÁRSNESPRESTAKALL: Barnasamkoma í Kársnesskóla kl. 11 árd. Guðsþjónusta i Kópavogs kirkju kl. 2 (altarisganga). Sr. Árni Pálsson. LANGHOLTSPRESTAKALL: Barnasamkoma kl 11. Um þessa stund sjá Jón Stefánsson, Kristján og Sigurður Sigurgeirsson og sóknarpresturinn. Guðsþjónusta kl. 2 flutt eftir tillögum helgisiðanefnd ar þjóðkirkjunnar. Prestur sr. Sig. Haukur Guðjóns son, organleikari Jón Stefánsson. Sóknarnefndin. LAUGARNESKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl. II. Messa kl. 14. Þriðjudagur 19. febr.: Bæna guðsþjónusta kl. 18 og kl. 20 fer Æskulýðsfélagið i heimsókn til Æskulýðsfélagsins í Neskirkju. Föstud. 22. febr: Húsmæðrakaffi i kjallarasal kl. 14.30. Sóknarprestur. NESKIRKJA: Barnasamkoma kl. 10.30. Messa kl. 2. Prestur sr. Arngrímur Jónsson. Kirkjukór Háteigs kirkju syngur, orgel og kórstjórn dr. Orthulf Prunner. Kirkjukaffi. Séra Guðmundur ólafsson. SELTJARNARNESSÓKN: Barnasamkoma kl. II árd. í Félagsheimilinu. Sr. Frank M. Halldórsson. FRÍKIRKJAN í REYKJAVÍK: Messa kl. 2, altaris ganga. Organleikari Sigurður ísólfsson, prestur sr. Kristján Róbertsson. 20. febr.: Föstumessa kl. 20.30. Litania sungin. Safnaðarprestur. FRÍKIRKJAN Í HAFNARFIRÐI: Barnastarfið hefst kl. 10.30. öll börn og aðstandendur þeirra eru vclkomin. Guðsþjónusta kl. 14, ræðumaður Helga Steinunn Hróbjartsdóttir kennari. Jón Mýrdal við orgelið. Kirkjukaffi. Safnaðarstjórn. HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl. 11. Séra Karl Sigurbjörnsson. Messa kl. 2. Séra Ragnar Fjalar Lárusson. Fyrirbænamessa á þriðjudag kl. 10.30. Kirkjuskóli barnanna laugardag kl. 2. LANDSPÍTALI: Messa kl. 10. Séra Ragnar Fjalar Lárusson. FÍLADELFÍUKIRKJAN: Safnaðarguðsþjónusta kl. 14. Almenn guðsþjónusta kl. 20. Ræðumaður Samúel Ingimarsson. Fjölbreyttur söngur. Einar J. Gíslason. MOSFELLSPRESTAKALL: Barnasamkoma i Brúarlandskjallara I dag, föstudag, kl. 17. Messa að Mosfelli kl. 14 á sunnudag. Altarisganga. Sera Birgir Ásgeirsson. NÝJA POSTULAKIRKJAN HÁALEITISBRAUT 58: Messa sunnudag kl. 11 og 17. Kaffi á eftir. Séra Lenard talar. DÓMKIRKJA Krists konungs Landakoti: Lágmessa kl. 8.30 árdegis. Hámessa kl. 10.30 árdegis. Lágmessa kl. 2. FELLAHELLIR: Kaþólsk messa kl. 11 árdegis. KAPELLA ST. JÓSEPSSYSTRA Hafnarflrði: Hámessa kl. 2. HAFNARFJARÐARKIRKJA: Sunnudagaskóli kl 10.30. Messað kl. 2 í lok kristniboðsviku. Ástráður Sigursteindórsson predikar. List íslenzkra kvenna a Kjar- valsstöðum á morgun Listaverk milli þrjátíu og fjörutíu íslenzkra kvenna verða á sýningu er nefnist Listiðn íslenzkra kvenna, sem opnuð verður á morgun kl. 3 að Kjarvalsstöðum. Er það Bandalag kvenna sem gengst fyrir þessari sýningu. Þar má sjá leirkerasmíð og keramík, gull- og silfursmið auk þess sem margs konar handavinna verður til sýnis, vefnaður og frumleg ullar- og tóvinna. Þarna verða einnig sýndir handprjónaðir kjólar og kápur, batik kjólar. Sýning á þjóðbúningum verður á vegum Þjóðdansafélags Reykjavikur auk þess sem tizkusýningar verða öðru hvoru meðan á sýningunni stendur. Þá kynnir Heimilisiðnaðarfélag Islands vörur sinar i anddyri Kjarvalsstaða á meðan á sýningunni stendur. Blómaskreytingar á sýningunni eru i höndum Blómavals en uppsetningu sýningarmuna annaðist Gunnar Bjarnason. Sýningin stendur til sunnudagsins 24. febrúar. Dagskráin á morgun er á þessa leið: Unnur Ágústsdóttir, formaður Bandalags kvenna setur sýninguna. Hamrahlíðarkórinn syngur undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur. Spunakonur (rokkur og snældaj knipplingakona og vefari sýna i sýningar- sal. Félagar úr Þjóðdansafélagi Reykjavikur ganga um í þjóðbúningum. LAUGARDAGUR GLÆSIBÆR: Hljómsveitin Glæsir. HOLLYWOOD: Sammy Southall í diskótekinu. IIÓTEL BORG: Diskótek. HÓTEL SAG A: Ragnar Bjarnason og hljómsveil. IIREYFILSHÓSIÐ: Gömlu dansarnir. INGÓLFSCAFÉ: Gömlu dansarnir. KLÍIBBIJRINN: Hljómsveitin Goögá. LEIKHÚSKJALLARINN: Hljómsveitin Thalía. LINDARBÆR: Gömlu dansarnir. ÓÐAL: Ebony Eisse i diskótekinu. SIGTÍJN:Strengjasveitin leikur. Bingókl. 15j00. SNEKKJAN: Hljómsveitin Meyland, diskótek og skemmtiatriði. ÞÓRSCAFÍ!: Galdrakarlar og sjónhverfinga maðurinn Johnny Hay. SUNNUDAGUR GLÆSIBÆR: Hljómsveitin Glæsir. HOLLÝWOOD: Gísli Sveinn Loftsson i diskótekinu og með spurningakeppni. Módel '79 með tízkusýningu. HÓTEL BORG: Gömlu dansarnir. HÓTEL SAGA: Útsýnarkvöld. KLÚBBURINN: Diskótek. LEIKHÚSKJALLARINN: Hljómsveitin Thalía. ÓÐAL: Ebony Eisse í diskótekinu. SIGTÚN: Lokað. SNEKKJAN: Lokað. ÞÓRSCAFÉ: Hljómsveitin Galdrakarlar og sjónhverfingamaðurinn Johny Hay. Leiklist Sýning íslenzka dansflokksins Á sunnudagr verður frumsýning hjá íslenzka dansflokknum i Þjóðleikhúsinu. Dagskráin að þessu sinni skiptist í þrjá hiuta og er miðað við að veita áhorfendum sem fjölbreyttasta skemmtun. 1 fyrsta lagi verður sýnd dansasyrpa meðatriðum úr hinum ýmsu ballettum rússneska tónskáldsins TsjaL kovskis eins og t.d. Svanavatninu, Hnotubrjótnum og Þyrnirósu. Dansar þessir eru samdir af ballett- meistara Þjóðleikhússins. Kenneth Tillson, sem áhorfendum er kunnur af uppsetningunni á óperunni Orfeifur og Evridís eftir Cristoph Gluck. Þá verður og fluttur ballettinn Kerran eftir Tillson við tónlist eftir Sergej Prokofjev; þessi ballett var frumfluttur hér á Listahátíð 1976. Loks er á dagskrá Danskokkteill, syrpa af ýmsum skemmtidönsum þessarar aldar sem Sveinbjörg Alexanders hefur samið fyrir lslenska dansflokkinn og stjórnar einnig flutningi á. Þetta eru dansar allt frá Can-can til Disco-jazz. Sveinbjörg Alexanders var hér síðast á ferð á Listahátíð 1978 og dansaði þá sólódans í sýningu dansflokksins. Leikmynd sýningarinnar er cftir Birgi Engilberts. Leikiistarklúbbur Samvinnuskólans með Kertalog eftir Jökul Jakobsson. Leikritið.verður sýnt i Félags- heimili Seltjarnarness á sunnudagskvöld kl. 20.30. Leikendur eru alls 11 en aðalhlutverkin eru í höndum Guðrúnar Guðmundsdóttur og Ólafs J. Straumland. Myndin er af Ólafi og Öldu Sigriði Gunnarsdóttur i hlutvcrkum sinum. Sýnf ngar ;:;a;sss-4;-ais;■■■:új Skólasýning opnuð í Ásgrímssaf ni Opnuð hefur verið hin árlega skólasýning Ásgríms safns og er hún 16. sýningin sem safnið efnir til fyrir skólanemendur. Eins og á fyrri sýningum safnsins var leilazt við aðl hún yrði sem fjölþættust og sýnir hún meöal annarsi ýmsar hliðar á list Ásgríms Jónssonar á 50 ára tima bili. I heimili listamannsins er komiö fyrir teikningum úr þjóðsögum, ásamt nokkrum aldamóta-olíuverkum.l í hluta af vinnustofu Ásgrims má sjá nokkrar vatns-| litamyndir af breytilegu veðurfari. Meðal þeirra eru tvær myndir frá Þingvöllum, útsýn yfir vatnið. málaðar á nákvæmlega sama stað, önnur i skúraveðri en hin þegar upp stytti. 1 mörgum myndum Ásgríms Jónssonar sérstaklega í vatnslitamyndunum. er áber j andi sá þáttur i list hans að nota veðrabrigðin i náttúrunni scm viðfangsefni. Guðmundur Benediktsson myndhöggvari aðstoðaði við val mynda og annaðist upphengingu þeirra. Skólasýningar Ásgrímssafns virðast njóta vaxandi vinsælda en nemendur úr hinum ýmsu skólum borg arinnar. og utan hennar, hafa heimsótt hús Ásgríms. en heimili hans er i sömu skorðum og var þegar hann A kvaddi það í hinzta sinn. Skólayfirvöld borgarinnar hafa stuðlað að hcimsóknum nemenda i söfn, enda virðist slík list kynning sjálfsagður þáttur i námi uppvaxandi kynslóðar. Fróðlegt er fyrir nemcndur að líta meö eigin augum hina miklu“listaverkagjöf Ásgríms Jóns sonar sem hann ánafnaði þjóð sinni og varðveitt er í húsi hans. Sýningin er öllum opin sunnudaga, þriðjudaga og fimmtudaga frá kl. 1.30— 4. Aögangur ókeypis. Sértíma geta skólar pantað hjá forstöðukonu Ás grimssafns í sima 14090 og 13644. Ásgrímssafn, Berg staðastræti 74. Árshátídir Félag farstöðvaeigenda Tíu ára afmælisárshátið félagsins verður haldin 23. febr. í Festi Grindavík og hefst kl. 19 með borðhaldi. Aðgöngumiöar eru seldir á skrifstofu félagsins Siðu-’ múla 2. Verðkr. 11.000. Sætaferðir verða á árshátíðina og er það ekki innifalið í miðaverði. Árshátíð F.Í.A. verður haldin að Hótel Esju föstudaginn 22. febrúai 1980 og hefst kl. 19.00. Tilkynnið þátttöku á skrif stofu FÍA sími 35485. Árshátíð Átthagafélags Ingjaldssands verður haldin laugardaginn 16. febrúar kl. 19.30 i Ártúni við Vagnhöfða 11. Óháði söf nuðurinn Félagsvist verður næstkomandi þriðjudag, 19. febrúar, kl. 20.30 i Kirkjubæ. Góð verðlaun, kaffi- veitingar. Kvenfélag Bæjarleiða Félagsfundur verður þriðjudaginn 19. febrúar kl. 10.30 aðSíðumúla 11. Stofnfundur samtaka bænda sem stunda þjónustu viðferðamenn verður haldinn aé Hótel Sögu (fundarsal á 2. hæð) laugardaginn 23. febr. kl. 13. Dagskrá: 1. Lögðfram drög að samþykkt um. 2. Skráning stofnfélaga. 3. Kosning stjórnar. 4. önnur mál. Bændur sem áhuga hafa á þessu málefni eru hvattir til aðmæta á fundinum. Stjórnméiafundir Ólafur Jóhannesson talar á Varðbergsfundi Laugardaginn 16. febrúar gengst Varðberg fyrir fundi með Ólafi Jóhannessyni utanrikisráðherra. Fundurinn verður haldinn í Átthagasalnum á Hótel Sögu og hefst kl. 12. Umræðuefni fundarins er: Hvað er framundan i utanrikismálum? Að framsöguerindi utanríkisráöherra loknu verða fyrirspurnir og frjálsar umræður. Fundurinn er opinn félagsmönnum í Varðbergi og Samtökum um vestræna samvinnu og gestum þeirra. Aðaifundir Vestur- Húnvetningar Aðalfundur Rauðakrossdeildar Hvammstanga verðui haidinn 16. febrúar kl. 14 í félagsheimilinu Hvammstanga. Erindreki R K í kemur á fundinn. Kvikmyndasýning. Knattspyrnuþjálfarafélag íslands — Aðalfundur Aðalfundur Knattspyrnuþjálfarafélags Islands verður haldinn mánudaginn 18. febrúar að Hótel Esju og hefst hann kl. 20. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Æskilegt er að tillögur um lagabreytingar berist stjórn félagsins í siðasta lagi sjö dögum fyrir aðalfundinn. Útivist um helgina Árshátfð. Á dagskrá hjá Útivist um þesa helgi e[ árs hátíð félagsins á laugardagskvöldið, en hún verður haldin i Skiðaskálnum í Hveradölum. Farið verður frá B.S.l. klukkan 18.00. Hát i ðin hefst meðborðhaldi kl. 19. Farseðlar verða seldir á skrifstofu Útivistar i Lækjargötu 6, og er fólk beðið að tilkynna þátttöku sina þar. Gullfoss. Á sunnudagsmorgun verður fyrsta -ferð vetrarins farin að.Gullfossi. Lagt verður af stað kl. 10.30 stundvíslega. Nesti til dagsins. Gullfoss er nú í mikilúölegum vetrarbúningi. Fararstjóri verður Kristján Baldursson. Hestfjall I Grimsnesi Á sunnudagsmorguninn klukkan 10.30 verður einnig farið i Grímsnes og gengið á Hestfjall og um nágrenni þess. Hér er um að ræða svæði sem fáförult hefur verið á, en við Hestvatn og Hestfjall er náttúrufegurð mikil og mjög víðsýnt af fjallinu. Nesti til dagsins. Fararstjóri verður Jón I. Bjarnason. Esjuhliðar. Klukkan eitt á sunnudag verður farið I Kollafjörð og gengið um hliðar Esjunnar og upp á fjallið ef aðstæður leyfa. Fararstjóri verður Erlingur Thoroddsen. Þcrneyjarsund — Gunnuncs. Klukkan eitt á sunnudag verður einnig ferð í Gunnunes og að Þerneyjarsundi. Gengið verður um Leiruvog. Skoðaðar verða fornar rústir. Böm í fylgd með fullorðnum fá fritt. Létt ganga og þægileg. Fararstjóri verður Einar Þ. Guðjohnsen. Úr öllum þessum ferðum verður komið aftur milli klukkan sex og sjö, í allar ferðirnar verður lagt af stað frá Umferðarmiðstöðinni, B.S.I. — bensinsölu. Sími Útivistar er 14606. Ferðafélag íslands Sunnudagur 17. fcbrúar. 1. kl. 10.00 Hrómundartindur. Nokkuð löng og erfið gönguferð. Fararstjóri: Sturla Jónsson. 2. Skíðaganga á Hcllishciði. Fararstjóri: Hjálmar Guðmundsson. Athugandi er að hafa með sér gönguskó ef göngufæri fyrirskíði erslæmt. Verð kr. 3000 gr. v/bilinn. 3. kl. 13.00 Hólmarnir — örfirisey — Grótta. Létt og róleg fjöruganga á stórstraumsfjöru. Fararstjóri: Þor leifur Guðmundsson. Verðkr. 1500 gr. v/bilinn. Farið verður frá Umferðarmiðstöðinni, austanverðu. Þórs merkurferð 29. febrúar. Tónleikar — Ungt listafólk Ung hafnfirzk söngkona, Margrét Pálmadóttir, sem stundar söngnám viðTónlistarháskólann í Vinarborg. er stödd h^r um þessar mundir ásamt japanska pianóleikaranum Machiko Sakurai sem á þessu ári lýkur námi viðsama háskóla. Þær stöllur munu halda tónleika i Fjölbrauta skólanum á Akranesi laugardaginn 16. febrúar kl. 16.00 í Njarðvikurkirkju sunnud. 17. febrúar kl. 17.00 og i Góðtemplarahúsinu i Hafnarfirði fimmtu daginn 21. febrúar kl. 20.30. Á efnisskránni verða Ijóð og aríur eftir Schubert. Schumann, Strauss, Pál ísóifsson, Mozart, Puccini o. fl. Auk þess mun Machiko Sakurai leika einleiksverk á píanó. Fhnir fætur Templarahöllin 16. febrúar. Svifum áfram. Aðstoð við Cap Verde Ákveðið hefur verið að veita Cap- Verde aðstoð við eflingu fiskveiða á eyjunum í samræmi við beiðni stjórnvalda þar um þróunaraðstoð héðan. Aðstoðin mun felast í því að sent verður fiskiskip með skipstjóra og vélstjóra til veiðitilrauna og þjálfunar, auk þess sem kunnáttumaður á sviði út- gerðar og sjóvinnu mun veita aðstoðarverkefni þessu forstöðu í landi og stunda ýmis leiðbeiningarstörf. Munu menn þessir væntanlega dveljast á Cap Verde í 1 1/2 ár. Stálskipið Víkurberg, 208 rúmlestir, smiðað árið 1965, hefur verið keypt til verkefnis þessa og verður það á næstunni búið út til fararinnar en stefnt er að því að það geti lagt af stað til Cap Verde i næsta mánuði. Færri slys meira öryggi Á undanförnum árum hefur Eldvarnanefnd Junior Chamber Reykjavík beitt sér fyrir áróðri vegna eldvarna á heimilum — i skólum og annars staðar sem fólk er að leik og/eða störfum. Haldnar hafa verið æfingar í skólum — börnunum kennd meðferð slökkvitækja — gefinn út bæklingur — birtar myndir og greinar í blöðum og fleira i þá átt. Það er til marks um þörfina á þessari kynningu og þessum áróðri að slökkviliðsmenn tóku upp þá nýbreytni í starfi sinu að gefa út eldvarnablað þar sem þeir gefa fólki ráð varðandi eldvarnir. Það er alltaf ánægjulegt þegar félag sem J.C. Reykjavík sér að árangurinn af starfinu nær tilgangi sínum og lítum við félagarnir i J.C.R. svo á að tiltæki þeirra slökkviliðsmana sé bein viðurkenning á starfi okkar og nauðsyn þess. Innan skamms mun Eldvarnanefnd J.C.R. senda bréf til stjórna í fjölbýlishúsum þar sem boðin verður fram aðstoð nefndarmanna við staðsetningu og uppsetningu á reykskynjurum og slökkvitækjum og einnig mun nefndin að sjálfsögðu útvega þau tæki ef um er beðið. Einnig mun Tækjanefnd J.C.R. í samstafi við Eldvarnanefnd bjóða sjúkrakassa en i könnun sem gerð var á vegum félagsins kom í Ijós að á þeim heimilum sem slíkir gripir voru yfirleitt vanbúnir til þess að mæta þeim óhöppum sem alltaf geta átt sér stað i daglegu lífi okkar. Með samstilltu átaki mun okkur takast að fækka slysum á sjálfum okkar og börnum okkar og þá er tilgangi okkar félaganna i J.C.R. náð. Viljir þú notfæra þér þessa aðstoð okkar vil ég biðja þig að hafa samband við einhvern af eftirtöldum aðilum: Björn Hafsteinsson, sími 86971 Lúðvik Hraundal, sími 71971 —44144 Hafsteinn Númason.simi 27936 Þórhallur Steingrimsson, simi 34698. Með von um gott samstarf undir kjörorðinu „Færri slys meira öryggi". Flóamarkaður hjá KR-konum KR-konur hafa i vetur unniðaf miklum krafti til þess að efla félagið og ekki láta þær deigan síga því nú er komiðað hinum stórkostlega flóamarkaði þeirra. Þar verða á boðstólum margt eigulegra hluta, bæði gamlir, nýir og eldgamlir munir, t.d. fatnaður, sport , fatnaður, ibúsáhöld, skrautmunir o. fl. o. fl. KR-konur vilja hvetja fólk til að koma við í KR heimilinu á sunnudaginn og líta á úrvalið. Það getur orðið skemmtun fyrir alla fjölskylduna að taka þátt i markaðsstemmningunni og „prúttinu". Flóamarkaðurinn verður á sunnudaginn 17. febr. kl. 1 í KR-heimilinu við Frostaskjól. Líf og Land með Listaþíng Landssamtökin Lif og Land halda Listaþing að Kjar valsstöðum um helgina. Verður blandað saman annars vegar stuttum erindum (10 minútur) um helztu greinar lista frá ýmsum sjónarhornum og hins vegar skemmtiatriðum ýmissa kunnra listamanna. Þingið hefst klukkan 10 árdegis báða dagana og , stendur til um það bil klukkan fimm eftir hádegi. Eftir hádegi á sunnudeginum verða almennar umræður með pallborðssniði. Þar verður m.a. rætt um það helzta, sem kemur fram á þinginu, þ.á m. um stöðu listar, fjármögnun og listfræðslu. Fjölmargir innlendir listamenn munu skemmta á þinginu þar á meðal Manuela Wiesler og Helga Ingólfsdóttir, Þursaflokkurinn, Nýlistamenn. leikararnir Þórunn Sigurðardóttir og Arnar Jónsson. Félagsmálanámskeið Sjálfsbjargar Sjálfsbjörg, félag fatlaðra i Reykjavik, mun halda félagsmálanámskeið nú á næstunni að Hátúni 12, I. hæð. Kennd verður framsögn, spuni og almenn slökun. Kennari verður Guðmundur Magnússon leikari. Vinsamlega hafið samband við skrifstofuna i síma 17868. ^ „Brauðaskipti" Á liðnu ári var tekin upp sú nýbreytni í safnaðarstarfi Háteigskirkju og Neskirkju að vixl voru höfð á starfs fólki einn sunnudag. Næstkomandi sunnudag, 17. febrúar verður þetta endurtekið á þann veg að séra Arngrímur Jórisson mun messa i Neskirkju kl. 2, ásamt kirkjukór Háteigskirkju og Orthulf Prunner organista. en séra Guðmundur óskar Ólafsson mun á sama tima messa í Háteigskirkju með kirkjukór Nes kirkju og Reyni Jónassyni organista.Vonazt er til að slík tilbreytni í starfi mælist vel fyrir í söfnuðunum. Sólarkaffi Seyðfirðinga Seyðfirðingar halda fyrsta sólarkaffi sitt í kvöld i Fóstbræðraheimilinu. Verður þetta mikil pönnu köku- og tertuveizla, sem seyðfirzkar konur sjá um. fjöldasöngur verður með heimatilbúnum ástar Ijóðum, Grimur Helgason flytur annál frá Seyðisfirði o.fl. skemmtilegt verður á dagskránni. • Burtfluttir Seyðfirðingar hafa ekki haft með sér átt hagafélag en voru hvatamenn að stofnun Aust- firðingafélagsins sem átti 75 ára afmæli á sl. hausti og hafa jafnan verið fjölmennir í félaginu Það eru þau Bryndis Jónsdóttir, forstöðumaður Rauða kross hótelsins, Ingólfur Þorkelsson, skólameistari i Kópa vogi, og Guðmundur Jónsson sem eru upphafsmenn að þessu sólarkaffi Seyðfirðinga. Ungmenna og íþrótta- samband Austurlands. Þórarinspeningur U.Í.A. Kominn er á markaðinn minnispeningur um Þórarin Sveinsson fyrrum íþróttakennara og iþróttaleiðtoga á Eiðum. Megintilgangur með útgáfu peningsins er að heiðra minningu látins merkismanns og mikils brautryðjanda i starfi íþrótta- og ungmennafélags á Austurlandi, og gefa þeim, sem nutu leiðsagnar og forystu hans kost á aðeignast minjagrip. Ef hagnaður verður af útgáfu peningsins verður honum varið til endurbóta íþróttasvæðisins á Eiðum Þórarinn Sveinsson var fædddr á Kirkjubóli i Norð- firði 22. apríl 1907. Hann hóf kennslu við Alþýðu- skólann á Eiðum árið 1935 og gegndi því starfi mestalla sína starfsævi. Með komu hans til starfa á Austurlandi hófst nýtt tímabil i sögu íþróttalifs i fjórðungnum. Ungmenna- og iþróttasamband Austurlands var stofnað 1941. Þórarinn lézt af slysförum snemma árs 1972. Eftir- lifandi kona hans er Stefanía ósk Jónsdóttir og eign- .uðust þau átta börn. Minnispeningurinn hefur verið sleginn i bronsi silfri. Verð bronspenings er kr. 15.000, en silfur- peningur kostar nú kr. 50.000.- Sett eru ekki fáanleg eins og er, og verða þau fáU'Sem gerð hafa verið, næsta fágætir safngripir. Sölu peningsins annaðist skrifstofa U.Í.A. að Selási 11, Egilsstöðum, simi 19— 1353. Eftirtaldir aðilar taka einnig við pöntunum i Þórarinspening: Myntsafnarafélag íslands, pósthólf 5024 Rvík Ungmennafélag Islands, Mjölnisholti 14 Reykjavik Frimerkjahúsið við Lækjargótu, Rvík Landsbanki lslands. umboðsskrifstofa Reyðarfirði Landsbanki Islands, Fáskrúðsfirði Landsbanki Islands, Hornafirði Elma Guðmundsdóttir, Neskaupstað. Námskeið í hug- — myndafræði Prout Prout-hugmyndafræðin er andsvar við þeim ógnum sem steðja að mannkyni i dag og birtast m.a. í félags legri ringulreið; hrapallegri misskiptingu efnislegra gæða og vannýtingu þeirra, sem er ein helzta orsök sultar og fátæktar stórs hluta mannkyns; jafnvægis leysi milli tækniframfara og félagslegrar þróunar og gengdarlausri efnishyggju. Prout er í raun hagnýting viðtækrar þekkingar um manninn, alheiminn og> þjóðfélagið til að hrinda úr vegi núverandi þjóðfélags legri stöðnun og til að ryðja brautin31 fyrir nýtt gildis- mat og ný viðhorf til grundvallar háþróaðra og mannúðlegra þjóðfélagi. Námskeið i Prout-hugmyndafræðinni hefst laug ardag 16. febrúarkl. 14.00. En þá verður fjallað um á itandið í heiminum, getuleysi núverandi stjórnmála- stefna við að leysa brýnustu vandamál mannkyns og ^runnþætti nýrrar altækrar hugmyndafræði. Námskeiðið verður haldið i Aðalstræti 16. 2. hæð. Því verður framhaldið hvem laugardag á sama tíma næstu sex vikur. Þátttaka er öllum heimil og er þá ókeypis. Pressemeddelelse Den danske konsul i Akureyri, Gísli Konráðsson, er af Dronning Margrethe blevet udnævnt til ridder af Dannebrog. Dekorationen blev den 7. d.m. overgivet konsulen ved en middag hos den danske ambassadör. KGL. DANSK AMBASSADE Reykjavik, den 11. februar 1980. Skíðafólk — símsvarar Upplýsinga,- um skiðafæri eru gefnar i símsvörum. 1 Skálafelli er símsvarinn 22195. I Bláfjöllum er símsvarinn 25582. Við þökkum \ þér innilega fyrir aö nota ökuljósin í slæmu skyggni yUMFERÐAR RÁÐ GENGIÐ GENGISSKRÁNING Ferflamanna- Nr. 30-13. febrúar 1980. gjaWeyrir Einingkl. 12.00 Kaup Sala Sala 1 Bandaríkjadollar 401.70 402.70* 442.97* 1 Sterlingspund 926.55 928.85* 1021.74* 1 Kanadadollar 345.95 346.85* 381.54* 100 Danskar krónur 7402.90 7421.30* 8163.43* 100 Norskar krónur 8260.30 8280.90* 9108.99* 100 Sænskar krónur 9683.00 9707.10* 10677.81* 100 Finnsk mörk 10862.65 10889.65* 11978.62* 100 Fransklr frankar 9875.50 9900.10* 10890.11* 100 Bolg. frankar 1424.75 1428.25* 1571.08* 100 Svissn. frankar 24896.20 24958.20* 27454.02* 100 Gyllini 20982.55 21034.75* 23138.23* 100 V-þýzk mörk 23118.80 23176.30* 25493.93* 100 Lirur 49.87 49.99* 54.99* 100 Austurr. Sch. 3223.95 3231.95* 3555.15* 100 Escudos . 850.20 852.30* 937.53* 100 Pesetar 605.90 607.40* 668.14* 100 Yen 166.14 166.55* 183.21* 1 Sórstök dróttarróttindi 528.94 530.35* * Breyting frá síðustu skróningu. Símsvari vegna gengisskráningar 22190.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.