Dagblaðið - 22.02.1980, Side 1

Dagblaðið - 22.02.1980, Side 1
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 1980. 113 foaðerásevðiiimb Sjónvarp næstavjku... Sjónvarp Laugardagur 23. febrúar 16.30 íþróttir. Stórsvip karla á Vctrarólympiu leikunum. (Evróvision - upptaka Norska sjón- varpsins). 18.30 Lassie. Fjóröi þáttur. Þýðandi Jóhanna Jóhannsdóttir. 18.50 Enska knattspýrnan. Hlé. 20.00 Fréttirog veður. 20.25 Auglýsingar or dagskrá. 20.30 Reykjavíkurskákmótiö 1980. Meðan á skákmótinu stendur verða i Sjónvarpi all margir þættir þar sem skákmeistararnir Friðrik Ólafsson og Jón Þorsteinsson skýra skákiraf mótinu. 20.45 Spitalalif. Bandariskur gamanmynda flokkur. Þýðandi Ellert Sigurbjörnsson. 21.10 Vetrarólympiuleikarnir. Listdans á skautum. (Evróvision — upptaka Norska sjón varpsins). 22.15 Framliöinn er ei til frásagnar. (Dead Mcn Tell No Tales). Bandarísk sjónvarpskvikmynd frá árinu 1971. Aðalhlutverk Judy Carne og Christopher George. Larry Towers kemur til Los Angeles. Þar hittir hann stúlku sem villist á honum og gömlum vini sinum. Flokki morðingja verða á sömu mistök. og Larry hefur leit að tvifara sinum til að reyna að bjarga lifi hans. Þýðandi Kristrún Þórðar dóttir. 23.25 Dagskrárlok. Sunnudagur 24. febrúar 16.00 Sunnudagshugvekja. Séra Þorvaldur Karl Helgason, sóknarprestur i Njarðvikurpresta kalli. flytur hugvekjuna. 16.10 Húsiö á sléttunni. Sautjándi þáttur. Langt að heiman. Efni sextánda þáttar: Karl og Edwards fara til Springfield og taka Mariu, Láru og Karl litla með sér. Karl litli fer að fikta i stjórntækjum hemlavagns sem stendur á. brautarspori, svo að vagninn rennur af stað. Ekki tekst að koma honum á annað spor. og aukalest sem kemur úr gagnstæðri átt skapar mikla hættu. Á siðustu stundu getur Karl Ingalls komið stjórnanda aukalestarinnar i skilning um. hvað er að gerast og börnunum er borgið. Þýðandi Óskar Ingimarsson. 17.00 Þjóöflokkalist. Nýr heimildamyndaflokk ur. Þegar evrópskir sæfarar höfðu heim með sér hagleiksmuni af fjarlægum löndum. svo sem myndastyttur. málmsmiði og vefnað. fannst mönnum i fyrstu litið til þeirra koma. Smám saman rann þó listrænt gildi þeirra upp fyrir Evrópumönnum, sem af nokkru drjúg- læti flokkuðu þá undir ..frumstæða list”. Nú á timum er þessi list mikils metin og lýsingar orðið „frumstæð” varla talið viðeigandi lengur. Þættirnir eru sjö talsins, og fjallar sá fyrsti um Dogon þjóðflokkinn i Afriku. sem kunnur er af framúrskarandi tréskurðarlist. Þýöandi Hrafnhildur Schram. Þulur Guö- mundur Ingi Kristjánsson. 18.00 Stundin okkar. Rætt er við blaðsölubörn í Reykjavik og fluttur verður brúðuleikur undir stjórn Arnhildar Jónsdóttur um Litlu gulu hænuna. Sigga og skessan. Barbapapa og Binni bankastjóri verða einnig á sínum stað. Umsjónarmaður Bryndís Schram. Stjórn upptöku Egill Eðvarðsson. -18.50 Hlé. 20.00 Fréttir og veöur. 20.25 Auglýsingar og dagskrá. 20.35 Reykjavlkurskákmótið. 20.50 Þjóöllf. Rætt er við Mariu Guðmunds dóttur, sem verið hefur Ijósmyndafyrirsæta er- lendis um árabil. Þá verður Gylfi Gislason myndlistarmaður sóttur heim. og farið i Mela ‘ skólann en þar fer fram athyglisverð starfsemi á kvöldin. Farið veröur í heimsókn til Svein- björns Beinteinssonar allsherjargoða, sem býr einn I rafmagnsleysi að Draghálsi i Svínadal. Þá verða kvæðamenn og fleiri gestir i þættin- um. Umsjónarmaður Sigrún Stefánsdóttir. Stjórn upptöku Valdimar Leifsson. 21.50 I Hertogastræti. Breskur myndaflokkur. Þriðji þáttur. Efni annars þáttar: Lovísa sér um matseld i veislu, sem prinsinn af Wales heldur Þýskalandskeisara, og hún hlýtur mikið hrós. Síðar fær Lovísa að vita að prinsinn ber ekki aðeins matarást til hennar. heldur vill hann að hún verði ástkona sin. Það er ófrá- víkjanleg regla prinsins að stíga ekki i vænginn við ógiftar stúlkur. Lovisu er sagt. að gifti hún sig ekki, muni hún ekki annast fleiri veislur fyrir hefðarfólk. Hún lætur undan fortölum. giftist Trotter ráðsmanni. þótt hún sé ekki hrif- in af honum og þau flytja af heimili Hinriks lávarðar. Hún fær nóg að starfa við veislu höld, og brátt kemur prinsinn í fyrstu heimsókn sina. Þýðandi Dóra Hafsteinsdóttir. 22.40 Vetrarólympíuleikarnir. Stórsvig kvenna. (Evróvision — upptaka Norska sjónvarpsins). 23.25 Dagskrárlok. Mánudagur 25. febrúar 20.00 Fréttir og veöur. 20.25 Auglýsingar og dagskrá. 20.30 Reykjavlkurskákmótiö. Skýringar flytur Jón Þorsteinsson. 20.45 Tommi og Jenni.Teiknimynd. 20.50 Vetrarólympíuleikarnir. Svig karla. (Evró- vision — upptaka Norska sjónvarpsins). 21.55 Marc og Bella. Sænskt sjónvarpsleikrit eftir Hans Axel Holm. Fyrri hluti. Leikstjóri Lena Granhagen. Aðalhlutverk Asko Sarkola og Elina Salo. Leikritið gerist í Rússlandi á ár- unum kringum byltinguna og er um málarann Marc Chagall og ástir hans og hinnar fögru Bellu. Þýðandi Óskar Ingimarsson. Siðari hluti verður sýndur mánudagskvöldið 3. mars. (Nordvision — Sænska sjónvarpið). 22.55 Dagskrárlok. Þriðjudagur 26. febrúar 20.00 Fréttir og veöur. 20.25 Auglýsingar og dagskrá. 20.30 Reykjavíkurskákmótið. Skýringar flytur Friðrik Ólafsson. 20.45 Tommi og Jenni. Teiknimynd. 20.55 Vetrarólympíuleilkarnir. Svig kvenna. (Evróvision — upptaka Norska sjónvarpsins). 21.40 Dýrlingurinn. Breskur myndaflokkur. Þýðandi Guðni Kolbeinsson. 22.30 Umheimurinn. Þáttur um erlenda viðburði og málefni. Umsjónarmaður Ögmundur Jónasson. 23.20 Dagskrárlok. Miðvikudagur 27. febrúar 18.00 Barbapapa. Lokaþátturendursýndur. 18.05 Ég á tígrisdýr. Finnsk teiknimynd um lit- inn dreng. sem þykist eiga tígrisdýr og dulbýr það með ýmsu móti svo að aðrir beri ekki kennsl á það. Þýðandi Kristin Mántylá. Sögu- maður Helga Thorberg. (Nordvision — Finnska sjónvarþið). 18.20 Draugarnir I Hryllingsborg. Dönsk myndasaga um strák sem á að skrifa ritgerð um bekkjarferð til Hryllingsborgar. Þýðandi Björn Baldursson. (Nordvision — Danska «jöhvarpið). 18.40 Einu sinni var. Fransku teiknimyndaflokk ur. Þýðandi Friðrik Páll Jónsson. Sögumenn ómar Ragnarsson og Bryndis Schram. 19.05 Hlé. 20.00 Fréttir og veöur. 20.25 Auglýsingar og dagskrá. 20.30 Reykjavlkurskákmótiö. Friðrik ólafsson flyturskýringar. 20.45 Vetrarólympluleikarnir. Stökk karla. (Evróvision — upptaka Norska sjónvarpsins). 21.45 Nýjasta tækni og vfsindi. Umsjónarmaður Sigurður H. Richter. 22.15 Fólkið við lóniö. Spænskur myndaflokkur. Þriðji þáttur. Efni annars þáttar: Paloma- feðgar fiska litið, og Tono fær sér vinnu á grjónaökrunum til að bæta sér upp aflaleysið. Föður hans er það mjög á móti skapi, og þegar Tono íhugar að kaupa land til ræktunar, verður karl æfur. Tono og Rósa eignast son, Tonet. Þýðandi Sonja Diego. 23.10 Dagskrárlok. Föstudagur 29. febrúar 20.00 Fréttir og veður. 20.30 Auglýsingar og dagsltrá. 20.40 Reykjavfkurskákmótið. Friðrik ólafsson flytur skákskýringar. 20.55 Prúöu leikararnir. Gestur leikbrúðanna að þessu sinni er leikkonan Dyan Cannon. Þýðandi ÞrándurThoroddsen. 21.20 Kastljós. Þáttur um innlend málefni. Um- sjónarmaður Helgi E. Helgason fréttamaður. 22.20 Hver mun bjarga börnum okkar? Banda risk sjónvarpskvikmynd. Aðalhlutverk Shirley Jones og Len Cariou. Foreldrar Marjory og Tommy eru gersamlega ófærir uppalendur og þvl er börnunum komiö fyrir hjá barnlausum hjónum, Söru og Mat{. Þeim þykir brátt afar vænt um börnin og gera ráðstafanir til að ætt leiða þau, en þá koma foreldrarnir til sögunnar og taka börnin frá þeim. Þýðandi Óskar Ingi- marsson. 23.55 Dagskrárlok. Elina Salo I hlutverki hinnar fögru Bellu Chagall. MARC OG BELLA—sjónvarp kl. 21.55 mánudagskvöld: MÁLARINN MARC CHAGALL OG FAGRA KONAN HANS BELLA „Þetta leikrit fjallat um ævi málarans I ræga, Marc Chagall. Það fjallar utn uppvaxtarár httns í Rúss- landi og allt þangað til hann fer alfarinn frá Rússlandi,” sagði Óskar lngimasson þýðandi um myndina Marc og Bella. Marc og Bella er sænskt sjónvarpsleikrit eftir Flans Axel Holm. „Fyrri hluti myndarinnar segir aðallega frá uppvaxtarárum Marcs og þar til hann fer að læra í París. Leikritið er dálítið sérkenni- lega uppbyggt. Á milli þess sem eru leikin atriði eru sýnd málverk hans og gamlar Ijósmyndir og hann segir sjálfur frá. Fallega konan hans, Bella, kemur einnig við sögu og foreldrar hans. Einnig eru margir frægir listamenn nefndir i myndinni. Nicholas keisari kemur við sögu og sést hann í einu at- riðinu. Um leið og þetta leikrit segir frá Marc sjálfum sýnir það sögu Rúss- lands á þessum tíma. Þau Marc og Bella voru bæði af gyðingaættum, en þá var mikið gyðingahatur í Rússlandi og litið var á þá sem annars flokks fólks. Fyrri hluti leikritsins endar í París fyrir byltinguna en i seinni hlutanum er byltingin skollin yfir og Marc alfarinn frá Rússlandi. Þaðergaman að þessu leikriti sérstaklega vegna uppbyggingarinnar. Mörg skemmti- leg málverk hans koma t.d. við sögu og sýna hugmyndaflugið sem hann hafði,” sagði Óskar Ingimarsson ennfremur um leikritið. Með aðalhlutverkin fara Asko Sarkola og Elina Salo. Leikstjóri er Lena Granhagen. Siðari hluli leikritsins verður sýndur mánudaginn 3.marz. -EI.A. Laugardagur 1. mars 16.30 Vetrarólympíuleikarnir. Ganga og norræn tvíkeppni. (Evróvision — upptaka Norska sjónvarpsins). 18.30 Lassie. Fimmti þáttur. Þýðandi Jóhanna Jóhannsdóttir. 18.50 Enska knattspyrnan. Hlé. 20.00 Fréttir og veður. 20.25 Auglýsingar og dagskrá. 20.30 Reykjavtkurskákmótið. Jón Þorsteinsson flytur skýringar. 20.45 Spitalalif. Lokaþáttur. Þýðandi Ellert Sigurbjörnsson. 2I.10 „Vegir liggja til allra átta”. Fjallað um störf skemmtikrafta hér á landi á ýmsum tlmum. Umsjónarmaður Hildur Einarsdóttir. • Stjórn upptöku Tage Ammendrup. 21.50 Lafói Karólina (Lady Caroline Lamb). ■Bresk biómynd frá árinu 1972. Aðalhlutverk Sarah Miles, Jon Finch og Richard Chamber lain. Ung kona, sem gift er aöalsmanni, veldur hneykslun þegar hún gerist ástkona Byrons lá- varðar. Þýðandi Kristmann Eiðsson. 23.45 Dagskrárlok. Sunnudagur 2. mars 16.00 Sunnudagshugvekja. Séra Ingólfur Guð- mundsson, íeskulýðsfulltrúi þjóðkirkjunnar. i flytur hugvekjuna. !l6.l0 Húsiö á sléttunni. Átjándi þáttur. ] Hundrað ára hátið. Efni sautjánda þáttar: Kornverð lækkar skyndilega vegna offram- , leiðslu, og Ingalls og Edwards sjá fram á I sultarlif. Þeim tekst þó óvænt að fá vinnu i > fjarlægu héraði við að flytja sprengiefni. Einn vinnufélagi þeirra er blökkumaður, sem hefur | ráð undir rifi hverju, enda þaulvanur slíkum , flutningum. Þeir komast á leiðarenda eftir J margs konar erfiðleika og fá greidda hundrað j dali fyrir tíu daga vinnu. Þýðandi óskar Ingi- marsson. 117.00 Þjóðflokkalist. Heimildamyndafiokkur I sjö þáttum. Annar þáttur. Fjallaö er um listir indiánaættbálka á vesturströnd Norður- Ameriku. Þýðandi Hrafnhildur Schram. Þulur Guðmundur Ingi Kristjánsson. • 18.00 Stundin okkar. Meðal efnis: Fariö veröur til Akureyrar, þar sem kötturinn er sleginn úr tunnunni. Flutt verður dagskrá i tilefni æsku- lýðsdags þjóðkirkjunnar. Lesið veröur kvæðið „Á afmæli kattarins” eftir Jón Helgason. við teikningar Ólafar Knudsen. Sigga og skessan og bankastjórinn veröa á sínum staö. Umsjónarmaður Bryndís Schram. Stjórn upp- töku Egill Eðvarðsson. I8.50 Hlé. 20.00 Fréttir og veöur. 20.25 Auglýsingar og dagskrá. 20.30 Reykjavikurskákmótió. Skýringar flytur Friðrik ólafsson. 20.45 Veður. Þriðji þáttur Sjónvarpsins. Lýst er þáttum, sem móta veðurfar á lslandi, skýrt frá starfsemi Veðurstofunnar og rætt um hitafar á } landinu. Umsjónarmaður Markús Á. Einars son veðurfræðingur. Stjórn upptöku Magnús [ Bjarnfreðsson. '2I.I5 í Hertogastræti. Fjórði þáttur: Viðandlát Viktoríu drottningar slítur prinsinn sambandi sinu við Lovisu. Hún sér auglýsingu, þar sem boðið er hótel til sölu. og kaupir það. Trotter verður framkvæmdastjóri. Nóra, systir hans, ráöskona en Lovisa annast eldamennskuna. auk þess sem hún tekur að sér matargerð fyrir tignarfólk. Drykkjuskapur Trotters vex og Nóra er ekki starfi sínu vaxin. svo að gestum hótelsins fækkar. Lovísa er skuldum vafin og hún sér engin úrræði önnur en losa sig við systkinin og hefja rekstur hótelsins að nýju. Þýöandi Dóra Hafsteinsdóttir. 22.05 Vetrarólympfuleikarnir. Listhlaup á skautum. (Evróvision — upptaka Norska sjón- varpsins). 23.05 Dagskrárlok.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.