Dagblaðið - 21.03.1980, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 21.03.1980, Blaðsíða 1
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 21. MARZ 1980. Evaðerásevðiumhi Sjónvarp næstuviku • •• Sjónvarp Laugardagur 22. mars 16.30 íþróttir. Umsjónarmaður Bjarni Felixson. 18.30 Lassie. Áttundi þáttur. Þýðandi Jóhanna, Jóhannsdóttir. 18.50 Enska knattspyrnan. Hlé. 20.00 Fréttir og veöur. 20.25 Auglýsingar og dagskrá. 20.35 Lööur. Bandarískur gamanmyndaflokkur. Þriðji þáttur. Þýðandi Ellert Sigurbjörnsson. 21.00 Jassþáttur. Tríó Guðmundar Ingólfssonar leikur ásamt Viðari Alfreðssyni. Stjórn upp- töku Egill Eðvarðsson. 21.30 Hinrik áttundi og eiginkonurnar sex. Bresk bíómynd frá árinu 1972. Leikstjóri Waris Hussein. Aðalhlutverk Keith Mitchell, Frances Cuka, Charlotte Rampling og Jane Asher. Hinrik áttundi (1491—1547) er einhver eftirminnilegasti konungur í sögu Englands. Hann kemst til valda ungur og glæsilegur og var vinsæll meðal þegna sinna. ! konungstíö hans efldist breska ríkið mjög, en fáir syrgðu fráfall hans. Myndin greinir frá hinum fjöl- ' mörgu hjónaböndum konungs. Þýðandi Jón O. Edwald. • 23.30 Dagskrárlok. Sunnudagur 23. mars i 16.00 Sunnudagshugvekja. Séra Árelíus Níels- . ) son flytur hugvekjuna. * 16.10 Hósiö á sléttunni. 21. þáttur. Stríöshetjan. Efni tuttugasta þáttar: Auðug ekkja, frú Thur- mond, kemur til Hnetulundar. Hún á m.a. for-'- láta postulínssteli, sem Karl fær augastað á handa Karólínu. Hann tekur að sér að vinna ? að endurbótum í húsi ekkjunnar gegn því að fá stellið sem borgun. En þessu verður að halda vandlega leyndu, og það veldur mestu vand- ræðum. Frú Oleson er ekki lengi að álykta, að Karl hafi fengið sér hjákonu. Þegar Karl. kemur loks heim með stellið, fæst skýring á öllu. Þýðandi óskar Ingimarsson. '17.00 ÞjóöflokkalisL Fimmti þáttur. Fjallað er um vefnað suöur-íranskra hirðingja. Þýðandi Hrafnhildur Schram. Þulur Guðmundur Ingi Kristjánsson. ., 18.00 Stundin okkar. Meðal efnis: Farið verður í heimsókn 1 svínabú. Söngflokkurinn Þjóðþríf frá Akureyri syngur um svín, sem vildi verða alþingismaður. Ragnar Lár myndskreytti. Les- inn verður kafli úr Félaga Napóleon við teikn- ingar eftir Hörpu Karlsdóttur og flutt þjóðsag- an Gilitrutt. Leikstjóri er Þórunn Sigurðar- dóttir og leikendur Glsli Rúnar Jónsson, Edda Björgvinsdóttir og Bjarni Ingvarsson. Um- sjónarmaður Bryndls Schram. Stjórn upptöku Egill Eðvarðsson. . 18.50 Hlé. , 20.00 Fréttir og veður. ^20.25 Auglýsingar og dagskrá. ' ^20.35 Islenskt mál. Þessi þáttur byggist einvörð- ungú á orðtökum úr skákmáli, enda eru þau , mörg á hvers manns vörum í daglegu tali. . ‘ Menn tala um að eiga næsta leik, tefla djarft :. og skáka i þvi skjóli. Kunnir skákmenn, ' Gunnar Kr. Gunnarsson og Jón Friðjónsson,, , bjuggu til skákdæmi og sýna þau I þættinum. Textahöfundur og þulur Helgi J. Halldórsson. Myndstjórnandi Guðbjartur Gunnarsson. 20.45 Þjóðlif. Farið er I heimsókn til Jóns G. Sólness á Akureyri. Karlakór Reykjavíkur syngur og sr. Gunnar Kristjánsson prestur að Reynivöllum í Kjós útskýrir ýmislcgt í kirkj- unni, sem forvitnilegt er að heyra um. Aðal- björg Jónsdóttir prjónakona er heimsótt, en, prjónakjólar hennar vekja athygli. Fjallað ( verður um ull og fatnað sem vinna má úr henni, og loks verður sýnt það sem nýjast er I ullarframleiðslu hér á landi. Umsjónarmaður Sigrún Stefánsdóttir. Stjórn upptöku Valdimar. Leifsson. •21.40 í Hertogastræti. Sjöundi þáttur. Efni sjötta þáttar: Roskinn aðalsmaður sest að á hóteli Lovísu ásamt ungri eiginkonu sinni, Daisy. Um líkt leyti kemur þangað svindlari, sem hyggst hafa fé af aðalsmanninum. Hann gerir hosur sínar grænar fyrir Daisy, og hún fellur fyrír honum. Morgun einn gerir ást- maðurinn sig líklegan til að hnupla forláta . eyrnalokkum frá Daisy. Hún leitar hjálpar Lovísu, því að hún óttast að ella frétti eigin- maður bennar af ástarævintýri hennar. Það kemur i Ijós að svindlarinn hefur ekki tekið skartgripinn. Þýðandi Dórá' Hafsteinsdóttir. 22.30 Dagskrárlok. Mánudagur 24. márs 20.00 Fréttir og veöur 20.25 Auglýsingar og dagskrá. 20.35 Tommiog Jenni. 20.40 íþróttir. Umsjónarmaður Bjarni Felixson. 21.10 Börn guöanna. Breskt sjónvarpsleikrit efi- ir Roy Kendall. Leikstjóri Derek Bennett. Aðalhlutverk Janet Maw, Peter Jeffrey og Mary Peach. Leikritið er um tvítuga stúlku, sem gengur sértrúarsöfnuði á hönd og viðleitni foreldra hennar til þess að fá hana til að skipta um skoðun. Þýðandi Dóra Hafsteinsdóttir. 22.25 Þjóöskörungur á eftirlaunum. Dönsk heimildamynd; Statsmænd pá pension. Einar Gerhardsen, Noregi, Tage Erlander, Sviþjóð og Karl August Fagerholm, Finnlandi, voru um langt skeið oddamenn jafnaðarstefnu á Norðurlöndum. Þeir beittu sér fyrir samstöðu norrænna jafnaðarmanna á styrjaldarárunum og þróun velferðarríkja að striðinu loknu. Þeir eru nú aldurhnignir og hafa margs að minnast. Þýðandi Kristmann Eiðsson. (Nordvision — Danska sjónvarpið). 23.15 Dagskrárlok. Mér finnst nú ekkert skrýtið þó nágrannarnir banki í vegginn þegar mamma þín hrópar svona hátt. . . Þriðjudagur 25. mars 20.00 Fréttir og veöur. 20.25 Auglýsingar og dagskrá. 20.35 Tommiog Jenni. 20.40 Örtölvubyltingin. Fjórði þáttur. Hið innhverfa þjóðfélag. Bráðum verður unnt að geyma fróðleik margra bóka í örsmáum kísilmola. Örtölvan sér um að bregða textan- um á skjáinn með þeim hraða, sem lesandinn kýs, og þá verður einkakennarinn ekki lengur forréttindi hinna vellríku. Þýðandi Bogi Arnar Finnbogason. ÞulurGylfi Pálsson. 21.10 Óvant endalok. Annar þáttur. Sæt er á- vinningsvonin. Þýöandi Kristmann Eiðsson. 21.35 Umheimurinn. Þáttur um erlend málefni og viðburði. Umsjónarmaður Bogi Ágústsson fréttamaður. 22.25 Dagskrárlok. Miðvikudagur 26. ». mars 18.00 Börnin á eldfjaliinu. Nýsjálenskur mynda- flokkur. Annar þáttur. Þýðandi Guðni Kolbeinsson. 18.25 Einu sinni var. Teiknimyndaflokkur. Þýðandi Friðrik Páll Jónsson. Sögumenn ómar Ragnarsson og Bryndís Schram. 18.50 H\é. 20.00 Fréttir og veöur. 20.25 Auglýsingar og dagskrá. Og þá er komið að sinfóníulónleikun- um alkunnu . . . ÓVÆNT END ALOK—sjónvarp kl. 21.10 þnðjudag: Fjárhættuspila- mennska um borð í farþegaskipi Óvænt endalok, annar þáttur, birt- ast okkur á þriðjudag kl. 21.10. Höfundurinn Roald Dahl flytur inn- gangsorð að þættinum eins og hann gerði síðast og segir þar frá hversu mikill fjárhættuspilari hann sé. Ein- mitt það varð kveikjan að þessum þætti sem nefnist Sæt er ávinnings- vonin. „Myndin gerist um borð í farþega- skipi. Skipstjórinn hefur gaman af fjárhættuspilum og hefur þann sið að spá fyrir um hve skipið sigli langt næsta sólarhring,” sagði Kristmann Eiðsson þýðandi myndarinnar. „Skipstjórinn setur tölur í pott og siðan geta aðrir keypt sér tölur líka. Um borð í farþegaskipinu er Banda- ríkjamaður sem hefur álíka gaman af fjárhættuspilum og skipstjórinn. En kvöld nokkurt skellur á óveður. Bandaríkjamaðurinn hugsar sér gott til glóðarinnar og kaupir lægstu töl- una í pottinum, þar eð hann telur að nú fari skipið ekki hratt. Vinningur- inn er allt það fé sem í pottinn er komið,” sagði Kristmann ennfrem- ur, en hann neitaði að segja nokkuð meira um þátt þennan þar sem hann endar óvænt eins og nafn hans gefur tilkynna. -F.I.A Jack Weston fer með aðalhlutverkið f myndaflokknum Óvænt endalok. 20.35 Nýjasta tækni og visindi. Umsjónarmaður örnólfur Thorlacius. 121.05 Ballettdansarinn. (I am a Dancer). Bresk kvikmynd um hinn heimskunna ballett- dansara Rudolf Nureyev. Fylgst er mcð honum, m.a. að æfingum og sýndir vinsælir ballettar. Meðal dansfélaga Nureyevs i myndinni er Margot Fonteyn. Þýðandi Kristrún Þórðardóttir. 22.35 Dagskrárlok. Föstudagur 28. mars 20.00 Fréttirog veöur. 20.30 Auglýsingar og dagskrá. 20.40 Prúöu leikararnir. Leikbrúðumynd. Þýðandi Þrándur Thoroddsen. 21.05 Kastljós. Þáttur um innlend málefni. | Umsjónarmaður Helgi E. Helgason, frétta- maður. 22.20 Kjarnorkunjósnarar I kröppum dansi. Bresk sjónvarpskvikmynd, byggð á sannsögulegum viðburðum. Handrít lan Curteis. Leikstjóri Alan Gibson. Aðalhlutverk Michael Craig, Edward Wilson og Andrew Rey; Árið 1945 varð Ijóst, að Rússum bárust njósnir af kjarnorkurannsóknum á Bretlandi. Á miklu reið að hafa sem fyrst hendur í hári, njósnarans, en leyniþjónustan vissi það eitt um hann, að hann tók ekki laun fyrir njósna- störfin. Þýðandi Kristmann Eiðsson. 23.50 Dagskrárlok. Laugardagur 29. ). mars 16.30 lþróttir. Umsjónarmaður Bjarni Felixson. 18.30 Lassie. Niundi þáttur. Þýðandi Jóhanna ; Jóhannsdóttir. 18.50 Enska knattspyrnan. Hlé. 20.00 Fréttir og veöur. 20.25 Auglýsingar og dagskrá. :20.35 Lööur. Bandarískur gamanmyndaflokkur. Þýðandi Ellert Sigurbjörnsson. 21.00 Kóngurinn viöförli. Kóngafiðrildin i Norður-Ameríku fara byggðum þegar vetrar, , og lengi vel-var ýmislegt á huldu um ferðalag | þeirra. Fyrir fáeinum árum tókst bandariskum ' visindamanni að afhjúpa levndarmál fiðrildanna og um það fjallar þessi breska heimildamynd. Þýðandi Guðni Kolbeinsson. Þulur Friðbjörn Gunnlaugsson. ■21.25 Trúöarnir (The Comedians). Frönsk- I bandarísk bíómynd frá árinu 1967 byggð á sögu eftir Graham Greene. Aðalhlutverk Richard Burton, Elizabeth Taylor, Alec Guinness og Peter Ustinov. Sagan gerist á Haiti á ófriðartimum og lýsir högum nokkurra útlendinga. Þar er m.a. hóteleigandi, sem er i þingum við suður-ameriska sendiherrafrú, og enskur herforingi i dularfullum erindagerðum. Þýðandi Ragna Ragnars. „Trúðarnir" voru út- varpssaga árið 1967. Magnús Kjartansson þýddi og las. 23.30 Dagskrárlok. Sunnudagur 30. mars 16.00 Sunnudagshugvekja. Séra Árelíus Niels- son flytur hugvekju. 16.10 Húsiö á sléttunni. 22. þáttur. Á heimleiö. Efni 21. þáttar: Granville Whipple kemur heim til Hnetulundar eftir tólf ára fjarveru. j Hann hafði særst í þrælastríðinu, þar sem^ hann var lúðurþeytari og fengið heiðursmerki fyrir hetjudáð. En þegar hann hittir ekkju Roys, vinar sins, sem hann hefði getað bjargað i striðinu, verður honum Ijóst, að hann er engin hetja. Granville hefur vanið sig á morfinneyslu, og hann brýst inn til Bakers læknis og stelur þar stórum skammti. Þegar frú Whipple fer að undrast um hann, tekur Karl Ingalls aö sér að leita, og hann finnur Granville látinn. Þýðandi Óskar lngimarsson. Þetta er siðasti þátturinn um húsið á sléttunni á þessum vetri. 17.00 Þjóóflokkalist. Sjötti þáttur. Fjallaðer um listir á Suðurhafseyjum. Þýðandi Hrafnhildur Schram. ÞulurGuðmundur Ingi Kristjánsson. 18.00 Stundin okkar. Meðal efnis: Fjallaðer um ferminguna. Nemendur úr Menntaskólanum i Reykjavik flytja fyrri hluta leikritsins „Umhvetfis jörðina á 80 dögum”, sem gert er eftir sögu Jules Verne, og nemendur frá Hvammstanga koma í heimsókn. Umsjónar- maður Bryndís Schram. Stjórn upptöku Egill. Eðvarðsson. 18.55 Hlé. ,20.00 Fréttir og veður. ,20.25 Auglýsingar og agskrá. 20.35 tslenskt mál. Efni i þennan þált er sótt í hina þjóðlegu íþrótt, íslensku glímuna, þar sem Ármenningarnir Guðmundur Freyr Halldórsson og Sigurjón Leifsson leita og neyta allra bragða og láta óspart koma krók á móti bragði. Textahöfundur og þulur Helgi J. Halldórsson. Myndstjórnandi Guðbjartur Gunnarsson. 20.40 t dagsins önn. Fyrsti þáttur: Kaupstaðar- ferð meö klakkhesta. Sjónvarpið mun á næstu mánuðum sýna stuttar heimildarmyndir um forna búskaparhætti í sunnlenskum sveitum, gerðar að tilstuðlan ýmissa félagasamtaka á Suðurlandi. Fyrsti þáttur sýnir kaupstaðarferð fyrir klakkhesta, áður en hestvagnar komu til sögunnar. Fólk er á heimleið, slær tjöldum við Hvltá og hefur þar næturstað. Daginn eftir fer það á ferju yfir vatnsfallið og heldur ferðinni áfram. .,.21.00 ! Hertogastræti. Áttundi þáttur. Efni sjöunda þáttar: Nýr gestur fær inni á hótelinu, Diana Shickland. Eiginmaður hennar er fár- sjúkur og fjárhagurinn slæmur. Diana kynnist upprennandi stjómmálamanni, Dugdale. Hann er alræmdur flagari og leggur snörur' sinar fyrir Diönu með þeim árangri, aö hún er reiðubúin að fara frá manni sínum. Diana kemst að lokum á snoðir um hið rétta innræti: ástmanns sins og snýr heim. En Lovísa er þing- manninum svo gröm, að hún hugleiðir að meina honum aðgang að hótelinu. Þýðandi Dóra Hafsteinsdóttir. 21.50 Réttað í máli Jesú frá Nazaret. Leikin ■ heimildamynd i fjórum þáttum. Hverjir áttu sök á dauða Jesu? Voru það Gyðingar? Eða. kannski Rómverjar? Þessi spurning er ekki; bara fræðilegs eðlis, þvi að hún hefur leitað á hugi kristinna manna i nærfellt tvö þúsund ár og jafnvel blásið að glæðum Gyðingahaturs. Sjónvarpið sýnir í dymbilvikunni kanadiska heimildamynd i fjórum þáttum um þetta efni, og byggir hún að hluta til á sviösetningu frægra réttarhalda í Frakklandi, þar sem nafntogaður lögfræðingur og kaþólskur prestur deila um sakargiftir. Greint er í máli og mymdum frá síðustu dögum Jesú, og einnig er brugðið upp svipmyndum frá útrýmingar *| búðum nasista. Þýðandi dr. Björn Björnsson j guðfræðiprófessor. ;22.45 Dagskrárlok.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.