Dagblaðið - 25.04.1980, Page 1

Dagblaðið - 25.04.1980, Page 1
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 25. APRÍL 1980. 13 Sjónvarp næstu viku • •• Sjónvarp Laugardagur 26. apríl 16.30 tþróttir. Umsjónarmaður Bjarni Felixson. 18.30 Lassie. Þrettándi og síðasti þáttur. Þýðandi Jóhanna Jóhannsdóttir. I8.S0 F.nska knattspyrnan. Hlé. 20.00 Fréttir og veöur. 20.25 Auglýsingar og dagskrá. 20.35 Löður. Gamanmyndaflokkur. Þýðandi Ellert Sigurbjörnsson. 21.00 Skáld sólar og goósagna. Ný, sænsk heimildamynd um Odysseus Elytis, griska Ijóöskáldið, sem hlaut bókmenntaverðlaun Nóbels á siðasta ári. Einnig er rætt við Mikis Theodorakis, sem á sinn þátt i lýðhylli skáldsins. Myndin sýnir sitthvað úr átthögum skáldsins. Þýðandi Jón Gunnarsson. (Nord- vision — Sænska sjónvarpið). 21.40 Söngvakeppni sjónvarpsstödva í Evrópu 1980. Keppnin fór að þessu sinni fram i Haag í Hollandi 19. apríl og voru keppendur frá nítján löndum. Þýðandi Björn Baldursson. (Evróvision — Hollenska sjónvarpið). 00.10 Dagskrárlok. Sunnudagur 27. apríl 18.00 Sunnudagshugvekja. Séra Kristján Róbertsson, fríkirkjuprestur i Reykjavik, flytur hugvekjuna. 18.10 Stundin okkar. Meöal efnis: Lúðrasveit bama á Selfossi leikur, og rætt verður við bræður sem eiga heima í sveit. Ellefu ára drengur leikur á hljóðfæri, og kynnt verður brúðuleikritið Sálin hans Jóns mins. Binni og Blámann eru á slnum staö. Umsjónarmaður Bryndis Schram. Stjórn upptöku Tage Ammendrup. 19.00 Hlé. 20.00 Fréttir og veöur. 20.25 Auglýsingar og dagskrá. 20.35 I dagsins önn. Annar þáttur. Kaupstaðar- ferö meö hestvagni. Fyrsti þáttur sýndi kaupstaðarferö meö áburðarhesta, en það varö mikil framför I samgöngum til sveita. þegar hestvagnar komu til sögunnar. Vigfús Sigur- geirsson tók þessa kvikmynd qg aðrar i mynda- flokknum. 20.55 I Hertogastrseti. Tólfí þáttur. Þýöandi , Dóra Hafsteinsdóttir. 21.45 Myndir af verkum Eschers. Mynd um verk hollenska grafiklistamannsins M.C. Eschers'( 1898—1972). 1 febrúarmánuði slðast liðnum var sýning á verkum Eschers að Kjarvalsstöðum. Þýöandi Jón O. Edwald. 22.25 Þrlr gítarleikarar. Jassþáttur meö gítar- leikurunum Charlie Byrd, Barney Hesscl og Herb Ellis. Þýðandi. Jón O. Edwald. 22.50 Dagskrárlok. Mánudagur 28. apríl 20.00 Fréttir og veóur. 20.25 Auglýsingar og dagskrá. 20.35 Tommi og Jenni. 20.40 Iþróttir. Umsjónarmaður Bjarni Felixson. 21.15 Sólgata 16. Norskt sjónvarpsleikrit eftir Arnljót Berg, sem einnig er leikstjóri. Aðalhlutverk Finn Kvalem, Per Gjersöe og öivind Blunck. Leikurinn gerist í óhrjálegri leiguibúö. Þar búa gamall maöur, sonur hans og sonarsonur. Allir hafa þeir orðið undir i lífs- baráttunni og eru vandræðamenn í augum samfélagsins, hver á sinn hátt. Þýðandi Jóhanna Jóhannsdóttir. (Nordvision — Norska sjónvarpið). 22.45 Dagskrárlok. Þriðjudagur 29. apríl 20.00 Fréttlr og veóur. 20.25 Auglýsingar og dagskrá. 20.35 Tommiog Jenni. 20.40 Þjóóskörungar tuttugustu aldar. Adolf Hitler — síðari hluti. Sigurdraumar Hitlers snerust upp i martröð, þegar þýski flugherinn tapaði orrustunni um Bretland. Áætlunin Rauðskeggur rann út i sandinn og Bandarikja- menn gengu í lið með andstæðingum hans. 30. april 1945 stytti hann sér aldur. og nokkrum dögum síðar gáfust Þjóðverjar upp. Þýðandi og þulur Bogi Arnar Finnbogason. 21.05 Staóan i kjaramálum launþega. Umræðuþáttur undir stjórn Magnúsar Bjarn- freðssonar. 22.00 óvænt endalok. Myndaflokkur byggður á smásögum eftir Roald Dahl. Sjöundi þáttur. Þýðandi Kristmann Eiðsson. 22.25 Dagskrárlok. Miðvikudagur 30. apríl 18.00 Börnin á eldfíallinu. Sjöundi þáttur. Þýðandi Guðni Kolbeinsson. 18.25 Sá ég kjóa. Sænsk dýralifsmynd. Þýðandi og þulur óskar Ingimarsson. (Nordvision — Sænska sjónvarpið). 18.50 Hlé. 20.00 Fréttir og veður. 20.25 Auglýsingar og dagskrá. 20.35 Vaka. Litast er um i Þjóðleikhúsinu a 30 ára afmæli þess og m.a. fylgst með æfingum á nýjum, íslenskum verkum. Umsjónarmaður Andrés Indriðason. 21.15 Feróir Darwins. Fimmti þáttur. Leyndar- dómurinn mikli. Efni fjórða þáttar: Meöan FitzRoy heldur áfram sjómælingum við strendur Argentínu, kýs Darwin að fara land- leiðina til Buenos Aires, yfir slétturnar miklu. Þar berjast indiánar og kúrekar (gauchos) undir stjóm hörkutólsins Rosas hershöfðingja, sem ætlar sér að gerast einvaldur. Darwin sleppur betur frá viðskiptunum við hann en margir aðrir. Beagle siglir til Valparaiso i Chile til að taka vistar, og Darwin notar tækifærið til að fara yfír Andes-fjöll þar sem hann rekst á enn eitt furðuverk náttúrunnar og mótar nýja kenningu um myndun fjall- garða. Þýðandi Óskar Ingimarsson. 22.15 Flóttinn yfir Kjöl. Þriðji þáttur fjallar um ýmsa atburði, sem gerðust árið 1943, m.a. ævintýralegan flótta Norðmannsins Jans Baalsrud yfir Kjöl. Þýðandi Jón Gunnarsson. (Nordvision — Sænska og Norska sjónvarpið). 23.15 Dagskrárlok. Föstudagur 2. maí 20.00 Fréttir og veóur. 20.30 Auglýsingar og dagskrá. 20.40 Práóu leikararnir. Gestur að þessu sinni er söngvarinn John Denver. Þýðandi Þrándur Thoroddsen. 21.05 Kastljós. Þáttur um innlend málefni. Umsjónarmaður Ingvi Hrafn Jónsson. 22.10 Gróóur I gjósti (A Tree Grows in Brooklyn). Bandarísk sjónvarpsmynd fráárinu 1974. byggö á sögu eftir Betty Smith. Sagan hefur komið út i islenskri þyðingu. Aðalhlut- verk Cliff Robertson og Diane Baker. Myndin lýsir högum fátækrar, irskrar fjölskyldu í New York árið 1912. Þýðandi Rannveig T ryggvadóttir. 23.20 Dagskrárlok. Laugardagur 3. maí 16.30 Iþróttir. Umsjónarmaður Bjarni Felixson. 18.30 Fred Flintstone I nýjum ævintýrum. Nýr, bandariskur teiknimyndaflokkur um gamla kunningja, steinaldarmennina. Fyrsti þáttur. Þýðandi Jóhanna Jóhannsdóttir. 18.55 Enska knattspyrnan. Hlé. 20.00 Fréttir og veóur. 20.25 Auglýsingar og dagskrá. 20.35 Löóur. Gamanmyndaflokkur. Þýðandi Ellert Sigurbjörnsson. 21.00 Þrjú lög frá Suóur-Ameriku. Tania Maria og Niels Henning örsted Pedersen leika. Stjórn upptöku Tage Ammendrup. 21.20 Blóóugt er hljómfall i dansi. Heimildar- mynd um skáldið og söngvarann Linton Kwesi Johnson. Hann er fæddur á Jamaica, en býr nú i Lundúnum og yrkir gjarnan um hlut- skipti svartra manna i þeirri borg. Þýðandi Guðni Kolbeinsson. 22.05 ófullgert tónverk fyrir sjálfspilandi pianó. Rússnesk bíómynd frá árinu 1977, byggð á sögu eftir Anton Tsjékov. Það er sumardagur og gestkvæmt á sveitasetri önnu Petrovnu. Meðal gestanna eru Platanof og Sofia' Égerova. Þau höfðu elskast, meðan Platonof var í háskóla. Þá höfðu allir vænst mikils af honum, en nú hefur hann sest að i sveitinni. VINUR MINN TELEJTIN— útvarp á mánudaginn kl. 17,20: Ævintýri á Kólerudögum „Höfundinum er ofarlega í huga hiö mikla misrétti manna á milli en sagan er svo full af mannlegri hlýju, nánast að segja mannást að unun er af,” sagði Guðni Kolbeinsson cand. mag. um nýja barnasögu sem hann byrjar að lesa á mánudaginn. Nefnist sú saga Vinur minn Talejtin og er eftir Olle Mattson. Guðni hefur einnig þýtt söguna. Við báðum hann að segja frá henni og höfundinum: „Mattson er sænskur, fæddur árið 1923. Hann lauk háskólaprófi árið 1948 og hefur síðan þá unnið fyrir sér sem óháður blaðamaður og rithöf- undur. Hann hefur skrifað fjöldann allan af barnabókum en mér er ekki kunnugt um að hann hafi skrifað neinar bækur aðrar. Bækur hans hafa verið þýddar á fjölda tungu- mála, ég sá í lista að nefnd voru lönd eins og Bandaríkin, Sovétríkin og Suður-Ameríka ásamt með löndum sem eru miklu nær okkur. Hann er mjög vinsæll höfundur í Svíþjóð og fékk til að mynda Nilla Hólmgeirs- sonar verðlaunin árið 1956. Það var fyrir bókina Briggskipið Bláliljan sem ég þýddi og las í morgunstund- inni í fyrra. Sú saga og önnur sem ég þýddi eru held ég þær einu sem þýdd- ar hafa verið af sögum Mattsons á is- lenzku og ekkert hefur komið út eftir hann. Þessi saga gerist í Gautaborg árið 1866. Þar geisar þá kólerufaraldur. Söguhetjan Sakarías missir móður. sína úr kólerunni og þar sem faðir hans hafði dáið þegar Sakarías var litið barn þykir honum vissara að flýja til þess að verða ekki settur á munaðarleysingjahæli. Hann ætlar að flýja alla leið til Ameríku. Hann kynnist undarlegum náunga, Talej- tin, sem segist vera af konungsætt- um, og jafnöldru sinni, Soffiu. Soffía ætlar einnig til Ameríku með drykkfelldum og heldur ömurlegum frænda sínum. Þau þrjú lenda saman og sitt í hverju lagi í ýmsum ævintýr- um, erfiðleikum og basli og er sagan ákaflega spennandi á köflum. Auk þess er hún verulega fyndin,” sagði Guðni Kolbeinsson. Sagan verður lesin á mánudögum og þriðjudögum í eftirmiðdaginn líkt og gert hefur verið með aðrar barnasögur útvarps- ins í vetur. - DS Guðni Kolbeinsson cand. mag. DB-mynd Bj.Bj. Hvar léztu sjónvarpsdag- skrána? Mig Iangar að vita hvað það er sem við nennum ekki að horfa á í kvöld. gerst barnakennari og kvænst Söshu, sem er af allt öðru sauöahúsi en hann. Þýðandi Hallveig Thorlacius. 23.45 Dagskrárlok. Sunnudagur 4. maí 18.00 Sunnudagshugvekja. Ingason, sóknarprestur hugvekju. 18.10 Stundín okkar. Meöal efnis: Séra Gunnþór Hafnarfírði, flytur Dregin veröur upp mynd af Hfí barna við sjóinn. Ámi Blandon les sögu og nemendur úr Hólabrekku- skóla fíytja frumsaminn leikþátt. Rætt er við börn á förnum vegi um vorprófín og fyrsta maí og kynnt sýning Leikbrúöulands á Sálinni hans Jóns míns eftir Davíð Stefánsson. Blá- mann og Binni eru á sínum stað. Umsjónar- maður Bryndis Schram. Stjórn upptöku Tage Ammendrup. 19.00 Hlé. 20.00 Fréttir og vedður. 20.25 Auglýsingar og dagskrá. 20.35 Íslenskt mál. Þetta er síðasti þáttur að sinni um íslenskt mál. Nú fer að vora og ýmsir fara að gera hosur sinar grænar og stíga i vænginn við elskurnar sinar, sem óspart gefa þeim undir fótinn og flýta sér á stefnumótin. Textahöfundur og þulur Helgi J. Halldórsson. Myndstjórnandi Guðbjartur Gunnarsson. 20.45 I dagsins önn. Lýst er vorverkum i sveitum fyrr á tímum. 21.00 1 Hertogastræti. Þrettándi þáttur. Þýöandi Dóra Hafsteinsdóttir. 21.50 Gömlu bióorgelin. „Þöglu” myndirnar voru ekki alltaf þöglar, þvi að á sýningum var iðulega leikið undir á svonefnd bíóorgel. Myndin fjallar um þessi sérkennilegu hljóðfæri og örlög þeirra. Þýðandi Sigmundur Böðvarsson. 22.20 Dagskrárlok.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.