Dagblaðið - 04.07.1980, Blaðsíða 1
t
rlayMaH
6. ÁRG. - FÖSTUDAGUR 4. JÚLÍ 1980 - 149. TBL.
RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AÚGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI1 l.-AÐALSÍMI 27022.
50% fóðurbætisskatturinn reiðarslag fyrir kjúklinga-, eggja- og svínabændur:
Kjúklingaverð til neytenda
gæti rokið upp í4000 krónur
— segir einn umsvif amesti kjúklingabóndi landsins
—skatturinn kemur þegar sízt skyldi, segir annar
Þeir voru sáttir og ánœnöir meó lífið þessir f’rísir sem riö hittum á Ásmundarstööum I fitcr, nýfarnir aö Uera átiö á kjarn-
fóörinu sem seinna á aö gera þá aö rerömætri röru. Þeir höföu ekki huf’mynd um aö þetta yœti reriö einn af siöari döf>unum
sem þeir f-œtu reitt sér þennan munaö. Þri meö nýja fóöurhætisskattinum rerður fáöriö sannarlef’ur munaöur og hann dýr.
Grísirnir rissu heldur ekki aö meö tilkomu hans yetur reriö aö enginn maöur hafi efni á aö kaupa þá sjálfa þeftar sá stóra
stund rennur upp. Menn kaupa já niðurf’reitt kindakjöt heldur en srínakjöt á uppsprenydu reröi. Kannski rar þaö eins f’ott
að f’rísirnir sáu ekki örlög stnfyrir. Sáu þaö ekki aö hrátt kann sro aöfara aö enyin srínakjötsframleiösla rerði I landinu og
engin kjúklingaframleiðsla heldur. Kannski heföu þeir þó ekki reriö neitt óánæyðir hefðu þeir ritað þettaþrí þeir hera auö-
vitaö haft sauöfjár og nautftripabænda fyrir sínu loöna hrjósti.
—sjá nánarábls.9 ■DS/DR-mynd: Sif;. Þorri.
„VEGIÐ AÐ SAM-
STARFSMÖNNUM”
segir Karvel Pálmason eftir átakafund
ímiðstjórn ASÍígær
„Þarna var vegið að okkur, sem
höfum verið í samstarfi við þá.
Alþýðubandalagsmenn gerðu tilraun
til að rifta því samkomulagi sem rikt
hefur milli þeirra og alþýðuflokks-
manna frá síðasta Alþýðusambands-
þingi,” sagði Karvel Pálmason
alþingismaður (A) i viðtali við DB í
morgun um átakafund sem varð i,
miðstjórn ASÍ í gær.
„Enginn alþýðubandalagsmaður
óskar eftir þvi að samstarfið við
alþýðuflokksmenn rofni,” sagði
Guðjón Jónsson, formaður Málm-
og skipasmiðasambandsins í viðtali
við DB í morgun. „En þegar kosnir
eru fulltrúar ASÍ i húsnæðismála-
stjórn, er ekki óeðlilegt að stuðnings-
menn ríkisstjórnarinnar -standi
saman. Það var rikisstjómin með
þrýstingi frá Alþýðubandalaginu sem
knúði frumvarpið um húsnæðis-
málastjórn i gegn nú fyrir þinglokin.
Þar er ákveöið að ASÍ kjósi tvo full-
trúa i húsnæðismálastjórn.”
Stjórnarliðar stóðu á miöstjórnar-
fundinum að framboði Björns Þór-
hallssonar (S) og Benedikts Davíðs-
sonar (AB), Karvel bar þá fram til-
lögu um Jón Helgason (A) og
Guðjón Jónsson (AB). Guðjón vildi
ekki vera í framboði, en Karvcl
neitaði að draga framboð hans til
baka. Við atkvæðagreiðsluna féllu
báðir alþýðubandalagsmennirnir.
Kjömir vom Björn með 11
atkvæðum og Jón mcð 8. Benedikt
fékk 7 og Guðjón 5. Guðjón fékk
atkvæði alþýðuflokksmanna fjög-
urra og liklega eins alþýðubandalags-
manna, scm þannig „sveik”
Benedikt. Ella hefði Benedikt getaö
orðið jafn Jóni og þurft hefði hlut-
kestieðaendurkosningu. -HH.
Forseta-
fundur
Þó þjóöin hafi kreöiö upp úrskurö sinn og Viftdís Finnhoftadóttir hafi siftraö i
kosninftunum um slðustu helpi er enn nokkur tími þar til Kristján Fldjárn lætur
formlcfta af emhætti forseta íslands. Fmbættisskiptin munu fara fram um næstu
mánaöamót. I ftær leit Viftdís Finnhoftadóttir rió i stjórnarráöinu oy ræddi stutt-
lcfta rið Kristján Eldjárnforseta á skrifstofu hans.
DB-mynd Raftnar Th.
Þorsteinn Thorarensen
með föstudagsgreinar í DB
Þorsteinn Thorarensen vakti mikla athygli fyrir hressilegar föstudagsgreinar.
fyrst i Visi og síðan i Dagblaðinu, fyrir nokkrum árum. Þorsteinn er aftur kominn
til leiks og mun um skeið skrifa fiistudagsgreinar í DB. Sú fvrstu birtist í dag.
sjábls. 1041
SJORALLIÐ1980
ALLT KVIKMYNDAÐ
Sjórallið 1980 sem hefst á morgun
verður að miklu leyti fest á kvik-
myndafilmu. Hefur Asgeir Long
verið fenginn til að taka kvikmynd af
þessari nýstárlegu, hörðu og krefj-
andi keppni sægarpanna tíu sem
þeysast kringum landið á 18—23 feta
fleyjum sínum.
Ásgeir tjáði DB að kvikmynda-
tökumenn yrðu tveir við upphaf ralls-
ins á morgun.
Fljúgandi kvikmyndatökumaður
eltir þá siðan kringum landið og
tekur myndir af þeim á öllum áfanga-
stöðum. Tveir nýir staðir bætast nú
í röð viðkomustaða, en það eru
Grímsey og Siglufjörður.
„Áætlunin er 25 mínútna kvik-
mynd,” sagði Ásgeir Long. „En
verkefnið er þannig að litlar áætlanir
er hægt að gera. Það er bara að taka
nóg og setja svo saman eftirá.”
Ráðgert er að myndin verði bæði
sýnd hérlendis og erlendis og verður
hún væntanlega til að örva fleiri til
þátttöku í þessari skemmtilegu sigl-
ingakeppni. -A.St.
— sjá nánar um sjórallið á bls. 8
Ásgeir Long, kvikmyndagerðarmaður mundar vélina, eins og hann á eftir að gera
alla næstu viku 1 Sjóralli DB og Snarfara.
vf-Wvv.'l -*