Dagblaðið - 04.07.1980, Blaðsíða 14
18
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 4. JÚLl 1980
'
AÐ BYRJA UPP A NYTT
—Nokkur orð um nýjustu mynd Alan J. Pakula sem ber heitið Starting Over
Fyrir ekki ýkja mörgum árum þótti
það hið mesta glæfrafyrirtæki í
Bandaríkjunum að gera kvikmynd
sem ekki fylgdi eftir hinni hefð-
bundnu Hollywood framleiðslu.
Samfélagsleg og persónuleg vanda-
mál voru talin slæmur efniviður,
tyrir kvikmyndir þótt evrópskir kvik-
myndagerðarmenn notuðu þetta efni
með góðum árangri. Það er nú eigin-
lega ekki hægt annað en að minnast á.
Ingmar Bergman í þessu tilviki því
áhrifa hans hefur gætt í ríkara mæli í
bandariskum kvikmyndum.
En áhugi almennings er að aukast á
myndum sem fjalla um vandamál
sem fólk verður að glíma við í dag-
legu lífi. Þessi þróun hefur verið hæg
en bitandi. Segja má að „konumynd-
irnar”, þ.e. myndir sem voru unnar
út frá sjónarhorni konunnar, hafi
hjálpað mikið til. Þær sköpuðu um-
tal og aðsóknin var það góð að
grundvöllur var fyrir framhaldi á
þessu. Gott dæmi um þessar myndir
eru Óglft kona (Unmarried Woman,
1978), leikstýrð af Paul Mazursky, og
Julla (1978) en henni leikstýrði Fred
Zinnemann. En engin þessara mynda
náði eins langt og Kramer vs. Kramer
sem nældi sér í óskarinn í ár. Hverj-
um hefði dottið í hug að mynd sem
fjallar um skilnaö og vandkvæði
föðurins við að ala upp ungan son
sinn yrði svona vinsæl. Þetta er
aðeins dæmi um ofangreinda þróun.
Hóplœkninga sam-
komur f ráskilinna
eiginmanna
En hvað um Starting Over, eða
Byrjað upp á nýtt, sem ætlunin var
að ræða um. Þessi mynd fjallar um
ung hjón sem eru að skilja. Hún
fjallar þó aöallega um baráttu hans
llér sjást hjónakornin meðan allt leikur I Ivndi.
Burt Reynolds gerir hér hosiir sinar
grænar fyrir Jill Clayburg.
viö að finna sjálfan sig eftir hjóna-
bandið. Einmanaleikinn sækir á því-
vinir og kunningjar eru flestir úr röð-
um giftra og hafa lítinn tíma aflögu.
Hann reynir ýmsa hluti eins og hóp-
lækningasamkomur fráskilinna eigin-
manna og þess háttar. En bróðir
hans, sem reyndar er sálfræðingur,
reynist honum best.
Síðan kemur rúsínan í pylsuendan-
um. í matarboði nokkru hittir hann
fráskilda konu. Hún er mjög köld
gagnvart honúm enda segist hún ekki
hafa áhuga á að stofna til nánari
kynna. Hún hafi loksins fundið sjálfa
sig og kunni því vel að búa út af fyrir
sig. En þetta reyndust innantóm orð
því ekki leið á löngu áður en þau voru
farin aö búa saman.
Burt Reynolds sýnir
frábæran leik
Myndin fjallar siðan um samband
þeirra bæði á- slæmum og góðum
augnablikum. Þau eru mjög varfærin
gagnvart hvort öðru því skilnaðurinn
er þeim báðum enn ferskur í minni.
Inn 1 þetta spilar svo fyrrverandi
eiginkona sem hann á erfitt með að
gleyma. jin eftir mikið sálarstríð
verður hann að taka af skarið.
Efnisþráðurinn hljómar nú ekkert
sérstaklega áhugaverður en ef Burt
Reynolds, Jill Clayburgh og Candice
Bergen eru í aðalhlutverkum og sjálf-
ur Alan J. Pakula við leikstjórn þá
veistu að myndin getur ekki verið
slæm. Pakula er iíklega einn af vand-
virkustu leikstjórum okkar tíma.
Hann gerir fáar myndir en þær eru
upp til hópa áhugaverðar og mjög
góðar. Til að gefa lesendum hug-
mynd um myndir hans þá má nefna
Klute (1971), Parallax View (1974) og
Allir menn forsetans (1976).
Hnyttin mynd
Eins og áður sagði bregst Pakula
ekki fremur en fyrri daginn. Þó er
þessi mynd ef til vill frábrugðin
öðrum myndum hans að einu leyti.
Hún er miklu hnyttnari og kemur
æði oft fyrir að áhorfendur skella
hressilega upp úr. Þetta er bæði
kostur og galli. Það er alltaf hættu-
legt að pakka myndum sem fjalla um
háalvarleg efni inn í umgjörð gaman-
myndar. Það sjá að vísu fleiri mynd-
ina en aðeins brot af áhorfendum
velta raunverulega vandamálinu fyrir
sér ef þeir á annað borð vilja taka
eftir því. Það má segja að Pakula og
handritahöfundurinn hafi farið milli-
veginn, báðir möguleikarnir eru
opnir.
Það er nú ekki hægt annað en að
fara lofsorðum um leikarana og þó
sérlega Burt Reynolds. Hann hefur
yfirleitt haft yfir sér glaumgosa- og
kvennabósaímynd en hér verður
hann að leika fráskilinn eiginmann
sem er að reyna að feta sig að nýju út
í lífið. Jill Clayburg virðist aftur á
móti komin í sama hlutverkið og hún
hafði í Ógift kona. Candice Bergen
sést ekki oft á hvita tjaldinu núorðið
en stendur fyrir sínu þótt hlutverkiö
sé ekki stórt. Og ekki má gleyma
Svíanum Sven Nykvist en hann virð-
ist vera orðinn óhemju vinsæll vestan
hafs og vera orðinn gæðastimpill á
þær myndir sem hann kvikmyndar.
Kvikmyndatakan er mjög hlutlaus
V
Kvik
myndir
svo áhorfendur gleyma varla efnis-
þræðinum yfir aðdáun á snotrum
myndhornum. Paramount dreifir
myndinni svo Háskólabíó verður sýn-
ingarstaðurinn.
Laugardagskvöld
leikinn sækir á. I
hringja?
— og einmana-
hvern er bezt að
Umsóknarfrestur
námslána
Umsóknarfrestur um haustlán veturinn 1980—
81 er til 15. júlí.
Áætlað er að afgreiðsla lánanna hefjist.
fyrir námsmenn ertendis 1. okt 1980
fyrir námsmenn á ísiandi 1. nóv. 1980
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu sjóðsins að
Laugavegi 77, afgreiðslutími er frá 1—4 e.h. Sími
25011.
Reykjavik 3.7.1980.
Lánasjódut ísJ. námsmanna.
SELJUMÍDAG:
BroncoR
árg. '76,
ekinn
aðeins
40 þús.
km.
Brúnn og hvítur — með útvarpi og
kassettutæki.
ToppbíU — Einstakt tækifæri.
TÖGGURHF.
SAAB UMBOÐIÐ
————— Bíldshofði 16 110 Revkiavík Simi 81530-
Þrjár þekktar fyrirsætur
Þær spanna tvo áratugi fyrir- börnin foreldra sína. Hver var Jean Shrimpton og Twiggy, í
sæturnar þessar. Urðu þær aDar Twiggy? En hver vissi þaö ekki fötum dæmigerðum fyrir þann
heimsfrægar á sínum tima þó nú fyrir örfáum árum? tima, er þær sýndu fatnað.
séu þær mörgum fallnar í En fyrirsæturnar eru, taldar'
gleymsku og dá, jafnvel spyrja frá vinstri Barbara Goalen,