Dagblaðið - 08.11.1980, Blaðsíða 23
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 1980.
23
C*
Útvarp
Sjónvarp
B
SLEPPUR JESSICA ÚT ÚR HIMNARÍKI?
— Löðrið í vanda statt
Katherine Helmond sem leikur Jessicu i
mótmælagöngu vegna skertra kjara
leikara.
Löðrið vekur víðar vinsældir en
hér á íslandi. í Danmörku er verið að
sýna Löðrið, örfáum þáttum á undan
þeim sem við fáum að sjá hér. í Sví-
þjóð er verið að sýna framhalds-
flokkinn Benson sem er um brytann
Benson úr Löðri. Hann þótti svo
áhugaverð pcrsóna að ákveðið var að
gera um hann sérstaka þáttasyrpu.
Ennþá erLöðrið þó í fullum gangi,
eða var þar til leikarar vestra fóru í
verkfall fyrir um það bil þrem mán-
uðum. Þegar það verkfall skall á var
nýbyrjað að taka upp þáttasyrpu sem
hætta varð við í miðju kafi.
í þeirri syrpu segir frá ferðalagi
Jessicu Tate til himna. Hún hittir í
himnaríki sjónvarpsstjörnuna Bea
Arthur, vængjum prýdda. En þrátt
fyrir að dýrð himinsins sé mikil og
Benson, sá elskaði bryti, fylgi Jessicu
vill hún samt komast til jarðar sem
fyrst. Hún fer þvi fram á viðtal við
himnaföðurinn þar sem hún biður
um framlengingu á jarðvist með
sínum elskuðu ættingjum. Ætlunin
var að áhorfendur fengju að sjá í
næsta þætti hvort sú bón yrði veitt en
verkfallið sá til þess að þeir eru í mik-
illi óvissu um framtíð Jessicu. Kemst
hún til jarðar eða staðnæmist hún til
langframa á himnum?
Katherine Helmond sem leikur
Jessicu sagði í viðtali við danska
blaðið Se og Hor að hún vissi ekki
svarið við þeirri spurningu. Hún
sagðist hafa verið ráðin allan tímann
sem taka þáttanna átti að standa en
hvort samningurinn væri fallinn úr
gildi núna vissi hún ekki. Hitt fer
ekki leynt að forráðamönnum sjón-
varpsstöðvarinnar finnst leikkonan
anzi dýr í rekstri. Hún fær meira
kaup fyrir leik sinn en nokkur hinna
leikaranna í þáttunum og finnst
mörgum þessi rauðhærða kona gera
helzt til miklar kröfur.
Se og Hor spurði Katncrine hvað
hún hygðist fyrir ef hún 'engi ekki
vinnu áfram. Hún saeðiM hafa nóg
að gera. Hún flytur fyrirlestra víða
um Bandaríkin um leiklist auk þess
Devr Jessica eða fær hún að lifa?
sem hún hefur undirritað samning
um leik í kvikmynd og sjónvarps-
þætli. i kvikmyndinni leikur hún
miðaldra konu sem uppi var á mið-
öldum. Hennar aðalfæða voru litlir
drengir sem hún sauð sér. í raunveru-
leikanunt er Katherine hins vegar
grænmetisæta og lítur ekki við soðn-
um, litlum drengjum.
- DS
LEITIN MIKLA - sjónvarp á morgun kl. 17,10:
Mótmælendur í Bandaríkjunum
Á sunnudaginn var hófst þrettán
mynda flokkur um helztu trúarbrögð
heims og heldur hann áfram á
morgun. Björn Björnsson guðfræði-
prófessor þýðir þættina og var hann
spurður um þá.
„Ég er reyndar ekki búinn að sjá
nema tvo þá fyrstu en mér sýnist eins
og reynt sé að taka á efninu á fróðleg-
an hátt án þess þó að það sé gert of
fræðilega. Þættirnir eru miðaðir
við almenning en ekki sérfræðinga.
í fyrsta þættinum var fjallað um
hindúasið. Umsjónarmaðurinn, sem
er Breti, fór um búsetustaði hindúa,
ræddi við þá og tók þátt i trúarat-
höfnum með þeim.
í þættinum á morgun er fjallað um
mótmælendatrú og er hann eingöngu
tekinn upp í Bandaríkjunum. Þriðji
þátturinn fjallar svo um trúarbrögð á
Sri Lanka, sá fjórði um Islam og sá
fimmti um kaþólska trú. Þannig er
ekki stuðzt við þá röð sem þessi
trúarbrögð hafa komið fram í.
Það er greinilegt að umsjónar-
maðurinn vill láta trúarbrögðin tala
sinu máli sjálf og leggur sem minnsta
túlkun í þau frá sjálfum sér,” sagði
Björn.
- DS
n
Þátturinn um trúarbrögö heims fjall-
ar á sunnudaginn um mótmælenda-
trú i Bandarikjunum. í því fjöl-
breytta samfélagi sem þar er þrífast
hvers konar afbrigöi af trú og trúar-
iðkun. Þessi prestur notar til dæmis
búktal i gegnum brúðu til þess að
koma boðskap sinum á framfæri.
SÍMAVARZLA
Hampiðjan hf. leitar að stúlku til símavörzlu, vélritunar og
fleiri skrifstofustarfa. Þarf hún að kunna nokkuð fyrir sér í
dönsku, ensku og vélritun, vera þægileg í umgengni og at-
hugul. Þær sem áhuga hafa vinsamlegast sendi umsókn til
fyrirtækisins merkt „Símavarzla” og komi þar fram helztu
upplýsingar svo sem aldur, menntun og fyrri störf.
Hampiðjan hf.
Leikendur í Leysingu ásamt Benedikt Arnasyni leikstjóra og Gunnari M.
Magnúss sem bjó söguna i leikritsbúning.
DB-mynd Einar Ólason.
LEYSING - útvarp á morgun kl. 16,20:
SÖGULOK
Á morgun kl. 16.20 verður flutlur
6. og síðasti þáttur af framhaldsleik-
ritinu Leysing eftir Jón Trausta og
Gunnar M. Magnúss. Nefnist hann
Dansinn kringum gullkálfinn og er 72
mínútna langur. Leikstjóri er Bene-
dikt Árnason en í helztu hlutverkum
eru Róbert Arnfinnsson, Jón Sigur-
björnsson og Rúrik Haraldsson.
Tæknimenn eru Hreinn Valdimars-
son og Runólfur Þorláksson.
í 5. þætti sagði frá ferðalagi Þor-
geirs inn til dala með Jóni kaupa og
bréfi sem faktorinn fékk þar sem
krafízt var að hann greiddi allar
skuldir verzlunarinnar. Hann gekk
hart að bændum við réttirnar
hafði ekki erindi sem erfiði.
SUMARAUKI — útvarp
annað kvöld kl. 21,20:
Bragi Sig-
urjónsson
sjötugur
Bragi Sigurjónsson fyrrverandi ráð-
herra er sjötugur á morgun. í því tilefni
ætlar útvarpið honum sérstaka dagskrá
annað kvöld. Séra Bolli Gústavsson
ræðir við Braga, Hjörtur Pálsson les úr
bókum hans og Bragi fer með nokkur
óbirt ljóð. Einnig verða sungin lög við
Ijóð hans.
Bragi er fæddur að Einarsstöðum í
Reykjadal. Hann var landskjörinn á
þing árið 1957 og sat þar meira og
minna fram til ársins 1979. Meðal ann-
ars var hann landbúnaðarráðherra í
stjórn Alþýðuflokksins þá fjóra mán-
uði sem hún sat til bráðabirgða um ára-
mótin 1978—79.
Þroskaþjálfaskóli
íslands
heldur námskeið til endurmenntunar fyrir þroskaþjáll'a á
tímabilinu febrúar — maí 1981.
Væntanlegir þátttakendur skrái sig fyrir 1. desember nk. í
skrifstofu skólans sími 43541, eða á þriðjudögum kl. 17 til
19 í skrifstofu Félags þroskaþjálfa Grettisgölu 89, sími
29678.
Skólastjóri
SÝNING
Iðnaðarmannafélagsins
f Reykjavík
á munum úr tré í tilefni „árs trésins” 1980 verður
opnuð í dag kl. 15 í Húsi iðnaðarins, Hallveigar-
stíg 1. Opið daglega kl. 16 til 21 og um helgar kl.
14 til 22.
Framkvæmdanefndin.
Auk þingmennskunnar hefur Bragi
fengizt við kennslu, tryggingastörf og
bankastörf. Hann var um árabil banka-
stjóri Útvegsbankans á Akureyri.
Eftir Braga hafa komið út nokkrar
bækur, bæði Ijóðabækur, þýðingar á
verkum annarra og bækur fræðilegs
eðlis. Bragi kvæntist árið 1936 Helgu
Jónsdóttur.
- DS
VELKOMIN TIL HVERAGERÐIS
Breiðumörk 12 Simi 4225 (Aður Blómaskáli Micheisen)
Tilboðsverð um helgina
Glænýir tómatar 1500 kr. pr. kg.
Blómstrandi jólastjörnur kr. 6000.
Japanskir listmunir
af öllum
afsláttur pottablómum