Dagblaðið - 22.05.1981, Blaðsíða 7

Dagblaðið - 22.05.1981, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 22. MAÍ1981. 7 Jónas Pélursson: „Min skoðun er sú að meirihluti þingflokks Sjálfstæðls- flokksins hafi gert hörmuleg mlstök við stjórnarmyndunina." Jónas Pétursson, fv. þingmaður Sjátfstæðis- flokksins: Undrast ekki þessa útkomu — óskaplegur styrjaldar • braguráeinstaka mönnum „Ég undrast -alls-éHcT þessa út- komu,” sagði Jónas Pétursson, fv. alþingismaður Sjálfstæðisflokksins. „Hitt er svo annað mál hvað mikið er hægt að byggja á henni. Úrtakið hefði þurft að vera stærra. En hér eru þeir nefndir sem helzt koma til greina sem foringjar. Líta verður svo á að þau tæpu 33%, sem ekki taka afstöðu til armanna, telji ágreininginn ekki veru- legan eða þannig að hægt sé aö brúa bilið. Það er annars merkilegt hve góð samsvörun hefur verið í könnunum Dagblaðsins. Hvað varðar forystumál Sjálfstæðis- flokksins þá vita allir mina afstöðu. Ég hef verið eindreginn stuðningsmaður þessarar ríkisstjórnar. Ég hef þó haft þá von að stríöandi öfl næðu saman í flokknum. En það er óskaplegur styrj- aldarbragur á einstaka mönnum. Mín skoöun er sú að meirihluti þing- flokks Sjálfstæðisflokksins hafi gert hörmuleg mistök við stjórnarmyndun- ina. Ég gerði mér grein fyrir þvi árið 1979 að Gunnar Thoroddsen væri eini maðurinn sem gæti myndað stjórn. Framsókn var sigurvegari og vegna öf- undar gátu menn ekki hugsað sér að framsóknarmenn fengju forsætisráð- herrann að auki. Alþýðuflokkurinn var búinn að dæma sig úr leik með þvi að • sprengja vinstri stjórnina. Alþýðu- bandalagið kom aldrei raunverulega til greina og kosningastjórn Sjálfstæðis- flokksins var með þeim eindæmum að Geirsarmurinn spilaði sig út. Gunnar var aldrei meö i þessari kosningastjórn og naut þess, auk hæfl- leika sinna. Þetta áttu þingmenn Sjálf- stæðisflokksins að sjá eftir rassskellinn í kosningunum, auk þeirrar hörmulegu ólánsgöngu að bola Jóni Sólnes út og sprengja á Suðurlandi.” -JH. Ummæfí um könn- un á örmum Sjálf- stæðisfíokksms Hvaða arm Sjálfstæðisflokksins telur þú þig helzt styðja? spurði Dag- blaðiö yfirlýsta fylgismenn Sjálf- stæðisflokks i skoðanakönnun fyrr i þessum mánuði. Spurningunni var ætlað að leiða i ljós hvort kjósendur flokksins almennt litu á hann sem skiptan f arma og þá hvernig stuðningsmenn skiptust á armana. 32.9% viömælenda tóku ekki afstöðu til armanna eða litu svo á að engir armar væru yfirleitt til. 41.1% lýstu stuöningi við Gunnarsarm, 20% studdu Geirsarm og 5.9% studdu arm kenndan við Albert Guömunds- son. Alls voru það 170 manns sem Ientu f umræddu úrtaki viðmælenda. Haukur Helgason aðstoöarritstjóri DB benti á það i blaöinu i gær að frá- vik i könnun með svo fámennu úrtaki gætu verið veruleg. Hann sió þó föstu að niðurstaðan um röð manna á „vinsældalista” sjálfstæðismanna væri rétt: Að armur Gunnars nyti mests trausts, armur Geirs kæmi næsturo.s.frv. Dagblaðið hafði í gær samband við nokkra sjálfstæðismenn af yngri og eldri kynslóðinni og bað þá aö tjá sig 1 fáum orðum um niðurstöðu könnunarinnar. -ARH. r Halldór Hermaimsson, skipstjóri á Isafirði: „Líf stjómarínnar er mik- ilvægara en flokksþingið” „Niðurstöðurnar koma þægilega á óvart,” sagði Halldór Hermannsson, skipstjóri á ísafirði. Hann er flokks- bundinn sjálfstæðismaður og hefur blandað sér í umræður á opinberum vettvangi um forystumál flokksins og rikisstjórnarþátttöku hluta flokks- manna. ,,Ég hefði ekki reiknað með að staðan væri svo ótvfrætt Gunnari í hag. Þó hef ég alltaf verið þess fullviss að við stjórnarsinnar i Sjálfstæðisflokkn- um séum ofan á f fylgi meðal fólksins. Þar á ég bæði við flokksbundna og ófiokksbundna sjálfstæðismenn. Kjós- endur vilja að rfkisstjórnin fái að reyna sig út kjörtimabilið. Ég er ekkert hræddur við Alþýðubandalags-grýluna sem Morgunblaðið og Vísir hafa búið til. Við höldum okkar skoðunum í þessari stjórn ekkert sfður en í öðrum ríkisstjórnum. Við stjórnarsinnar erum ekki á neinum klofningsbuxum. En rikis- stjórnin á að lifa áfram. Við ætlum ekki að verzla með hana á flokksþing- inu í haust. Líf stjórnarinnar er miklu mikilvægara en flokksþingið.” -ARH. Halldór Hermannsson: Ekkert hrædd- ur við Alþýðubandalags-grýlu Mogg- ans og Vlsis. Jón Ásbergsson, framkvæmdastjórí á Sauðárkróki: „Verð var við dvínandi fylgi ríkisstjómarínnar” „Það er ástæðulaust að neita tilvist hópa meö mismunandi afstöðu til forystumanna í Sjálfstæðisflokknum. Ég fer ekki dult með að ég styð Geir Hallgrimsson og hef alltaf gert. Jafn- framt tek ég fram að ég er ekki and- vfgur neinum öðrum forystumönnum flokksins,” sagði Jón Ásbergsson, Jón Ásbergsson: Styð Geir Hallgrfms- son og hef alltaf gert. framkvæmdastjóri Loðskinns á Sauðárkróki. Jón er nýkjörinn for- maður Sjálfstæðisfélagsins á Krókn- um. „Ég er eölilega ekki sérlega ánægður með útkomuna í skoðanakönnun Dag- blaösins, sé eitthvert mark á henni tak- andi. Ég þykist verða var viö dvínandi fylgi ríkisstjórnarinnar og stjórnar- sinna í flokknum. Færri taka upp hanzkann fyrir stjórnina en áður sakir almenns úrræðaleysis hennar. Hún er ekki færari en fyrri ríkisstjómir til að Ieysa vanda okkar.Hér eru engir töfra- menn á ferðinni.” -ARH. Ámi Sigfússon, formaður Heimdallar: „Gefurtilkynnaað skiptar skoðanir séu um forystumálin” „Gunnar Thoroddsen taldi lítið mark takandi á ályktun tæplega 600 sjálfstæðismanna á nýafstöðnum aðal- fundi Heimdallar. Þar var ályktað gegn veru nokkurra sjálfstæðismanna í ríkis- stjórn ” sagði Árni Sigfússon blaða- maður, formaður Heimdallar. „Varla getur 170 manna úrtak í Dag- blaðskönnuninni talizt marktækara. Auk þess sem margir vildu ekki svara. Niðurstöðurnar gefa þó til kynna skipt-* ar skoðanir um það hver forystumanna flokksins sé hæfastur. Það er alls ekki óeðlilegt í svo stórum flokki sem Sjálf- stæðisflokkurinn er.” -ARH. Ámi Sigfússon: Finnst Gunnari meira mark takandi á könnun með 170 mönn- un en ályktun 600 manna? -DB-mynd: Sig. Þorri. TOYOTA- SALURINN SÍMI44144 Nýbýlavegi 8 (bakhús) Opið laugardaga kl. 13—17 Toyota Corolla árg. '80. 2ja dyra, beinsk. Ekinn 14.000 km. Litur: Silfur. Verð: 84.000.- Beln sala. aasa* . loyota Coroiia '77 KE-30. Ekinn: 42.000. Gulur.Verð: 49.000.- '"■» Toyota Carina Grand Lux árg. ’78. Litur: silfur-sanseraður. Ekinn: 57.000. Verð: 73.000.- Toyota Corolla Lift Back ’78. Sjálfsk., Ekinn aðeins 19.000 km. Litur: blár metalic. Verð: 75.000. Toyota Crown DL árg. ’75. Ekinn: 66.000. Litur: Gul-beige. (Nýtt lakk.) Verð: 58.000.- Toyota Cressida ’78. Ekinn: 68.000. Litur: Gold metalic. Verð: 75.000.- Toyota Crown Super Saloon árg. ’80. Ekinn: 6.000 km. Litur: brúnn metalic. Verð: 180.000,- Rafm. rúður og læsingar, 4ra gira sjálfskipting, útvarp og kassettutæki. Toyota Carina árg. ’75. Ekinn: 72.000. Silfurgrár. Verð: 42.000. Toyota Starlet 1000 DL árg. ’79. Ekinn: 40.000. Litur: gulur. Verð: 58.000,- ATH. Okkur bráö- vantar allar geröir Toyota- bifreiöa á sölu- skrá.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.