Dagblaðið - 22.05.1981, Qupperneq 13
12
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 22. MAÍ1981.
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 22. MAÍ1981.
21
I
íþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Sigurvegararnir á Eskifjarðarmótinu. Lengst til hægri er Guðný Aradóttir, formaður
skíðaráðs Austra á Eskifirði. Guðný er mjög áhugasöm skiðakona og fer með börn
sin á skiði þó ung séu. Guðný varð fvrir þvi siysi í vetur aö fótbrotna en mánuði síðar
var hún komin með börn sin á skíði um hverja helgi. Hún vinnur fullt starf á bæjar-
skrifstofunni á Eskifirði.
DB-mynd Emil.
Keppendur f rá sex félögum
á Austurlandsnwti f Oddsskarði
,,Þar sem engin úrsllt hafa birzt og
litlar fréttir hafa veriö frá skíöastöðum
hér austanlands vœri gaman að fá þessi
úrslit í Dagblaöiö,” sagði Guöný Ara-
dóttir, formaður skíöaráös Austra á
Eskifiröi, við Regínu, fréttaritara DB á
Eskifirði. Regína sendi okkur úrslitin
og við birtum þau meö ánægju. Þau
eru frá Austurlandsmóti 12 ára og
yngri, sem haidiö var í Oddsskaröi
17.—18. apríl si.
STÓRSVIG:
7—8 ára drenglr:
1. Smárl Brynjarsson Seyðlsflrðl
2. Bjöm Kristjánsson Eskiflrði
3. Daniel Arason Neskaupstað
52,70
53,52
54,37
7—8 ára stúlkur:
1. Anna María Bogadóttir Eskifirði 56,16
2. Heiðrún Jónsdóttir Seyöisfiröi 56,30
3. Lilja Andrésdóttir Eskifirði 61,30
9—10 ára drengir
1. Guttormur Brynjólfsson Egilsstöðum 57,97
2. Sœvar Guðjónsson Eskifirði 61,35
3. Kári Hrafnkelsson Egilsstöðum 62,02
9—lOára stúlkur
1. Gerður Guðmundsdóttir Neskaupst. 63,70
2. Hildur Þorsteinsdóttir Fáskrúðsf. 65,31
3. Rósa Erlingsdóttir Egilsstöðum 66,53
11—12áradrenglr
1. Birkir Sveinsson Neskaupstað 73,60
2. Þorsteinn Lindbergsson Neskaupstað 76,40
3. Óskar Garðarsson Eskifirði 79,60
11—12 ára stúlkur
1. Gunda Vigfúsdóttir Neskaupstað 81,60
2. Ama Borgþórsdóttir Eskifirði 83,20
3. íris Bjamadóttir Seyðisfirði 84,10
ÚRSLITISVIGI:
7—8 ára drengir:
1. Bjöm Kristjánsson Eskifirði 58,97
2. Smári Brynjarsson Seyðisfirði 60,22
3. Guðmundur Vigfússon Neskaupstað 65,18
7—8 ára stúlkur:
1. LUja Andrésdóttir Eskifirði 64,21
2. Helðrún Jónsdóttir Seyðisfiröi 67,42
3. Anna Maria Bogadóttir Eskifirði 68,60
9—10 ára drengir:
1. Guttormur Brynjólfsson Egilsstöiium 58,42
2. Kristjánöm Kristjánsson Neskaupst. 62,97
3. Hreinn Jóhannsson Neskaupstað 67,88
Mikið mannlíf í vetur
í skíðalandinu f Oddsskarði
Mikið lif hefur verið i skiðalandinu i
Oddsskarði i vetur. Það hafa verið i
gangl tvser lyftur, önnur 800 m löng
diskalyfta, sem rekin er af bæjarfélög-
unum á Eskifirði, Neskaupstað og
Reyðarfirði. Hin, litla lyftan sem köll-
uð er, er ca 25 cm togbraut sem rekin er
af Skiðaráði Austra á Eskifirði.
Fyrir utan að sjá um rekstur á þessari
lyftu, sem mest er sótt af byrjendum og
börnum, hefur Skiðaráð Austra séð um
aðrar framkvæmdir varðandi skiða-
iþróttina á Eskifirði.
Hefur það staðið fyrir þó nokkrum
Start startaði með sigri
— í 1. deildinm íNoregi
Fyrsta umferðin i 1. delld norsku
knattspyrnunnar var háð um helgina —
leiknir fimm leikir af sex. Áhorfendur
að leikjunum voru marglr, 40.257 eða
rúmlega átta þúsund að meðaltall. ílr-
slit urðu þessi:
Ham-Kam—Lilleström
Haugar—Bryne
Moss—Start
Vlking—Brann
Valerengen—Lyn
2—2
1—1
0—1
2—0
3-0
Noregsmeistarar Start byrjuðu vel.
Sigruðu i Moss. Flestir áhorfendur
voru í Stavanger eða 10.975, þegar Vík-
ingarnlr hans Tony Knapp sigruðu
Bergen-liðið Brann. Næstflestir eða
10.664 sáu vlðureign Osló-liðanna Val-
erengen og Lyn á Bislet-leikvanginum.
Fresta varð leik Rosenborg og Fredrik-
stad á Lerkendal-vellinum i Þránd-
heiml. Ekki kemur tii mála hjá norsk-
um að leika i 1. deildinni á malarvöll-
um.
ÞJÁLFARI
óskast til 3ju deildarliðs Reynis, Sandgerði, í handknatt-
leik. Æskilegt að hann sé einnig leikmaður.
Uppl. veita: Heimir Morthens, sími 92-7600, og
Grétar Mar Jónsson, sími 92-7473.
mótum f vetur sem örvað hefur áhuga
ungra skfðamanna og kvenna. Með til-
komu aðstöðunnar i Oddsskarði hófst
mikii og góð samvinna með Eskfirðing-
um og Norðfirðingum og árangurinn i
vetur sameiginlegt svlgmót og sam-
vinna um framkvæmd Austuriands-
móts 12 ára og yngri sem haldið var i
Oddsskarðslandi 17.—18. april.
í samvinnu við skólayfirvöld á staðn-
um var ráðinn hlngað skiðakennari,
Helgi Geirharðsson, og dvaldist hann
hér i tvær vikur. Mikil og almenn
ánægja var með skíðakennslu hans
jafnt hjá ungum sem öldnum. Er það
ósk okkar hér að brátt munum við sjá
okkur fært að hafa skfðakennara mest-
an hluta skiðatimabilsins og mun
skfðaiþróttin þá fyrst standa jafnfætis
öðrum fþróttagreinum s.s. kantt-
spyrnu.
Það varð okkur til bjargar i vor að
Norðfirðingar fengu heim frá Noregi
Ingólf Sveinsson og tók hann að sér
þjálfun keppniskrakka fyrir Austur-
landsmót og Andrésar andar leika en
þar áttu Eskfirðingar 9 keppendur.
Þess má svo geta að skiðavertiðinni
lauk hjá okkur með Eskifjarðarmóti
þann 10. maf og er það okkar stærsta
innanfélagsmót. Að þessu sinni hlaut
Jón Trausti Guðjónsson farandbikar-
inn sem veittur er fyrir aipatvikeppni
hvert ár.
Efst i hugum okkar við samantekt
vetrarstarfsins er þakklæti til allra
þeirra sem veitt hafa okkur lið f vetur.
Skfðaráð Austra.
9—10 ára stúlkur:
1. Benný íslelfsdóttir Eskifirði 65,31
2. Gerður Guömundsdóttlr Neskaupstað 69,26
3. Bylgja Jensdóttir Seyðisfirði 69,64
11—12 ára drengir:
1. Birkir Sveinsson Neskaupstað 55,00
2. Þorsteinn Lindbergsson Neskaupstað 58,20
3. Óskar Garðarsson Esklfirði 59,90
11—12ára stúlkur:
1. Þórey Haraldsdóttir Neskaupstað 62,00
2. Ama Borgþórsdóttir Eskifirði 64,90
3. Gunda Vigfúsdóttir Neskaupstað 65,00
GANGA
11—12ára drengir:
1. Birkir Sveinsson Neskaupstað 6.33,31
2. Siguröur Finnsson Seyöisfirði 7.53,96
3. Hallgrimur Jónasson Seyðisflrðl 8.16.02
ÚRSLIT í STIGAKEPPNIFÉLAGA
Yngri flokkar:
1. Þróttur Neskaupstað 106 stig
2. Austri Eskifirði 79 stig
3. Huginn Seyölsfiröi 53 stig
4. Höttur EgUsstöðum 37 stig
5. Leiknir Fáskrúðsfirði 7 stig
6. Hrafnkell Freysgoðl Breiðdalsvik 3 stig
íþróttir
„Kærkommn sigur og mörkin
hefðu átt að vera fleiri”
- sagði Gunnar Gíslason, leikmaður KA, eftír að lið hans hafði sigrað KR á Melavelli
Ilrottaleg mistök hins unga mark-
varðar KR, Stefáns Jóhannssonar,
færðu KA frá Akureyri bæði stigin i
viðurelgn KR og KA i 1. deild á Mela-
velii i gær. Fimm min. fyrir leikslok var
knettinum spyrnt langt fram á valiar-
helming KR, Stefán hijóp úr marki sinu
i alveg vonlausri stöðu og út fyrir vita-
teiginn. Hinrik Þórhallsson, hinn leik-
reyndi leikmaður KA-Iiðsins, varð
fyrstur að knettinum og sá að marldð
var opið. Spyrnti hátt yfir Stefán
markvörð um 30 metra frá markinu.
Knötturinn small niður rétt fyrir
framan marklinuna og hoppaði upp i
þaknetið. Ódýrt mark en vel að hlutun-
um staðið hjá Hinrik, sem siasaðist i
samstuði við einn KR-ing og kastaðist i
völlinn. Sá þvi ekld, þegar knötturinn
hafnaði i markinu. Meiðslin reyndust
svo slæm að hann var borinn af velli,
nefbrotinn. Mjög sanngjarn sigur
Akureyringa. Þeir voru sterkari aðilinn
ailar leikinn. y
„Þetta var kærkominn sigur. Það
kom mér þó á óvart hve lið okkar náði
vel saman og hafði mikla yfirburði, því
þrjá sterka menn vantaði, þá Elmar
Geirsson, Gunnar Blöndal og Jóhann
Jakobsson. Við áttum að sigra með
meiri mun,” sagði Gunnar Gíslason,
hinn eitilharöi leikmaður KA eftir leik-
inn.
Það er rétt hjá Gunnari. KA hafði
umtalsverða yfirburði nær allan leik-
inn. Leikmenn liðsins voru fljótari á
knöttinn, ákveðnari og voru ekki að
reyna neitt „dúkkuspil” á malarvellin-
um. Smáspil KR-inga gafst illa og kom
þeim oft i klípu, sem þeir sluppu þó
frá. Slík leikaðferð getur ekki heppnazt
á örmjóum Melavellinum en það getur
eflaust orðið gaman að sjá KR-liðið,
þegar á grasið kemur. Margjr leikmenn
liðsins leiknir vel en það verður að haga
leikaðferð eftir aðstæðum hverju sinni.
Það gerðu KR-ingar ekki og voru
reyndar heppnir að tapa þessum leik
ekki með meiri mun.
Allan fyrri hálfleikinn vai knötturinn
nær stanzlaust á leikvelli KR — KR átti
aðeins þrjú upphlaup, sem hægt var að
nefna því nafni. Óskar Ingimundarson
fékk reyndar gott færi rétt fyrir leikhlé-
ið en spyrnti framhjá. Hættan var við
KR-markið og stórgóð markvarzla
Stefáns kom i veg fyrir mörk KA.
Hann var bezti leikmaður KR-liðsins
þrátt fyrir slysamarkið. Ásbjöm
Björnson, miðherji KA og fyrirliði ísl.
unglingalandsliðsins í fyrra, er snjall
leikmaður og gerði KR-ingum erfitt
fyrir ásamt Hinrik og Gunnari Gísla-
syni. Ásbjöm átti skalla rétt framhjá
marki KR, Stefán varði mjög vel frá
Gunnari, og síðan skalla frá Ásbirni
eftir góða aukaspyrnu Guðjóns
Guðjónssonar bakvarðar, áður IBK, en
hann var einn bezti maður KA. Sjálfur
Stefán Gunnarsson „kominn heim”
Tveir aðrir lands-
liðsmenn til Vals
Handknattleiksdeild Vals hefur
feneið góðan liðsstyrk. Stefán Gunn-
W 8
Stefán Gunnarsson veifar Valsmönn-
um á ný.
arsson, sem var þjálfari og leikmaður
Fylkis siðasta keppnistimabil, hefur til-
kynnt félagaskipti aftur yfir i Val.
Segja má þvi að fyrirliðl Vals um langt
árabil sé kominn heim.
Þá var í gærkvöld gengið frá félaga-
skiptum Friðriks Jóhannssonar, Ár-
manni, og Jóns Gunnarssonar, Fylki,
yfir í Val. Þeir höfðu báðir skrifað
undir félagaskiptin fyrir nokkrum
dögum.
Jón Gunnarsson hefur verið bezti
leikmaður Fylkis mörg undanfarin ár.
Snjall markvörður og Valsmönnum
mikill fengur að fá hann í sínar raðir
eftír að Ölafur Benediktsson gekk yfir
i Þrótt. Valsmönnum er mikil eftírsjá í
Ólafi. Friðrik er góður leikmaður og
hefur skorað mikið af mörkum með
Ármanni undanfarin ár. Jón Gunnars-
son og Friðrik hafa báðir leikið í ís-
lenzka landsliöinu i handknattleik og
Stefán Gunnarsson er gamalreyndur
landsliðsmaður með 57 landsleiki.
-hsim.
átti Guðjón skot rétt yfir KR-markið.
Framan af siðari hálfleiknum voru
KA-menn sterkari en svo gerði Man-
fred Steves tvær breytingar á liði sínu.
Setti þá Snorra Gissurarson og Sigurð
Indriðason inn á í stað Birgis Guðjóns-
sonar og Davíðs Skúlasonar. Aðeins
meiri broddur kom í leik KR og Atli
Þór Héðinsson var færður fram í mið-
herjastöðuna. Sæbjörn Guðmundsson
komst frír í gegn á 74. mín. Spyrnti á
markið. Aðalsteinn Jóhannsson varði.
Beinlínis settist á knöttinn. Síðasta
stundarfjórðunginn fór nokkurrar
þreytu að gæta hjá leikmönnum KA.
Greinilegt að þeir sættu sig við jafntefli
en svo kom tækifærið óvænta, sem
Hinrik nýtti vel. KR-ingar reyndu að
jafna þær mln. sem eftir lifðu og einum
varnarmanni KA tókst þá að komast I
veg fyrir knöttinn á síðustu stundu,
þegar Óskar var kominn í færi, Auk
þeirra leikmanna, sem áður eru nefndir
I KA-liðinu, sýndu þeir Eyjólfur
Hjólað íþágu þeirra
sem ekki geta hjólað
—Hjóireiðadagur í Reykjavík á sunnudag
Patrick Sercu.
Daninn
hélt titlmum
Dansld Evrópumeistarinn í welter-
vigt i hnefaieikum, Jörgen Hansen,
varði titil sinn i Kaupmannahöfn i gær.
Áskorandinn var Richard Rodrigues
frá Frakklandi en hafðl ekld erindi sem
erfiði. Daninn hélt titli sinum. Vann á
stigumi 12 lotum.
Á sunnudaginn verður hjólreiðadag-
ur í Reykjavík og er búizt við að aliir
sem vettlingi geta vaidið, og sérstaklega
hjóium, verði með og hjóli sjálfum sér
til heilsubótar og styrld jafnframt gott
málefni. Allt söfnunarféð vegna hjól-
reiðadagsins rennur óskipt til eflingar
útivist og íþróttum fatlaðra barna á
þessu ári fatlaðra.
Lögreglan hefur útbúið tíu leiðir I
höfuðborginni frá jafnmörgum skólum
og sameinast hóparnir á Laugardals-
velli. Hver þátttakandi safnar áheitum
áður en lagt er af stað og kemur með
áheitakortin og peningana með sér í
Laugardal, þar sem hann fær viður-
kenningar fyrir vikið.
Hjólreiðadagurinn hefur verið ræki-
lega kynntur að undanförnu og fylgja
félagar úr hjólreiðaklúbbi Reykjavíkur
öllum hópum. Þá mun lögreglan sjá til
þess að hjólreiðafólkið fái að hjóla
óáreitt um götur borgarinnar og eru
ökumenn beðnir um að sýna tillitssemi.
Með fjölmennasta hópnum hjólar einn
frægasti hjólreiðamaður heims, Belgíu-
maðurinn Patrick Sercu, og á Laugar-
dalsvelli ætla íslenzkir hjólreiðamenn
að etja kappi við hann.
Á Laugardalsvelli verður ýmislegt til
skemmtunar auk hjólreiðakeppninnar,
hljómsveitin Start leikur af miklu fjöri,
Eiríkur Fjalar ávarpar þátttakendur og
Texas-trióið slær á létta strengi. Margir
leggja hönd á plóginn til að gera hjól
reiðadaginn að merkum atburði. Fyrir
tækið Hjól og vagnar lætur alla kepp-
endur hafa sérstök keppnisnúmer,
Svölumar, félag fiugfreyja, aðstoðar
konur úr styrktarfélagi lamaðra og fatl-
aðra við afhendingu á viðurkenning-
um, Coca Cola-fyrirtækið býður öllum
þátttakendum upp á hressingu að leiks-
lokum. Allir skemmtikraftar koma
fram endurgjaldslaust. Það verða von-
andi „alliráhjólum” ásunnudaginn.
Lagt er af stað frá eftirtöldum
skólum á sunnudaginn klukkan 14 en
þátttakendur þurfa að vera mættir
klukkan 13:
Hagaskóla, Hvassaleitisskóla, Hlíða-
skóla, Langholtsskóla, Árbæjarskóla,
Seljaskóla, Fellaskóla, Laugarness-
skóla og Réttarholtsskóla.
Hinrík Þórhallsson — sigurmarldð
kostaði nefbrot.
Ágústsson og Friðfinnur Hermannsson
á stundum góð tilþrif. Það verður
áreiðanlega erfitt að sækja KA-menn
heim í sumar. Hjá KR voru það helzt
Börkur Ingvarsson og Sigurður Péturs-
son, sem gerðu góða hluti auk Stefáns.
Óli Olsen góður dómari.
-hsim.
„Verðuraðtaka
út refsingu”
— sagði Jupp Derwall,
þýzki landsliðseinvaldur-
inn ígærum Schiister
„Hann verður að taka út sina refs-
ingu, ég vil ekki að komið sé fram við
mig á þennan hátt,” sagði Jupp Der-
wall, landsliðseinvaldur V-Þýzkalands i
knattspyrnunni, i Frankfurt i gær, þeg-
ar Ijóst var að Bernd Schuster var
kominn á ný til Þýzkalands. Derwall
hafði sett þennan sterka landsliðs-
mann, sem er 21 árs, úr iandsliði sinu i
HM-leikinn gegn Finnlandi á sunnu-
dag. Það var vegna agabrots eftir
landsleik V-Þýzkalands og Brasiliu.
Schiister ieikur með Barcelona og er
einn albezti leikmaður þýzka landsliðs-
ins. Hann hefur áður átt i útistöðum
vegna agabrota en Derwall tekið hann i
sátt.
,,Ég mun ekki ræða við Derwall fyrr
en þetta fer að róast. Sjá hvað skeður
en það á ekki að vera min ákvörðun
hvort DFB (þýzka knattspyrnusam-
bandið) vill fá mig aftur i þýzka lands-
liðið,” sagði Schiister við blaðamenn i
gær samkvæmt frétt Reuters-frétta-
stofunnar.
Keflvíkingar afgreiddu
Hauka á tveimur mín!
—sigruöu 6-1 eftir að jaf nræði hafði verið framan af
Eftir að Keflvíkingar einu sinni tóku
forystuna gegn Haukum á grasvelllnum
í Hvaleyrarholtinu í gærkvöld var
aldrei nein spurning um. sigurvegara i
ieiknum. Keflavík bókstaflega réði
lögum og iofum út leiktimann og sigr-
aði 6—1 eftir að hafa leitt 3—0 í hálf-
ieik.
Það tók Suðurnesjamennina 25 mín.
að finna leiðina í netið en eftir það
héldu þeim engin bönd. Upphafskafli
leiksins gaf fyrirheit um jafna viður-
eign og Haukar virtust vera að sækja í
sig veðrið er þeim var greitt rothöggið.
Það var Öli Þór Magnússon er kom
Keflvíkingum yfir með föstu skoti úr
miðjum vitateig — í stöng og inn eftir
laglegan undirbúning Ómars Ingvars-
sonar. Óli Þór var svo aftur á ferðinni
aðeins tveimur mín. siðar með annað
mark — þrumuskot. Skúli Rósantsson
átti þá langan bolta inn undir markteig
þar sem Sigurður Björgvinsson lagði
hann laglega út til Óla, sem lét ekki
segja sér tvisvar að skora. Á milli
markanna björguðu Haukar hörku-
skalla Gísla Eyjólfssonar á línu. Gott
dæmi um sóknarþunga gestanna.
Á 37. min. vann Ómar Ingvarsson
knöttinn með harðfylgi út við enda-
Knattspymuskófi Fram
Knattspyrnudelld Fram mun i sumar
gangast fyrir nokkrum námskeiðum i
knattspyrnu fyrir drengi fædda á árun-
um 1969—1975, að báðum árum með-
töldum, eins og félagið hefur gert und-
anfarin ár. Hvert námskeið mun ná yfir
tveggja vikna timabil og er ætlunin að
á hverju námskeiðl verði tveir hópar,
annar með drengjum fæddum 1972,
1973,1974 og 1975 og hinn með drengj-
um fæddum 1969, 1970 og 1971. I
hvorum hópi verða 24 drengir og
verður þeim svo aftur skipt í smærri
hópa við æfingar.
Námskeiðin verða þannig uppbyggð
að eldri drengir verða frá 9—12 og þeir
yngri frá 1—4. Þegar illa viðrar til
knattspyrnuiðkana mun drengjunum
verða haldið innandyra og verða þá
sýndar knattspyrnumyndir, ýmsir
þekktir knattspyrnumenn munu koma í
heimsókn, bæði meistaraflokksleik-
menn Fram og jafnvel landsliðsmenn
sem leika með erlendum félagsliðum,
og munu þeir ræða við drengina. Þá á
knattspyrnudeild Fram myndsegulband
og upptökutæki og er ætlunin að taka
myndir af drengjunum við æfingar og
sýna þeim þær síðan strax að æfingu
lokinni í litasjónvarpi I félagsheimilinu.
Þá munu allir geta reynt viðknattþraut-
ir KSl og unnið þar til brons- eða silfur-
merkis. Ætlunin er að afhenda þeim
merkin, sem til þeirra vinna í hálfleik í
Evrópubikarleik Fram í september. Á
námskeiðunum verður einnig daglega
keppt um titlana vítakóngur og bráða-
banakóngur og veitt verða verðlaun í
lok hvers námskeiðs til hæfustu manna
í þessum greinum. Einnig mun öllum
drengjum verða afhent viðurkenningar-
skjöl fyrir þátttökuna í námskeiðinu.
Það skal skýrt tekið fram að þátttaka í
námskeiðum jjessum er ekki bundin við
að viðkomandi sé félagi í Fram heldur
er drengjum úr öllum félögum frjálst
að taka þátt án þess að binda sig á
nokkurn hátt hjá Fram. Kennarar
verða meistaraflokksleikmaðurinn
ÁgústHaukssonog Guðmundur Ólafs-
son en yfirumsjón með námskeiðunum
hefur Jóhannes Atlason. Fyrsta nám-
skeiðið hefst mánudaginn 1. júni en
seinni námskeiðin hefjast 15. júní, 29.
júní, 13. júli og 27. júlí. Verð á hverju
námskeiði er kr. 130.- og greiðist við
innritun.
Innritun fer fram í félags-
heimili Fram viö Safamýri frá mánu-
deginum 25. maí kl. 13—16 alla virka
dag og þá má einnig fá upplýsingar un.
námskeiðin i síma Fram 34792.
mörk. Sendi út í teiginn þar sem Steinar
Jóhannsson afgreiddi knöttinn með
föstu skoti í netið. Rétt á eftir átti
Steinar þrumuskot af stuttu færi í hlið-
arnetið.
Síðari hálfleikurinn hófst eins og
þeim fyrri iauk. Látlaus sókn ÍBK. Á
54. mín. skoraði Steinar gullfallegt
mark eftir sendingu Óskars Færseth —
mjög keimlíkt fyrra marki hans.
Aðeins fjórum mín. síðar fékk hinn
bráðefnilegi Freyr Sverrisson stungu-
bolta frá Ómari og skoraði örugglega
af vítateig — gott mark. Á 66. mínútu
var Ómar svo felldur innan vítateigs og
annars slakur dómari leiksins, Gisli
Guömundsson, dæmdi umsvifalaust
víti. Úr því skoraði landsliðsmarkvörð-
urinn Þorsteinn Bjarnason af öryggi.
Eftir þetta mark færðist doði yfir
leikmenn Keflavíkur enda sigurinn í
höfn. Þeir fengu þó færi á að skora —
t.d. Óli Þór með markið gapandi fyrir
framan sig en skallaði framhjá. Hauk-
arnir sýndu aðeins tennurnar rétt í
lokin — mest fyrir afslöppun varnar-
manna ÍBK. Lárus komst í gegn, lék á
Þorstein, en bjargað var á línu, en loks
á lokamlnútunni tókst Haukum að
skora. Hermann Þórisson komst í
gegn, reyndi skot, sem Þorsteinn varði.
Lárus fylgdi eftír og skoraði af mark-
teig. Sást annars varla i leiknum.
Keflavíkurliðið lék lengst af stór-
skemmtilega knattspyrnu og leikmenn
reyndu ávallt að byggja upp spil. Liðið
er geysilega ungt en ljóst er að það
verður ekki auðveldlega sigrað í sumar.
Haukarnir hreiniega brotnuðu er þeir
fengu á sig tvö mörk á örskömmum
tíma og því varla sanngjarnt að dæma
liðið eftir bessum leik. -SSv.
EÓP-mótið
ífrjálsumíþróttum
E.Ó.P.-mótið f frjálsiþróttum 1981 verður haldin
á Fögruvöllum i Laugardal föstudaginn 29. mai
klukkan 19. Keppt verður f eftirtöldum greinum:
Konur: 100 m grindahlaup, 200 m hlaup, 800 m
hlaup, langstökk og kúluvarp.
Kariar: 110 m gríndahlaup, 100 m hlaup, 800 m
hlaup, langstökk, stangarslökk (hefst ki. 18), kúlu-
varp, kringlukast, spjótkast.
Þátttaka tilkynnist Guðna Halldórssyni á skrif-
stofu FRÍ f siðasta lagi þriðjudaginn 26. mai.
Höfðingleggjöf
til golflandsliðsins
Dunlop umboðið á íslandi, Austurbakki h/f, sem
er stærsti innflytjandi á golfvörum á landinu, af-
henti á dögunum iandsliðinu i golfi, sem tók þátt i
siðasta Evrópumóti, golfboita til æfinga og keppni.
Fengu aliir keppendurnlr sex að tölu, svo og fyrir-
liði liðsins, þrjú dúsin af golfboitum hver (36 bolta)
og er hver bolti áritaður með nafni viðkomandi.
Gjöf þessi kemur sér vel fyrir iandsliðskappana, þvi
golfboitar eru stór útgjaldaliður hjá þeim á hverju
ári og ekki var verra að fá þá núna, þvf ailir æfa þeir
af kappi til að komast i fslenzka landsliðið á Evrópu-
mótið sem fram fer i næsta mánuði.
í landsiiðinu á sfðasta EM sem fékk boltana frá
Dunlop voru þeir Geir Svansson GR, Hannes
Eyvindsson GR, Sveinn Sigurbergsson, GK, Björg-
vin Þorsteinsson GA, Sigurður Hafsteinsson GR og
Jón Haukur Guðlaugsson GN.
Á meðfylgjandi mynd afhendir Árni Þ. Árnason
forstjóri Austurbakka t.v. fyrirliða og „einvaidi”
golflandsliðsins, Kjartani L. Pálssyni, gjöfina til
landsliðsmanna hans.
Tefltálandsmóti
UMFÍá Akureyrí
Á iandsmóti UMFÍ, sem fram fer á Akureyri
10.—12. júii nk., verður m.a. keppt f skák. 13 fjög-
urra manna sveitir tilkynntu þátttöku i forkeppni
mótsins og var þeim skipt i þrjá riðla. Tvær vinn-
ingshæstu sveitirnar f hverjum riðli komast í aðal-
keppni landsmótsins. Keppni í A-riðli fór fram i
Kópavogi og tefldu þar 5 sveitir. Umf. Bolungarvik-
ur sigraði 1 þeim riöll en i 2. sæti varð sveit Ums.
Kjalarnesþings. Keppnin i C-riðli fór fram i Vik i
Mýrdal. Fjórar sveitir mættu til leiks og urðu tvær
sveitir efstar og jafnar að vinningum, sveit Ung-
menna- og iþróttasambands Austurlands og sveit
Héraðssambandsins Skarphéðins. Keppni i B-
riðli, þ.e. Norðurlandsriðli, fer væntanlega fram um
næstu mánaðamót.
Um siðustu mánaðamót rann út frestur til að
kynna þátttöku i þrcmur keppnisgreinum lands-
mótsins. t körfuknattleik tilkynntu 10 iið þátttöku, f
handknattleik kvenna 8 lið og i blaki 7 lið.
Landsmótsnefnd UMFÍ er með opna skrifstofu að
Hjalteyrargötu 10, Akureyri, og er hún opin alla
virka daga eftir hádegi. Siminn á skrifstofunni er
33707. Það er Ungmennasamband Eyjafjarðar sem
sér um framkvæmd þessa landsmóts.
Handbók FRÍ
Handbók Frjálsiþróttasambands Íslands 1981 er
komin út. Hún hefur að geyma upplýsingar um mót
i sumar, glldandi Íslandsmet, sfmanúmer helzta
frjálsiþróttafóiks og flelra sem frjálsiþróttaunnend-
ur hafa gagn af. Handbókin kostar 30 kr. og fæst á
skrifstofu FRÍ i Laugardal, skrifstofu ÍSÍ Laugardal
og á skrifstofu UMFI, Mjölnisholti 14 Rvik.
Á skrifstofu FRÍ eru einnig til sölu afrekaskrár
fyrri ára.
/