Dagblaðið - 02.09.1981, Qupperneq 3
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 2. SEPTEMBER 1981.
Biskupskjörið:
Framkoma ósam-
boðin presti
— kvað þá
biskupi
Ólafur H. Sigurjónsson skrifar:
S nýafstöðnu og hávaðasömu
biskupskjöri hefur það komið skýrt 1
ljós að heldur er grunnt á því góða
með ýmsum af guðsmönnum þjóðar-
innar og gefur hnútukastið litið eftir
því sem gerist í landsmálapólitíkinni.
Það hefur auðvitað vakið hvað
mesta athygli hvernig dómprófastur-
inn, Ólafur Skúlason, hefur tekið
ósigrinum í þessum kosningum. Það
er reyndar á allra vitorði að Ólafur
Skúlason hefur um margra ára skeið
keppt að því að hljóta þetta hnoss því
hann er maður sem ekki virðist geta
dulið metorðagirnd sína og hégóma-
skap. Hann bjó sig undir herlegheitin
með því að ferðast um landið og
biðla til flestra presta um stuðning
og á síðustu mánuðum hefur hann
virzt svo öruggur með sig að halda
mætti að hann væri þegar orðinn
biskup. Mér þykir satt að segja
heldur lítið samræmi milli orðs og
æðis þessa manns sem úr stólnum
boðar auðmýkt og nægjusemi, en
getur síðan ekki tekið ósigrinum eins
og maður, heldur finnur sér söku-
dólga að hrakförum sínum og
afhjúpar þannig græðgi sína og
hroka.
Það er kannski til of mikils mælzt
að prestar séu eitthvað betri en annað
fólk, en það verður samt að gera þá
kröfu til þeirra að þeir geti nokkurn
veginn staðið undir grundvallarboð-
skap trúar sinnar. Það hefur Ólafl
Skúlasyni ekki tekizt þegar á reyndi.
Sýnir hann þar með að hann er vart
hæfur til að gegna prestskap, hvað þá
að vera biskup landsins.
„Mér þykir satt að segja heldur litið samræmi milli orðs og æðis þessa manns,”
segir Ólafur H. Sigurjónsson um séra Ólaf Skúlason dómprófast.
DB-mynd: Sig. Þorri.
RUCANOR
Stærðir 32—47
Verö
kr. 112,-
Hjólaskautar
Stærðir 40—45
Verð
kr. 372,00
Póstsendum
Laugavegl3
Sími13508
car rental
Q. MONSTER MUDDER
h
V)
Ui
QQ
DUALMATIC - JACKMAN
Bílaleiga Akureyrar
Akureyri: Tryggvabr 14 - S . 21715, 23515
Reykjavík: Skeifan 9 - S 31615, 86915
Mesta úrvaiið, besta þjónustan
Við útvegum yður afslátt
á bílaleigubílum erlendis
- BEAVER - ACME
Spurning
dagsins
Hvernig varð þér
við gengisfell-
inguna?
Jón Birgir Ragnarsson, vörubilstjóri:
Ula. Hún skerðir kaupið.
Þóra Guðnadóttir, húsmóðir: Ég veit
ekki hvað ég á að segja um hana, enda
minnkar hún kaupgetuna.
Dagrún Bjömsdóttir, húsmóðir: Ég er
ekki sátt við hana.
JEPPAEIGENDUR
NÝ SENDING FRÁ USA
MONSTER MUDDER
hjólbarðar
JACKMAN
felgur
Sigurgeir Sigurdórsson, útgerðar-
maður: Ég set hana nú ekki mikið fyrir
mig. Hún var ekki það mikil.
Þórleif Sigurðardóttir, húsmóðir: Mér
finnst verðlagið vera grátlegt fyrir.
STÆRÐIR: STERKAR 0G FALLEGAR
15x7, 15x8, 15x10, 16x8, (5, 6og8gata}
EINNIG:
blæjur, varadekks- og brúsafestingar, gluggafilmur, þaklúgur, KC-ljóskastarar,
driflæsingar, rafmagnstogvindur, drullutjakkar og gúmmíkantar.
ÚR FIBER-PLASTI:
hús, á pick-up bifreiðar og Willys CJ5 og CJ7. Bretti, hliðar, húdd, toppar. bretta-
kantar á Bronco og Willys.
HAGSTÆTT VERÐ OG GREIÐSLUKJÖR Sendum ípóstkröfu
OVIÐJAFNANLEGT GRIP
STÆRÐIR:
L78x 15, 10x 15, 12x 15.14/35/15,15/38. 5x15,
17/40x 15, lOx 16, Q78x 16. 12x 16,
14/35x16, 10x16,5.
Vatnagarðar 14, Rvík. Sími: 83188.
Friðrik Sæmundsson, múrari: Engan
veginn. Þetta var nauðsynlegt.