Dagblaðið - 02.09.1981, Side 6

Dagblaðið - 02.09.1981, Side 6
Menningarsjóður ís/ands og Finn/ands Tilgangur sjóðsins er aö efla menningartengsl Finnlands og íslands. 1 því skyni mun sjóðurinn árlega veita ferðastyrki og annan fjárhagsstuðning. Styrkir verða öðru fremur veittir einstaklingum, en stuðningur við samtök og stofnanir kemur einnig til greina ef sérstaklega stendur á. Umsóknir um styrk úr sjóðnum skulu sendar stjórn Menningarsjóðs íslands og Finnlands fyrir 1. október nk. Áritun á íslandi er: Mennta- málaráðuneytið, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavik. Æskilegt er að umsóknir séu ritaðar á sænsku, dönsku, finnsku eða norsku. Stjórn Menningarsjóðs íslands og Finnlands. 25. ágúst 1981 LAUSAR STÖÐUR LÆKNA 0G HJÚKRUNARFRÆÐINGA m HEILSUGÆSLUSTÖÐVAR Lausar eru til umsóknar eftirtaldar stöður lækna og hjúkr- unarfræðinga við heilsugæslustöðvar: Staða læknis við H2 Akranesi Staða læknis við H2 Akureyri Staða læknis við H2 Hafnarfirði Staða 2ja lækna við H2 Keflavík (þar af annar með aðsetri í Grindavík) Staða hjúkrunarfræðings á Kópaskeri Staða hjúkrunarfræðings á Stöðvarfirði Staða hjúkrunarfræðings á Fáskrúðsfirði Staða hjúkrunarfræðings á Djúpavogi Staða hjúkrunarfræðings Asparfelli 12, Reykjavík Staða hjúkrunarfræðings Fossvogi, Reykjavík Staða hjúkrunarfræðings á Akureyri Hálf staða hjúkrunarfræðings i Hveragerði Stöðurnar veitast frá 1. október 1981. Staða hjúkrunarfræðings í Vík í Mýrdal veitist frá 1. desember 1981. Ráðning hjúkrunarfræðinga í hlutastarf á ofangreindum stöðum kemur til greina. Umsóknir sendist ráðuneytinu eigi síðar en 20. sep- tember nk. ásamt upplýsingum um menntun og störf. Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið 1. september 1981. [FUI XT FV1 VIII IJjT ii ir 1 1^1 m 1JMJM. LIT « f Ji IVl fJ.T *W/J af skólavörum CH 1 HAFNARSTRÆT118 • LAUGAVEGI84 • HALLARMÚLA 2 | DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 2. SEPTEMBER I98i. i Erlent I Erfent Hneykslismál í Pentagon: Gaddafiléká Bandaríkjameim — Fékk úrvals hermenn úr Grænu húfunum til að þjálfa liðþjálfi. Maðurinn sem sá um samninga fyrir Líbýustjóm var aftur á móti fyrrverandi CIA-maður sem hafði verið rekinn úr leyniþjónustunni. Hann er nú flúinn frá Bandaríkjunum og er álitið að hann sé nú í Trípolí. Alríkis- lögreglan, FBI, sem nú rannsakar málið, heldur því fram að CIA- maðurinn, Edwin P. Wilson, hafi gengið í þjónustu Gaddafi ofursta 1976 og að hann hafi einnig útvegað Lfbýu- mönnum háþróuð bandarísk sprengiefni sem síðan voru notuð til hryðjuverka. Hneykslismál þetta kemur sér að vonum afar illa fyrir bandaríska varnarmálaráðuneytið og krefst Bandaríkjastjórn nú þess að það verði rannsakað hvernig manni í þjónustu Gaddafi hafi tekizt að hagnýta sér bandaríska hermenn til verkefna, sem stangast svo gjörsamlega á við hag landsins. hryðjuverkamenn 1977 fóru tíu úrvals hermenn úr her- deildum þeim sem kenndar eru við Grænu húfumar til Líbýu þar sem þeir þjálfuðu hryðjuverkamenn, segir í frétt í New York Times. Álitið er að enn sé nokkra þeirra að fmna í Líbýu. Samkvæmt upplýsingum amerískra hermanna sem hlut áttu að máli fór þjálfun þessi fram með blessun hersins. Þar var álitið aö þeir væru sendir af CIA, bandarisku leyniþjónustunni, og væri verkefni þeirra að gabba Líbýustjórn. Níu af þessum hermönnum höfðu lokið herþjónustu í Grænu húfunum, sá tíundi, sem stóð fyrir hneykslis- förinni var þar enn að störfum sem Gaddafi ofursti hefur svo sannarlega ástæðu til að klappa saman lófunum. Hneyksli á diskóteki: Bamaræninginn Ekiand Kvikmyndastjarnan Britt Ekland, sem nú er 36 ára, er búin að missa frá sér nýjasta elskhugann, hinn 17 ára gamla Jaime Ostos. Eftir margar ástarnætur í spænskum ferðamannabæ fannst móður hins barnunga elskhuga leik- konunnar nóg komið. Hún gerði innrás á diskótek nokkurt þar sem hjónaleysin voru að skemmta sér og hreif son sinn úr örmum hans miðaldra ástmeyjar. Britt Ekland, sem var áður gift hinum nýlátna kvikmyndaleikara Peter Seller og bjó siðar í storma- samri óvígðri sambúð með poppstjörnunni Rod Stewart, yfirgaf staðinn í mikilli bræði og tók fyrstu flugvél heim til London. Britt Ekland: Töluvert fyrir lamba- kjötið. Ráðstefna Sameinuðu þjóðanna um hjálp við bágstöddustu þróunarlöndin: Engin lausn í sjónmáli og tregari f járframlög I gær hófst í París ráðstefna á vegum Sameinuðu þjóðanna sem fjallar um hjálp við þau þróunarlönd sem verst eru á vegi stödd. Þessi lönd, sem einkum tilheyra Afriku- og S-Aslu, hafa litla sem enga von um bætt ástand og er reginmunur á framtíðarhorfum þeirra og annarra þróunarlanda. Ekki er þess að vænta að ráðstefnan finni neina raunhæfa lausn á vanda- málunum, heldur skal hún undirstrika að Sameinuðu þjóðirnar geri sér fulla grein fyrir nauðsyn á sérstökum að- gerðum í þágu þeirra. Einnig verður tekin fyrir betri dreifing á fjár- framlögum til þessara illa stöddu landa. Á lista Sameinuðu þjóðanna eru löndþessi 31 að tölu. Miðað er við að meðal árstekjur á mann séu minna en 250 dollarar og iðnaðarframleiðsla sé innan við 10% af — neyðin mest í Af ríku og S-Asíu brúttóþjóðartekjum. Tala fullorðinna sem kunna að lesa og skrifa nær hæst 20%. Lönd þessi hafa engan aðgang að náttúruauðlindum og landbúnaður er það litilfjörlegur að þau eru ekki sjálf- bjarga meö fæðu. Þar sem versnandi efnahagur vestrænna iðnaöarríkja hefur dregið mjög úr örlæti þeirra til þróunar- landanna má búast við að það sé borin von að næg fjárframlög fáist til hjálpar þessum bágstöddustu löndum.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.