Dagblaðið - 02.09.1981, Side 9
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 2. SEPTEMBER 1981.
9
Matsmenn íbúða íverkamannabústöðum:
FA AÐ MEÐALTAU1768 KR.
FYRIR HVERJA SELDA ÍBÚÐ
„Staðreyndin er sú að matsmenn-
irnir hafa fengiö greitt til þessa á 11
mánuðum kr. 120.284, en það sam-
svarar um 0,45% af matsverði þeirra
íbúða sem þeir hafa metið og seidar
hafa verið. Auk þess hafa þeir metið
fjöida ibúða sem ekki hafa komið tii
söiu af ýmsum ástæöum eða ekki
hefur verið greitt fyrir matskostnað.
Alls hafa þeir metið 110—120 (rétt
tala mun vera 112 — innskot SSv.) á
þessum tíma”.
Félagsmálaráðuneytið brá hart við
í gær eftir frásagnir fjölmiðla um
„óeðlilega þóknun” til handa mats-
mönnum íbúða í verkamannabú-
stöðum og sendi frá sér tilkynningu
þar sem málin voru skýrð af hálfu
þess.
Þar kemur einnig fram að mats-
kostnaður á hverja selda íbúð er aö
jafnaði um 1768 krónur á áður-
nefndu tímabili og 1000 krónur á
þær íbúðir sem skoðaðar hafa verið.
Ekki er greint frá því hvort greiðsla
fyrir ferða- og uppihaldskostnað sé
meðtalin í þessum greiðsium, en gera
verður ráð fyrir að svo sé ekki.
- SSv.
SPORSLURNAR MINNIEN TALIÐ VAR
„Matsmennirnir tveir hafa fengið
greiddar nákvæmlega 120.284 krónur
frá því þeir hófu störf í október-
mánuði í fyrra þannig að áður um-
rædd upphæö — 35 milljónir gkróna
— er fjarri raunveruleikanum,”
sagði Svavar Gestsson félagsmálaráð-
herra við DB í gær.
„Með ráðningu þessara mats-
manna í fyrra var ætlunin fyrst og
fremst að reyna að tryggja ibúðareig-
endum hlutlaust mat, sem hægt væri
að treysta og það held ég hafi tekizt,”
bætti Svavar við.
Er ráðherrann var inntur eftir því
hvort kvartanir yfir seinagangi við
mat ættu við rök að styðjast taldi
hann að vel gæti verið að í einstökum
tilfellum gæti slíkt hafa gerzt, en
erfitt væri að koma í veg fyrir það.
„Matsmennirnir eru tveir og þurfa að
sinna öllu landinu þannig að yfirreið
þeirra getur á stundum verið mikil og
starfið krefjandi.” Ekki taldi
ráðherra ástæðu til að fjölga mats-
mönnum vegna þessa.
Tölur þær er birtust i Alþýðu-
blaðinu og þær sem síðan koma frá
félagsmálaráðuneytinu eru í litlu
samhengi. Virðist svo sem einhvers
misskilnings gæti í útreikningum
hærri tölunnar. „Matsmennirnir
hafa líkast til metið á annað hundrað
íbúðir frá því þeir hófu störf, en það
er ekki þar með sagt að þær hafi
síðan allar verið seldar. Þessi kergja í
— samtalsl20
þúsund
frá upphaf i
Alþýðubiaðinu er til orðin vegna þess
að um langt skeið hafa kratar haft
tögl og hagldir í húsnæðisstjórnar-
málum, en hafa það ekki lengur,”
sagði Svavar.
- SSv.
Fyrstu réttir
13. september
Fyrstu réttir á þessu hausti verða
sunnudaginn 13. september en þá er
réttað í Hraunsrétt í Aðaldal í S-Þing.
og í Laufskálarétt í Hjaltadal í Skaga-
fjarðarsýslu. Síðan verða réttir ein-
hvers staðar á landinu flesta daga
mánaðarins. Stóðréttir verða um næstu
mánaðamót.
Þær réttir sem næst eru Reykjavík
eru þessar: Kaldárrétt við Hafnarfjörð
20. september fyrir hádegi og sama
dag, bæði fyrir og eftir hádegi, er Foss-
vallarétt við Lækjarbotna.
Mánudaginn 21. sept. fyrir hádegi er
Hafravatnsrétt í Mosfellssveit, Þing-
vallarétt, Þórkötlustaðarétt við
Grindavik. Eftir hádegi verða Hús-
múlarétt við Kolviðarhól og Nesja-
vallarétt íGrafningi.
Þriðjudaginn 20. sept. fyrir hádegi
verður Kjósarrétt í Kjós og eftir hádegi
Kollafjarðarrétt í Kjalarneshreppi.
Miðvikudaginn 23. sept. fyrir hádegi
er Selvogsrétt, Vatnsieysustrandarrétt
og Selflatarétt i Grafningi.
Fimmtudaginn 23. sept. fyrir og eftir
hádegi er Ölfusrétt við Hveragerði.
Réttalistinn lítur annars svo út:
Auðkúlurótt i Svinadal, A.-Hún., föstud. 18. og laugard. 19. sept.
Arnarhólsrétt í Helgafellssveit, Snœf., þriðjud. 22. sept.
Brekkurétt í Norðurérdal, Mýrasýslu, mánud. 14. sept.
Fellsendarétt í Miðdölum, Dalasýslu, ménud. 21. sept
Fossvallarétt v/Lækjarbotna (Rvik/Kóp.i, sunnud. 20. sept.
Gillastaðarétt í Laxérdal, Dal., sunnud. 20. sept
Gjábakkarétt i Þingvallasveit, Árn., ménud. 21. sept.
Grimsstaðarétt i Álftaneshr., Mýr., fimmtud. 17. sept
Hafravatnsrétt í Mosfellssveit, Kjós., ménud. 21. sept.
Hitardalsrétt í Hraunhr., Mýr., miðvikud. 15. sept
Hraunsrétt í Aðaldal, S-Þing., sunnud. 13. sept
Hrunarétt í Hrunamannahreppi, Ám., fimmtud. 17. sept
Hrútatungurétt í Hrútafirði, V.-Hún., ménud. 14. sept.
Húsmúlarétt v/Kolviðarhól, Árn., ménud. 21. sept
Kaldérrétt við Hafnarfjörð, sunnud. 20. sept
Kaldérbakkarétt i Kolbeinssthr., Hnapp., ménud. 14. sept
Kirkjuf ellsrétt í Haukadal, Dal., sunnud. 20. sept
Kjósarrétt i Kjós, Kjósarsýslu, þriðjud. 22. sept
Klausturhólarétt í Grímsnesi, Árn., miðvikud. 23. sept
Kollafjarðarrétt í Kjalarneshr., Kjós., þriðjud. 22. sept
Landrétt í Landmannahr., Rang., föstud. 25. sept
Langholtsrétt i Miklaholtshreppi, Snsef., miðvikud. 23. sept
Laufskélarétt í Hjaltadal, Skag., sunnud. 13. sept
Laugarvatnsrétt í Laugardal, Ám., þriðjud. 22. sept
Mælifellsrétt í Lýtingsstaðahr., Skag., miðvikud. 16. sept
Nesjavallarétt i Grafningi, Árn., ménud. 21. sept
Oddsstaðarétt i Lundarreykjadal, Borg., miðvikud. 16. sept
Rauðsgilsrétt í Hélsasveit, Borg., föstudag 18. sept
Reyðarvatnsrétt, Rangérvallahr., Rang., föstud. 25. sept
Reynistaðarótt í Staðarhreppi, Skag., ménud. 21. sept
Selflatarétt i Grafningi, Árn., miövikud. 23. sept
Selvogsrétt í Selvogi, Árn., mið vikud. 23. sept
Silf rastaðarétt í Akrahr., Skag., ménud. 21. sept
Skaftértungurétt i Skaftértungu, V-Skaft, miðvikud. 23. sept
Skaftholtsrétt í Gnúpverjahr., Árn., fimmtud. 17. sept
Skeiðarétt é Skeiðum, Ám., föstud. 18. sept
Skrapatungurétt í Vindhælishreppi, A-Hún., sunnud. 20. sept
Stafnsrétt í Svartérdal, A-Hún., fimmtud. 17. sept
Svarthamarsrétt é H valf jarðarstr., Borg., miðvikud. 23. sept
Svignaskarðsrétt i Borgarhreppi, Mýr., miðvikud. 16. sept
Tungurétt í Svarfaðardal, Eyjaf., sunnud. 20. sept
Tungnarétt i Biskupstungum, Árn., miðvikud. 16.sept
Undirfellsrótt í Vatnsdal, A-Hún., föstud. 18. og laugard. 19. sept
Vatnsleysustrandarrétt, Vatnsleysustr., Gull., miðvikud. 23. sept
Víðidalstungurétt i Víðidal, V-Hún., föstud. 18. og laugard. 19. sept
Þingvallarétti Þingvallasveit, Árn., ménud. 21. sept
Þórkötlustaðarétt v/Grindavik, ménud. 21. sept
Þverérrétt i Þverérhlíð, Mýr., þriðjud. 15. og miðvikud. 16. sept
ÖHusrétt i ÖHusi, Árn., fimmtud. 24. sept.
ölkeldurétt i Staðarsveit, Snæf., fimmtud. 24. sept
STÓÐRÉTTIR
Undirfellsrétt i Vatnsdal, A-Hún, laugard. 26. sept
Viðidalstungurétt í Viðidal, V-Hún., laugard. 26. sept
Auðkúlurétt í Svinadal, A-Hún., sunnud. 27. sept
Laufskélarétt i Hjaltadal, Skag., sunnud. 4. okt
RÓTAÐ í RÚSTUNUM
múrsteinar seldirá 2 krónur stykkið í rústum sænska frystihússins
Það var heldur betur handagangur í
öskjunni um sl. helgi er múrsteinar
voru boðnir til kaups í rústum sænska
frystihússins á mótum Skúlagötu og
Kalkofnsvegar. Gátu menn nælt sér í
eins marga múrsteina og þeir gátu
komið höndum yfir gegn því að greiða
2 krónur fyrir stykkið.
„Okkur fannst þetta vera sanngjarn-
asta aðferðin,” sagði skrifstofustjóri
borgarverkfræðings, Jón B. Kristjáns-
son, við DB í gær. „Það voru vafalítið
margir, sem höfðu áhuga á að verða sér
úti um steina og með þessu móti var
engum mismunað”. Þeir, sem hafa
áhuga, geta gert sér ferð í rústirnar og
hirt það sem enn er nothæft.
Á meðfylgjandi mynd má sjá eina af
húsmæðrum bæjarins þar sem hún
hefur gripið tvo steina heljartaki og
stikar með þá, vopnuð vinnuvettlingum
og hraustlegum skófatnaði, í rústun-
um.
- SSv. / DB-mynd Einar Ólason.
frá 55 til 82 á LAUGAVEGI
amatör
UÓSMYNDAVÖRUVERZLUN
ístærra
og betra húsnæði að 0*0*
LAUGAVEGI82
bjóðum við mikið meira úrvai
af ijósmyndavörum, td. nýkomið
frá USA hinarþekktu
aniHaaaa a
LEARN FUJICA • PENTAX •
II PHOTOGRAPHY OLYMPUS-myndavélar
SERIES Myndavélatöskur, 12 gerðir — Þrífætur,
aaaaaaaa a 5 gerðir — Flass, 15 gerðir.
HPBonk-
_
14 TITLAR
mamatör
• 60 ára þjónusta %
LJÓSMYNDAVÖRUVERZLUN • LAUGAVEGI82 - SÍM112630