Dagblaðið - 18.09.1981, Side 22
30
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1981.
Rlmi 11475
Bömin frð
Nornafelli
Afar spcnnandi og
bráöskcmmtileg, ný banda-
risk kvikmynd frá Disney-
félaginu — framhaid mynd-
arinnar „Flóttinn til Noma-
fells”.
Aöalhlutverkin leika:
Belte Davis
Chrislopher Ler
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
TÓNABÍÓ
Símt 31 182 ,
Bleiki pardusinn
hefnir sín
(The Revenge of
the Pink Panther)
mMamvm/
mmmiaiMfiM-ruauK
Þessi trabæra gamanmyna
veröur sýnd aöeins í örfáa
daga.
Leikstjóri:
Blake Kdvards.
Aðalhlutverk:
Peler Sellers,
Herberl Lom,
Dyan Cannon.
Kndursýnd kl. 5, 7 og 9.
LAUGARA8
■=1K*M
S.m.3707S
Bandítarnir
Gamaldags vestri
fullur af djörfung,
svikum og gulli.
Spennandi mynd um þessa
„gömlu góðu vestra”.
Myndin er í litum og cr ekki
með íslenzkum texta. í aöal-
hlutverkum eru Robert
Conrad (Landnemamir), Jan
Michael Vincent (Hooper).
Bönnuö innan 14 ára.
Sýnd kl. 5,7 og 9.
Amerika
„Mondo Cane"
Ófyrirleitin, djörf og
spennandí ný bandarísk
mynd sem lýsir því sem
..gerist” undir yfírborðinu í
Ameríku.
íslenzkur lexli
Sýnd kl. 11
BönnuA innan 16 ára.
mm
Tapaðfundið
Bráöskemmtileg, ný, amerísk
gamanmynd í litum.
Leikstjóri:
Melvin Frank.
Aöalhlutverk:
George Segal
Glenda Jackson.
Sýnd kl. 9.
Heljarstökkið
(Riding High)
Ný og spennandi litmynd um
mótorhjólakappa og glæfra-
leiki þeirra. Tónlistin i mynd-
inni erm.a. flutt af:
Police, Gary Numan, Cliff
Rlchard, Dire Slraits.
Myndin er sýnd í Dolby
slereo.
Sýnd kl. 5,9og 11.
Maður er manns
gaman
Ein fyndnasta mynd siðustu
árin.
Sýnd kl. 7.
Gtoria
Æsispennandi, ný amerísk úr-
vals sakamálamynd i litum.
Myndin var valin bezta mynd
ársins í Feneyjum 1980. Gena
Rowlands, var útnefnd til
óskarsverölauna fyrir leik
sinn í þessari mynd.
Leikstjóri:
John Cassavetes
Aðalhlutverk:
Gena Rowlands,
Buck Henry og
John Adams
Sýnd kl. 5,7.30 og 10.
Bönnuö innan 12 ára
Hækkafl verfl.
Síflustu sýningar.
Ný bandarísk hörku-KAR-
ATE-mynd meö hinni gull-
fallegu Jillian Kessner i aðal-
hlutverki, ásamt Darby Hinl-
on og Reymond King.
Nakinn hnefi
erekkiþafl eina.
Bönnufl innan 16ára.
Sýnd kl. 5,7 og 9.
LEIKFÉLAG
REYKJAVlKUR
JÓI
5. sýn. í kvöld, uppselt.
Gul kort gilda.
6. sýn. sunnudag, uppselt.
Græn kort gilda.
7. sýn. þriöjudag, uppselt.
u •"»»* nilrla
nvu kui 1"■—- ■ .....
8. sýn. miövikudag, uppselt.
Appelsínugul kort gilda.
ROMMÍ
102. sýn. laugardag kl. 20.30.
OFVITINN
163. sýn. fimmtudag kl. 20.30.
AÐGANGSKORT
í dag er siöasti söludagur
aögangskorta.
Miðasala í Iðnó kl. 14—20.30.
sími 16620
D*
frfálst,
úháð
dagblað
EGNBOGII
« 19 OOO
— nhirA-
Spennandi ný bandarísk lit-
mynd, byggö á sönnum viö-
buröum, um æsilegan eltinga-
leik noröur viö heimskauts-
baug, með Charles Bronson
— Lee Marvin.
Leikstjóri: Peter Hunt.
íslenzkur texti.
Bönnufl innan 14 ára.
Sýnd kl.3,5,7,9og 11.
Spegilbrot
Spennandi og viöburöarík ný
ensk-amerisk litmynd, byggð
á sögu eftir Agatha Christie,
með hóp af úrvalsleikurum.
Sýnd kl. 3.05,5.05,7.05,
9.05 og 11.05.
--------„C---------
Ekki núna —
elskan
Fjörug og lífleg ensk gaman-
mynd i litum með Leslie
Phillips og Julie Ege.
íslenzkur texti
Endursýnd kl. 3,10
5,10,7,10,9,10 og 11,10
LiliMarleen
Biaöaummæli: Heldur áhorf
andanum hugföngnum frá
upphafi til enda” „Skemmti-
leg og oft grípandi mynd”.
13. sýningarvika
Fáarsýningar eflir
sýnd kl. 9.
Coffy
Eldfjörug og spennandi
bandarísk litmynd, með Pam
Grier.
íslenzkur lexli
Endursýnd kl. 3,15
5,15,7,15 og 11,15.
W
AIISTURBtJARRÍi
Honeysuckle
Rose
HoNEmUCKLE
Sérstaklega skemmtiieg og
fjörug ný bandarisk country-
söngvamynd í litum og Pana-
vision. — í myndinni eru flutt
mörg vinsæl countryiög en
hiö þekkta „On the Road
Again” er aöallag myndar-
innar.
Aöalhlutverk:
Willie Nelson,
DyanCannon.
Myndin er tekin upp og sýnd í
DOLBY-STEREO og mefl
nýju JBL-hátalarakerfí.
tsl. texti.
Sýndkl. 5,7.15 og 9.30.
££JAÍt8íé*
. ~" Siipi 50184
Trylltir
tónar
(Can't Stop
TheMuaic)
I
Ca^S*°L
VILLAGE PEOPLE
VALERIE PERRINE
BRUCEJENNER
Stórkostlcg dans-, söngva- og
diskómynd meö hinni frægu
hljómsveit, Village People
o.fí.
Sýnd kl. 9.
Hækkafl verfl.
I
Útvarp
Sjónvarp
s>
LIST ER LEIKUR: HUGMYNDANETIÐ MIKLA
—útvarp í kvSld kl. 20,30:
MARGRÉT í DALS-
MYNNI0G TÓNVERK
LEIKIÐ Á GRJÓT
í sumar komu listamenn frá
Norðurlöndum, Hollandi, Frakk-
landi og Bandarikjunum saman
í Laugagerðisskóla á bökkum Haf-
fjarðarár, austast á Snæfellsnesi.
„Þeir komu til að vinna og skiptast á
hugmyndum,” segir Magnús Pálsson
myndlistarmaður sem í kvöld ætlar
að gefa útvarpshlustendum tækifæri
til að fræðast um hvað þarna fór
eiginlega fram. Hann og Tryggvi
Hansen hafa búið til tvo útvarps-
þætti um þetta merka fyrirtæki. í
þessum fyrri, ræða þeir meðal annars
við Frakkann Robert Filliou en hann
er heimspekingur, myndlistarmaður
og skáld og hefur hugsað mikið
um listina, fírugur karl og
glaðbeittur. Viðtalið er að sjálfsögðu
þýtt áíslenzku.
Þá verður flutt þarna mjög
nýstárlegt tónverk fyrir grjót. Voru
flytjendur tólf og höfðu hver sína
steinflögu og steinvölu, sem þeir
börðu saman. Það hefur sýnt sig að
þannig má framkalla ólíka tóna, og
byggist mismunurinn sennilega á
þykkt og annarri gerð grjótsins.
Höfundur þessa nýstárlega verks er
tónlistarprófessor frá New York,
Philip Carner að nafni, og vakti það
hrifningu. Vonandi týnast ekki hin
fínu blæbrigði grjóthíjómanna í út-
sendingu.
Snæfellingum leizt ekkert á lista-
mennina í Laugagerðisskóia í fyrstu
og Margrét í Dalsmynni orti um þá
hálfgert niðkvæði. En síðast tókst
vinátta með henni og aðkomufólki
eftir gagnkvæm kaffiboð. Og er
Margrét einn þátttakenda í þættinum
í kvöld.
4C
Listamennirnir á Snæfellsnesi í sólar-
dansi. Dansinn var eftir Finn
Nielsen frá Danmörku. Úr
hreyfingum dansenda og skuggum
siðdegissólarinnar voru búin til
fjölbreytileg tákn.
Mynd: Alfheiður Guðlaugsdóttir.
Útv
D
Föstudagur
18. september
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynn-
ingar.
2« n.ioir 17 45 Veðurfregnir.
mmm,
ÍA.AU * ÍVHA*
tar.
. frívaktinni. Margrét Guðmunds-
dóttir kynnir óskalög sjómanna.
15.10 Miðdegissagan: „Brynja”
eftir P4I Hallbjörnsson. Jóhanna
Norðfjörð lýkur lestrinum( 10).
15.40 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15
Veðurfregnir.
16.20 Siðdegislónleikar. Felicja
Blumental og Sinfóníuhljómsveitin
i Vínarborg leika Píanókonsert i a-
moll op. 17 eftir Ignaz Paderew-
sky; Helmut Froschauer stj. /
Luciano Pavarotti syngur ariur úr
óperum eftir Richard Strauss, Bell-
ini, Puccini og Rossini með
hljómsveitarundirleik.
17.20 Lagið mitt. Helga Þ. Steph-
ensen kynnir óskalög barna.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Frétlir. Tilkynningar.
19.40 Á vettvangi.
20.00 Nýtt undir nálinni. Gunnar
Salvarsson kynnir nýjustu popp-
iögin.
20.30 List er leikur: Hugmyndanetlð
mikla. Fyrri þáttur um „Mob
Shop”, sumarvinnustofu nor-
rænna listamanna, hljóðritaður á
Snæfeilsnesi og búinn til útvarps-
flutnings af Tryggva Hansen og
Magnúsi Pálssyni. Ásamt þeim
koma fram i þættinum Robert
Filliou og Margrét í Daismynni og
fluttir verða kaflar úr verkum eftir
Philip Corner.
21.00 Nicanor Zabaleta lcikur á
hörpu verk eftir Corelli, Spohr,
FauréogAioemz.
21.30 Hugmyndir heimspekinga ura
sál og likama. Þriðja og síöasta er-
indi: Efnishyggja 20. aldar. Eyjólf-
ur Kjalar Emilsson flytur.
22.00 Hljómsveit Horsts Wende
lelkur eldri dansana.
22.15 Veöurfregnir. Fréttir. Dag-
skrá morgundagsins. Orð kvölds-
ins.
22.35 Um ellina eftir Cicero. Kjart-
an Ragnars sendiráðunautur les
þýðingu sína (4).
23.00 Djassþáttur. Umsjónar-
maður: Gerard Chinotti. Kynnir:
Jórunn Tómasdóttir.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
t
^ Sjónvarp
Föstudagur
18. september
19.45 Fréttaágripátáknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingarogdagskrá.
20.40 Á döfinni.
20.50 Að eiga samleið, eða sér á
báti? Málefni fatlaðra hafa verið í
brennidepli á þessu ári, enda árið
tiieinkað þessum þjóðfélagsþegn-
um. Samkvæmt alþjóða skiigrein-
ingu á fötlun er tíundi hver jarðar-
búi eitthvað fatlaöur. i þessum
þætti sem Sjónvarpið hefur látið
gera er fjallað um ýmsar hliðar
málefna fatlaðra á íslandi nú.
Umsjónarmaður: Ingvi Hrafn
Jónsson. Upptökustjórn: Valdi-
mar cutoou...
21.40 Sigursöngvar, Tveggja klukku-
stunda dagskrá frá norska sjón-
varpinu, þar sem fram koma iang-
flestir sigurvegarar í Söngvakeppni
evrópskra sjónvarpsstöðva frá
árinu 1956 til 1981. Þeir syngja
sigurlögin, en jafnframt verða
sýndar myndir frá söngvakeppn-
inni með sigurvegurum, sem ekki
sáu sér fært að vera viðstaddir
þessa Evrópusöngvahátið i Mysen í
Noregi. Alls taka 19 sigurvegarar
þátt í þessari dagskrá, meðai ann-
ars sigurvegarar síðastliðinna sjö
ára. Norska sjónvarpið gerir þátt-
inn i samvinnu við norska Rauða
krossinn. Þýðandi: Björn Baldurs-
son. (Evróvision — Norska sjón-
varpið).
23.40 Dagskrárlok.