Dagblaðið - 24.09.1981, Blaðsíða 1
7. ÁRG. — FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1981 — 216. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 11.—AÐALSÍMI 27022.
\
Video-byltingin íalgleymingi:
VIDEO-KERFIN TENGD
UM GERVALLT LANDIÐ
^ -- V
/ --------------
— ogstyttist
mjögíaö
„video-hring-
vegurínn,f
lokist
—sjábaksíöu
Kötlufellsmálið:
16ára
fangelsi
fyrirað
bana
manni
sfnum
Björg Benjamínsdóttir, Kötlufelli
11 í Reykjavik, var i gær dæmd i
sextán ára fangelsi fyrir aö bana
eiginmanni sínum með eldi á heimili
þeirra 25. janúar sl. Ákæra á hendur
Björgu var gefin út 4. ágúst si.
Björg var ennfremur dæmd fyrir
að hafa með eldinum valdið öðrum
íbúum fjölbýlishússins í Kötlufelli 11
bersýnilegum lífsháska og augijósri
hættu á yfirgripsmikilli eyðingu eigna
manna. Björg hefur og með verknaði
sinum fyrirgert sjálfri sér til handa
rétti til arfs eftir hinn látna eigin-
mann sinn.
Eins og fram kom i fjölmiðlum á
sinum tíma hafði Björg orðið sér úti
um bensín sem hún síðan hellti yfir
mann sinn þar sem hann svaf áfengis-
svefni í hjónarúmi þeirra, og bar loks
eld að. Lézt hann fljótlega af bruna-
sárunum.
Þykir sannað að verknaðurinn hafi
verið framinn að yfirlögðu ráði og
hlýtur Björg því hámarksrefsingu. 16
ára fangelsi. Hún er einnig dæmd til
að greiða allan sakarkostnað, samtals
19.000 krónur.
Jónatan Sveinsson saksóknari
flutti málið af hálfu ákæruvaldsins.
Verjandi Bjargar var Örn Clausen,
hæstaréttarlögmaður. Sverrir Einars-
son sakadómari kvað upp dóminn.
Gæzluvarðhald Bjargar frá 29.
janúar i ár dregst frá fangelsisvist-
inni. Svo sem venja er um morðmál
hefur því verið áfrýjað til
Hæstaréttar. -ÓV.
Allir á fætur
i stúkunni
Það var mark! Mönnum þótti gaman að vera íslendingar ú Laugar-
dalsvellinum í gœrþegar íslenzka landsliðið veitti ólympíumeisturum
Tékka góða keppni í leik í undankeppni Heimsmeistaramótsins.
Myndin var tekin upp í stúkuna þar sem áhorfendur risu á fœtur
þegar Pétur Ormslev hafði skorað mark íslenzka liðsins og langt
fram I síðari hálfleik héldu íslendingar forystunni. Pétur hélt til
Þýzkalands I morgun til að œfa með Dusseldorf, liði Atla Eðvalds-
sonar, en nú eru allar líkur á að Pétur bœtist í vaxandi hóp íslenzkra
atvinnuknattspyrnumanna.
DB-mynd: Bj. Bj.
Bruggtæki gerð upptæk á Húsavík:
Dýrmætur vökvinn lak niður
\
á stereó-græjur nágrannans
— sem ekki undi því og lét lögregluna vita
Lögreglan á Húsavík gerði
upptæk bruggtæki í heimahúsi i gær-
dag og játaði eigandi þeirra að hafa
stundað brugg síðan um síðustu ára-
mót. Lögreglan komst að þessari á-
fengisgerð er maður einn kom inn á
lögreglustöðina um hálfsjöleytið í
gærkvöldi. Sagði hann farir sínar
ekki sléttar þar sem einhver vökvi,
sem líktist helzt bruggi, læki niður
úr loftinu hjá honum og niður á
stereógræjur hans.
Lögreglan fór með manninum
heim og stóðst það sem maðurinn
sagði, bruggi rigndi niður úr loftinu.
Húsbrot var gert á efri hæð, þar sem
eigandinn var ekki heima, og komu
lögreglumenn þá að fimm 40—50
lítra plastbrúsum. Voru allir tómir
nema einn sem oltið hafði á hliðina.
Þá var þarna gamall þvottapottur
sem breytt hafði verið í eimingar-
tæki. Lögreglan lagði hald á þessa
hluti og eigandinn náðist skömmu
síðar. Hann sagðist einungis brugga
fyrir sjálfan sig og hafa fengið um
100 lítra í hvert skipti sem hann hefur
lagt í. Manninum var sleppt eftir
skýrslutöku og verður málið nú sent
sýslumanni. Þá var sýni tekið af
vökvanum, sem fara mun tii Reykja-
víkur í efnagreiningu.
-ELA.
Raufarhöfn:
HJÓLIN TAKA AÐ
SNÚAST AÐ NÝJU
„Veiti Landsbankinn og Fram- dag. Forráðamenn Jökuls hafa talið
kvæmdastofnun okkur fyrirgreiðslu sig þurfa um 4 milljónir króna og
þá dettur þetta i gang um leið,” sagði verður reynt að leysa vandann fremur
Ólafur H. Kjartansson, fram- með innlendu fjármagni en erlendu.
kvæmdastjóri Jökuls á Raufarhöfn, „Við höfum veriö að dunda við
síðdegis 1 gær. Landsbankanum og lagfæringar á togaranum og það ætti
Framkvæmdastofnun hefur verið ekki að taka nema hálfan annan dag
falið að leysa vanda fyrirtækisins svo að gera hann kláran,” sagði Ólafur.
rekstur geti hafizt á ný og um leið Síðan yrði settur aukinn kraftur í
verður gerð úttekt á rekstri fyrir- skreiðarvinnsluna og gæti hún skaff-
tækisins. að umlO daga vinnu til þess að brúa
bilið þar til togarinn kemur ihn aftur.
Gert er ráð fyrir því að fulltrúar Þá hafa bátarnir verið aðgerðarlitlir
Landsbankans og Framkvæmda- ogkæmufyrrinnentogarinn.”
stofnunar haldi til Raufarhafnar í -JH.