Dagblaðið - 24.09.1981, Blaðsíða 2
2
*
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1981.
Fyrir
sláturtíðina
Ódýrar og vandaðar nælontunnur
?0 lítra m/góðu og öruggu loki.
ÍSLENZK MATVÆLI
Sími 51455.
EIGNANAUST HF.
SKIPHOLTl 5
SÍMAR 29555 OG 29558
OPIÐ KL. 1-5 LAUGARDAGA OG SUNNUDAGA.
Baldursgata
2ja herb. ósamþykkt kjallaraíbúð, verð kr. 200.000,00.
Dvergabakki
3ja herb. 83 ferm íbúð á 3. hæð, mjög vönduð og góð eign,
verð kr. 500.000,00.
Melgerði, Kóp.
3ja herb. 70 ferm risíbúð í tvíbýli, verð kr. 400.000,00.
Hörgshlíð
Einstaklingsíbúð til sölu. Verð tilboð.
Hallveigarstígur
2ja herb. stór ibúð á jarðhæð, verð kr. 370.000,00.
Vesturberg
3ja herb. íbúð á jarðhæð, 83 ferm, verð 500.000,00.
Ljósheimar
3ja herb. íbúð á 4. hæð, 80 ferm, fæst helzt í skiptum fyrir
sams konar eign með stórum stofum.
Leirubakki
4 herb. plús eitt herb. í kjallara, mjög fallegt tréverk, vönd-
uð eign, verð kr. 700.000,00.
Lækjarkinn
3 svefnherbergi plús tvær samliggjandi stofur og 2 stór her-
bergi í kjallara, alls 120 ferm, bílskúr, verð kr. 780.000,00.
Kaplaskjólsvegur
5 herb. íbúð á 4. hæð og í risi, alls 140 ferm, verð kr.
650.000,00.
Breiðás
5 herb. stór sérhæð, falleg ræktuð lóð, fagurt útsýni,
bílskúrsréttur, verð kr. 700.000,00.
Álfheimar
4 herb. íbúð, 110 ferm, á 3. hæð, fæst í skiptum fyrir góða
3ja herb. íbúð.
Innri-ISIjarðvík
Einbýli, 127 ferm., tilboð óskast.
Reykjavegur — Mosfellssveit
Einbýlishús sem er 4 stór svefnherbergi, 2 samliggjandi
stofur, eldhús og bað plús 50 ferm bílskúr, verð
1.000.000,00.
Esjugrund, Kjalarnesi
Sökklar að raðhúsi, allar teikningar fylgja, búið að greiða
öll lóðargjöld. Verð 180.000.00.
Sandgerði
Einbýlishús, 140 ferm plús 50 ferm bílskúr, verð kr.
850.000,00.
Sandgerði
3ja herb. 110 ferm íbúð í tvíbýlishúsi, verð kr. 240.000,00.
Selfoss
Einbýlishús á 2 hæðum, stór bilskúr, verð kr. 600.000,00.
Skerjafjörður
Höfum verið beðnir að útvega góða byggingarlóð fyrir
mjög fjársterkan kaupanda.
Óskum eftír
3ja herb. íbúð á Grundunum Kópavogi eða Fossvogi,
einbýlishúsi í gamla bænumn, með bílskúr, einbýlishúsi.
eða góðri sérhæð i Kópavogi, sérhæð eða raðhúsi i Heima-
hverfi, Langhoíti eða Laugarnesi.
SKOÐUM 0G METUM ÍBÚÐIR
SAMDÆGURS.
GÓÐ 0G FUÓT ÞJÓNUSTA
ER KJÖR0RÐ 0KKAR.
AUGLÝSUM ÁVALLT í DAGBLAÐINU
Á ÞRIÐJUDÖGUM 0G FIMMTUDÖGUM.
EIGNANAUST,
ÞORVALDUR LÚÐVÍKSSON HRL.
Mælingarþræll segfr,«ð I tilefni af lagningu hornsteins Þjóöarbókhlöðu haB fyrirfólki verið boðið en verkamenn „beðnir
um að hafa hljótt um sig”. DB-mynd: Hörður.
UmJónogséra Jón:
Eiga ekki allir að
gleðjast og fagna?
— þegar haldið er upp á tímamót bygginga, spyr verkamaður
Mælingarþræll no. 7813—5565,
skrifar:
Nokkur undanfarin ár hef ég unnið
við byggingu ýmissa opinberra stofn-
ana og alltaf er það sama sagan,
þegar haldið er upp á áfanga og tíma-
mót bygginganna, þá eru þrælarnir
fjarlægðir af staðnum og að drífur
skrautbúið embættismannalið. Nú
stendur fyrir dyrum lagning horn-
steins Þjóðarbókhlöðu og enn skeður
það sama; rokið er til og smiðaður
breiður stigi, tjaldaður innan salur,
slegið upp veitingaborðum, sendir út
150 boðsmiðar til einhvers útvalins
hóps, en þeir sem byggja húsið eru
beðnir að hafa hljótt um sig og spilla
ekki veizlugleðinni. Mér er spurn, er
þetta ekki Þjóðarbókhlaða? Eiga
ekki allir að gleðjast og fagna?
Enn um björgunarbátinn f rá Austurbakka hf
Kaupandi og seljandi
á öndverðum meiði
— hvor hef ur rétt fyrir sér?
Garðar Björgvinsson, útgerðar-
maður, Raufarhöfn, skrifar:
Enn skrifa ég um björgunarbátinn
frá Austurbakkahf.
Árni minn, svar þitt, sem birt var
við hlið greinar minnar í DB, föstu-
daginn 11. september, bar ótvírætt
merki um fávizku og innantómleika.
Ég bar á þig að þú hefðir afhent
mér annan björgunarbát en þú seldir
mér, og það ætla ég mér að sanna
hér. Ég sagði í greininni að með þessu
framferði þínu hefðirðu sýnt mér og
skipshöfn minni banatilræði og ég
endurtek það.
Ég held líka að það geti varla verið
að þessi allslausa blaðra, sem þú lézt
mig fá, hafi kostað jafn mikið og
þessi vandaði björgunarbátur, er þú
seldir mér, og lýstir svo vel fyrir mér
frábærum kostum hans, sérstakri
efnisþykkt og fl. sem þú tókst til, og
þá ertu í ofanálag þjófur.
Þú bjargar ekki málstað þínum
með slúðursögum. Ég vil líka benda
þér á að fara rétt með það sem þér er
sagt.annað gæti valdið misskilningi.
Þú opinberaðir sérstaklega fávizku
þina með því að ljóstra upp nafni og
gerð björgunarbátsins, sem þú lézt
mig fá, en þú gazt nú reyndar ekki
gertannað.
Þú segir í svari þinu að hann sé af
Seamaster-gerð, en hér geta allir séð
að þú seldir mér Seafarer björgunar-
bát með tvöföldum botni, mat-
vælum, blysum, lyfjum og ýmsum
öðrum búnaði. Ég bað þig um sér-
lega vandaðan björgunarbát i nýjan 8
tonna dekkbát. Ég sendi þér meira að
segja mynd af bátnum og svo segirðu
í greinninni að þessi björgunarbátur,
sem þú lézt mig fá, sé ekki viður-
kenndur nema fyrir opna báta.
Hvernig er nú hægt annað en að
verða vondur út af svona meðferð.
fólk má bara segja að ég sé ruddi, að
skrifa svona harðorðar greinar, en
hvern djöfulinn á maður að gera,
þegar engin lög virðast vera til í þessu
landi? Þetta mál er nú búið að liggja
á borði lögfræðings i allt sumar.
Árni minn, ég ætla nú ekki að
þinga þig um mikið meira, því mér
finnst eins og ég sé að lemja á ein-
hverjum vesalingi, sem ekki getur
varið sig. Þú lofaðir að skipta við mig
um björgunarbát í vor, þegar þessi
svik þín urðu augljós, en það var
bara alltaf eitthvað í veginum.
Þú sagðir ýmist að pabbi væri að
fara úr landi, eða alveg að koma, og
einu sinni varst þú að fara sjálfur.
Svo var sölustjóri Dunlop i
einhverjum ferðahugleiðingum líka
— og á þessu átti ég að fljóta með
mína menn, ef skip mitt hefði
brunnið eða sokkið, eða til hvers
heldurðu annars að björgunarbátur
sé?
Að síðustu þetta og læt ég fylgja
ljósrit máli mínu til sönnunar.
Athugaðu að þú seldir mér Seafarer
en lézt mig fá Seamaster — allslausa
blöðru, sem ég þurfti að kaupa allt í,
eins og meðfylgjandi ljósrit af
reikningi sannar.
Blaðra þessi er ólögleg, eins og þú
veizt og ert búinn að viðurkenna. Þú
segir að ég hafi verið með hótanir við
þig, en ég get fullvissað þig um að
það er misskilningur.
Ég segi aldrei og framkvæmi aldrei
neitt annað en það sem ég er maður
til að standa við. Til þess að spara
símtal og vafstur ætla ég að láta þig
vita hérmeð, að ég ætla að kaupa
Viking-björgunarbát fljótlega,
sambærilegan þeim, sem ég átti að fá
hjá þér og borgaði en fékk ekki.
Og ég ætla að koma með reikning-
inn í eigin persónu til þín og vona að
þú hafir vit á því að greiða hann á
staðnum. Þetta er ekki hótun, heldur
bláköld staðreynd.
Seafarer er mun dýrari
báturen Seamaster
Svar Árna Þórs Árnasonar, hjá
Austurbakka hf., tíl Garðars
Björgvinssonar:
„Seafarer er helmingi dýrari bátur
en Seamaster og hefði ég auðvitað
selt þér hann ef þú hefðir ekki verið
áfjáður í að kaupa þann ódýrari.
Mynd af bát þínum sá ég ekki fyrr en
í marz sl. og skildi þá hvers vegna þú
áttir í erfiðleikum með að fá bátinn
samþykktan hjá skoðunarmanni.
„Seafarer er helmingi dýrari bátur en
Seamaster”, seglr Árni Þór Árnason
hjá Austurbakka hf.
Dunlop fyrirtækinu var gerð grein
fyrir kröfum þínum sem þeir höfn-
uðu alfarið.
Ég hafði samband við mætan lög-
fræðing, á Akureyri, sem þú nefndir 1
vor, til þess að undirstrika hversu
stór karl þú værir. Hann sagðist ekki
koma nálægt málum Garðars
Björgvinssonar, hvaða fé sem væri i
boði. Þú sendir honum bréf í sumar
sem hann endursendi. Hins vegar
sagðist hann vera með mál á hendur
þér. Svo mörg voru þau orð. Upp-
skera þín í lífinu er eins og þú sáir og
þú kemst lengra með jákvæðu hugar-
fari og heilbrigðari sjálfsmynd heldur
en þú hefur sýnt hingað til.
Lögfræðingur fyrirtækis okkar
mun annast öll samskipti við þig i
framtíðinni og munum við stefna þér
fyrir atvinnuróg”.