Dagblaðið - 24.09.1981, Side 3
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1981.
3
Óhuggulegt að horfa
ff
á aöfarir lögreglunnar”
— segir Vesturbæingur, sem fylgdist með handtöku við Tjörnina
Vesturbæingur hringdi:
Ég get ekki orða bundizt yfir ljótu
atviki, sem ég varð vitni að fyrir síð-
ustu helgi. Það hófst þannig að þrír
góðglaðir sjóarar dembdu sér í
Tjörnina í Reykjavík og ætluðu að
synda út í hólma. Tveir komust á
sundi en sá þriðji varð eftir og festist í
botnleðjunni. Botninn er greinilega
mjög laus í sér, því maðurinn sökk
stöðugt dýpra og stóð á endanum í
vatni og leðju upp á bringu. Þannig
var hann fastur, í nærbuxum og bol
einum fata, í um hálfa klukkustund
áður en lögregla kom á vettvang með
bjarghring. P
Maðurinn var svo dreginn í land,
kaldur og orðinn blár af vosbúðinni.
Þegar hann var kominn upp á bakk-
ann ruddust að honum tveir sterk-
legir lögregluþjónar, hrintu honum á
undan sér, sneru upp á handleggi
hans, ruddust með hann í gegnum
mannþröngina og bókstaflega
skutluðu inn í lögreglubílinn. Það sló
þögn á mannfjöldann, sem þarna
hafði safnazt saman, og síðan fóru
einstakir menn að kalla að lögreglu-
þjónunum athugasemdir við þessa
framkomu en þá fór einn lögreglu-
þjónanna á eftir manninum inn í bíl-
inn og tuskaði hann eitthvað til. Þá
hafði engum þessara laganna varða
dottið í hug að lána ísköldum mann-
inum teppi hvað þá heldur fötin
hans, sem félagi hans hafði komið
með.
Ég verð að segja eins og er, að mér
fannst óhuggulegt að horfa upp á
þetta. Hingað til hefur maður lítinn
trúnað lagt á sögur um ofbeldi lög-
regluþjóna en eftir þetta. . . . ja, þá
veit ég ekki hverju trúa skal.
Um auglýsingu innheimtudeildar Sjónvarpsins:
Fáar auglýsing-
ar hafa vakið
meiri athygli
— það er tilgangur auglýsinga
Brosleit skrifar:
Þegar ég sá margumrædda auglýs-
ingu innheimtudeildar Sjónvarpsins,
brosti ég með sjálfri mér og vissi
mæta vel á hverju var von. Nú
niyndu allar leiðindakerlingar i
bænum, karlkyns sem kvenkyns,
taka sig til og hringja í fjölmiðla til
þess að mótmæla sliku „hneyksli”.
Enda kom í ljós að ekki þarf mikið
til þess að vera forspár á íslandi, þar
sem spámennskan virðist raunar vera
drjúg tekjulind. Svo til samstundis
gall i hjáróma röddu grámyglunnar:
„Léttklætt kvenfólk og klæddur
karlmaður” — eða hvernig jjetta nú
var. Ég gat nú ekki betur séð en að öll
væru þau klædd og það frá hvirfii til
ilja. Kvenfólkið hafði meira að segja
höfuðföt fram yfir karlmanninn.
Alveg finnst mér samt keyra um
þverbak, þegar Jafnréttisráð sá sinn
kost vænstan að rjúka upp til
Raddir
lesenda
handa og fóta með sinn hluta af mót-
mælunum. Og það minnir mig
raunar á hvort ekki áttu sér stað
einhver mistök í nafngift þess hóps.
Hefði Forréttindaráð ekki hæft
honum betur?
Eru þessar hótanir opinberra
stofnana svo eftirsjárverðar að engin
þeirra megi bregða út af þeirri hefð?
Þær konur, sem gaspra hæst um
siðprýði og „misnotkun” kvenlík-
amans skyldu þó aldrei vera þær sem
enginn karlmaður lítur við? öfund-
sýkin skyldi þó ekki vera drifkraftur
margra þessara mótmæla? Við getum
þá huggað okkur við það, að tölu-
verður hópur kvenna hlýtur að vera
mjög til fyrirmyndar. Það er auðvelt
að vera siðprúður, ef enginn lítur við
manni.
Ég óska Sjónvarpinu til hamingju
með vel heppnaða auglýsingu, því
fáar síikar hafa vakið meira umtal —
það er tilgangur auglýsinga að vekja
athygli.
Lögreglunni hefur stundum verið brugðið um fantaskap. Vesturbæingur segir frá
einu sliku atviki.
Hrifinn af lista-
fólki frá Grúsíu
— „ekkert minnzt á þessa góðu
gesti íblöðum”
V. S. skrifar:
Nú fyrir stuttu hélt listahópur frá
Grúsíu í Sovétríkjunum tvær stór-
kostlegar sýningar í Þjóðleikhúsinu,
við fádæma hrifningu áhorfenda,
enda voru þarna á ferðinni stórkost-
legir listamenn og þekktir.
Allt listafólkið var frábært og ber
vissulega að þakka slíkar heimsóknir
— hvaðan sem þær koma — en sem
íslendingur skammast ég mín fyrir
landa mína því ekkert var minnzt á
þessa góðu gesti í blöðum.
Ég les að staðaldri Dagblaðið, Visi
og Morgunblaðið og ég minnist þess
ekki að listgagnrýnendur þessara
blaða haft minnzt einu orði á þetta
ágæta listafólk. f Vísi kom smá-
klausa, með mjög smáu letri og
lélegri mynd, um að fiokkur þessi
hefði sýnt víða um land.
Uppselt var á föstudagskvöldið en
ég átti því láni að fagna að sjá auka-
sýningu á laugardeginum og svo
sannarlega var sýningin með því allra
bezta sem ég hef séð, og viðtökurnar
eftir þvi.
Daginn eftir sagði útvarpið svo frá
frönskum snillingi sem sýndi síðar
um kvöldið, einnig við mikla
hrifningu, en hvorki útvarp né sjón-
varp minntust á listafólkið frá
Grúsíu. Ég álít að fréttastjórar hafi
sýnt mikið sinnuleysi og harma ég
það.
Hringiö í sinia
w^- KUNSEVO
í kvöld — Laugardalshöll
bí*m-«115
eða skrit»ö
við Suðurgötu/Fálkagötu
Opið 8.00-23.30.
VBmtFEUL
Þverbrekku 8, Kópavogi.
Simar 42040 og 44140.
7--------v
Spurning
Hovfir þú á sjón-
varpsþætti um þjóö-
félagsvandamál?
Hreggviður Jónsson, samvinnuskóla-
nemi: Nei.
Margrét Egilsdóttir, húsmóðir: Ég
myndi horfa á þá á mánudags- og
þriðjudagskvöldum, en þeir eiga ekkert
erindi í helgarsjónvarp.
Gylfi Ármannsson, verzlunarmaður:
Nei, alls ekki.
Guðrún Einarsdóttir, húsmóðir: Já, já,
ég horfi á þá.
Elfas Jónsson, fyrrv. starfsmaður Raf-
magnsveitu rikisins: Jú, jú. Það mætti
vera meira um þá.
Þórhildur Einarsdóttir, húsmóðir: Já,
venjulegast, en mér finnst að siíka
þætti ætti einungis að sýna fyrri part
viku og ekki um helgar.