Dagblaðið - 24.09.1981, Page 5
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1981.
5
IfýfUUittuH if-
*f ' /**' ''}*')
Jútipt***&&
£-/<» ft/ífcr. 4 fhiww
CJÚ^.t'O111}*» ff 2j
• v íffc / fHtv*-# 1
£.&OtU~ 2*/-\
ffT *f i /M*rr0 J
l/cpi-t •*•** 3m
Veljið réttar t egundir saman:
Laukplöntum-
ar eru sannkall-
aður sumarauki
„Það er afar erfitt að mæla með
einhverju sérstöku afbrigði, en ég er
alltaf langhrifnastur af appeldoorm
túMpönum. Þeir eru afar hávaxnir,
ailt að 50 cm á hæð, og mjög
fallegir,” sagði Ragnar Petersen.sem
rekur blómaverzlunina Alaska við
Miklatorg. Enn þá voru nokkrar
tegundir af túlípönum til í Alaska, en
Ragnar sagði að mikið hefði verið
keypt undanfarna daga.
Hann sýndi okkur litlar laukplönt-
ur, sem hægt er að hafa ánægju af
frá því seint á veturna og þar til langt
er komið fram á vor og sumar.
Fyrstur er vorboðinn og þá anemón-
urnar og aðrar plöntur. Ragnar hafði
á boðstólum sérstaklega fallegar,
allavega bleikar anemónur eða
skógarsóleyjar eins og þær heita á
íslenzku. Hann sýndi okkur einnig
svokallaðar stjörnuklukkur, sem við
höfum raunar ekki séð fyrr, í blönd-
uðum lit. Ragnar sagði vepjuliljur,
köflóttar liljur, afar fagrar, með líkt
og „hangandi” haus og sagði þær
mjög vinsælar um þessar mundir.
„Það er enginn vandi að hafa
blómstrandi laukplöntur yfir langan
tíma. Það er bara að raða saman rétt-
um tegundum. Sumar tegundirnar
blómstra snemma og þannig er hægt
að lengja þann tima sem menn hafa
ánægju af laukunum sínum. Við
veitum góðfúslega leiðbeiningar við
val á laukunum og bendum á hvað
fer velsaman,” sagði Ragnar.
Við spurðum hann hvar væri
heppilegast að gróðursetja túlípan-
ana, upp við húsið eða úti í garðin-
um.
„Ef þeir eru gróöursettir upp við
húsið er hentugra að velja frekar lág-
vaxnar tegundir. Þar sem beðið upp
við húsið er mun hlýrra en úti í
garðinum koma blómin fyrr upp,
jafnvel það snemma að enn er allra
veðra von. Það eru blöðin sem þola
ekki mikið frost, þegar þau eru
komin. Hávöxnu túlípanarnir henta
betur úti í garðinum. Litlu laukplönt-
urnar er skemmtilegt að gróðursetja
saman í þyrpingu, t.d. í steinhæð, inn
á milli trjáa og einnig annars staðar í
garðinum þar sem ekki situr vatn að
vetrinum til,” sagði Ragnar.
— Koma túlípanarnir upp aftur
næsta ár?
„Já, þeir gera það. En eftir því sem
þeir verða eldri vilja þeir verða
minni. Það er ágætt að hafa það fyrir
sið að bæta nokkrum laukum við á
hverju ári. Þannig fær maður heilt
haf af mismunandi stórum túlipön
um, sem er alveg sérstaklega fagurt á
að líta.
Til þess að laukarnir blómgist aftur
árið eftir verður að gæta þess að
klípa blómið af þegar það er farið að
visna og láta grænu stilkana standa í
minnsta kosti mánuð. Þá á að skera
þá af niður við rót. Þetta hefur í öllu
falli reynzt mér mjög vel. Það
stendur i blómabókum að það sé gott
aö taka laukana upp i ágúst, þurrka
þá og planta þeim síðan aftur út
seinast í september. En þetta er
svoddan fyrirhöfn að fólk nennir
ekki að standa i þvi,” sagði Ragnar.
Loks sýndi hann okkur jóla-
hyacynturnar sem hann átti til og
voru þærí níu litum.
„Það er hægt að hafa blómstrandi
hyacyntur inni hjá sér í potti alveg frá
því í nóvember og fram á vor, með
því að setja þær niður á mismunandi
tíma. Ef þær ætla að verða of fljótar
á sér er ekki að gera annað en að
stinga laukunum í kæliskápinn”,
sagði Ragnar Petersen.
Sem dæmi um verð á laukunum í
Alaska má nefna að stykkið af jóla-
hyacyntunum er á 7,30 kr., túlípan-
arnir kosta 22 kr. pakkinn með sjö,
átta og tíu laukum í pakka, 15
vorboðar kosta 20 kr.
Nú er bara eftir að setja laukana
niður og bíða svo rólegur þangað til
þeir stinga höfðinu upp úr jörðunni í
vor.
Ragnar Petersen hefur á boðstólum gott úrval af jólahyacyntulaukum, hvorki
meira né minna en niu tegundir.
DB-mynd Bjarnleifur.
JE
Helgi Hóseasson enn á ferðinni:
STJÓRNARÁÐSHÚSIÐ
ATAÐ TJÖRU í GÆR
„Hann hafði lengi verið að undirbúa
þetta, var búinn að tala um að gera
þetta í allt sumar,” sagði einn vinnufé-
laga Helga Hóseassonar, sem í gær tók
sig til og ataði Stjórnarráðshúsið ein-
hvers konar tjörublöndu, sem hann
hafði krækt sér í á vinnustað sínum.
Helgi hafði verið að vinna við Bern-
höftstorfuna, andspænis Stjórnarráðs-
húsinu.
Að sögn þeirra, sem til þekkja, mun
Helgi hafa valið þessa blöndu þar sem
sérstaklega erfitt væri að ná henni af.
Helgi hefur áður orðið uppvís að hlið-
stæðum uppátækjum, sem hann hefur
beitt í baráttu sinni við „kerfið”.
Hefur hann farið fram á að skírnarsátt-
mála hans, sem gerður var að honum
ómálga, verði rift og það skráð í
kirkjubækur og þjóðskrá. Til þessa
hefur ekki verið orðið við beiðni hans.
-SSv.
Stjórnarráðshúsið er illa leikið eftir tjörugusur Helga Hóseassonar.
DB-mynd: Sig. Sverrisson.
★VERÐ AÐEINS ca Kr. 66.990 “ RYÐVÖRN ★
Suðurlandsbraut 14 - Sími 38-600