Dagblaðið - 24.09.1981, Side 6
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1981.
@)TOYOTA
SALURINN
SÍMI44144
Toyota Starlet ’78. Eldnn 28.000.
Blár. Verð kr. 65.000.
Toyota Corolla, sjálfskiptur, árg.
’79. Grár. Verð kr. 78.000. Ekinn
14.000 km.
0TOYOTA
Toyota Corolla Liftback ’79. Ekinn
27.000. Orange. Verð kr. 88.000.
SALUMNN
Nýbýlavegi 8 (bakhús)
Opið laugardaga kl. 13—17
Toyota Corolla station '77. Ekinn
100.000. Gulur. Verð kr. 53.000.
Datsun disil
110.000. Grár.
árg. ’77. Ekinn
. 70.000.
Toyota Cressida station, sjálfskipt-
ur, árg. ’78. Ekinn 27.000. Grænn.
Útvarp/segulband, áklæði á sæt-
um. Verð kr. 96.000.
Toyota Tercel '79. 2ja dyra, 5 gira.
Ekinn 24.000. Gulur. Verð kr.
76.000.
Galant, sjálfskiptur, árg. *80. Ekinn
18.000. Drappl. Verð kr. 105.000.
Toyota Crown dísil '80. Ekinn
47.000. Gullsans. Verð kr. 155.000.
Peugeot 504 ’78. Ekinn 96.000.
Rauður. Verð kr. 80.000.
f
Erlent
ErKent
Erlent
Bandaríkjamenn hefja útvarpssendingartil Kúbu:
Segja Castro ijúga aö
kúbönskum almenningi
— Búizt við að Castro verði lítt hr'rf inn af hugmyndinni
Bandaríkin munu bráðlega hefja
útvarpssendingar til Kúbu. Talsmenn
stjórnarinnar lýsa þessu sem fyrstu
áþreifanlegu aðgerðum forsetans
gegn stjórn Kúbuforseta, Fidels
Castro.
Eftir að hafa ásakað stjórn Castro
um að Ijúga að þjóð sinni um 20 ára
skeið sagði talsmaður Hvíta hússins
að Bandaríkjamenn ætluðu að út-
varpa til Kúbu til þess að fólkið gæti
komizt að sannlei kanum.
Útvarpsstöðin mun kosta um 10
milljónir dala. Fjárveitingin hefur
enn ekki verið samþykkt á þingi en
búizt er við að útsendingar hefjist i
janúar.
Talsmaðurinn sagði að útvarps-
stöðin ætti að vera i likingu við
Frjálsa Evrópu sem hefur útvarpað
til A-Evrópu og Sovétríkjanna í
meira en30ár.
Eru aðgerðir þessar einnig til að
mótmæla hernaðaraðstoð Kúbu-
manna við vinstrimenn víða um
heim.
Útvarpsstöðin mun bera nafnið út-
varp Marti, til heiðurs Jose Marti, Reagan:
kúbanskri frelsishetju sem lét lífið í Castro.
Harðar aðgerðir gegn
Castro: Sagður Ijúga að þjóðinni.
sjálfstæðisbaráttu Kúbu gegn Spán-
verjum ásíðustu öld.
Talsmaðurinn sagði að ekki yrðu
sendar út neinar æsifréttir þar sem
tilgangurinn væri ekki að stofna til
neinna uppreisna á Kúbu.
Ráðgjafi Reagans, Richard Allen,
tilkynnti fyrir hönd forsetans að
Castrostjórnin hefði haldið hernað-
araðstoð sinni við ofbeldi og bylting-
ar erlendis leyndri fyrir þjóðinni með
fréttafölsunum.
— Kúbönsku þjóðinni hefur verið
haldið niðri og hún mátt þola innræt-
ingu hreinræktaðrar marxleníniskrar
einræðisstjórnar i rúm 20 ár, segir í
tilkynningunni. — í viðbót við að
aðstoð- Kúbu við byltingarmenn í
Afríku og S-Ameríku hefur verið
haldið leyndri fyrir þjóðinni hefur
hún ekki heldur fengið neinar upplýs-
ingar um eigin hnignandi efnahag
þrátt fyrir mikla fjárhagsaðstoð frá
Sovétríkjunum.
Talsmaðurinn sagði að útsendingar
þessar myndu sjálfsagt orsaka harð-
orð mótmæli Castros en það væri
ekki unnt að stöðva þær nema eyði-
leggja um leið aðrar útsendingar á
Kúbu.
Kína:
Eyðing
skóga
orsakarflóð
Hverjum kínverskum borgara
verður nú talið skylt að planta þremur
til fimm trjám á ári og sjá síðan um á-
framhaldandi vöxt þeirra. Er þetta
þáttur í herferð til aukinnar skógrækt-
ar íKína.
Varaforsætisráðherra Kina, Wan
Li, segir að fólki sem ekki sinnir þessu
muni refsað. Hins vegar mun fólki sem
plantar fleirum en skyldutrjánum veitt
verðlaun.
Wan sagði að á siðastliðnum 30
árum hefðu sex milljónir hektara af
kínversku landi orðið uppblæstri að
bráð.
Einnig er talið að óhóflegt og fyrir-
hyggjulaust skógarhögg sé ein meginá-
stæðan fyrir flóðum, sem hafa á þessu
ári orðið 2000 manns að bana.
Wan sagði að trjágróður væri
nauðsynleg forsenda þess að jarðvegur
eyddist ekki og nefndi sem dæmi ógn-
vekjandi aukningu botnleðju í ýmsum
vatnsbólum.
FJÖLGUN í
DÝRAGARÐI
Kína tilkynnti i dag að enn hefði
tekizt að fá risa-þvottabirni til þess að
auka kyn sitt, þrátt fyrir að þeir væru í
dýragarði.
Samkvæmt kinversku frétta-
stofunni, ól hin 7 ára gamla Mei Mei 10
sentimetra (4 þumlunga) langan hvolp
hinn 18. september í Chengdu dýra-
garðinum.
Fjórum dögum áður litu tvíbura-
þvottabirnir dagsins ljós í Peking-dýra-
garðinum og annar þeirra lifði.
Þetta er í annað sinn sem Mei Mei
eignast unga í Chengdu-dýragarði. í
fyrra ól hún tvíbura eftir gervifrjóvgun
en þess þurfti ekki með í ár.
New York:
Amerísk sjónvarpsstöð sagði í gær-
kvöld að Bandaríkin, Egyptaíand,
Saudi-Arabía, Pakistan og Kína stæðu
saman að leynilegum vopnaflutningum
til skæruliða er berjast við sovézka
hermenn í Afganistan.
Eru þetta viðbótarupplýsingar við
þær er Sadat veitti í bandarísku sjón-
varpsviðtali og Dagblaðið skýrði frá í
gær. Stjórnin í Washington neitar enn
að tjásig um málið.
Neikvæður árangur
þróunaraðstoðar
Valda þau falli Margrétar?
Hinn nýstofnaði sósíaldemókrata-
flokkur í Bretlandi hefur, eins og fréttir
herma, ákveðið kosningabandalag við
Frjálslynda flokkinn og er samsteypu
þessari spáð sigri í næstu kosningum.
Myndin sýnir nokkra sigurstranglega
frambjóðendur og eru þeir talið frá
vinstri: William Rodgers, leiðtogi
sósíaldemókrata, Roy Jenkins, sósíal-
demókrati, David Steel, leiðtogi frjáls-
lyndra og Shirley Williams,
sósíaldemókrati.
Þetta hefur ýtt undír vaxandi
óánægju íhaldsmanna með Margréti
Thatcher, forsætisráðherra þeirra, og
er sagt, að a.m.k. um þriðjungur
flokksbræðra hennar vilji nú bola
henni frá og vinni ákaft að því bak við
tjöldin.
Er búizt við að til mikilla átaka
komi í íhaldsflokknum þegar þeir
endurkjósa formann í nóvember.
Vísindastofnunin Birla I Nýju-Delhi
hefur nýlega sent frá sér skýrslu þar
sem ráðizt er harkalega á þróunar-
aðstoð við Indland. Segir þar að 30 ára
erlend aðstoð upp á fleiri milljarða
króna hafi aðeins veikt vilja þjóðarinn-
ar til að nýta eigin auðlindir og gert
efnahagsmál landsins stöðugt háðari
þróunaraðstoð.
í skýrslunni snúa vísindamennirnir
máli sinu til Indiru Gandhi og krefjast
þess að eitthvað verði gert til að bæta
úr þessu ástandi.
Indverskir vinstrisinnar og mennta-
menn hafa árum saman varað við hætt-
um þeim sem fylgja siaukinni þróunar-
aðstoð, en þetta er í fyrsta sinn sem
hagfræðingar atvinnuveganna leggja
þeim jafnrækilega lið.
Þessi harða gagnrýni kemur einmitt
á sama tíma og Indverjar eru að ganga
frá nýju láni upp á 5 milljarða dala.
Sérfræðingar Birla álíta að þróunar-
aðstoðin hafi raskað jafnvæginu í efna-
hag landsins og eyðilagt allar tilraunir
til sjálfsbjargar. Aðstoðin hefur ekki
orðið nein kveikja að auknum þjóðar-
tekjum, heldur komið í veg fyrir
aukinn útflutning og örvað innflutning
á óþarfa neyzluvörum og óheppilegum
tækniaðferðum.
Harðast gagnrýna sérfræðingarnir
þó matvælaaðstoð Bandarikjanna við
Indland. Því er haldið fram að
indverskum valdhöfum hafi fundizt
ódýrara og þægilegra að taka við gefins
matvælum en örva bændur til frekari
framleiðslu. Ennfremur segja þeir að
Indira Gandhi: Auflveldara að þiggja
en örva framleiðslu.
gefendur hugsi oft meira um hagsmuni
eigin iðnaðar í sambandi við aðstoð en
þarfir Indlands.
mm